Þjóðviljinn - 27.09.1986, Qupperneq 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
MENNING
SUNNUDAGS-
BLAÐ
Verkamannabústaðir
Kínabirnir
Hafskipsmálið
Ragnar
úr bindindi
Ragnar Kjartansson
fyrrverandi
framkvæmdastjóri: Eitt
og annað athyglisvert í
greinargerð minni um
rannsókn málsins
Það verður allt kapp lagt á að
hraða afgreiðslu Hafskipsmálsins
hér, en ég get ekkert sagt um hve-
nær þeirri vinnu hugsanlega iýk-
ur, sagði Hallvarður Einvarðsson
ríkissaksóknari í samtali við
Þjóðviljann í gær, en eins og
kunnugt er lauk rannsókn Haf-
skipsmálsins í vikunni og eru öll
gögn málsins nú komin inn á borð
til saksóknara. x
Mannaskipti standa nú fyrir
dyrum hjá embættinu og gæti það
hugsanlega haft áhrif á fram-
vindu mála. Jónatan Sveinsson
saksóknari hefur mikið haft með
þetta mál að gera, en hann mun
hætta störfum nú um mánaða-
mótin. Þá verða aðrir að taka við
og kynna sér málið.
Ragnar Kjartansson fyrrver-
andi framkvæmdastjóri Hafskips
er nú þessa dagana að leggja síð-
ustu hönd á greinargerð um rann-
sókn þessa máls. „Ég tjái mig
ekkert um efnisinnihald
greinargerðarinnar fyrr en hún
hefur borist fyrrverandi hlut-
höfum og starfsmönnum fyrir-
tækisins. Það verður eitt og ann-
að athyglisvert að finna í þessu
plaggi og ég reikna frekar með að
það muni hleypa lífi í málið,“
sagði Ragnar þegar Þjóðviljinn
forvitnaðist um innihald
greinargerðarinnar í gær.
Ragnar segist hafa verið í fjöl-
miðlabindindi síðustu mánuði,
en því muni ljúka með útkomu
þessara athugasemda við
rannsóknina. ~gg
100 miljónir óhreyföar
302 verkamannaíbúðir á hakanum íheiltár. Sigurður
E.: Liggjum með 100 milljónir sem vœru betur
komnar í þessum íbúðum
Þessi þróun hefur valdið okkur
bæði áhyggjum og óþægind-
um og við höfum hvatt stjórnir
verkamannabústaða til þess að
fara hraðar í sakirnar. En sem
stendur liggur byggingarsjóður-
inn með að minnsta kosti 100
miljónir króna sem stjórnir
verkamannabústaða hafa ekki
enn nýtt sér og það er ástand sem
ekki hefur komið upp áður, sagði
Sigurður E. Guðmundsson frarti-
kvæmdastjóri Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Að sögn Sigurðar hafa enn
ekki verið hafnar framkvæmdir
við byggingu 302 íbúða sem hús-
næðismálastjórn hefur heimilað
að byggja á þessu ári og því síð-
asta. Heimilað var að hefja fram-
kvæmdir við byggingu 71 íbúðar
af þessum 302 í fyrrahaust. Sig-
urður sagði 19 sveitarfélög vítt og
breitt um landið eiga þama hlut
að máli og þar á meðal eru stór
sveitarfélög eins og Reykjavík,
Akureyri, Kópavogur og Hafn-
arfjörður.
„Þetta er mjög óvenjulegt,
venjan er sú að stjómir verka-
mannabústaða hafa verið margar
á hurðinni í einu að reyna að fá fé
út úr byggingarsjóði verka-
manna. Þama er um að ræða lán
til byggingarframkvæmda, sem
framkvæmdir hafa ekki hafist við
af ýmsum ástæðum, en við viljum
losna við þetta fé, enda teljum
við því betur varið í verkamanna-
íbúðum en hjá okkur,“ sagði Sig-
urður í gær.
Aðspurður um hugsanlegar
skýringar á þessari þróun sagði
hann einkum tvennt koma þar til.
