Þjóðviljinn - 27.09.1986, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 27.09.1986, Blaðsíða 7
Umsjón: Páll Valsson DJOÐVIUINN Munch-sýningin opnuð í dag Myndin var aldrei fullgerð... Myndlistin höfðar til tilfinninga Spjallað við Hörpu Björnsdóttur mótífum og hve auðvelt er að trúa því að myndunum sé ekki lokið. Myndsköpun hans var ferli, allt gat tekið breytingum, myndin var ekki fullgerð meðan lífið hélt enn áfram. Þvísjáum við þessar eilífu víxlverkanir - víxl- verkanir milli mynda, sem lýsa tilfinningum ungs manns og sex- tugs listamanns sem finnur öðru vísi tii, hefur annað næmi. Við finnum víxlverkanir, sem ganga frá málverki yfir í grafík (og þar skerpast kannski línur og einfald- ast) og svo þaðan aftur yfir í mál- verk. Munch vitnaði stundum í Leonardo da Vinci sem ekki gat lokið við sín verk nema fá - en skildi eftir sig sterkari áhrif en flestir aðrir... Munchsafnið í Osló á 4-5000 teikningar og um ellefu hundruð málverk. Það er mjög drjúgur hluti alls sem þekkt er eftir Munch (nálægt 2000 málverk) og er það því að þakka, að Munch arfleiddi Oslóborg að verkum sínum. Hann var, sagði Arne Eggum, eins og ýmsir aðrir lista- menn sem hefur tekist að sýna okkur heiminn með nýjum hætti - vildi gjarna að sem stærstur hluti verka hans væri á einum stað til þess að menn kæmust til þess betur að sjá hlutina í sam- hengi, sjá hvernig eitt leiðir af öðru. F*að hefur verið gífurleg eftir- spurn eftir Munchsýningum-sig- ursælar sýningar hafa verið í Jap- an og Kína, í Madrid og Lening- rad og nú eru á dagskrá Barce- lona, Essen og Munchen... Harpa Björnsdóttir heitir ung myndlistarkona sem sýnir nú myndir sínar í Gallerí Borg við Austurvöll. Harpahefurhaldið fjórareinkasýningar, þaraf tvær í Kaupmannahöfn síðan hún útskrifaðist úr MHÍ. Á kynniskorti sýningar Hörpu er prentað- „Tilfinningin er allt— orð eru bara hljóð". Ég spurði Hörpu hvort þetta væru kannski einkunnarorð hennar í myndlist: „Kannski ekki einkunnarorð. Þetta er tilvitnun úr Fást eftir Go- ethe og þetta sló mig svo sterkt. Annað sem hefur haft mikil áhrif á mig er kvikmyndin Persona eftir Ingmar Bergman. Eftir hana fannst mér sem maður gæti bara haft munninn lokaðan framvegis. Það má líta á yfirskriftina kannski sem leiðbeinandi. Ég lít á mynd- iist svipað og tónlist, hún er upp- lifandi, kallar á upplifun fremur en skýringar. Höfðar til tilfinn- inga frekar en vitsmuna. Maður- inn er líka frekar tilfinningavera en vitsmunavera, hans tilfinn- ingasvið er stærra. Myndlistar- menn eru alltaf krafnir skýringa, spurðir þessum leiðinlegu „af hverju“ spurningum. En tón- listarmenn eru hins vegar sjald- nar ónáðaðir með svoleiðis spurningum.“ - En þá vaknar sú spurning hvort myndlistargagnrýni eigi rétt á sér? „Hún á rétt á sér ef menn upp- lifa eitthvað. Ef myndlistin kallar á einhver viðbrögð gagnrýnand- ans þá er hún í lagi. En skyldu- skrifin eru það ekki, þegar menn skrifa gagnrýni af skyldunni ein- ni. Gagnrýnin er auðvitað margs- konar. En mér finnst oft eins og skilgreiningar deyði myndlistina, myndirnar verði blóðlausar og sálarlausar á eftir. Ekkert eftir í upplifunina. Það er líka erfitt að miðla sterkum tilfinningum með orðum, þú verður kannski fyrir mjög sterkri upplifun af einhverri mynd en getur ekki tjáð það. Og gagnrýni verður aldrei annað en ein upplifun einnar manneskju, jafnvel þótt hún sé listfræðingur. Það vantar dálítið uppá það að hér á landi mótist einhver heildartilfinning gagnvart mynd- list. Kannski er það vegna þess að myndlistarumræða fer að stórum hluta fram í krítík í dagblöðum." Harpa við eina mynd sína í Gallerí Borg, en sýningu hennar lýkur 30. september. (Mynd E.