Þjóðviljinn - 27.09.1986, Blaðsíða 2
Anna Kristjánsdóttir, starfs-
stúlka:
Þetta er fáheyrt og al veg til skamm-
ar aö gera svona gagnvart mann-
inum. Mér finnst þetta líkt og aö
blaðamönnum væri meinað að
skrifa fréttir.
Sólrún Jónsdóttir, sjúkra-
þjálfari:
Ef það eru ekki reglur fyrir því að
leyfilegt sé að vísa manninum úr
húsi fyrir segulbandsupptöku á
fundi, finnst mér þetta nokkuð
gróft.
FRÉTTIR
P“SPURNINGINln
Hvaö finnst þér um brottvísun
Arnþórs Helgasonar af fundi
bæjarráös Seltjarnarness á
miðvikudaginn? (Spurt á Sel-
tjarnarnesi.)
Kristján Sigurðsson, versl-
unarmaður:
Mér finnst þetta nú hálf léleg fram-
koma við manninn. Af þvi sem ég
hef heyrt og lesið um þetta mál get
ég ekki sagt annað.
Fylkingin
Guðmundur Sigurðsson,
læknir:
Af því sem ég hef heyrt af þessu
máli finnst mér alveg ástæðulaust
að honum skuli hafa verið vísað af
fundi.
Skrifstofa hljómsveitarinnar er
nú að flytja í Gimli við Lækjarg-
ötu. Verður hún opin alla daga
frá kl. 9-17. Þar fer fram öll sala
aðgöngumiða og áskriftarskírt-
“ina.
Endurbætur hafa nú verið
gerðar á sviðinu í Háskólabíói.
Hefur sviðið lækkað og jafnframt
stækkað og hljómburður betri en
áður. - Hljómplötuupptaka er í
undirbúningi.
Stjórn Sinfóníuhljómsveitar-
innar skipa nú: Ólafur B. Thors,
formaður, Elfa Björk Gunnars-
dóttir, Haukur F. Hannesson,
Hörður Sigurgestsson og Jón
Þórarinnsson. Framkvæmda-
stjóri er Sigurður Björnsson og
skrifstofustjóri Gunnar Egilsson.
-mhg
Kristján Vídalín, skrúðgarð-
yrkjumaður:
Mérfinnst þetta argasta skömm að
blindum manni skuli vísað út af
þessum fundi. Þessi ráðstöfun sýn-
ist mér lýsa hugarfari þeirra manna
sem að þessu stóðu.
Sinfóníuhljómsveit íslands hóf
nýtt starfsár sitt með tónleika-
ferð um Vesturland og Vestfirði í
byrjun september og síðan kynn-
ingartónleikum í Háskólabíói. I
vetur heldur hljómsveitin áskrift-
artónleika og þrenna aukatón-
leika, auk þess sem farið verður
út á land. Fyrstu tónleikarnir
verða fimmtudagskvöldið 9. okt.
en þeir siðustu 21. maí. Munu
þeir væntanlega verða kynntir
hér í blaðinu með nægum fyrir-
vara.
Á efnisskrá hljómsveitarinnar
verða ýmis öndvegisverk er-
lendra tónbókmennta auk ís-
lenskra verka, eldri sem yngri
Sú nýbreytni hefur nú verið
tekin upp við sölu á aðgöngumið-
um að 10 dögum fyrir hver mán-
aðamót verður hægt að kaupa
miða í lausasölu á áskriftartón-
leika komandi mánaðar, nema
þegar sala áskriftarskírteina
stendur yfir, þá frá 1. viðkomandi
mánaðar. Frá og með 1. okt.
verður hægt að kaupa miða á alla
aukatónleika vetrarins. Er þetta
gert til þess að auðvelda þeim,
sem sækja hverja tónleika, að
tryggja sér miða og jafnframt
betri sæti en ella. Hægt verður að
kaupa áskriftarskírteini að reglu-
legum tónleikum hljómsveitar-
innar fyrir eitt misseri í senn og
halda þannig föstum sætum.
Fastir áskriftargestir hafa jafnan
forkaupsrétt að skírteinum í upp-
hafi hvers misseris.
Ellih'feyrisþegar njóta 30% af-
sláttar af verði áskriftarskírteina
og nemendur allra skóia geta,
gegn framvísun skólaskírteinis,
fengið 50% afslátt af óseldum
lausamiðum fyrir hverja tón-
leika, í miðasölunni í Háskólabí-
ói.
