Þjóðviljinn - 03.10.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 03.10.1986, Blaðsíða 16
Föstudagur 3. október 1986 224. tölublað 51. örgangur Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663. wODVIUINN 1936-1986 ÞJÓÐVIUINN 50 ÁRA Breiðholtsbrauð Gísli efstur 55% þátttaka í prestskosningunum í Breiðholti. Gísli Jónasson úr Víksigraði Gísli Jónasson sóknarprestur í Vík í Mýrdal hlaut flest atkvæði í prestskosningu í Breiðholtsprest- akalli sem fram fór um sl. heigi. Alls voru þrír prestar í kjöri og hlaut Gísli 714 atkvæði af 1732 sem greidd voru. Séra Guðmund- ur Karl Ágústsson sóknarprestur í Ólafsvík hlaut 549 atkvæði og séra Guðmundur Örn Ragnars- son farprestur hlaut 454 atkvæði. Alls voru 3132 á kjörskrá og var þátttaka í kosningunni um 55%, 14 seðlar voru auðir og 1 ógildur. -Ig. Stjórnmál BJ stefnir á framboð Staðfastir BJ-menn hittast. Landsfundur haldinn, ogstefntá framboð ínœstu kosningum. Þorgils Axelsson: BJ lifir Þeir BJ-félagar sem ekki eru gengnir í Alþýðuflokkinn hafa ákveðið að halda áfram starfi Bandalagsins, efna til landsfundar öðru hvoru megin við áramót og bjóða fram í þing- kosningunum. Á fundi sem haldinn var í fyrra- kvöld kom að sögn eins fundar- manna saman um tugur manns úr þeim hópi BJ-manna sem ekki ætlar sér að fylgja Guðmundi Einarssyni og Stefáni Benedikts- syni yfir í Alþýðuflokkinn. Á fundinum var fólk úr þeim örm- um báðum sem mynduðust í fyrr- asumar, og fór vel á með fundar- mönnum að sögn Þorgils Axels- sonar, farið yfir stöðu mála og settur upp vinnuhópur til að vera í forystu fyrir BJ eftir brotthlaup meirihluta BJ-stjórna fyrr í vik- unni. Á fundinum voru fyrrver- andi og núverandi landsnefndar- menn, meðal annars Þorsteinn Hákonarson varaformaður landsnefndar og Örn S. Jónsson formaður framkvæmdastjórnar. Meðal annarra mun Vilhjálmur Þorsteinsson varaformaður BJ vera að íhuga að ganga til starfa með þessum hópi. Á fundinum var þessu lýst yfir í ályktun: „1. Bandalag jafnaðarmanna hefur ekki verið lagt niður. 2. Haldinn verður landsfundur Bandalags jafnaðarmanna einsog lög Bandalagsins gera ráð fyrir. 3. Starfandi er fólk sem vinnur að stefnumálum Bandalags jafnað- armanna. 4. Bandalag jafnaðar- manna býður fram til alþingis. 5. Bandalag jafnaðarmanna mun sækja styrk sinn til almennings.“ Þorgils Axelsson og Þorsteini Stöð tvö Páll enn undir feltíi Páll Magnússon fréttastjóri Stöðvar tvö segist enn ekki vera kominn undan feldinum sem hann breiddi yfir sig þegar ákveð- ið var að hefja fréttatíma klukkan hálf átta í ríkissjónvarpinu. Akvörðun um þetta verður varla kynnt hjá Stöð tvö fyrren rétt fyrir fyrsta útsendingardag, fímmtudaginn í næstu viku. Þrennt kemur til greina, segir Páll, - að halda sig við fyrri ákvörðun um hálf átta, þótt RÚV hafi tekið þann tíma, að taka gamla útsendingartíma RÚV klukkan átta, eða vera á undan, og byrja til dæmis kortér yfir sjö. Stöðvarmenn fluttust í gær í húsnæði sitt á Krókhálsi og búa sig af kappi undir útsendingar. Prófraunin verður fundur Reag- ans og Gorbatsjofs sem hefst á þriðja degi hins nýja sjónvarps. - Ég neita því ekki að við hefðum viljað fá svona hálfan mánuð áður, sagði Páll við Þjóðviljann í gær, - en við erum viðbúnir. Krístín Á. Ólafsdóttir varaformaður Alþýðubandalagsins ritar nafn sitt undir áskorun kvenna til Reagans og Gorbachovs um bætta sambúð stórveldanna. Við hlið hennar er Alda Möller matvælafræðingur og til vinstri er Þórunn Gestsdóttir formaður Landsambands Sjálfstæðiskvenna. Mynd Sig. Mannsœvi íslendingar langlífastir Islendingar eru langlífastir allra þjóða í heiminum samkvæmt nýjustu tölum. Miðað við mann- dauða sem var hérlendis á áruu- um 1981 - 85 þá