Þjóðviljinn - 11.09.1986, Side 13
DJÓÐVILJINN
og
þetta
líka...
Sirkusar
í Finnlandi mega ekki lengur nota
fíla og önnur stór villidýr í sýning-
um sínum frá næsta mánuði að
telja, að því er embættismaður í
landbúnaðarráðuneytinu sagði
fréttamönnum í gær. Felst þetta í
reglum, sem banna illa meðferð á
skepnum og eiga að fara að ganga
í gildi. Embættismaðurinn
Pirkko Skutnabb sagði að þetta
bann næði til margra villidýra,
svo sem fíla, krókódíla, flóð-
hesta, nashyrninga, ránfugla, apa
og kengúra. Dýravernundarfélög
bæði í Finnlandi og annars staðar
á Norðurlöndum hafa lengi barist
fyrir því að slíkt bann yrði sett, og
nær það bæði til finnskra sirkusa
- sem eiga nú sem komið er ein-
ungis tvo fíla - og til erlendra
sirkusa sem koma til Finnlands
og halda þar sýningar. „Hér á
landi er vestur-þýskur sirkus með
sex fíla og fær hann leyfi til að
ljúka sýningarferð sinni í næsta
mánuði, en síðan verður erfitt
fyrir sirkusa með slík dýr að fá
leyfi til sýninga", sagði embættis-
maðurinn.
Ljóðasafn
eftir rússneska skáldið Nikolai
Gumilyou, sem skotinn var 1921
fyrir gagnbyltingarstarfsemi og
hefur verið bannaður síðan,
verður nú gefið út í Sovétríkj
um, að sögn blaðsins „Sovietsk-
aya kultura". Blaðið sagði að von
væri á bókinni innan tíðar, en
nefndi ekki hve stórt upplagið
myndi verða. Búist er við því að
eftirspurnin verði mikil, því að
Gumilyou er talinn til meiriháttar
skálda, en hingað til hafa einung-
is sérfræðingar haft aðgang að
verkum hans. „Árum saman var
ekki aðeins ógerningur að birta
verk eftir hann, heldur jafnvel að
nefna nafn Gumilyous“ sagði
blaðið. Vegna frjálslyndari
stefnu Gorbatséffs í menning-
armálum hafa nokkur kvæði og
bréf eftir Gumilyou verið prent-
uð í tímaritum á þessu ári til að
minnast þess að hundrað ár eru
liðin frá fæðingu hans. Gumilyou
var giftur skáldkonunni Önnu
Akhmatovu, sem er enn þekkt-
ari. Hann var skotinn 1921, því
að hann „var ósammála bylting-
unni og flæktist í gagnbyltingar-
samsæri“, eins og Sovéska al-
fræðibókin segir.
Vatnabuffall
slapp nýlea úr sláturhúsi í Kanton
í Suður-Kína og gekk berserks-
gang í grennd við það, að sögn
dagblaðs frá þessum slóðum.
Særði dýrið tólf menn áður en
lögreglan kom því fyrir kattarnef
með vélbyssu.
Umsjón:
Einar Már
Jónsson
Noregur
Norðmenn
draga úr
olíuútflutningi
til að styrkja olíuverð á mörkuðum
Osló - Norsk yfirvöld tilkynntu
í gær að dregið yrði úr útflutn-
ingi olíu frá Norðursjó um tíu af
hundraðj í nóvember og des-
ember. Er þessi ákvörðun í
samræmi við þá stefnu stjórna
Opec-ríkjanna að minnka það
olíumagn sem er á markaði til
að koma í veg fyrir verðfall.
Talsmenn norska olíu- og orku-
málaráðuneytisins tilkynntu að
sú olía, sem olíuframleiðendur
afhenda yfirvöldum síðustu mán-
uði ársins upp í skattgreiðslur,
yrði sett í geymslu og höfð sem
neyðarbirgðir. Á þann hátt væri
hægt að draga úr olíuútflutningi
um tíu af hundraði í nóvember og
desember. Norska stjórnin hafði
áður tilkynnt að hún myndi taka
þátt í aðgerðum til að styrkja
olíuverðið, ef Samtök olíuútflytj-
enda (Opec) gætu fengið stjórnir
olíuvelda til að draga úr fram-
leiðslunni. Ákveðið var á fundi
Opec-ríkjanna í ágúst að aðildar-
ríki samtakanna, sem eru þrettán
að tölu, skyldu framleiða olíu
eftir ákveðnum kvótum.
