Þjóðviljinn - 03.10.1986, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 03.10.1986, Blaðsíða 4
LEIÐARI Nýja landbúnaðarstefnu Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkur- inn hafa nú farið með æðstu stjórn landbúnað- armála íslensku þjóðarinnar nær óslitið í marga áratugi. Það þarf tæpast að fjölyrða um afleið- ingar þess fyrir neytendur jafnt sem bændur. Allir vita, að landbúnaðurinn á við djúptæk og alvarleg vandamál að stríða. Einhvern veginn hafa málin æxlast svo, að óvönduðum áróðursmeisturum hefur tekist að telja fólki trú um að þetta ástand sé einkum og sér í lagi bændunum sjálfum að kenna. En það er vitaskuld út í hött. Með engu móti er hægt að kenna þeim um þann vanda sem íslenskur land- búnaður er sokkinn í upp að knjám. Sektarlambið í þessum efnum er fyrst og fremst kerfið sem búið er að byggja upp í kring- um landbúnaðinn, og þeir sem geta þakkað sér það eru að sjálfsögðu þeirflokkar sem stýrt hafa málefnum landbúnaðarins: Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur. Afdrifaríkasti partur þessa kerfis tvíflokkanna eru fjárfestingalánasjóðir, sem hafa áratugum saman hvatt bændur til óhóflegra fjárfestinga í vélum, jarðabótum, húsakosti og bústofni, án nokkurs tillits til eftirspurnar eftir hinum væntan- legu afurðum. Þannig hefur framleiðslugetan á hinum hefð- bundnu sviðum landbúnaðar vaxið langt um- fram innlenda eftirspurn, - þrátt fyrir að bænd- um hafi fækkað. Það er að vísu erfitt að afla talna um hina raunverulegu framleiðslugetu vegna margvíslegra takmarkana á framleiðslu hefðbundinna landbúnaðarafurða á undanförn- um árum. En það er ærin vísbending að árið 1985 var mjólkurframleiðsla 18 miljón lítra, eða um 15 af hundraði, umfram eftirspurn. Verð- lagsárið 1984-1985 var framleiðsla kindakjöts sömuleiðis 30 af hundraði, eða 2800 tonnum, umfram eftirspurn innanlands. Tilraun til að leggja mat á ástandið var gerð í landnýtingarskýrslu sem nýlega kom út á veg- um landbúnaðarráðuneytisins. Þar var talið, að rúmur helmingur núverandi kúabænda og 45 til 70 af hundraði sauðfjárbænda gætu auðveld- lega framleitt allar þær mjólkur- og kindakjötsaf- urðir sem hægt er að selja innanlands á kom- andi árum. Vegna þessa ástands hefur framleiðslu- kostnaður í landbúnaði orðið óhóflega hár. Við- bótarkostnaðinum hefur verið velt út í verðlagið með þeim afleiðingum að eftirspurn eftir inn- lendum landbúnaðarvarningi hefur dregist saman. Enn bætist svo á raunir bændastéttar- innar að milliliðakostnaður hér á landi, bæði við vinnslu, dreifingu og sölu, er einkar hár. Það rýrir enn hlut bænda af því verði sem neytendur greiða fyrir vöruna. Það má því segja, að í hnotskurn birtist vandi landbúnaðar hér á landi í því að framleiðslan er verulega umfram eftirspurn, verðlag á afurðum er hátt, og mun hærra en í nágrannalöndunum, en síðast en ekki síst er afkoma bænda mjög lök. Það er í rauninni sérstakt áhyggjuefni, hversu tekjur bænda og launþega í landbúnaði eru lágar. Ef til vill er óhentugt að reiða sig alfarið á opinberar hagtölur í þeim efnum. Sé það eigi að síður gert kemur í Ijós að meðaltekjur í landbún- aði voru árið 1984 um 44 af hundraði undir landsmeðaltali, og miklu lægri en í nokkurri ann- arri atvinnugrein. Leiðin úr þessu óviðunandi ástandi getur að- eins falist í aukinni hagkvæmni í landbúnaðar- framleiðslu. Það þarf að laga framleiðslugetuna að innlendri eftirspurn. Hlns vegar er ófært að bændur beri þyngri byrðar en aðrir landsmenn meðan á þeirri aðlögun stendur. Það er augljóst að við verðum að efna