Sinfóníuhljómsveitin
Mikið um dýrðir í vetur
Skrifstofan í nýtt húsnœði - Endurbœtur á Háskólabíói
Guðrún Birgisdóttir í Heimilistækjum með loftnetsmagnara, í vinstri hendi og „lykilinn“ („brenglarann“
hendi.
umtalaða I hægr
Sjónvarp
Loftnetskerfið bregst
Loftnetskerfi ífjölbýlishúsum eru víða svo einföld aðþau geta ekki tekið við
tveimursjónvarpsstöðvum. Víða munþurfa að kaupa nýja loftnetsmagnara til að
ná sjónvarpsstöðvunum og fellur sá kostnaður á íbúa
stærri fjölbýlishúsum gæti
kostnaður íbúa við breytingar
á loftnetskerfum verið á bilinu 15-
30.000 krónur ef það vill horfa á
ríkissjónvarpið og Stöð 2. Og þá
er aðeins rætt um efniskostnað,
sagði Arthúr Moon í Sjónvarps-
miðstöðinni.
Arthúr sagði að á sumum stöð-
um þyrfti kannski aðeins að
skipta um það sem hann nefndi
síur en þær eru til að rásirnar, svo
sem Stöð 2 og Ríkissjónvarpið
trufluðu ekki hvor aðra. Slíkar
síur kostuðu 11.600 hjá þeim. En
kostnaður með vinnu gæti verið á
bilinu 15-30.000 krónur. Har-
aldur Sigurðsson, verkfræðingur
hjá Póst- og Símamálastofnun-
inni staðfesti þessi tæknilegu
vandamál. „Við höfum fengið
upplýsingar frá íbúum í fjölbýlis-
húsum sem gefa til kynna að
loftnetsmagnarar í mörgum
þeirra séu annað hvort ekki gerð-
ir fyrir fleiri en eina rás þannig að
Stöð tvö sést t.d. ekki eða þá að
loftnetskerfið er svo galopið, ef
svo má segja, að hvorki sést til
sjónvarps Ríkisútvarpsins, né
Stöðvar 2. Er það fyrst og fremst
vegna gagnkvæmra truflana."
Haraldur sagði að dæmi sem
þessi væru fyrst og fremst úr
Breiðholti. Víða er ástandið
þannig að ljóst er að það verður
að skipta um loftnetsmagnara og
fellur kostnaður af slíkum
breytingum á íbúa fjölbýlishús-
anna.
Ástæðan fyrir því að truflan-
irnar eiga sér helst stað í
Breiðholti, er sú að þaðan er stutt
í endurvarpsstöðina á Vatns-
endahæð. Merkin verða þá svo
sterk frá Vatnsenda að rásirnar
sem senda sjónvarpsefni trufla
hvor aðra þegar þau berast í
loftnetskerfi margra fjölbýlis-
húsa.
-IH
Haust-
happdrætti
Ritsöfn, plötur og
myndverk meðal
vinninga. Dregiðl.
desember
Æskulýðsnefnd Alþýðubanda-
lagsins hefur hleypt af stokkunum
hausthappdrætti með mörgum
glæsilegum vinningum.
Dregið verður í happdrættinu
1. desember n.k. en meðal vinn-
inga eru ritsöfn Halldórs Lax-
ness, Ólafs Jóhanns Sigurðs-
sonar, Tómasar Guðmunds-
sonar, Ljóðasafn Jóhannesar úr
Kötlum, íslendingasögur Svarts á
hvítu, plötur Bubba, Kristínar
Ólafsdóttur og Megasar og ýmis
myndverk.
Einungis eru gefnir út 7525
miðar og kostar hver miði 150 kr.
Blaðaprent
Pökkunarfolki
sagt upp
Átta pökkunarkonum í Blaða-
prenti hefur verið sagt upp störf-
um frá og með 1. október n.k., en
að sögn Hrafnkels Ársælssonar
framkvæmdastjóra fyrirtækisins
verður þeim gefinn kostur á að
vinna fram yfir þann tíma.
Ástæðan fyrir uppsögnunum
er sú að ákveðið hefiir verið að
kaupa tölvustýrða pökkunarvél,
sem leysir mannshöndina af við
þetta starf. Vélin sem enn er ó-
komin til landsins mun að sögn
Hrafnkels kosta 5-6 miljónir
króna.
-gg
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 27. september 1986