Þjóðviljinn - 27.09.1986, Blaðsíða 3
FRETTIR
Kartöfluinnflutningur
i
Alagningin úr böndunum
Könnun Verðlagsstofnunar: Álagning á innfluttar kartöflur hœkkaði verulega á tveimur mánuðum. Hœkkun
heildsöluverðsþrátt fyrirlœkkun innkaupsverðs. Guðmundur Sigurðsson:Álagningin hækkaði ofmikið
Við teljum að heildsöluálagning á
innfluttar kartöflur hafi farið úr
böndunum. Hún hefur hækkað
óeðlilega mikið. Því finnst okkur
að fylgjast verði mun nánar með
verðmyndun á innfluttum kart-
öflum þegar innflutningur hefst
að nýju. Það kemur þá jafnvel til
greina að setja álagningunni ein-
hver takmörk, sagði Guðmundur
Sigurðsson viðskiptafræðingur
Verðlagsstofnunar í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Verðlagsstofnun hefur kannað
verðmyndun á kartöflum sem
fluttar voru inn í sumar. Kannað-
ur var innflutningur þriggja fyrir-
tækja, annars vegar sending sem
kom í júní en hins vegar sending
sem kom til landsins í lok ág-
ústmánaðar.
í ljós kom að álagning fyrir-
tækjanna þriggja á fyrstu send-
ingunni var á bilinu 8.3% til
32.6%. Því til viðbótar var
reiknuð 5% til 20% rýrnun af
kostnaðarverði.
Á tveggja mánaða tímabili
hækkaði álagning þessara þriggja
fyrirtækja hins vegar verulega og
var orðin 22% til 76%. Á sama
tíma hafði innkaupsverðið er-
lendis frá lækkað nokkuð, en
þrátt fyrir það hafði heildsölu-
verðið hækkað hjá tveimur fyrir-
tækjanna um 5%-10%, en lækk-
að hjá einu um 24%.
Á þessu gáfu innflytjendur
m.a. þá skýringu að rýrnun hafi
verið mjög mikil á síðustu kart-
öflusendingunum.
Kartöfluinnflutningur hefur
lagst af um skeið, en þegar hann
hefst að nýju mun Verðlagsstofn-
un að sögn Guðmundar fylgjast
mun betur með álagningunni.
-gg
Sigrún Guðjónsdóttir við hluta innréttingarinnar sem nú er til sölu hér á landi.
Finnskur gestur
Herra Hú kominn
Idag frumsýnir Leikfélag Akur-
eyrar barnaleikritið Herra Hú
eftir Hannu Mákelá, sem Njörður
P. Njarðvík hefur þýtt og Þórunn
Sigurðardóttir leikstýrir. Sam-
tímis kemur út bók um Herra Hú,
sem er skrýtinn svartur karl, og
hefur þann starfa að hræða börn
- en er innst inni ekki slæmur og
hræddur sjálfur við það sem
hann ekki þekkir - eins og við öll.
Hannu Makelá, segir þýðand-
inn og útgefandinn, Njörður P.
Njarðvík, er eitt af þekktustu
skáldum Finna og hafði gefið út
mörg ljóðasöfn þegar hann bjó til
þennan karl, sem hefur áhyggjur
af því að börnin, sem hann á að
hræða eru kannski ekki nógu
skelfd...
Herra Hú, sagði höfundurinn,
sem hingað er kominn og verður
viðstaddur frumsýninguna á Ak-
ureyri, varð til þegar ég þurfti að
segja syni mínum ungum og fé-
lögum hans sögur - þá spratt karl
Hannu Mákelá með trémynd sem
hann hefur gert af sögupersónu
sinni (Ijósm.: sm).
Einvígið
Karpoff
Karpoff frestaði í gær 20. skák-
inni í einvígi sínu við hcims-
meistarann Kasparoff, og verður
hún tefld á mánudag. Hafa þá
báðir skákmeistararnir fullnýtt
frestunarréttinn.
Staðan er nú 9Vi-9lA, eftir að
Karpoff gerði glæsiforskot
heimsmeistarans að engu í þrem-
ur skákum. Kasparoff hefur að
því leyti betri stöðu að hann held-
ur titlinum á jöfnum vinningum
eftir 24 skákir, en margir telja að
fresfar
á móti vegi sálfræðilegt áfall eftir
frammistöðu Karpoffs. Breski
meistarinn Keene telur að
Kasparoff standi óþolinmæði
fyrir þrifum, hann eigi að leggja
áherslu á úthaldið í stað þess að
reyna að gera útaf við Karpoff í
upphafi skákar.
Frestur er nú allur úti, og ljóst
að úrslit í einvíginu fást í síðasta
lagi 8. október. Kasparoff hefur
hvítt á mánudaginn.