í nýja landbúnaðarstefnu, - sem ber hag bæði neytenda og bænda fyrir brjósti. Það ber að kosta kapps um að ná fyllstu hagkvæmni í fram- leiðslu landbúnaðarafurða hérlendis, með það fyrir augum að bæta kjör bænda og lækka verð- ið til neytenda. Til að þetta sé kleift verður að breyta verulega skipulaginu á því kerfi sem landbúnaðurinn býr við í dag. En sú endurskipulagning á framleiðslunni sem er nauðsynleg til að ná hagkvæmni má alls ekki fela í sér að sérstakar byrðar séu lagðar á bændur umfram aðra landsmenn. Þeir eru ekki sökudólgarnir. -ÖS KUPPT OG SKORMD Austur? Vestur? Alltaf er hann skemmtilegur, hann Jón Baidvin, og víst hefur honum tekist meistaralega það sem fáir trúðu að væri hægt, en það er að framlengja lífdaga Al- þýðuflokksins, sem I skoðana- könnun DV í nóvember 1984 var spáð 6,2% fylgi og 3 þing- mönnum. í eina tíð var það sagt um aldurhnigna stjórnmálamenn I Þýskalandi að þeir hefðu látið græða í sig apahormóna til að treina í sér líftóruna, en meðal annars hefur Jón Baldvin fengið hormónainnspýtingu úr Banda- lagi jafnaðarmanna til að freista þess að auka lífslíkur Alþýðu- flokksins. ígræðslustarfsemi af þessu tagi er þó hættuspil, en hvað á doktorinn að gera þegar öndin er að fljúga úr sjúkling- num? í dag efnir Jón Baldvin til af- mælisþings krata í Hveragerði, þar sem flutt verða vönduð atriði. Til dæmis mun pabbi Jóns Bald- vins taka í höndina á prófessor Gylfa Þ. Gíslasyni. Þegar menn hafa svo jafnað sig eftir þann sögulega viðburð mun Guðmundur Einarsson, sem hef- ur þá sérstöðu að sitja á alþingi fyrir tvo flokka en enga kjósend- ur, flytja ávarp. Guðmundur þessi kom inn á þing í síðustu kosningum og boðaði merkar hugsjónir, sem hann fær nú gott tækifæri til að kynna nánar. í desert koma svo ávörp gesta. Þar fer fremstur Ásmundur Stef- ánsson, sem vafalítið hugsar Jóni Baldvin þegjandi þörfina fyrir að hafa rokið í sjónvarpið um dag- inn og tilkynnt að trúlofun þeirra stæði fyrir dyrum. En eins og al- þjóð veit er Ásmundur í lukku- ins. Þetta eru poppaðir tímar. legri (sumir segja stormasamri) En þegar sögulegu handabandi sambúð við Alþýðubandalagið, og léttum skemmtiatriðum lýkur og hlýtur að hafa orðið dálítið hverfur formaðurinn væntanlega reiður, þegar hryggbrotinn von- aftur að þeirri iðju að reyna að biðillinn fór að fría til hans fyrir bjarga glötuðum sálum inn í Al- framan alþjóð. En þetta eru opin- þýðuflokkinn, sem nú er mest skáir tímar. farinn að líkjast sæluhúsi fyrir Síðan kemur svo sameiginlegt skipreika alþingismenn eða aðra borðhald með léttri dagskrá, sem ferðalanga sem eru orðnir svo hlýtur að verða mjög létt, úr því rammvilltir að þeir vita ekki að hin þyngri dagskráratriði eru lengur hvert þeir ætluðu að fara. þegar upp talin, en þá er þess að Formaðurinn lætur drýginda- gæta að létta dagskráratriði eru lega yfir því að þótt Ásmundur sé að verða sérgein Alþýðuflokks- ekki til í neitt útstáelsi þá sé hann að gera hosur sínar grænar fyrir öðrum verkalýðsleiðtogum sem taki blíðmælum hans vel. Það má nefnilega mikið læra af lífsreglu flagarans gamla hans Don Juan: Ef maður bara reynir við nógu margar þá hlýtur einhver að láta undan. Með þessi orð nafna síns sáluga f huga gæti Jón Baldvin til dæmis litið yfir myndarlega hjörð, sem virðist vera til í að fara á þing (þrátt fyrir léleg laun) og stendur ekki allfjarri krötunum í hug- sjónalegu tilliti - að svo miklu leyti sem skynsamlegt er að tala um hugsjónir meðan BJ-nárinn er enn glóðvolgur. (Það er skuggalegt til þess að hugsa fyrir velunnara Jón Baldvins, að þeir uppvakningar sem fara.