Þjóðviljinn - 27.09.1986, Síða 16
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Laugardagur 27. september 1986 219. tðlublað 51. árgangur
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Samningsréttarnefnd
Verkfallsrétt fyrir alla
Frumvarp samningsréttar-
nefndar opinberra starfs-
manna að samningsréttarlögum
var lagt fyrir fulltrúa (jórmála-
ráðuneytisins í gær og efni þeirra
kynnt í meginatriðum.
í tillögum BSRB, BHMR og
BK er krafist fulls samnings- og
verkfallsréttar fyrir hvert stétt-
arfélag og að öll ákvæði um
kjaradóm hverfi, en stofnuð
verði kjararannsóknarnefnd op-
inberra starfsmanna, KOS.
Ríkisvaldið hefur þegar lýst því
yfir að „nauðsynlegir dóm-,
heilsu- og löggæsluhópar" ættu
ekki að hafa verkfallsrétt en í
frumvarpsdrögunum er gert ráð
fyrir því að einstök stéttarfélög
þessara hópa ákveði sjálf ákveð-
inn hundraðshluta starfsmanna
sem verði skylt að gefa unda-
nþágu frá verkfallsrétti.
„Það kemur ekki til greina að
þessir hópar afsali sér verkfalls-
rétti“, sagði Kristján Thorlacius,
formaður BSRB í samtali við
blaðið í gær. Samningsaðilar
munu hittast eftir næstu viku en
ljóst er að mikið ber í milli og má
því búast við að langan tíma taki
að ná samkomulagi. Fulltrúar
BSRB, BK og BFIMR hafa lýst
því yfir að þeir leggi ríka áherslu á
Arnþór Helgason
Tilræði
við lýðræðið
Arnþór kœrir til
félagsmálaráðherra.
Krefstþess að Guðmari
Magnússyni verði veitt
áminning og hann biðjist
opinberlega afsökunar
Eg hef sent félagsmálaráðherra
bréf þar sem ég rek aðdrag-
anda þessa máls og skýri honum
frá því að ég hef notað scgul-
bandstæki sem hjálpartæki á
fundum í einn og hálfan áratug án
þess að nokkur hafi gert athuga-
semdir við það, sagði Arnþór
Helgason í samtali við biaðið í
gær, en honum var vísað út af
fundi bæjarstjórnar á Seltjarnar-
nesi fyrir að hljóðrita það sem
fram fór sér til minnis.
í bréfinu til ráðherra fordæmir
Amþór forseta bæjarstjórnar,
Guðmar Magnússon, fyrir beint
tilræði við lýðræðið í landinu og
mælist til þess að úrskurði hans
verði hnekkt, honum veitt
áminning og hann biðji Amþór
afsökunar opinberlega.
„Blindrafélagið mun væntan-
lega styðja við bakið á Arnþóri í
þessu máli og mér finnst það al-
veg fáránlegt að banna blindum
manni að nota segulbandstæki
sem hjálpartæki á fundum“,
sagði Sverrir Karlsson varafor-
maður Biindrafélagsins í samtali
við blaðið. „Ég hef enga trú á því
að til sé lagabókstafur fyrir þessu
og við höfum notað slík segul-
bandstæki hér í félaginu í mörg
ár. Blindur maður getur skrifað
blindraletur ef hann hefur að-
stöðu til þess á fundi en það veld-
ur meira ónæði en hljóðritun þar
sem sífellt tikk heyrist í sílnum
sem er stungið í gegnum gata-
grind“, sagði Sverris.
-vd.
að samkomulag náist sem fyrst.
Að sögn Kristjáns Thorlaciusar
er von á að svör ríkisvaldsins birt-
ist í frumvarpsformi þegar aðilar
hefja viðræður.
Þorsteinn A. Jónsson formað-
ur launamálaráðs BHMR og
Kristján Thorlacius, formaður
HÍK sögðu við blaðið að ef vel
gengi að ná fram kröfum félag-
anna í formi löggjafar væri vel
hugsanlegt að tekið yrði upp sam-
starf á víðari grundvelli milli allra
opinberra starfsmanna í stærstu
réttindamálum. _vd.
Sjónvarp
Listamannastund
aflögð
í útvarpsráði í gær var sam-
þykkt með öllum greiddum at-
kvæðum að leggja niður nafnið
„Kvöldstund með listamanni“ í
sjónvarpsþáttum.
Þarmeð er þó ekki tekið fyrir við-
talsþætti af sama toga „heldur
verði framvegis rætt við einstak-
linga án þess að skipa þeim á sam-
eiginlegan bás“. ~PV
Hestar
Á sýningu
til New York
Fyrirtækin íslandssport og fs-
hestar hafa tekið höndum saman
um kynningu á íslenska hestinum
f Bandaríkjunum. Einnig hafa
fyrirtækin ásamt fleiri aðilum
ráðist í útgáfu á alþjóðlegu tíma-
riti um íslenska hestinn, Iceland
horse international, sem mun
koma út í fyrsta skipti í nóvember
n.k. í tilefni alþjóðlegu hestasýn-
ingarinnar í Madison Square
Garden í New York.
Forráðamenn fyritækjanna
telja að með því að komast inn á
þessa miklu sýningu opnist miklir
möguleikar bæði á landkynningu
og kynningu á íslenska hestinum í
Bandaríkjunum en um 27 miljón
bandaríkjamanna eru nú með-
limir í reiðklúbbum.
Ragnar Hinriksson knapi með einn dýrmætasta gæðing landsins, Júní, sem var efstur í A-flokki gæðinga á landsmótinu á
Hellu í sumar. Þeir félagar verða samferða á hestasýninguna í Bandaríkjunum í nóvember. Mynd: E.ÓI.
MEÐ FOSTUM VOXTUM
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF.