Þjóðviljinn - 03.10.1986, Síða 9
MYNDLISTIN
IUM HELGINAI
Edvard Munch
Sýning á verkum norska
málarans Edvard Munch
stendur yfir í Norræna húsinu
og er opin daglega frá 14-19.
Sýningunni Iýkur2. nóv.
Aldarminning
Á laugardag kl. 14.00 veröur
opnuö að Kjarvalsstöðum
yfirlitssýning á verkum Eyjólfs
J. Eyfells listmálara. Sýningin
er haldin í tilefni aldarminning-
armálarans.
Eria í Gallerí Borg
Nú stendur yfir í Gallerí Borg
sýning áolíumálverkum og
teikningum Erlu Þórarinsdótt-
ur. Erla stundaöi nám í Stokk-
hólmi og Amsterdam og hefur
áður haldið einkasýningar í
Stokkhólmi, Kaupmanna-
höfn, New Yorkog Reykjavík.
Sýningin stendur til 14. okt.
Gallerí Gangskör
Á laugardaginn kl. 14.00 opn-
ar Gallerí Gangskör að
Amtmannsstíg 1 sýningu á
pastelmyndum og teikningum
eftirSigrid Valtingojerog ker-
amík eftir Kristínu Ingólfsdóft-
ur. Sýningin stendurtil 23.
október.
Kirkjuiist hjá ASÍ
Sýning stendur yfir í Listasafni
ASÍ á tillögum þriggja lista-
manna að altaristöflu fyrir
Háteigskirkju. Tillögurnareru
eftir Björgu Þorsteinsdóttur,
Þorbjörgu Höskuldsdótturog
Benedikt Gunnarsson, en til-
laga hans, KROSSINN, verð-
ur útfærð í mósaík.
Einarssafn
Safn Einars Jónssonar á
Skólavörðuholti er opið alla
daga nema mánudaga kl.
13.30- 16.00. Höggmynda-
garðurinn daglega kl. 10-17.
Listasafn HÍ
í Odda. Opið daglega milli
13.30- 17.00. Ókeypis að-
gangur.
ísafjörður
Ásta Ólafsdóttir sýnir mál-
verk, bækurog hljóðverk í
Slúnkaríki á ísafirði. Sýningin
opnar á laugardag og stendur
til 16. okt.
Sólveig Eggerz
sýnir um þessar myndir
vatnslitamyndirfrá Reykjavík í
veitingahúsinu Gullni haninn
að Laugavegi 178.
Úzbekistan
Sýning á listmunum frá Úz-
bekistan, vefnaði, útskurði,
o.fl. verður opnuð á Kjarvals-
stöðum á laugardaginn kl. 16.
Sýningin er haldin í tengslum
við sovéskadaga MÍR, og
verða gestirfrá Úzbekistan
viðstaddiropnun hennar.
MÍR
í kvöld kl. 20.30 opnar sýning
á Ijósmyndum bókum, barna-
teikningum og 80 grafíkmynd-
um eftir úsbeska listamenn í
salarkynnum MÍR að Vatns-
stíg 10.
Listamaðurinn og fyrirsætan. Eitt verkanna á sýningu Norræna hússins á myndum Edvards Munch.
LEIKLIST
Herra Hú
Barnaleikritið Herra Hú verð-
ur sýnt hjá Leikfélagi Akur-
eyrará laugardag og sunnu-
dagkl. 15.
Þjóðleikhúsið
Uppreisn á (safirði ersýnd
föstudag, laugardag og sunn-
udag kl. 20.00. Frumsýning
óperunnar T osca eftir Puccini
verður laugardaginn 11. októ-
ber.
ILTROVATORE
Islenska óperan sýnir ILTRO-
VATORE eftir Verdi á laugar-
dag kl. 20.00. Sýningum fer
núfækkandi.
Leikfélagið
Svartfugl eftir Gunnar Gunn-
arsson í leikgerð Bríetar Héð-
insdóttur er sýndur laugardag
kl. 20.30. Fáarsýningareftir.
Land míns föður er sýnt á
föstudag og sunnudag.
TÓNLIST
Músíkdagar
Einleikstónleikarverðaí
Kristskirkju laugardag kl.
15.00. Þar komafram Anna
Magnúsdóttirsemballeikari,
Þröstur Eiríksson, orgel-
leikari, Satu Salo hörpuleikari
og Christian Lindberg
básúnuleikari. Fluttverða
verk eftir norræna höfunda.
STEFNULJÓS skal jafna gefa
í tæka tíð.
UMFERÐAR
'RÁÐ
Norrænir
Músíkdagar
Sinfóníuhljómsveit (slands,
Kór Langholtskirkju, selló-
leikarinn Aage Kvalbein og
sópransöngkonan Solveig
Faringer koma fram á tón-
leikum í Háskólabíói áföstu-
dag kl. 20.30. Flutt verðaverk
eftir norræna höfunda. Stjórn-
andi hljómsveitarinnar verður
Páll P. Pálsson.
