Þjóðviljinn - 12.10.1986, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 12.10.1986, Qupperneq 10
Heimsmeistaraeinvígið í skák Kasparoff hélt velli Einvígi þeirra Karpoffs og Kasparoffs lauk á fímmtudag með því að þeir sömdu um jafn- tefli i tuttugustu og fjórðu skák- inni, sem hafði farið í bið daginn áður. Kasporoff hafði þegar tryggt sér heimsmeistaratitilinn með sigri í tutugustu og þriðju skákinni. Síðasta skákin var því formsatriði og lauk viðureigninni þannig að Kasparoff hlaut 12 '/2 vinning gegn 11 V2 vinning Karp- offs. Pegar einvígið hófs í Lundún- um báðum við þrjá þekkta skák- menn og skýrendur að spá fyrir um úrslitin. Það voru stór- meistararnir Friðrik Ólafsson og Helgi Ólafsson sog Jón Torfason skákskýrandi Þjóðviljans. Þeir þrír spáðu svo aftur í stöðuna þegar einvígið var hálfnað. -Sáf Úrslit einvígisins 1. Jafntefli 'h - V2 2. Jafntefli 1 -1 3. Jafntefli IV2- iy2 4. Kasparoff 2Vfe -1V2 5. Karpoff 2Va - 21/2 6. Jafntefli 3-3 7. Jafntefli 3'/2 -3'/2 8. Kasparoff 4V2 -3V2 9. Jafntefli 5-4 10. Jafntefli 5'/2 - 4’/2 11. Jafntefli 6-5 12. Jafntefli 6’/2 - 5’/2 13. Jafntefli 7-6 14. Kasparoff 8-6 15. Jafntefli 8’/2 - 6’/2 16. Kasparoff 9’/2 - 6’/2 17. Karpoff 9’/2 - 7’/2 18. Karpoff 9’/2 - 8’/2 19. Karpoff 9’/2 - 9’/2 20. Jafntefli 10-10 21. Jafntefli 10’/2-10’/2 22. Kasparoff 11’/2-10’/2 23. Jafntefli 12-11 24. Jafntefli 12’/2- 11 ’/2 Baráttuviljinn einkennandi Jón Torfason, skákskýrandi: Þessirtveirskák- menneruíal- gjörum sérflokki „Mér er alltaf illa við að spá, en eftir að fyrri hálfleik lauk í London, gerði ég þó ráð fyrir að Kasparoff myndi vinna og það stóðst,“ sagði Jón Torfason, skákskýrandi Þjóðvilj- ans. Jón sagði að öll einvígi væru spennandi en þetta hefði þó ekki orðið verulega spennandi fyrr en undir lokin þegar Karpoff hafði unnið 19 skákina og jafnað metin. Þetta er þriðja einvígi þeirra Karpoffs og Kasparoffs. í fyrsta einvíginu hafði Karpoff afgerandi frumkvæði til að byrja með en þegar fór að líða á einvígið náði Kasparoff sér á strik og þá var einvíginu frestað. Annað einvígið var mun meira spennandi og stóð í járnum þar til undir lokin að Kasparoff náði afgerandi forystu. f „Einvígið núna einkenndist af mikilli baráttu sérstak- lega þegar fór að líða á það. Kasparoff sýndi mikinn baráttuvilja allt einvígið en Karpoff einkum nundir lokin.“ Af einstökum skákum vildi Jón nefna elleftu skákina, en hún var mjög kröftug og mikill baráttuhugur í báðum. Það gekk á fómum fram og aftur og henni lyktaði svo með jafntefli. Aðrar skemmtilegar skákir í einvíginu voru að hans mati skák nr. 16 og tuttugasta og önnur skákin. „Þessir tveir skákmenn era í algjörum sérflokki.“ Jón var beðinn að bera þessa viðureign saman við einvígi þeirra Fischers og Spasskys í Reykjavík 1972. Taldi hann slíkan samanburð mjög erfiðan þar sem Fischer hefði verið það miklu betri en Spassky. -Sáf Þeir eru í sérflokki FriðrikÓlafsson, stórmeistari: Þaðgœtitœp- astneinnskák- maðuráttvið Kasparoffídag nemaKarpoff „Þetta einvígi var ekki nýög frábrugðið fyrri viður- eignum þeirra Karpovs og Kasparoffs,“ sagði Friðrik Ól- afsson, stórmeistari. „Helsti munurinn er sá að tafl- mennska Kasparoffs var ekki eins afgerandi í þessu einvígi og áður. Hann glutraði niður góðu forskoti undir lokin vegna kæruleysis.