- m/reuter.
allt í einu fram og féll syni mínum
svo vel í geð að hann vildi alltaf
heyra meira og meira. Það var
komið efni í bók. Farðu ekki að
gefa út bamabók, sagði einn koll-
ega minn, það er synd og skömm
að alvariegt skáld eins og þú vas-
ist í slíku! En þetta gerði ég og
þetta er eina bókin sem ég fékk
mikla gleði af - það tók enginn
eftir mér meðan ég var „alvarlegt
skáld“, en nú hringdi fólk í mig og
skrifaði mér. Og herra Hú fór að
lifa sínu eigin lífi hér og þar um
löndin, lífi sem ég skil ekki
lengur. Hann hefur birst í átta
leikhúsum í Finnlandi og þrjátíu í
Sovétríkjunum og nú er hann
kominn til Svíþjóðar og íslands
og fleiri landa.
Ég hefi skrifað þrjár bækur um
Herra Hú. Nú er hann kominn til
Frakklands og býr á eyju Heilags
Loðvíks og þangað hefi ég aldrei
komið. Kannski fer ég að vita
hvað honum líður. Kannski kem-
ur að því síðar ef ég verð gamall
og Herra Hú líka, að ég skrifa
endurminningar hans...
Herra Hú varð til úr myrkrinu.
Ég var myrkfælinn sem barn, ótt-
aðist næturhljóð og það sem var
undir rúminu og úr þessu öllu
varð Herra Hú til, og í hans dæmi
sést það, að óttinn við myrkrið er
ekki annað en óttinn við sjálfan
sig. Og að lokum skilst manni að
myrkrið er ekki hættulegt.
Við báðum börn á Akureyri að
teikna það sem þau óttuðust
mest, sagði Pétur Einarsson
leikhússtjóri, og myrkrið var svo
sannarlega stór partur margra
þeirra mynda.
Njörður P. Njarðvík hefur ný-
stofnað eigið forlag og Herra Hú
er fyrsta bókin sem það gefur út.
- áb.
Hönnun
íslensk listiðn út í lönd
V-þýskafyrirtœkið Villeroy & Boch er
komið með hönnun á baðinnréttingar eftir
Sigrúnu Guðjónsdóttur
etta er nú nokkuð ólíkt því
sem almennt gerist við
hönnun í baðinnréttingum, sagði
Sigrún Guðjónsdóttir, listamað-
ur en v-þýska fyrirtækið Villeroy
& Boch nýtur nú góðs af hæfi-
leikum Sigrúnar með keramik.
Fyrirtækið Villeroy & Boch
hefur keypt listaverk af henni til
notkunar í baðinnréttingar sínar.
„Eftir því sem ég veit best er
þetta í fyrsta skipti sem erlent fyr-
irtæki á þessu sviði fær íslenskan
og yfirleitt norrænan listamann til
liðs við sig á þessu sviði, við
hönnun innréttinga. Þetta kom
nú til af því að ég hef notað efni
frá þessu fyrirtæki í nokkur ár. Ég
kynnti hugmyndir mínar fyrir
þeim á síðasta ári og 'þeir lýstu
áhuga á frekari samvinnu. Síðan
vann ég frekar úr þessum hug-
myndum þegar ég var í Sveaborg
listamiðstöðinni í Svíþjóð í
fyrra.“
„Þeir stæra sig nú að því að
selja innréttingar í öllum löndum
heims. Hvað um það, þær eru
komnar heim og mér sýnist þeim
hafa tekist afskaplega vel til því
keramik er erfitt efni að eiga
við“, sagði Sigrún.
IH
j %i\c\cVcari^ei|l .
SAUMANÁMSKEIÐ
Kennt verður að taka upp einföld snið, sníða og
sauma eftir þeim.
Kenndar verða 4 kennslust. á viku í 10 vikur.
Námsgjald er kr. 3.800.-.
Kennslustaðir: Miðbæjarskóli og Gerðuberg.
Upplýsingar í símum 12992 og 14106.
Prjónið eigin peysu
Prjónanámskeið fyrir byrjendur. Kennd eru
undirstöðuatriði í prjónaskap.
Kennari: Fríða Kristinsdóttir, hand-
menntakerinari. Innritun daglega í síma 18258.
<36<X4+1Mr3ÓUJt>C4^y
^ OTORKURINN
Kjörgarði, Laugavegi 59
Framkvæmdastjóri
Alþýðuleikhúsið auglýsir lausa stöðu fram-
kvæmdastjóra frá og með 1. nóv. n.k.
Um er að ræða Vz starf.
Umsóknir sendist Alþýðuleikhúsinu.
Pósthólf 1445 101 Reykjavík.