er meðalæfi ný- fæddra sveinbarna 74.10 ár og nýfæddra meybarna 79.94 ár sem er það hæsta sem um getur í heiminum. Samkvæmt upplýsingum í nýj- asta tbl. Hagtíðinda sem Hag- stofan gefur út, hefur meðalævi nýfæddra íslendinga lengst um 42 ár á sl. 130 árum. Árið 1850 var meðalaldur karla 31.9 ár og kvenna 37.9 ár en var hundrað árum síðar kominn upp í 66 ár hjá körlum og rúm 70 ár hjá konum. Meiri hlutinn af þessari lengingu meðalævinnar stafar af minnkuð- um bamadauða. Sé meðalævilengd íslendinga miðuð út frá fæðingar- og dánar- tölum frá árunum 1984 og 1985 þá er meðalævi karla komin upp í 74.74 ár og kvenna upp í 80,22 ár. Þetta er hæstu meðaltölur sem þekkjast í heiminum. Næstir í röðinni eru Japanir er japanskir karlmenn lifa að meðaltali í 74.54 ár og japanskar konur í 80.18 ár. Þriðju í röðinni eru Svíar. Karlar þar lifa að meðaltali í 73.8 ár og konur í 79.9 ár. Þá kemur einnig fram í tölum Hagstofunnar að stysta meðalævi kvenna í heiminum er 31 ár í Búrkína Fasó og 32 ár í Austur - Tímor og Kampútseu. Hákonarsyni var falið að hafa orð fyrir vinnuhópnum. Þorgils sagði Þjóðviljanum í gær að á lands- fundi kringum áramót yrði ákveðið hvort BJ yrði lagt niður, en hópurinn á fundinum í gær mundi ganga til landsfundar með áætlun um áframhaldandi starf og stefna að framboði í næstu kosningum. „Bandalagið lifir,“ sagði Þor- gils, „aðeins eitt gæti stöðvað það og það væri ef þingmennirnir þrír kæmu og bæðu um að fá að vera með aftur. Vilmundur Gylfason sagði oft um mál og atburði „lög- legt en siðlaust". Það að ganga úr BJ í Alþýðuflokkinn er löglegt en siðlaust. Það að gefa kjósendum sínum langt nef er bara siðlaust.“ Leiðtogafundurinn Snúið við biaðinu Friðarhreyfing kvenna sendir leiðtogunum áskorun um bætta sambúð stórveldanna Friðarhreyflng íslenskra kvenna gengst nú fyrir undir- skriftasöfnun að yfírlýsingu þar sem skorað er á Ronald Reagan Bandaríkjaforscta og Mikhail Gorbachov aðalritara Kommún- istaflokks Sovétríkjanna „að nýta til fuils mikilsvert tækifæri til að snúa við blaðinu í vopnakapph- laupinu og bæta samskipti og samstarf þjóða sinna,“ eins og segir í yflrlýsingunni. Fjölmargar konur úr stjórnmálum, verkalýðshreyfing- unni, kvennasamtökum og menningarlífinu rituðu nöfn sín undir yfirlýsinguna í gær og er ætlunin að safna 1000 undirskrift- um næstu 10 daga og afhenda svo undirskriftirnar á meðan leiðtog- afundurinn stendur yfir. Átak þetta er í tengslum við óformleg samtök kvenna um allan heim, sem kalla sig „Konur vilja árang- ursríkan leiðtogafund“ og safna ■ þau samskonar undirskriftum um allan heim. -vd Hallgrímskirkja Einkennileg ákvörðim Imínum huga er þetta fyrst og fremst spurning um jafnrétti fatlaðra við annað fólk og þar sem kirkjan á í hlut er þetta einnig siðferðilegt spursmál, sagði The- ódór Jónsson formaður Sjálfs- bjargar þegar hann var spurður álits á þvf að byggingarnefnd Hallgrfmskirkju hefur hafnað hönnunartillögum húsameistara sem gerðu ráð fyrir þvf að ská- braut lægi upp að altari kirkjunn- ar. „Það er ekkert því til fyrirstöðu að fatlaðir læri til prests en þeir gætu ekki sótt um embætti við Hallgrímskirkju né nokkra aðra kirkju í borginni, vegna þess að tröppur hindra umferð hjóla- stóla,“ sagði Theódór. „Þegar ég hef farið til altaris hefur þurft að bera mig í stólnum, sem er ákaf- lega leiðinlegt. Og það er mjög leiðinleg tilhugsun að prestamir séu að hlaupa með sakramentið um kirkjuna til fatlaðra. Ská- brautir eru nauðsynlegar, mann í rafmagnshjólastól er varla hægt að bera því stóllinn einn vegur ein 100 kíló. Þessi ákvörðun bygging- amefndar er því mjög einkenni- leg.“ -vd -m

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.