Þjóðviljinn - 27.09.1986, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 27.09.1986, Blaðsíða 4
LEIÐARI Tilbúin í slaginn Væntanlegar kosningar eru nú farnar aö hafa óheillavænleg áhrif á taugakerfi ríkisstjórnar- flokkanna. Það þarf ekki nein sérstök mælitæki til að verða vör við Suðurlandsskjálftana sem eru farnir að skaka þá með reglulegu millibili. En hið merkilega er, að stjórnarflokkarnir hafa ekki áhyggjur af því um hvað eigi að kjósa, - heldur hvenær eigi að kjósa. Ráðherrar og þingmenn þessara flokka virð- ast nefnilega hafa lítið þarfara að gera en pexa í fjölmiðlum hvort kosningar eigi að vera mánuð- inum fyrr eða síðar. Það hefur raunar verið næsta erfitt að átta sig á þessu stormviðri sem fór af stað í vatnsglasi stjórnarinnar í kringum væntanlega dagsetn- ingu kosninganna. Ef til vill erfiðast fyrir íhaldið. Enda sá formaður þingflokks Sjálfstæðis- manna sig að lokum tilneyddan til að gefa út sérstakar lesleiðbeiningar um hvernig bæri að skilja ummæli hans og annarra þingmanna Sjálfstæðisflokksins um málið. Sjálfur var hann hins vegar ekki skýrari en svo, að Morgunblaðið sá ástæðu til að skrifa sérstakan leiðara til að skýra skýringar þing- flokksformannsins. Allir þekkja svo heiðríkju Morgunblaðsins! Pexið á sér hins vegar ákveðna skýringu. Þingflokkur Sjálfstæðismanna lýsti því yfir - að vísu með einkar loðmullulegum hætti - að hann vildi flýta kosningum og hafa þær fyrir apríllok. Framsóknarmönnum fannst þetta hins vegar stappa nærri helgispjöllum. Þeir vilja nefnilega ekki flýta kosningum fyrir nokkurn mun. Það er í sjálfu sér skiljanleg afstaða hjá Fram- sókn. Það þarf nefnilega ekki einu sinni meðal- greindan Framsóknarmann til að skilja að allt útlit er nú fyrir stórfelldan kosningaósigur flokksins. Menn þurfa ekki nema vera rétt stautfærir á blöðin til að sjá að það er einmitt þetta sem skoðanakönnun eftir skoðanakönn- un boðar. Það er þessvegna sem Framsóknarmenn vilja seinka kosningum eins mikið og auðið verður. Þeir lifa í þeirri veiku von að fái þeir örlítið meira tóm takist þeim ef til vill að hysja upp um sig buxurnar sem eru búnar að þvælast um hælana á þeim síðustu þrjú árin. Fyrir íslenska sósíalista skiptir þetta lítilsiglda pex hins vegar engu máli. Kosningar geta verið hérna megin jóla eða hinu megin, fyrir páska eða eftir páska, - það gildir okkur einu. Við ,höfum þann einbeitta ásetning að koma þessari ríkisstjórn frá, og okkur skiptir ekki mestu máli hvenær við hefjumst handa. Frá skal hún! Við förum í baráttuna til að skila góðærinu í réttar hendur. Það vita allir að aldrei fyrr í sögu lýðveldisins hefur jafn mikill auður orðið til í landinu og nú. Sérfræðingur eftir sérfræðing romsar upp úr sér talnaflóði í fjölmiðlunum til að sanna að góðærið sé í rauninni ekki tilbúningur skrifborðsvísindamanna - það sé í rauninni til. Og við rengjum það í sjálfu sér ekki. Við höldum því hins vegar fram að mesta góðæri þjóðarinn- ar hafi siglt fram hjá öllu venjulegu fólki. Þess- vegna hlýtur það að verða eitt meginverkefni komandi kosningabaráttu að byggja grunn undir nýja ríkisstjórn félagshyggjuaflanna sem sér um að skila góðærinu í réttar hendur. Við förum líka í baráttuna til að létta vinnu- þrælkuninni af fólki. Sjá til þess að fólk fái laun sem það geti lifað af án þess að takast á hendur eins konar sjálfskipaða útlegð frá mannlegu samfélagi til að geta með óhóflega löngum vinnudegi séð sér og sínum farborða. Þetta eru þeir hlutir sem íslenskir sósíalistar munu setja á oddinn. Okkar kosningabarátta mun beinast að því að fleygja út í hafsauga ríkisstjórn kjararáns og vinnuþrælkunar. Hvort það verður mánuðinum fyrr eða seinni skiptir ekki máli. Við höfum beðið í bráðum fjögur ár. Og nú erum við tilbúin í slaginn! _ÖS 0 Mynd: Einar Ól. LJOSOPIÐ DJOÐVIIJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, Össur Skarphóðins- son. Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Garðar Guðjonsson, Inaólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafs- dóttir, Maanús H. Gíslason, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Sigurður Á. Friðþjófsson, Valþór Hlöðversson, Vilborg Davíðsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Ingvi Kjartansson (Akureyri). Handrita- og prófarkalesarar: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlit8teiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir. Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: ólöf Húnfjörð. Bllstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Afgreiðslustjóri: Hörður Oddfríðarson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. ipnheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumula 6, Reykjavík, sími 681333. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setnlng: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 50 kr. Helgarblöð: 55 kr. Áskriftarverð á mánuði: 500 kr. 4 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 27. september 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.