“ Friðrik hafði spáð Kasparoff sigri með eins til tveggja vinninga forskoti og stóðst sú spá. „Þegar Karpoff vann þrjár skákir í röð undir lok einvíg- isins hélt ég að Kasparoff væri að brotna saman, en honum tókst að hrista þetta af sér, sejm sýnir vel styrk hans.“ Hvað taflmennsku þeirra tveggja snerti þá sýndi Karpoff mikið keppnisskap og hörku en Kasparoff mikið næmi fyrir leikfléttum að mati Friðriks. „Það gæti tæpast neinn skákmaður átt við Kasparoff í dag nema Karpoff, þessir tveir skákmenn eru í algjörum sérflokki.“ Friðrik taldi elleftu skákina, sem tefld var í London, fallegustu skák einvígisins. Kasparoff var með svart og lyktaði þeirri skák með jafntefli eftir mjög fallega tafl- mennsku. Friðrik var beðinn að bera þetta einvígi saman við ein- vígi þeirra Fischers og Spasky. Sagði hann að nú hefði verið meira um styttri skákir en þá og því væri ekki hægt að segja að þetta væri rishærra einvígi en einvígið í Reykjavík „Þrátt fyrir það vora margar góðar og skemmtilegar skákir tefldar í þessu einvígi og allur samanburður við fyrri einvígi mjög hæpinn.“ -Sáf Baráttan reyndi á þolrif keppenda Helgi Ólafsson, stórmeistari: Sátturvið úrslitin þóspáinhafi ekkirœst „Ég er sáttur við þessi úrslit,“ sagði Helgi Ólafsson, stórmeistari, en hann hafði spáð Karpoff sigri í einvíginu. „Þó spáin um sigurvegarann hafi ekki staðist þá stóð þó það að úrslitin réðust undir lokin einsog ég hafði sagt.“ Helgi var einkum ánægður fyrir hönd íslendinga að Kasparoff skyldi hafa sigrað þar sem líkur era á að hann komi hingað til lands á næsta ári og taki þátt í skákmóti. „Annars eru þessir tveir skákmenn í sérflokki og hafa verið það undanfarin ár, þó Kasparoff hafi vinninginn. Það einkenndi þetta einvígi hversu mikil barátta var í skákun- um. Þegar þetta sterkir og jafnir skákmenn mætast þá gerist það iðulega að þeir tefla upp á jafntefli. Svo var ekki nú. Taflmennskan var góð og mikil barátta sem hefur reynt á þolrif keppenda, enda vora komin þreytumerki í tafl- mennskuna undir það síðasta." Helgi var spurður að því hvort einhver ein skák hefði borið af í þessu einvígi. Hann taldi ekki að nein perla hefði litið dagsins ljós í þessu einvígi einsog í einvíginu þar á undan, en sextánda skákin í því var að hans mati ein af perlum skáklistarinnar. Eftirminnilegustu skákirnar úr þessu einvígi vora skák nr. 22 þegar Kasparoff komst aftur yfír og einnig sextánda skákin, en Kasparoff tókst að vinna hana óvænt þó flestir hefðu spáð jafntefli. Fyrsta einvígið sem Helgi fylgdist með var einvígi þeirra Spasskys og Petrosjan árið 1969 en minnisstæðast er hon- um einvígi þeirra Fischers og Spasskys hér á íslandi árið 1972. Sagði hann að varla væri hægt að bera það saman við einvígið núna til þess hafi verið of mikill munur á þeim Fischer og Spassky, en þeir Karpoff og Kasparoff era hinsvegar mjög jafnir skákmenn. -Sáf 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. október 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.