Þjóðviljinn - 12.10.1986, Blaðsíða 19
- ÞIS i$ N&T BEEF “
FÍS VIMOvéAT...
?IÉASEHAVE$ÖME
MÖRE...
W/M*
AWA
í&m
, 5I3ALU
qoOJA- - -
;
iorbi: Afar Ijúffengt.
Denni: Þetta er ekki nautakjöt,
þetta er hvalkjöt. Fáið ykkur ábót.
Gorbi: Mjög Ijúffengt.
Ronald
Reagan
Afsprengi
fjölmiðlaheimsins
Árið 1983 sagði Ronald Re-
agan að Sovétríkin væru hið
illa í heiminum núna. í dag er
sá hinn sami Reagan staddur
á íslandi í þeim tilgangi að
reyna að semja við Gorbatsjof
aðalritara kommúnistaflokks
Sovétríkjanna. Hvað hefur
gerst? Hefur skoðun hans á
Sovétmönnum breyst á þess-
um þrem árum? „Nei, fyrr
verður kalt í neðra en að ég
skipti um skoðun á kommún-
ismanum," sagði Reagan í
síðustu viku.
Þrátt fyrir það eru þeir sem
gerst þekkja til þeirrar skoðunar
að Reagan vilji mikið til vinna að
komast að einhverskonar sam-
komulagi við Sovétmenn núna til
að sá vandi sem við honum blasir
í innanlandsmálum og í utanríkis-
málum hverfi í skugga árangurs í
Reykjavík.
Ameríski
draumurinn
Ronald Reagan er fertugasti
forseti Bandaríkjanna. Hann
fæddist árið 1911 og er af írsku
bergi brotinn. Hann var af fá-
tækum foreldrum kominn, faðir
hans drykkfelldur en móðirin
hélt fjölskyldunni á floti með
kennslu og saumaskap.
Þessi bakgrunnur forsetans
fellur einsog flís að rassi þjóð-
sögunnar um ameríska draum-
inn. Hann er maðurinn sem barð-
ist áfram af eigin rammleik þrátt
fyrir slæmar ytri aðstæður og
komst til æðstu metorða. Hefur
verið bent á það að bandaríska
þjóðin hafi einmitt þurft á slíkum
manni að halda þegar hann var
kjörinn forseti í árslok 1980.
Þjóðin var enn í sárum eftir Ví-
etnamstríðið. Risaveldið hafði
orðið að láta í minni pokann fyrir
fjarlægri smáþjóð og almennings-
álitinu í heiminum og heima fyrir.
Skuggi Watergatemálsins grúfði
enn yfir ímynd stjórnmálamanns-
ins og erfiðleikar voru í efnahag-
slífinu.
Það skaðaði ekki að leið Reag-
ans hafði legið í gegnum kvik-
myndina, því fátt er amerískara
en Hollywood, nema ef vera
skyldi kúreki villta vestursins,
sem einnig er nátengdur
draumasmiðjunni.
Rómantískur
vonbiðill
Tuttugu og sex ára að aldri
komst Reagan á samning hjá
Wamer Brothers. Hann lék í um
fimmtíu kvikmyndum og teljast
fæstar þeirra merkilegar. Þetta
voru svokallaðar B-myndir og
var Reagan iðulega í hlutverki
hins rómantíska vonbiðils, sem
ekki hneppti hnossið í lokin. Það
var árið 1964 að hann lék sitt síð-
asta hlutverk í kvikmynd, en það
var í myndinni The Kilíers. Þá
þegar var hann farinn að hasla sér
völl á öðrum vettvangi. Hann var
kominn í hlutverk stjórnmála-
mannsins og þar ætlaði hann sér
annað og meira en að vera í B-
myndunum.
Fyrstu stjórnmálareynsluna
fékk hinn verðandi forseti þó í
tengsium við kvikmyndirnar.
Hann var forseti Leikarafélagsins
frá 1947 til 1952 og svo aftur árið
1959. Þegar Reagan var kosinn
forseti Leikarafélagsins var hann
yfirlýstur demókrati og hafði
m.a. stutt Harry Truman í kosn-
ingabaráttu hans. Þetta átti þó
eftir að breytast.