á kreik meðan þeir eru enn volgir reynast jafnan hættulegastir). Nú er nefnilega í uppsiglingu prófkjör hjá sjálfstæðismönnum og eins og vera ber á frjálshyggju- tímum er framboðið meira en eftirspurnin, þ.e. framboð á frambjóðendum: ,3innum kalli tímans, kjósum Bessí Jóhannsdóttur í 6. sæti í prófkjörinu í Reykjavík,“ segir í Moggaauglýsingu. Þetta ætti Jón Baldvin að athuga, jafnvel þótt vafamál sé að Bessf eigi við hann þegar hún talar um ,,ka)l tímans“. Spámenn telja að Bessí eigi litla' möguleika á 6. sætinu, þótt sálfræðingar teiji skynsamlegt af henni að stefna einmitt á það sæti, því að talan 6 tengist oft konum hjá þeim flokki, sem hún býður nú þjónustu sína. Annar kandídat, sem Jón ætti kannski líka að spjalla við, auglýsir í Mogganum á smellinn hátt: „Flugstjórinn talar: Gott sam- ferðafólk, þið haflð hingað til trú- að mér fyrir lífi ykkar. Trúið mér nú fyrir atkvæði ykkar. Rúnar.“ (Með þessu fylgir svo mynd af frambjóðandanum í flugmanns- úníformi). Það má alltaf reyna... Jón Baldvin stendur nú í stór- ræðum í afmælishófinu og rétt og skylt að óska honum og hans fólki til hamingju með daginn, nú þeg- ar áttræðisaldurinn er að byrja. Eftir stormasama ævi og margar lífshættur verður ellin vonandi hvorki langdregin né erfið. Þótt Jón Baldvin sé hér sagður skemmtilegur maður má ekki skilja þá lýsingu sem svo, að hann kunni ekki þá gömlu list að vera loðinn og myrkur í svörum. Dæmi: í viðtali við HP segir Jón þegar hann er spurður hvort hann sé ennþá staðráðinn í að fara í framboð eystra, eins og hann hót- aði Austfirðingum sællar minn- ingar: ,^Nei. Ég var aldrei staðráðinn í þvf. Og er það ekki. Þessi ummæli voru nákvæmlega þau, að ef heimamenn gerðu ekki að því gangskör innan ákveðinna tíma- marka að sameinast um sigur- stranglegan kandídat - heima- mann - þá hótaði ég þessu... (bla- ...bla... bla... bla... bla...)... Og ef það felst í því að færa mig til - úr einu kjördæmi í annað, þá er ég til. Og þá gæti svo farið, að ég færi austur - eða vestur. Þetta kemur allt f ljós.“ Hér talar sannur hugsjóna- maður! En allt um það. Til ham- ingju með daginn, Jón, hvert sem leið þín liggur. Austur? Vestur? Norður? eða - hvert á land sem er. - Þráinn DJOÐVIIJINN Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis og verkalýöshreyfingar Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Ritstjórar: Ámi Bergmann, Þráinn Bertelsson, Össur Skarphóðins- son. Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson. . , -, ' Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Inaólfur Hjörleifsson, Kristin Olafs- dóttir, Magnús H. Gíslason, Mörður Ámason, Sigurdór Sigurdórsson, Sigurður A. Friðþjófsson, Valþór Hlöðversson, Vilborg Davíðsdóttir, Vfoir Sigurðsson (íþróttir), Ingvi Kjartansson (Akureyri) Handrita- og prófarkalesarar: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útllt8telknarar: Sœvar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason. Framkvœmdastjórl: Guðrún Guömundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrlfstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Auglýslngastjórl: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir. Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Afgreiðslustjóri: Hörður Oddfríðarson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 50 kr. Helgarblöð: 55 kr. Áskriftarvorð á mónuði: 500 kr. 4 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN* Föstudagur 3. október 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.