Þjóðviljinn - 03.10.1986, Page 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
3
október
1986
föstu-
dagur
224. tölublað 51. ároanour
-m
DJÖÐVIUINN
MANNLÍF
GLÆTAN
HEIMURINN
UM HELGINA
Fótbolti
30-0!
Framarar stóðu sig vonum
framar gegn Katowice í Póllandi í
gær og töpuðu „bara“ 0-1. Þá er
lokið Evrópuleikjum íslenskra
knattspyrnuliða þetta haustið og
eru samanlögð úrslit í leikjunum
sex 30-0, íslendingum f óhag.
Fram tapaði 0-3 og 0-1 fyrir Pól-
verjum, Valur 0-7 og Ó-4 fyrir
ítölum og Skagamenn 0-9 og 0-6
fyrir Portúgölum.
Markatalan hefur sjaldan verið
verri, en liðin hafa einnig sjaldan
lent á móti jafnsterkum Uðum.
Síðan íslensk lið fóru árið 1969 að
taka þátt í útsláttarmótunum
öllum þremur hefur markatalan
aðeins einu sinni verið lakari,
árið 1969: 1-35, en 1970 töpuðu
íslensku liðin með sama marka-
mun, 2-32. Aðeins einu sinni
áður á þessum tíma hefur íslend-
ingum ekki tekist að skora mark í
Evrópuleikjunum, 0-16 samtals
árið 1972.
Húsavík
Ævaforn
birkibútur
5000 ára gamall birkibútur
fannst fyrir skömmu í jarðlögum í
grunni íþróttahúss á Húsavík, en
hann er 22 cm í þvermál. Að sögn
kunnugra er það sjaldgæft að
leifar af svo stórum trjám finnist í
jarðlögum.
Þetta kemur fram í Víkurblað-
inu nýlega, en þar segir jafnframt
að Þröstur Eysteinsson náttúru-
fræðingur sem fann bútinn og
Gunnar Baldursson jarðfræðing-
ur telji að búturinn hafi legið
undir öskulagi kennt við Heklu 4,
sem þýði að hann sé eldri en 4500
ára gamall. Á þeim tíma var
hlýindaskeið og svæðið þar sem
Húsavík er nú alvaxið birkiskógi.
Tréð sem fannst er talið hafa
verið um 10 metrar á hæð þegar
það féll fyrir 5000 árum, eða svip-
að að stærð og stærstu birkitré
sem nú vaxa á Húsavík.
Landspítalinn
Bömunum úthýst
Sjúkrarúm ónýtt vegna skorts á starfsfólki
Starfsfólk hér er að gefast upp,
það er búið að fá sig fullsatt af
þessu ástandi, sagði Hrönn Guð-
mundsdóttir deildarstjóri barna-
deildar 13 E á Barnaspítala
Hringsins við á Landspítalanum í
samtali við blaðið f gær, en þar
hefur verið dregið úr hjúkrun
barnanna vegna gífurlegrar
manneklu.
„Fimm hjúkrunarfræðingar
hafa þegar sagt upp störfum og
tvær þeirra eru farnar,“ sagði
Hrönn. „Unnið er í 7,3 stöðugild-
um af 13 leyfilegum. Allir sjúkra-
liðar hafa sagt upp, flestir frá 1.
október en 2 fara í desember.
Auk þess hættu fimm sjúkraliðar
í síðasta mánuði. Núna er unnið í
3,8 stöðugildum sjúkraliða af 5
leyfilegum. Fleiri hafa þó verið
starfandi hér vegna skorts á
hjúkrunarfræðingum. Með því
að hafa aðra deildina dagdeild og
hina aðeins opna á virkum
dögum er verið að reyna að redda
málunum fram að jólum, en það
er fyrirsjáanlegt að þá þurfi að
loka ef ekkert verður að gert.
Fólkið hér vinnur mikla auka-
vinnu og enginn má veikjast eða
forfallast. Það er undir miklu
álagi og svartsýnt á að heilbrigð-
isyfirvöld geri nokkuð í málinu.“
-vd.
Hrönn Guðmundsdóttir deildarstjóri barnadeildar 13 E: Við sendum börnin heim um helgar eða á deild 12 E sem er yfirfull. Dagdeildin lokar kl. 16.00 og
rúmin eru auð vegna skorts á starfsfólki. Mynd Sig.