Norðmenn framleiða 880.000
tunnur af hráolíu á dag, en
vinnsla nýrra olíulinda gæti vald-
Olíuborun á Norðursjó.
ið því að framleiðslan kæmist upp
í miljón tunnur.
Athygli manna beinist nú að
Bretum sem framleiða um 2,5
miljónir tunna af olíu á dag.
Margaret Thatcher mun ræða við
Gro Harlem Bruntland, forsætis-
ráðherra Norðmanna, í dag, en
hingað til hafa Bretar skellt skoll-
aeyrum við allri hvatningu til að
minnka olíuframleiðslu sína og
telja þeir að markaðsöflin ein eigi
að ákveða olíuverðið. í júlí féll
olíuverðið, sem var 40 dollarar á
tunnu rétt eftir 1980, niður í tíu
ísraelsmenn gera árás
á Suður-Líbanon
Sidon - A.m.k. þrír menn létu
lífið og þrettán særðust þegar
ísraelskir herbátar skutu eld-
flaugarskotum á bækistöðvar
Palestínuaraba I Suður-
Líbanon I gær. Þetta var fyrsta
árás ísraelsmanna á líbanskt
land síðan ísraelskar herflug-
vélar gerðu árás á Palestínu-
menn í Bekaa-dal fyrir mánuði
og urðu átta mönnum að bana.
Talsmaður hersins í Tel Aviv
sagði að þessi árás hefði verið
gerð í dögun, eftir að ísraelsk her-
skip hefðu komið í veg fyrir til-
raun skæruliða til að laumast inn í
ísrael sjóleiðis. í tilkynningu sem
Palestínumenn birtu í Sidon sagði
að margir skæruliðar hefðu verið
á leiðinni til ísraels í fyrrinótt,
þegar byssubátur réðst á farkost
þeirra. Hefði komið til bardaga,
sem staðið hefði í tvær stundir, og
hefðu skæruliðarnir orðið að
hörfa aftur til stranda Líbanons.
Talsmaður hersins sagði að
árás ísraelsmanna hefði beinst
Yamoussoukro - Frá Rauða
hafinu og næstum því allar
götur suður að Góðrar vonar
höfða ógna nú engisprettur
Afríku, og sagði yfirmaður
þeirrar stofnunar Sameinuðu
þjóðanna, sem sér um þessi
mál, að þetta væri versta engi-
sprettuinnrásin í fjörutíu ár.
Yfirmaðurinn, Lukas Brader,
sem er staddur í Yamoussoukro,
höfuðborg Fflabeinsstrandarinn-
ar, á ráðstefnu landbúnaðarráð-
herra Afríkuríkja, sagði frétta-
mönnum, að ef ekkert yrði að
gert myndu engisprettur bráð-
lega eyðileggja uppskeru í stór-
um hlutum Austur- og Suður-
Útlögum bannað að koma til Chile
Buenos Aires - Vopnaðir ör-
yggisverðir komu i veg fyrir að
um þrjátíu útlagar, sem ætluðu
að fara frá Argentínu til Chile,
kæmust út úr flugvélinni á
flugvellinum í Santiago. Urðu
þeir að snúa aftur til baka með
sömu vél.
Haft var eftir einum útlaganna,
Julieta Campusano, fyrrverandi
öldungadeildarmanni, að fjöru-
tíu vopnaðir verðir hefðu komið
um borð í flugvélina og bannað
farþegum að hreyfa sig. Mikill
viðbúnaður hersins var á flugvell-
inum, og öryggisverðir gerðu
upptækar filmur argentínskra
fréttamanna. Flugvélin beið í
fjóra tíma, og reyndu Argentínu-
menn að tala máli útlaganna við
yfirvöld Chile en án árangurs.
