Þjóðviljinn - 27.09.1986, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 27.09.1986, Blaðsíða 5
„Hefurðu góð sambönd?“ sagði kunningi minn við mig um daginn. „Ég þekki mikið af góðu fólki,“ sagði ég. „Er það nógu gott til að geta lánað okkur þó ekki væri nema fimmtíu milljónir?“ „Mér hefur því miður alveg láðst að gá að því,“ sagði ég. „En hvað eigum við að gera við fímmtíu millur?“ „Við stofnum sjónvarpsstöð," sagði kunningi minn. „Það er nútíminn. Þar er hægt að græða. Þú mátt stjórna stöðinni og búa til alls konar skemmtilegt efni handa fólkinu í landinu. Þú getur skammtað þér gott kaup allt árið og svo geturðu fengið frí til að spóka þig á kvikmyndahátíðum um allan heim.“ „Þakka þér fyrir það,“ sagði ég. „Þetta erfreistandi tilboð. En hvað ætlarðu sjálfur að fá út úr þessu annað en að sjá hugsjón rætast?“ „Ekki er það nú mikið,“ sagði hann. „Ég gæti vel hugsað mér að verða ástsæll með þjóðinni og frægur af því að endurheimta Dallas til landsins, auk þess sem ég gæti svo sem séð um vinsæla þætti fólki til upplyftingar. Fyrir þetta mundi ég þiggja sæmileg laun, en þjóðin sjálf gæti þakkað mér þótt síðar yrði, til að mynda með því að fela mér eitthvert embætti. Kannski á Bessastöð- um, því að ég er hrifinn af heilbrigðu lífi og sveitalofti.“ „Það verða nú ekki allir forset- ar sem koma fram í sjónvarpi,“ sagði ég. „Það veit ég vel,“ sagði kunn- ingi minn. „En í sjónvarpsþáttum mínum ætla ég að leggja áherslu á að þjóðin fái bjór að drekka eins og hún getur torgað. Þetta er þorstlát þjóð.“ meðan auður og völd bíða úti í ljósvakanum. Hér vantar ekki nema fáeinar krónur. Kannski hundrað og fimmtíu milljónir.“ „Þú varst að tala um fimmtíu milljónir fyrir augnabliki síðan og nú ertu kominn upp í hundrað og fimmtíu. Þú verður kominn upp í stjarnfræðilegar upphæðir áður en sólin sest.“ „Bíddu nú hægur,“ sagði hann. „Ég sagði aldrei að okkur vantaði ekki nema fimmtíu milljónir. Ég sagði að okkur vantaði fimmtíu milljónir sem startkapítal. Ef við fáum startkapítal þá kemur hitt af sjálfu sér. Peningar streyma ævinlega þangað sem peningar eru fyrir. Sko. Fyrir fimmtíu milljónir förum við af stað og ger- um okkur gildandi. Við auglýsum upp að við ætlum að stofna sjón- varpsstöð og þegar fólk er farið að trúa því, þá förum við að slá fyrir alvöru. Við notum startkapítalið til að fá okkur húsnæði og húsbúnað og innréttingar og svo borgum við inn á tæki og gerum upp fyrstu launagreiðslur og látum búa til sjónvarpsmerki og prentum það á hvíta boli og derhúfur sem starfsmennirnir ganga svo með.“ „Við fáum slatta af hvítum bol- um og derhúfum fyrir fimmtíu milljónir," sagði ég. „Æ, vertu ekki með þessa kaldhæðni,“ sagði kunningi minn. „Við hringjum svo í Sóní eða eitthvert gott fyrirtæki í Jap- an og fáum Sólnes-bræðurna til að hjálpa okkur að gera kaupleigusamning við gulu mennina og fyllum húsnæðið af græjum, þær kosta ekki nema svona tuttugu til sextíu milljónir. Japanirnir vilja selja hvað sem er á afborgunum og nú þegar eru þeir búnir að selja svo mikið af úreltu sjónvarpsskrani til íslands að heilt hverfi í verkamannabú- / „Egsagði að okkur vantaðifimmtíu milljónir sem startkapítal. Efviðfáum startkapítal þá kemur hitt afsjálfu sér. Peningar streyma œvinlega þangað sem peningar erufyrir... “ „Það er margt skynsamlegt í þessu hjá þér,“ sagði ég. „Þó það nú væri,“ sagði hann. „Má ég þá treysta því að þú redd- ir þessum skitnu fimmtíu milljón- um?“ „Þar stendur hnífurinn í kúnni,“ sagði ég. „Ég kann enga leið til að skaffa fimmtíu milljónir, nema ef við færum að stunda veiðiþjófnað á hvölum. Hins vegar veit ég hvar ég get náð í fimmþúsund krónur á þriðju- daginn kernur." „Þú ert smásál,“ sagði kunn- ingi minn. „Það sem er undir milljón kallar maður ekki pen- inga heldur skiptimynt. Hér stöndum við á gatslitnum skóm Bollaleggingar um sjónvarpsstöð stöðunum í Tókíó getur farið á eftirlaun og látið senda sér tékka frá íslandi mánaðarlega næstu hálfa öld. Því næst ræðum við málið við Bandaríkjamenn, því að það eru menn sem skilja lífið. Af þeim kaupum við fullt af hollum og skemmtilegum myndum og fram- haldsþáttum handa þjóðinni, sem er löngu búin að gefast upp á skandinavísku legvatnsgutli, og vill sjá fallegt fólk og efnað takast á í anda frjálsrar samkeppni. Þetta kostar ekki nema fáeinar milljónir og ég er handviss um að við fáum það mestallt skrifað þangað til við erum farnir að græða.