Leiðtogafundurinn
Eitt í dag annað á morgun
Það eru engar líkur á að þessi
viðburður fari úrskeiðis
nema þeir aðilar sem standa að
fundinum vilji klúðra þessu. Ég
verð að segja að ég hef aldrei
kynnst svona hringlandahætti,
sagði Kjartan Lárusson fram-
kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu
ríkisins í samtali við Þjóðviljann í
gær, en starfsfólk ferðaskrifstof-
unnar hefur lent í erfiðleikum
vegna ófullnægjandi upplýsing-
astreymis frá Sovétmönnum og
Bandar ikj amönnum.
„Þetta á allt að smella saman ef
við fáum að vita hvaða vanda við
eigum að leysa. Staðreyndin er
hins vegar sú að upplýsingar frá
þessum aðilum hafa hingað til
verið vita gagnslausar, þeir segja
eitt í dag og annað á morgun. Við
höfum ekki fengið neinar áreið-
anlegar tölur um fjölda í fylgdar-
liði leiðtoganna, hvort Reagan
kemur með 200,300,500 eða 900
manns með sér. Ef þetta heldur
áfram fram á síðasta dag er ég
Útlendingaeftirlit
Sálgreining í flugstöðinni
Vönkuðum Finna vísaðfrá. Porgeir Þorsteinsson: Maðurinn var augljóslega ekki
með sjálfum sér
Eftirlit með komum erlendra
farþega til Keflavíkurflugvallar
hefur verið hert nyög vegna
leiðtogafundarins í næstu viku,
og hefur nú þegar einum manni
verið neitað um landvist. Sá er að
sögn Þorgeirs Þorsteinssonar lög-
reglustjóra á vellinum finnskur
og „augljóslega geðbilaður“ að
sögn Þorgeirs.
„Það var greinilegt að maður-
inn var ekki með sjálfum sér,“
sagði Þorgeir þegar Þjóðviljinn
spurði um þetta í gær. Aðrir er-
Iendir farþegar hafa mátt sætta
sig við stranga leit og vökult eftir-
ht, en ekki lent í sálgreiningu í
flugstöðinni.
Farþegar til landsins eru nú
mun fleiri en í meðalári og taldi
Þorgeir ekki ólíklegt að
straumurinn myndi enn aukast
þegar Uði á næstu viku.
-gg
hræddur um að þetta verði
skringileg samkoma,“ sagði
Kjartan í gær.
Af þessum sökum hefur ferða-
skrifstofan átt erfitt með að leysa
úr vanda fjölmiðlafólks sem hing-
að streymir og vantar gistingu.
Föruneyti leiðtoganna eru for-
gangshópar, vanda þeirra verður
að leysa fyrst.
Mikið hefur verið rætt um að fá
hingað til lands skemmtiferða-
skip, sem nota mætti sem hótel,
en ákvörðun verður ekki tekin
um það fyrr en í dag. Nokkur skip
standa til boða og geta verið
komin til landsins f upphafi næstu
viku.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvar leiðtogarnir munu funda
eða búa, en reiknað er með að
það skýrist í dag. Hótel Saga er
enn talin líklegasti fundarstaður-
inn, en hótelið hefur ásamt Hótel
Loftleiðum, Esju og Holti verið
tekið leigunámi með bráða-
birgðalögum -gg
Sja siðu 3
Himinfurður
Sóltér
sortna
Sólmyrkvi vestanlands
um sexleytið í dag
I
dag
klukkan 17.58 verður
sólmyrkvi á Vesturlandi, hinn
mesti síðan árið 1954, og hylst sól-
in Reykvíkingum að meira en
fjórum fimmtu.
Sólmyrkvinn stendur aðeins í
nokkrar sekúndur, en eftir sól er
sest, klukkan allhratt vegna þess
að eftir það eykst sólmyrkvinn.
Tungl skyggir næst á sólu á ís-
landi árið 2003, og er hér um
merkan viðburð að ræða, en
þeim sem á horfa er þó af fróðum
mönnum ráðlegt að gæta sjónar-
innar og rýna ekki í nema gegn-
um litað gler eða ámóta. Myr-
kvinn verður meiri eftir því sem
staðið er hærra og nær almyrkvi á
fjöllum uppi eða á flugi.