Þjóðviljinn - 03.10.1986, Blaðsíða 7
tUÚÐVHJINN
Baráttuglatt
biartsýnisfóll
Umsjón:
Helgi
Hjörvar
Það er skammt stórra högga á
milli í alþjóðapólitíkinni á þessum
síðustu og misvondu tímum. Að
viku liðinni funda í Reykjavík þeir
Michael Gorbatsjoff og Ronald
Reagan, en nú í dag hefst lands-
þing Æskulýðsfylkingarinnar og
stendurfram ásunnudag. Þareð
fjölmiðlaveldi auðvaldsins á (s-
landi hefur kappkostað að þegja
þennan viðburð í hel, þótti okkur
rétt að grafast nokkuð fyrir um
hann og samtökin sem að honum
standa. Við lögðum því nokkrar
spurningar fyrir Önnu Hildi Hildi-
brandsdóttur, en hún ásæti í
framkvæmdaráði ÆFAB og er
starfsmaðurfylkingarinnar.
Æskulýðsjylkingin Anna, eru
þetta ekki bara samtök fyrir uppa
úr röðum ungra allaballa?
„Nei, langt því frá. Þetta er
hópur ungs fólks sem vill breyta.
Ekki breytinganna vegna, heldur
vegna þess að það hefur fengið
nóg. Hefur fengið nóg af þessari
ríkisstjórn og því hvernig hún
eykur æ á misréttið. Stefna henn-
ar í kjaramálum, í málefnum
lánasjóðsins, í utanríkismálum
o.s.frv. miðast nefnilega öll að
sama marki: að auka á misrétti
meðal manna.
En þú mátt ekki skilja þetta svo
að við séum bara einhverjir nei-
kvæðir nöldrarar, sem þykjast
geta gert alla hluti betur en aðrir.
Nei, það er bjartsýnisfólk sem
skipar sér í þessa fylkingu. Hug-
sjónafólk. Fólk sem á sér draum
um jafnrétti og bræðralag og trúir
því að fyrr en síðar muni hann
rætast.
Þú sérð það Iíka á öllu okkar
starfi að þetta eru engin uppa-
samtök. Þetta eru baráttu-
samtök. Meðan önnur ungliða-
samtök leggja höfuðáherslu á að
kenna félögum sínum að taka sig
vel út í sjónvarpi og snúa sig útúr
erfiðum spurningum, svo þeir
eigi betri möguleika á að komast
á þing, þá erum við með aðgerð-
ir. Við höfum tekið þátt beint og
óbeint í nær öllum þeim aðgerð-
um sem tengst hafa ffiði, kjaram-
álum og skólamálum undanfarin
ár. Ekki til þess að fá einhverja
bitlinga, heldur vegna þess að við
viljum láta til okkar taka.“
En hefðurðu einhverja sérstaka
skýringu á því afhverju ÆFAB er
svo ólíkt öðrum ungliðasam-
tökum?
„Annarsvegar er sú sem áður
var nefnd, að hugsjón okkar er
fegurri og meiri en komast á
í annan stað er það að Æskulýðs-
fylkingin eræskulýðsfylking. Hjá
okkur eru flestir um og undir tví-
tugu og því ekki komnir í frama-
potið almennilega. Hjá öðrum
ungliðasamtökum eru menn
hinsvegar í þessu fram undir fer-
tugt og þess t.d. ófá dæmi að for-
menn ungliðasamtaka séu að-
stoðarráðherrar! Það að gegna
trúnaðarstörfum í þessum sam-
tökum er þá orðið að tröppu í
hinum pólitíska framastiga."
Starfsöm samtök segirðu.
Hvað hafið þið afrekað á því
starfsári sem nú er að Ijúka?
„Þú biður ekki guð um lítið. Ef
við nefnum það helsta þá ber
sennilega hæst Suður-Afríku að-
gerðirnar sem við stóðum fyrir,
trú hugsjón okkar: jafnréttinu.
Sú aðgerð var um margt til fyrir-
myndar um það hvernig starfa á
að slíkum málum. Við létum okk-
ur ekki nægja að tala um það hve
þetta væri nú ferlegt, heldur fór-
um útá göturnar og reyndum að
gera eitthvað í þessu. Eins var um
E1 Salvador söfnunina sem við
tókum þátt í. Mestan tíma tóku
auðvitað bæjar- og sveitarstjórn-
arkosningarnar. Þar létum við
mjög mikið að okkur kveða og þá
einsog í fyrrnefndu aðgerðunum,
úti á götunum.
Undanfarið höfum við verið í
fundarherferð. Fórum á
Austfirðina og hluta af Vestur-
landi, ísafjörð og Hveragerði. Ný
deild var stofnuð á Akranesi,
haldin norræn ráðstefna um fjöl-
S-Afríku-aðgerðirnar voru mjög til
fyrirmyndar. Við fórum útá götu
og reyndum að gera e-ð.
miðla, blómlegan kaffihússrekst-
ur höfum við verið með, hag-
fræðinámskeið, fræðslufunda-
raðir o.s.frv. o.s.frv.“
Og þingið, hvað gerist á því?
„Það gæti nú gerst ýmislegt á
þingi“, segir hún og glottir
útí annað. „Hvort sem Jóni Bald-
vin líkar betur eða verr, fáum við
nú loksins að hitta ungkratana.
Þingið okkar verður í ráðstefnu-
sal verkalýðsfélaganna í ölfus-
borgum, en flokksþing kratanna
á Hótel Örk og má segja að hver
velji sér fundarstað eftir smekk
og lífsskoðun. En kratarnir munu
gista á sama stað og við í orlofs-
húsunum í Ölfusborgum. Ég held
að það geti orðið gaman að ræða
við ungkratana, enda standa þeir
okkur nær en Jóni Baldvin t.d. í
utanríkismálum.
Þess utan er síðan hið hefð-
bundna þingstarf, þarsem við
reynum að blanda okkur beint í
þjóðmálaumræðuna, mótum
stefnu í fjöldamörgum málum og
veltum því fyrir okkur hvað megi
beturfara á næsta starfsári. Menn
verða að muna að Æskulýðsfylk-
ingin er aðeins þriggja ára gömul
og því erum við enn alltaf að læra.
Friðarmál, kjaramál og kosn-
ingar verða væntanlega efst á
baugi í ár. Ólafur Ragnar, Ás-
mundur og Svavar koma og verða
með fyrirlestra hver um sitt mál
og við fáum tækifæri til að láta
okkar álit í ljós við þá.
Og ekki má gleyma kvöldbæn-
inni á laugardagskvöldið...“
Sjá dagskrá á flokkssíðu, bls.
12.
Þórsmerkurferðin er orðin árlegur
viðburður í starfi fylkingarinnar.