Meðan þetta gerðist héldu stuðn-
ingsmenn Pinochet útifund í
Santiago og báru spjöld með á-
skorunum um að „binda endi á
hryðjuverkastarfsemi“.
dollara á tunnu, en það fór aftur
upp í 15 dollara eftir samþykkt
Opec-ríkjanna um takmörkun
framleiðslu.
Sérfræðingar efast þó um að
þessi samþykkt haldist í gildi
lengur en fram að næsta fundi
Opec-ríkjanna 6. október, og spá
þeir því að stjórnir aðildarríkj-
anna fari þá að deila um hluti sína
í markaðnum. Fréttir herma að
olíuframleiðsla í Saudi-Arabíu og
emírötunum við Persaflóa sé nú
meiri en nemi kvóta þessara
ríkja.
gegn bækistöð skæruliða í suður-
jaðri Sídon-borgar sem notuð
hefði verið til árása gegn ísrael.
Heimildarmenn í Sídon sögðu,
að eldflaugarnar hefðu fallið á
iðnaðarhverfi, og var haft eftir
vitnum, að hundrað verslanir
hefðu skemmst eða eyðilagst,
þriggja hæða hús hrunið í rúst, og
fjöldi manna flúð heimili sín.
„Þetta var eins og jarðskjálfti,
dyrnar ruku af hjörum og him-
inninn var fullur af reyk“, sagði
einn íbúi hverfisins.
Engisprettur ógna Afríku
Afríku. Fjórar tegundir af þess-
um skorkvikindum dafna nú vel
vegna rigninganna þetta ár, sem
bundu endi á margra ára þurrka-
tímabil, og hefur ein tegundin
fjölgað sér svo mikið að þegar er
litið á hana opinberlega sem
plágu.
Brader sagði að engisprettur
ætu allt, og reiknaðist honum svo
til að í engisprettusveim, sem
næði yfir ferkflómetra, væru 60
miljónir skordýra og gætu þau
eyðilagt hundrað tonn af upp-
skeru á einum degi. Tegundirnar
fjórar halda sig á mismunandi
stöðum í álfunni, en þegar skor-
dýrin eru fullorðin geta þau
flakkað mjög mikið; ein kynslóð
getur þannig farið yfir mörg
hundruð kílómetra. Brader sagði
að áætlun um aðgerðir gegn þess-
ari plágu hefði verið lögð fram á
fundi í júlí.
Fórnarlömb
hryðjuverka-
manna
grafin
Istanbúl - Nítján Gyðingar, sem
sjálfsmroðssveit arabískra
hryðjuverkamanna skaut til
bana í bænahúsi á laugardag-
inn, voru bornir til grafar í Ist-
anbúl í gær, og fór jarðarförin
fram frá bænahúsinu, þar sem
hryðjuverkin voru framin.
Fengu ekkjur og ættingjar
hinna iátnu þau fáu sæti sem
ekki höfðu skemmst í árásinni,
en alls staðar voru sýnileg
kúlnaför og brunaskemmdir.
Mikill fjöldi manna var við-
staddui jarðarförina og komu
þangað leiðtogar Gyðinga frá
Israel, Evrópu og Bandaríkjun-
um, m.a. yfir-rabbíi fsraels. Þús-
und manna stóð á götunum fyrir
utan bænahúsið og hlýddi á at-
höfnina. Mikill lögregluviðbún-
aður var allt í kring og stóðu lög-
regluþjónar og hermenn á
þökum nálægt bænahúsinu. Fors-
eti Tyrklands sendi blóm og
innanríkisráðherra landsins var
viðstaddur athöfnina sem fulltrúi
ríkisstjórnarinnar. Fulltrúi
Bandaríkjanna flutti Gyðingum í
Istanbúl, sem eru 25.000 talsins,
sérstaka kveðju Reagans forseta.
Tveir hryðjuverkamenn rudd-
ust inn í bænahúsið á laugardag-
inn, skutu úr vélbyssum á þá sem
þar voru að bænahaldi, helltu
niður bensíni og kveiktu í því og
sprengdu loks sjálfa sig með
handsprengju. Lögreglan hefur
ekki enn komist að því hverjir
þessir menn voru, en hún telur að
ekki hafi aðrir verið flæktir í árás-
ina.
Flmmtudagur 11. september J986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13