Þjóðviljinn - 16.09.1986, Blaðsíða 2
rSPURNINGIN
Hve mikið ert þú tilbú-
inn að borga fyrir áskrift
að nýrri sjónvarpsstöð?
Brynrún Bára
Guðjónsdóttir.
„Ekki neitt. Ég hef ekki efni á
að borga neitt, en mig langar til
að sjá efni nýju stöðvarinnar.
Mér líst ekkert á þetta gjald sem
sett er upp og get ómögulega
greitt það og verð því að vera án
stöðvarinnar“.
Kristján Theodórs-
son sjómaður.
„Ekki neitt, þessi sem ég hef nú
þegar nægir. Hún er mín eigin
stöð og ég hef engan áhuga á að
sjá þessa nýju. Eg held það sé
billegra að kaupa bara spólu ef
maður er óánægður með það efni
sem í boði er í sjónvarpinu“.
Sveinbjörg Guðna-
dóttir húsmóðir.
„Ekki neitt. Mér finnst það
verð sem talað er um of hátt og á
meðan svo er ætla ég að bíða og
sjá til. E.t.v. kemur meiri sam-
keppni og þá lækka afnotagjöld
kannski“.
Daði Sveinbjörns-
son vélstjóri.
„Ég gæti hugsað mér að borga í
mesta lagi 500 krónur á mánuði.
Ég hef ekki hugsað mér að vera í
áskrift að nýju stöðinni til að
byrja með hvað sem síðar verð-
ur“.
Louise Schilt
æskulýðsfulltrúi,
„Ekkert, Eg hef alveg nógan
tíma fyrir annað en sjónvarpsgláp
og ætla að láta þá stöð sem fyrir er
nægja. Ég kem frá Hollandi þar
sem eru 8 rásir í boði og ég er
dauðfegin að koma í rólegheitin
hér“.
FRETTIR
Alkirkjuráðið
Styöjum friðarhreyf i ngar
Igærmorgun var sett þing fram-
kvæmdanefndar Alkirkjuráðs-
ins í Bústaðakirkju. Nefndin er
æðsta stjórn Alkirkjuráðsins og
mun hún funda hér út vikuna
ásamt helstu starfsmönnum sín-
um frá höfuðstöðvum ráðsins í
Genf. Á fundinum eru um sextíu
manns frá ölium helstu kirkju-
deildum heimsins, nema
rómversk-kaþólsku kirkjunni og
koma fundargestir frá öllum
heimsálfum.
Hlutverk framkvæmdanefnd-
arinnar er að móta heildarstefnu
kirkjunnar í hinum ýmsu mála-
flokkum, semja ályktanir þar að
lútandi og ákveða hvar næsta al-
heimsþing ráðsins verður haldið
að fjórum árum liðnum.
„Óað er öruggt að tvær ályktan-
ir um ákveðin mál munu verða
gerðar núna, í fyrsta lagi um
ástand mála í Suður-Afríku og í
öðru lagi um ástandið í Nicaragua
og í Mið-Ameríku,“ sagði dr.
Emilio Castro framkvæmdastjóri
Alkirkjuráðsins í samtali við
Þjóðviljann. „Við munum einnig
ræða um slysið í Térnóbyl, um
alnæmi, um stöðu kvenna innan
kirkjunnar, um friðarmál og af-
vopnun. Allt þetta kemur kírkj-
unni við, við tökum öll mannleg
vandamál fyrir og ræðum þau.“ ;
Aðspurður um hvort rétt væri
að íslenskir prestar blönduðu sér
í umræðuna um kjarnorkuvopna-j
laus Norðurlönd sagði dr. Castro
að hann teldi svo vera, þetta væru
málefni sem snerti líf og dauða
fólks og sérstaklega hérlendis
þegar tekið væri tillit til land-
fræðilegrar legu landsins. „Vand-
amálið er það að friðarhreyfing-
um hefur ekki miðað nægjanlega
áfram, kirkjan verður að styðja
þær. Og ég sé ekki aðra leið til
þess að byggja brýr trausts
manna á miíli en að ræða opin-
skátt um rnálin," sagði dr. Ca-
stro. ~yd.
Nordal
Sigurðarstofnun
sett á fót
Fjölsótt minningarhátíð um
Sigurð Nordal í Þjóðleikhúsinu á
aldarafmælisdegi hans, fjórtánda
september hófst á því að Sverrir
Hermannsson menntamálaráð-
herra steig í pontu og flutti reglu-
gerð fyrir Stofnun Sigurðar Nor-
dal.
Um hlutverk hennar segir svo í
reglugerðinni:
„Hlutverk stofnunarinnar skal
vera að efla hvarvetna í heimin-
um rannsóknir og kynningu á ís-
lenskri menningu að fornu og
nýju og tengsl íslenzkra og er-
lendra fræðimanna á því sviði."
Þessu hlutverki er stofnuninni
ætlað að rækja með því að afla
gagna um rannsóknir á íslenskri
menningu í heiminum, gangast
fyrir heimsóknum erlendra fræði-
manna, ráðstefnum, útgáfu rita
og styðja við bak íslenskra fræði-
manna innanlands sem utan.
Stjórnarmenn eru þrír, frá
heimspekideild, háskólaráði og
menntamálaráðherra og er sá
formaður. Einnig er þess í reglu-
gerðinni getið að heimspekideild
sé umsagnaraðili um forstöðu-
mann og starfslið stofnunarinnar
sem stjórnin ræður.