„í fyrsta lagi er um það að ræða í
sumum tilvikum að tæknilegum
undirbúningi heima í héraði hef-
ur seinkað, skipulagi og gatna-
gerð, þannig að lóðir hafa ekki
reynst byggingarhæfar þegar á
hefur reynt. I öðru lagi hefur
seinkun víða orðið vegna þess að
dregist hefur hjá bæði sveitar-
stjórnum og verkalýðsfélögum
að tilnefna menn í stjórnir verka-
mannabústaða eftir kosningarnar
í vor, þannig að sumarið hefur
reynst dauður tími hvað fram-
kvæmdir varðar,“ sagði Sigurð-
ur.
-gg
Hetjuleg
Mei Mei, sem er panda-birna í
dýragarðinum í Chengdu, höfuð-
borg Sichuan, eignaðist hún á
laugardaginn, og var það sjötti
húnninn sem hún eignast í garðin-
um.
Eins og aðrar sex afkvæma
mæður í Kína fékk Mei Mei - en'
það þýðir „litla systir" á máli þar-
lendra - titilinn „hetjuleg móðir“
eftir fæðinguna. Húnninn var
skýrður Dú Dú eftir fæðingar-
borg sinni Chengdu, og töldu
gæslumenn að þetta væri í fyrsta
skipti sem panda-bima eignaðist
sex afkvæmi í dýragarði, en fæð-
ingar pöndu-húna eru þar ákaf-
lega sjaldgæfar. í Kína eru ekki
eftir nema um þúsund pöndur.
e.m.j./reuter
fékk afhentan í gær fyrir sín 19 mörk í 1. deild. Þess má geta að þetta er þriðja
árið í röð sem Frammari hreppir Gullskóinn. (Mynd E.OI.).
Guðmundur Torfason markakóngur Islandsmeistara Fram og besti leikmaður
(slandsmótsins í knattspyrnu 1986 smellir kossi á Gullskó Adidas sem hann
Víðiskaupin
Vítaverð vinnubrögð
Stjórn VR: Virðingarleysi gagnvartstarfsfólki að tilkynna
ekki um sölu stórmarkaðarins áður enfjölmiðlarfá vitneskju
um málið
að hefur komið fyrir áður að
fyrirtæki hafa verið seld án
þess að sérstaklega hafi verið tal-
að um það við starfsfólkið, en
okkur finnst það heldur langt
gengið þegar það þarf að lesa um
þetta í fjölmiðlum. Slík vinnu-
brögð bera ekkiöðruvitni en al-
gjöru virðingarleysi gagnvart
þessu fólki, sagði Magnús L.
Sveinsson formaður VR í samtali
við Þjóðviljaun í gær.
Ákvörðun eigenda Víðis í
Mjóddinni um að selja KRON
stórmarkaðinn var tekin án þess
að málið væri hið minnsta rætt við
starfsfólkið og fékk það ekki að
vita um viðskiptin fyrr en gengið
hafði verið frá kaupunum og
skrifað um það í blöð.
Stjórn VR ályktaði um málið á
fundi sínum í vikunni og eru þessi
vinnubrögð þar harðlega átalin.
„Harma ber það virðingarleysi
sem starfsfólkinu er sýnt með því
að tilkynning um söluna skuli
berast til fjölmiðla áður en starfs-
fólk verslananna fær um hana
vitneskju. Eru slík vinnubrögð
vítaverð og síst til eftrirbreytni,"
segir í ályktun stjórnarinnar.
Magnús sagði í gær að haldinn
hefði verið fundur með seljend-
um, kaupendum og starfsfólki í
fyrradag, og sagðist ekki vita
annað en að starfsfólk Víðis yrði
áfram eftir eigendaskiptin.
-gg
Ný skipulagslög
undanþeginn
Félagsmálaráðherra
ekki treystfyrir skipulagi
á hersvœðum
l frumvarpsdrögum að nýjum
skipulagslögum er gert ráð fyrir
að fært verði inn í lögin ákvæði
um að félagsmálaráðuneytið
skuli ekki fara með skipulagsmál
á svonefndum varnarsvæðum
heldur utanríkisráðuneytið.
Núgildandi lög gera ráð íyrir
að félagsmálaráðuneytið fjalli
alfarið um skipulagsmál, en hins
vegar eru til lög frá 1982, sem fela
utanríkisráðuneytingu þetta hlut-
verk á hersvæðunum.
Unnið er að smíð skipulagslaga
í félagsmálaráðuneytinu og hafa
þau á undanförnum vikum verið
kynnt fyrir sveitarstjórnum,
skipulagsstjórn og fleiri aðilum.
-gg