Verðlaunaverk
Hafliða Hallgrímssonartón-
skálds, POEMI, er meðal
verka sem flutt verða á tón-
leikum íslensku hljómsveitar-
innar í Langholtskirkju á laug-
ardag kl. 17.00, enfyrirþetta
tónverk hlaut Hafliði tónskáld-
averðlaun Norðurlandaráðs.
Önnur verk á tónleikunum eru
eftir Svíana Hans Holewa og
Anders Hillborg og Finnann
Paavo Heininen. Einleikarar
verðaSigrún Edvaldsdóttir
fiðluleikari og Guðni Franz-
son klarinettuleikari. Stjórn-
andi er Guðmundur Emils-
son. T ónleikarnir eru i tilefni
Norrænna tónlistardaga.
Frelsitilsölu
Bubbi Morthens og hljóm-
sveitinMX-21 haldatvenna
hljómleika í Austurbæjarbíói á
laugardag kl. 19.00 og 22.00.
Þar verður kynnt efni væntan-
legrarhljómplötu Bubba,
„FRELSITIL SÖLU". Auk
hans munu komafram hljóm-
sveitirnar „Ný Augu“ (fyrri
tónleikarnir) og Langi Seli og
skuggarnir (seinni hljóm-
leikarnir).
Úzbekistan
Hljóðfærasláttur, söngurog
dans eru á dagskrá Lazgí-
söng- og dansflokksinsfrá
Úzbekistan, sem heldurtón-
leika á vegum MÍR í Þjóðleik-
húsinu á sunnudag kl. 14.00.
HITT OG ÞETTA
Listmeðferð
Ráðhildur Ingadóttir gengst
fyrir kynningarnámskeiði í
listmeðferð (arttherapy) í
Stjömugróf 9 laugardag kl.
10.-18. Vikuna 6.-12. okt.
hefst 6 vikna námskeið á
sama stað. Námskeiðin eru
ætluð áhugafólki og starfs-
fólki innan heilbrigðiskerfis-
ins.
Trúðurinn Rúben
verður á ísafirði á föstudag og
laugardag ungum sem öldn-
umtil lærdómsog
skemmtunar.
Eddukvæði
Dr. Jónas Kristjánsson heldur
fyrirlestur um aldur og ritun
Eddukvæða í stofu 101 í
Odda á sunnudag kl. 17.00.
Fyrirlesturinn nefnist „Áfang-
ar í Eddukveðskap"og er
haldinn í tilefni 75 ára afmælis
Háskólans.
Skák
Haustmót T aflfélags Reykja-
víkur 1986 hefst á sunnudag
kl. 14 að Grensásvegi 44.
Lokaskráning verður á laug-
ardag kl. 14-18ogerþátttaka
öllumheimil.
Hananú
Vikuleg laugardagsganga
Frístundahópsins Hana nú í
Kópavogi verður farin á laug-
ardag frá Digranesvegi 12 kl.
10.f.h.
Útivist
Dagsferðir sunnudaginn 5.
okt.
Kl. 8.00 Þórsmörk, haust-
litir. Síðasta einsdagsferðin í
Þórsmörk á árinu. Verð 800
kr.
Kl. 10.30 Þorlákshöfn-
Selvogur. Óvenju fjölbreytt
strandlengja með sérstæðum
klettamyndunum, gatklettum
o.fl. Verð600 kr.
Kl. 13 Krísuvík-Eldborg við
Geitahlíð. Gengið um
Hvamma og Eldborgarsvæð-
ið. Strandarkirkjaskoðuð á
bakaleið. Verð 600 kr. Frítt f.
börn m. fullorðnum. Brottför
frá BSÍ, vestanverðu (við
bensínsölu). Muniðsímsvar-
ann: 14606. Vinsamlegast
vitjið óskilamuna á skrifstof-
unni Grófinni 1. Útivistarfé-
lagar munið að greiða félags-
gjaldið. Sjáumst.
Föstudagur 3. október 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
”V Auglýsing
um endurgreiðslu á gjaldi af kjarnfóðri
sem keypt var á tímabilinu 23. júní 1980 til
2. október 1981.
( framhaldi af dómi hæstaréttar 23. desember
1985 verður gjald af kjarnfóðri sem keypt var á
tímabilinu 23. júní 1980 til 2. október 1981 endur-
greitt. Þeir aðilar sem telja sig eiga endur-
greiðslurétt skulu framvísa kröfum sínum til
fjármálaráðuneytis eða landbúnaðarráðuneytis
eigi síðar en 15. nóvember 1986. Með kröfunum
skulu fylgja gögn sem sýna það kjarnfóðurgjald
sem kröfuhafi telur sig hafa greitt á umræddu
tímabili. Fullnægjandi gögn teljast: frumrit af
sölunótum eða afrit af sölunótum sem löggiltur
endurskoðandi fóðursala hefur staðfest. Þar sem
kjarnfóðurgjald er ekki sérgreint í verði fóðurs á
sölunótu verður kröfuhafi að afla staðfestingar
fóðursala um þátt kjarnfóðurgjalds í verði ein-
stakra fóðurtegunda og fóðurblandna sem krafist
er endurgreiðslu á.
Reykjavík, 30. september 1986
\
t
r