-pv
Nú eru róttir hafnar. Hór kemur Ármann Bjarnason fjallkóngur á Arnarvatnsheiði úr göngum á leið í Fljótstungurétt. Leitir
á Arnarvatnsheiði tóku fimm daga og þegar komið var í byggð var lambhrúturinn sem fjallkóngurinn reiðir fyrir framan sig
orðinn ansi þreyttur, svo að hann fékk að tylla sér á hnakknefið síðasta spölinn. Ljósm. Þráinn.
Snilldartaflmennska
í gær var 16. skákin í einvígi Karp-
offs og Kasparoffs tefld. Fyrstu 18
leikirnir voru þeir sömu og í 14. skák-
inni en þá brá KarpofT út af. Upp kom
flókin staða og sannaðist þá enn að
Kasparoff er naskur á kóngssóknar-
möguleika. Hann bauð Karpoff mann
sem stóð í dauðanum leikjum saman.
Um lokin er varla unnt að tala nema
með lýsingarorðum í hástigi, liðsafli
Kasparoffs vann saman á hrífandi
hátt og í lokin small allt saman eins og
í skákþraut.
Kasparoff hefur 9Vi vinning en
Karpoff 6V2 þannig að nú má telja að
úrslit séu ráðin í eingvíginu.
Hvftt: Kasparoff. Svart: Karpoff.
Hvítur heldur þungri sókn þótt
svartur drepi með hrók eða riddara á
f8. Möguleikarnir eru ótölulegir.
Riddarinn á a3 er friðhelgur eins og er
því drottning svarts má ekki fara af
skálínunni al-h8
31. Kh2-Hb3
27. Hg3-g6
28. Bxh6-...
1. e4-e5
2. Rf3-Rc6
3. Bb5-a6
4. Ba4-Rf6
5. 0-0-Be7
6. Hel-b5
7. Bb3-d6
8. c3-0-0
9. h3-Bb7
10. d4-He8
11. Rb-d2-Bf8
12. a4-h6
13. Bc2-exd4
14. cxd4-Rb4
15. Bbl-c5
16. d5-Rd7
17. Ha3-c4
18. Rd4-Df6
24. e5-dxe5
25. Rxe5-Rb-d3
26. Rg4-Db6
Þáttaskil. Svartur fær nú nánast
frjálsar hendur drottningarmegin en
hvítur nær uppskiptum á mikilvægum
varnarmanni hjá kóngi Karpoffs
(Bf8). Hér hlýtur Kasparoff að hafa
reiknað langt og mikið.
28. ...-Dxb2
29. Df3-Rd7
30. Bxf8-Kxf8
vdjamenn um hríð og þótti hagur
Karpoffs allvænlegur. Ra3 hangir og
eftir Rh6 kemur R3-e5 en eftir d5-d6
má drepa á a3 með hrók. Uppskipti á
d3 virðast ekki bæta stöðu hvíts og
riddarinn á g4 flækist fyrir hróknum.
32. Bxd3-cxd3
33. Df4-...
Magnaður leikur. Drottningin vík-
ur af þriðju röðinni þar sem hún mátti
búast við áreiti frá hrók svarts og mið-
ar nú á d6 og h6 þaðan sem hún gæti
ógnað kónginum. Hún stefnir líka á
c4 þannig að ef svo bæri undir gæti
riddarinn á a3 stokkið þangað í vald
hennar.
Ef Karpoff tekur ekki á a3 nú gæti
komið upp endatafl þar sem hann
hefur tveimur peðum minna.
33. ...-Dxa3
34. Rh6-De7
35. Hxg6-De5
36. Hg8+-Ke7
37. d6+-Ke6
38. He8+-Kd5
39. Hxe5+-Rxe5
40. d7-Hb8
41. Rxf7
b c d e f g h
Karpoff gafst upp. Samleikur hvítu
mannanna í lokin er afburða fallegur.
Nýjung Karpoffs felur í sér peðs-
fórn en gefur gott spil á b-línunni
4 tímar tniflaðir
19. R2-f3-Rc5
20. axb5-axb5
21. Rxb5-Hxa3
22. Rxa3-Ba6 |
23. He3-Hb8
Nú skýrast iínurnar, eða flækjast
öllu heldur. Svartur pressar á b-
línunni og ef/þegar b-peðið fellur
hangir riddari hvíts á a3 og c-peð
svarts eflist.
Hvítur fær á móti vænlega kóngs-
sóknarmöguleika.
Islenska sjónvarpsfélagið hyggst
hefja útsendingar eftir næstu
mánaðamót. Dagskrá verður sjö
tíma löng, þar af fjögurra tíma
trufluð dagskrá, sagði Jón Óttar
Ragnarsson í gær.
Aöspurður um verð á afnota-
gjaldi sagði Jón Óttar að það væri
ekki ákveðið enn, en það yrði
aldrei yfir eitt þúsund krónum á
mánuði. Þar á ofan kemur svo
verð á afréttara sem er tólf þús-
und. „Við teljum þetta ekki svo
dýrt, hægt er til dæmis að kaupa
afréttara með afborgunum, en
það er náttúrlega mál viðkom-
andi verslunar. Við verðum með
dýrt efni, t.d. verða bíómyndir
ekki eldri en tveggja ára og síðar
hyggjum við á innlenda dagskrár-
gerð. Við höfum ekki reiknað út
hversu marga notendur við þurf-
um, en reiknum méð að fara inn á
annað hvert heimili. Við höfum
stofnsett íslenska svæðasjónvarp-
ið sem mun starfa um allt land. Þá
verður landinu skipt niður í svæði
sem hvert inniheldur sjálfstæða
sjónvarpsstöð er verður í hönd-
um heimamanna á hverjum stað,
en þó í samvinnu við okkur.
Reiknum við með að þetta taki
a.m.k. eitt ár að ná til allra lands-
manna,“sagði Jón Óttar Ragn-
arsson.
-GH
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN