Þjóðviljinn - 03.10.1986, Blaðsíða 13
Tungumáladeilur
virðast enn einu sinni ætla að
valda stjórnarkreppu í Belgíu eftir
að frönskumælandi hreppstjóri í
héraði í grennd við hollensku
landamærin var rekinn úr starfi
fyrir ónóga þekkingu á flæmsku.
Belgíska ríkisráðið ákvað í fyrra-
dag að vísa Jose Happart úr
starfi sem hreppstjóra í Fourons-
héraði, vegna þess aðhann kynni
ekki nægilega mikið í flæmsku til
að sinna skyldustörfum sínum á
svæði, þar sem flæmska er opin-
bert mál. Samsteypustjórnin sem
mið- og hægri flokkar eiga aðilda
að klofnaði þegar eftir tungumál-
um flokkanna, og óttuðust margir
að stjórnin myndi falla á tungum-
áladeilum eins og margar belg-
ískar stjórnir á undan henni.
Frönskumælandi stjórnmála-
menn hafa tekið úrskurði ríkis-
ráðsins mjög illa en flæmskumæ-
landi stjórnmálamenn hafa fagn-
að henni. Hreppsnefndarmenn í
Fouron-héraði, sem telur 4500
íbúa, hafa lýst því yfir að þeir
munikjósaJoseHappartaðnýju. '
Flestir íbúarnir tala þýska mállý-
sku, en tveir þriðju hlutar þeirra
telja sig frönskumælandi, og hef-
ur héraðið lengi verið miðdepill
tungumáladeilna í Belgíu. Happ-
art hefur lýst því yfir að enginn
stafkrókur í belgísku stjórnarsk-
ránni neyði hann til að tala flæm-
sku.
Sextíu
afgönsk börn létust í sprengjuá-
rás pakistanska hersins á landa-
mærum Pakistans og Afhanistan
fyrir tveimur vikum, segir í tilkynn-
ingu sem afghanska stjórnin
sendi frá sér í gær. Auk barnanna
munu einn hermaður og ein
óbreytt kona hafa látist. Tilkynn-
ingin var lesin upp í útvarpið í Ka-
búl og sagði þar að 44 íbúar
þorps eins hefðu særst í níu
klukkustunda flugskeytaárás
afghanska hersins. Stjórnin hef-
ur sent frá sér mótmælaorðsend-
ingu til pakistönsku stjórnarinnar.
í henni stóð að 700 flugskeytum
hefði verið skotið á Spin Buldak
svæðið í Kandahar héraði, 19.
september síðastliðinn. í orð-
sendingunni var pakistanska
hernum kennt um árásina, ásamt
„bandarískum ráðgjafa þeirra,"
eins og það var orðaö. Einnig
sagði í mótmælaorðsendingunni
að ef ekki yrði lát á slíkum að-
gerðum myndi pakistanska
stjórnin þurfa að taka ábyrgð á
alvarlegum og hættulegum af-
leiðingum þessarar árásar.
Hola
ein mikil, sú dýpsta sem hingað til
hefur verið boruð niður í jörðina,
verður boruð í V-Þýskalandi
innan fárra ára. Þeir sem ætla að
standa að þessari borun eru v-
þýskir vísindamenn. Hafist verð-
ur handa við tilraunaborun á
næsta ári og er ætlunin að bora
14 km niður í jörðina fyrir 450 milj-
ónir marka. Aðalborunin hefst lík-
ast til 1989. Tilgangurinn mun
vera sá, að rannsaka jarðskorp-
una þar sem meginlönd „skullu"
saman fyrir 300 miljónum ára.
Borað verður í Bavaríu, nálægt
landamærum Tékkóslóvakíu.
í dag
kemur Nóbelsnefndin saman til
að ákveða hverjum á að úthluta
friðarverðlaunum Nóbels í ár.
Nefndina skipa fimm þingmenn á
norska Stórþinginu. Nafn þess
sem hlýtur þessi frægu og eftir-
sóttu verðlaun, verður hins vegar
ekki tilkynnt fyrr en 14. október.
Svo verður einnig um Nóbels-
verðlaunin í læknis-, efna-, hag-
og eðlisfræði, ásamt bók-
menntum. Meðal þeirra sem nú
þykja koma til greina varðandi
friðarverðlaunin eru Bob Geldof,
Winnie og Nelson Mandela og
forseti Argentínu, Raoul Alfonsín,
þá líklega fyrir hönd þjóðarleið-
toganna sex sem undanfarið
hafa hvatt Reagan Bandaríkja-
forseta og Gorbatsjof Sovétleið-
toga til afvopnunar.
HEIMURINN
Skotárás á Gandhí
Engin tengsl við
ölgasinnaða Síkha
Maðurinn sem reyndi að drepa Rajív Gandhí með heima-
smíðaðri skammbyssu er talinn vera Hindúi í engum tengs-
lum við öfgasinnaða Síkha. Öryggisverðir Gandhí seinir til
Nýju Delhí - Maðurinn sem
skaut úr heimasmíðaðri byssu
að Rajhív Gandhi, forsætisráð-
herra Indlands, er eftir því sem
embættismenn í Indlandi
segja, ekki félagi í samtökum
öfgasinnaðra Shíta, né í
neinum tengslum við þau. Sex
manns særðust í skotárásinni,
ekki alvarlega þó.
Forseti Indlands, Zail Singh,
Gandhi, forsætisráðherra, kona
hans, Sonia, og aðrir háttsettir
menn sluppu naumlega undan
skothríðinni. Maðurinn sem ber
heiti af ætt Hindúa, Mohan Des-
ai, um það bil 25 ára gamall,
skaut mörgum skotum að hópn-
um.
Eftir skotárásina hafa komið
fram harðar gagnrýnisraddir í
Indlandi á lélegt öryggiseftirlit
með forsætisráðherranum. Þegar
fyrsta skotið reið af mun Gandhi
hafa snúið sér að öryggisvörðum
sínum og sagt að skot hefði heyrst
úr ákveðinni átt. Öryggisverðir
víusðu því hins vegar frá og sögðu
hljóðið hafa verið sprengihljóð í
bfl. Gandhi mun hafa bent örygg-
isvörðum á skot tvívegis áður en
þeir brugðust við.
Við yfirheyrslur mun maður-
inn hafa gefið mjög óskýr svör og
breytti framburði sínum marg-
sinnis. Indverskir embættismenn
munu vera mjög fegnir því að ár-
ásarmaðurinn muni líkast til vera
Hindúi, frekar en Sfkhi eða mú-
hameðstrúarmaður. Þegar Indira
Gandhi var skotin til bana í lok
október 1984, voru 2700 Síkhar
drepnir í miklum óeirðum sem
fylgdu í kjölfarið.
Skotárásin átti sér stað þegar
Gandhi var um það bil að yfirgefa
minningarathöfn um Mahatma
Gandhi á bökkum Yamuna fljóts
í Nýju Delhí kl. 01.30 í fyrra-
kvöld.
Rajív Gandhí. Hann slapp naumlega
úr skotárás og mun það ekki vera
öryggisvörðum hans að þakka.
Svíþjóð
Áhrif verkfails aukast
Nú eru tœplega 20.000 opinberir starfsmenn í Svíþjóð
komnir í verkfall sem hófst á þriðjudaginn
Stokkhólmi - Sífellt fleiri starfs-
stéttir bætast nú í hóp verk-
fallsmanna í Svíþjóð, í gær
bættust 4000 opinberir starfs-
menn í hóp þeirra 14000 opin-
berra starfsmanna sem voru
fyrir í verkfalli.
Verkfallsmenn krefjast sam-
komulags um kjör á sama grund-
velli og starfsmenn í einkafyrir-
tækjum fengu fyrr á árinu. Samn-
ingamenn ríkisins segja að opin-
berir starfsmenn hafi fengið góða
kauphækkun á síðasta ári, tals-
menn opinberra starfsmanna
vilja hins vegar ekki taka síðustu
samninga inn í umræðuna um
launakröfur þessa árs. Samninga-
menn ríkisins segja að sænska
ríkið hafi ekki efni á að fara að
kröfum verkfallsmanna. Fjár-
málaráðherra landsins, Kjell
Olof-Feldt sagði í síðasta mánuði
að kröfur opinberra starfsmanna
væru ósanngjarnar.
Starfsemi opinberra stofnana,
póstþjónustunnar, samgangna og
sjúkrahúsa hefur nú farið mjög úr
skorðum. Fóstrur hafa einnig far-
ið í verkfall og hefur það haft
áhrif á nokkur barnaheimili,
einnig allar miðasölur á járn-
brautastöðvum landsins.
Ráðherra núverandi ríkis-
stjórnar jafnaðarmanna hafa gef-
ið í skyn að mögulega verði
lagðar hömlur á rétt opinberra
starfsmanna til að fara í verkfall.