ÓI.) - Nú slengi ég á þig klassískri spurningu. Hvernig finnst þér ís- lensk myndlist standa í saman- burði við aðrar þjóðir? „Vel. Ég ferðaðist til dæmis í sumar um Evrópu og mér finnst miðað við það sem ég sá þar að mjög margir myndlistarmenn hérna heima séu verulega góðir. Ég er sannfærð um að margir fs- lendingar eiga eftir að gera það gott í hinum alþjóðlega myndlist- arheimi, ýmsir hafa þegar gert þetta einsog til dæmis Svavar Guðnason sem er þekkt nafn í myndlist í Danmörku. Það er hins vegar bundið bæði tíma og tilviljun hvað slær í gegn, ómögu- legt að segja til um það.“ - Hvað er spennandi að gerast í myndlistinni? „Það er til dæmis merkileg ný- abstrakt í gangi. Landslagið er líka orðið áberandi og margt gott þar og svo þessi fígúratívi expressjónismi. Það er margt sem vex núna hlið við hlið og kannski hefur það alltaf verið þannig. Og tilviljun hverju er hampað. Góð abstrakt er alveg jafn góð myndlist og góður ex- pressjónismi.“ - Hvert er þitt takmark í mynd- listinni, þinn óskadraumur? „Að geta unnið að myndlist og átt heima á íslandi. ísland er landið. Það er bara svo takmark- að sem býðst. Maður vinnur í annarri vinnu og treystir á sölu og stopul starfslaun." - Aðstæðurnar eru þá hemill á myndlistina, brauðstritið? „Ég veit það nú ekki, brauðstritið er ekkert nýtt. Myndlistarmenn hafa alltaf þurft að vera í brauðstriti. Picasso vann að auglýsingum og Kjarval var á sjónum. Menn bíta sig út úr þessu hægt og rólega. Það er undir manni sjálfum komið. Menn verða að halda trúnni á sjálfan sig, það er það mikilvægasta. Auðvitað verða menn þreyttir og lúnir, en samt verða menn að vera bjartsýnir. Það er fyrir öllu.“ -pv hefði virkari stefnu að því er varðar að velja það sem menn helst fýsir að sjá fremur en að taka við tilboðum. Og væri að- stoð fagmanna eins og Ólafs Kvarans og Arne Eggum mikils virði í þeirri viðleitni. Brýnt erindi nú Ólafur Kvaran sagði, að valdar hefðu verið einkum þrjár mynda- raðir, sem allar spretta af misk- unnarlausri sjálfsskoðun lista- mannsins. Þar fara margar sjálfs- myndir frá alllöngum tíma, þá myndaröðin „Græna herbergið", þar sem höfuðþemu eru afbrýði, girnd, hatur (frá 1906-1907), þá „Listamaðurinn og fyrirsætan“ og loks myndir frá seinni árum Munchs sem eru tilvísanir til fyrri mynda hans - „Veika stúlkan“ í nýjum litum, „Gelgjuskeið“ og fleiri. Myndirnar eru frá okkar öld, sagði Ólafur, þær lýsa þeim tfma þegar Munch hefur horfið frá hálfbókmenntalegu táknsæi til þess að hlaða litinn miklu tilfinn- ingagildi, til þeirrar óheftu tján- ingar sem einkennir „nýja mál- verkið“ í dag. Nýja málverkið nefndi ég- það minnir m.a. á það hve brýnt erindi Munch á í dag, hjá honum finnum við þessa sömu óheftu tjáningu. Margir segja að nýja málverkið sé skelfi- lega „ljótt“ - og þessar myndir hér voru óskaplega ljótar á sínum tíma í augum furðu margra. Arne Eggum talaði um það hve oft Munch bryddar upp á sömu Viö fáum alltof margar beiðnir um aö senda sýningar á verk- um Munchs til útlanda og verðum sjálfsagt viö alltof mörgum, sagði Arne Eggum, forstöðumaöur Munch- safnsins í Osló í gær, þegar kostur gafst á að sjá sýningu á fjörutíu myndum eftirhinn norska snilling upp festa í Norræna húsinu. En, bætti hann við - þetta er í anda Munchs sjálfs, semvarfústil að leggja myndir sínar í háska ogsenda þærvíðaum löndtil að sem flestir gætu séð þær. Arne Eggum, Knud Ódegárd forstjóri Norræna hússins og Ólafur Kvaran listfræðingur og listráðunautur hafa unnið saman að því að velja myndir á sýning- una. Knud lét þess getið að hér væri um gamlan draum sinn að ræða sem hann væri nú glaður yfir að ræst hefði. Hann sagði og að þessi Munchsýning, „sérhönnuð" fyrir ísland, væri partur af þeirri viðleitni sinni að Norræna húsið Arne Eggum, Ólafur Kvaran og Knud ódegárd völdu til Munch-sýningarinnar. (Mynd Sig). Laugardagur 27. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.