“ „En eigum við ekki að hafa eitthvað íslenskt efni?“ „Jú, biddu fyrir þér. Við verð- um með fréttir alveg lon og don. Það kostar skít á priki að spjalla við stjórnmálamenn og jafnvel hugsanlegt að láta þá borga fyrir að fá að koma í sjónvarpinu.“ „Ég efast nú um að það sé lög- legt.“ „Nú jæja, ekkert má nú. En við getum haft mikið af viðtölum við stjórnmálamenn sem hafa heilbrigðar skoðanir og skilja nauðsyn þess að hér sé frjálst sjónvarp. Hina þursana sem eru á móti okkur getum við bara látið eiga sig. Ekki vilja þeir koma fram í sjónvarpi, sem þeir vilja ekki að sé til.“ „Heyrðu...“ „Vertu ekki að grípa fram í fyrir mér. Nú. Svo kaupum við íslenskt efni.“ ' „Hvaða efni?“ „Bara eitthvað. Það hlýtur að vera hægt að fá fullt af efni fyrir slikk.“ „En eigum við ekki að fram- leiða eitthvað sjálfir?" „Jújújújújú. Við framleiðum kvikmyndir og framhaldsþætti eins og best gerist hjá Bíbísí og Eibísí og þeim piltum.“ „Þú veist að það kostar að minnsta kosti tíu milljónir að framleiða hundrað mínútna mynd?“ „Er það svona fjandi dýrt?“ „Ég hélt þér þættu tíu milljónir ekki mikill peningur." „Við verðum samt að spara. Við skulum leggja áherslu á barnaefni. Það er vinsælt að hugsa vel um börnin.“ „Það er alveg jafndýrt að búa til gott barnaefni og efni handa fullorðnum." „Hvaða vitleysa. Við fáum bara einhverja kéllingu til að lesa ævintýri. Það er enginn höfund- arréttur á þeim.“ „Kéllingunum?" „Nei, ævintýrunum. Annars er það kannski vitleysa að vera að borga allar þessar milljónir sem þú ætlar að fá lánaðar." „Það er ekkert mál. Við seljum áskriftir að prógramminu. Það kostar til dæmis 950 krónur á mánuði. Það hljómar vel. Það nær ekki þúsund kallinum.“ „950 krónur á mánuði eru 11.300 krónur á ári.“ „Já, fólk tekur ekkert eftir því í svona smáskömmtum. Við fáum tíuþúsund áskrifendur. Það gera 113 milljónir á ári í tekjur. Svo seljum við auglýsingar fyrir 50 milljónir á ári. Þá eru heildart- ekjurnar orðnar 160 milljónir. Á ári.“ „Hvernig eigum við að rukka afnotagjöldin?" „Við látum fólk kaupa sér af- ruglara á tækin og svo sendum við lögfræðinga á þá sem eru með afruglara og skirrast við að borga.“ „En ef heilar blokkir eða jafnvel bæjarfélög eru saman um einn afruglara?" „Þá sendum við bara lögregluna á liðið. Það er ekkert mál að rukka.“ „En hvað um auglýsingarnar. Afhverju heldurðu að auglýsend- ur vilji frekar augiýsa hjá okkur heldur en hjá RUV?“ „Við látum banna Ríkissjón- varpinu að birta auglýsingar. Það er brot á einstaklingsfrelsinu ef einstaklingar þurfa að keppa við ríkið. Enda á ríkið nóga peninga. Það eru einstaklingar sem eru blankir. Menn eins og þú og ég. Þetta er fínt mál. Við skuldum hundrað og fimmtíu milljónir eftirfyrsta árið. Fjármagnskostn- aður, laun og afborganir eru ekki nema 70 til 100 milljónir og tekj- umar verða 160 milljónir. Þá eru 60 milljónir í afgang. Þú færð milljón á ári.“ „Og þú 59 milljónir?" „Það er alltaf sama öfundin í þér. Geturðu ekki unnt dug- legum mönnum þess að græða?“ „Jújú.“ „Blessaður notaðu þá sam- böndin og reddaðu 50 millum í startkapítal handa okkur." ... Við auglýsum upp að við œtlum að stofna sjónvarpsstöð og þegarfólk er farið að trúaþví, þáförum við að slá fyrir alvöru... “ dröslast með kéllingar í barna- tímum. Það er ekki nógu líbó. Við fáum strák til að sjá um þetta. Einhvern með kringlótt gleraugu á fótlaga skóm. Þá verð- ur félagshyggjuliðið ánægt.“ „Var það ekki ég sem átti að sjá um dagskrárgerðina?" „Jú,“ sagði kunningi minn. „En hún verður að vera innan skynsamlegra marka. Þið þessir íslensku kvikmyndagerðarmenn eruð á egótrippi greyin og hugsið ekkert um kostnaðinn." „Kostnaðinn? Já, vel að merkja. Hvernig ætlarðu að „Viltu ekki útvega áskrifend- uma fyrst?“ „Ef þú vilt ekki vera með í þessu," sagði kunningi minn. „Þá sný ég mér bara eitthvert annað." „Hvert?“ spurði ég. „Þú gætir nú til dæmis auglýst eftir fjármagnsaðila handa mér í Þjóðviljanum," sagði hann. „Það hlýtur einhver að eiga aura í sparibók." Og nú vantar bara dálítið af peningum og fáeina áskrifendur. Stórhugurinn er til staðar. Það má alltaf reyna! - Þráinn Laugardagur 27. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.