ERLENDAR
FRÉTTIR
JÓNSSON /REUIER
Finnland
Stríös-
leikföng
bönnuð
Helsinki - í Finnlandi verður
bannað, frá og með næstu ára-
mótum, að framleiða og selja
stríðsleikföng.
Samkomulag þessa efnis var í
gær undirritað af fulltrúum
finnska félagsmálaráðsins og full-
trúum samtaka finnskra leik-
fangaframleiðenda. Talsmaður
félagsmálaráðsins finnska sagði í
gær að bannað yrði að flytja inn
erlend stríðsleikföng, sérstaklega
þau sem tengjast hernaðarbrölti
nútímans. Bannað verður sömu-
leiðis að framleiða þau og selja í
landinu. Svipað bann var sett í
Svíþjóð fyrir 10 árum.
Breski Verkamannaflokkurinn
Vill kjamorkuvopn burt
Fulltrúar á landsbingi breska Verkamannaflokksins samþykktu ígœr að stefna að eyðingu kjarnorkuvopna
í Bretlandi og að láta loka stöðvum Bandaríkjanna ílandinu sem geta geymt kjarnorkuvopn
Blackpool - Verkamannaflokk-
urinn í Bretlandi samþykkti í
gær með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða að hætta notk-
un kjarnorkuvopna og að loka
kjarnorkustöðvum Banda-
ríkjamanna á Bretlandi, þrátt
fyrir ásakanir frá bandarískum
stjórnvöldum þess efnis að
slíkt muni veikja NATO.
Samþykkt þessi var gerð á árs-
þingi Verkamannaflokksins sem
nú hefur staðið yfir í Blackpool í
nokkra daga. Fulltrúar á þinginu
samþykktu fyrrnefnda tillögu
með handauppréttingu. Sam-
þykktin felur í sér að Polaris flug-
skeytin sem komin eru til ára
sinna verða tekin úr notkun. Þá
verður öllum bandarískum her-
stöðvum í landinu sem mögulega
geta geymt kjarnorkuvopn, lok-
að.
Neil Kinnock, leiðtogi flokks-
ins, var ósammála báðum þessum
tillögum. Hann sagði í ræðu sinni
á þinginu að Bretar myndu áfram
halda uppi skyldum sínum við
NATO með því að auka við hefð-
bundið vopnabúr sitt.
Vamarmálaráðherra í ríkis-
stjórn fhaldsflokksins í Bret-
landi, George Younger,
gagnrýndi þessa stefnu Verka-
mannaflokksins harðlega og
sagði hana „hættulega vitleysu“.
Aðstoðarvamamálaráðherra
Bandaríkjanna, Richard Pearle,
sagði þessa stefnu „óábyrga“.
Margir fulltrúar á þinginu
gagnrýndu hins vegar samband
Bretlands og Bandaríkjanna,
einn fulltrúinn, John Owen-
Jones, sagði að þetta samband
einkenndist af „sambandi þjóns
og herra“.
Deilur innan verkalýðsarms
flokksins komu fram í orðum
leiðtoga stéttarfélags rafvirkja
sem greiddi atkvæði gegn hinni
nýju stefnu. Hann sagði að með
styrk NATO hefði tekist að varð-
veita frið í Evrópu frá lokum
síðari heimsstyrjaldar.
Þrátt fyrir þessar deilur þykir
Neil Kinnock nú standa vel sem
leiðtogi flokksins en aðeins þrjú
ár eru síðan hann tók við
eimbætti formanns flokksins.
Gert er ráð fyrir að þingkosning-
ar verði 1988, jafnvel fyrr.
Föstudagur 3. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Leiðtogafundur í Reykjavík
Afghanistanmáliö á dag-
skiá?
Ottawa - Eduard Sjevardna-
dze, utanríkisráðherra Sovétr-
ikjanna, sagði í gær að mögu-
legt væri að eitt þeirra málefna
sem Gorbatsjof Sovétleiðtogi
og Reagan Bandaríkjaforseti
munu ræða á fundi sínum í
Reykjavík verði málefni Afg-
hanistan.
Sjevardnadze sagði þetta á
fundi með Joe Clark, utanríkis-
ráðherra Kanada í gær. Sjevar-
dnadze sagði það mögulegt að
önnur mál en takmörkun vígbún-
aðar bæri á góma í viðræðum
leiðtoganna 11. og 12. október.
Hann hvatti kanadíska ráðamenn
sem vinsamlega nágranna
Bandaríkjanna, til að þrýsta á að
Afghanistanmálið fengi jákvæða
umþóttun bandarískra ráða-
manna á fundinum í Reykjavík.