Kvikmyndaleikarinn
verður forseti
Reagan er tvígiftur. Fyrri
eiginkona hans var Jane Wyman.
Henni giftist hann árið 1940 og
skildi við hana eftir átta ára
hjónaband árið 1948. 1952 gekk
hann svo í það heilaga með seinni
eiginkonu sinni Nancy Davis.
Hún er af repúblökunum komin
og sjálf mjög pólitísk. Hefur ver-
ið haft á orði að hún sé mótorinn
á bakvið pólitískan frama Reag-
ans.
Það var árið 1962 að Reagan
gekk formlega í Repúblikana-
flokkinn. Studdi hann Goldwater
í kosningabaráttunni 1964. Árið
1966 fór hann svo sjálfur í slaginn
sem ríkisstjóri í Kaliforníu og
vann þar stórsigur.
Ríkisstjóraembættið var þó
bara áfangi á leiðinni í
forsetastólinn og árið 1976 þóttist
hann tilbúinn og bauð sig fram
gegn Gerald Ford þáverandi fors-
eta, sem fulltrúi repúblikana í
forsetakosningunum. Reagan
tapaði í fyrstu lotu en árið 1980
hófst önnur lota og nú hlaut hann
útnefningu. f kosningunum sig-
raði hann Jimmy Carter afger-
andi með 51% atkvæða en Carter
fékk 41%. 1984 sigraði hann svo
Walter Mondale í forsetakosn-
ingum.
Stjörnustríðið
strandað
í stjórnartíð Reagans hefur
sambandið við Sovétríkin kólnað
mikið þó kannski sé einhver þíða
í nánd nú. Reagan-stjórnin þrýsti
á um uppsetningu meðaldrægra
kjarnorkuflauga í Evrópu og með
stjörnuglampa í augum kynnti
Reagan stjörnustríðsáætlun sína,
sem vakti ugg um allan heim og
frysti á tíma allar viðræður milli
stórveldanna.
Nú virðist hinsvegar stjörnu-
stríðsáætlunin sigld í strand.
Ástæður þess eru ýmsar, bæði
gagnrýnisraddir innanlands og
utan, vísindamenn hafa efast
mjög um að hægt sé að smíða jafn
fullkomin vopn og gert var ráð
fyrir og margir þeirra sem unnu
að áætluninni hafa hætt störfum
vegna vantrúar sinnar á fyrirbær-
ið. Þá hefur mönnum óað mjög
við þeim kostnaði sem af áætlun-
inni hlýst og hefur þingið ekki
verið tilbúið að veita jafn miklu
fjármagni til áætlunarinnar og
Reagan hefur kosið.
Annars hefur fjármálastjórn
Reaganstjórnarinnar verið með
eindæmum og hefur á undanförn-
um árum verið mikill viðskipta-
halli við önnur lönd. Dollarinn er
ekki lengur sá trausti gjaldmiðill
sem hann var fyrir tíð Reagans í
forsetastól og erlendar skuldir
eru himinháar. Þá eru milljónir
atvinnulausra manna stórt
vandamál í Bandaríkjunum auk
þess sem eiturlyfjavandamálið er
orðið svo alvarlegt að forsetinn
krefst þess að opinberir starfs-
menn gangist undir lyfjapróf.
Að undanförnu hefur Reag-
anstjórnin einnig orðið að láta í
minni pokann í utanríkismálum.
Nýjasta dæmið er þegar þingið
samþykkti refsiaðgerðir gegn
Suður-Afríku þrátt fyrir mótmæli
Reagans íyrir viku síðan. Þar
gengu margir repúblikanar til liðs
við demókrata. Þá hefur afsögn
talsmanns utanríkisráðuneytis-
ins, Bernards Kalb, vegna skrifa
Washington Post um að banda-
rísk yfirvöld hefðu skipulagt
rógsherferð gegn Gaddafi, veikt
stöðu Reagans.
Staða Reagans er því ekki
mjög sterk um þessar mundir.
Þrátt fyrir það nýtur hann enn
gífurlegs trausts meðal banda-
rískra kjósenda, séu nýlegar
skoðanakannanir marktækar.
Þeir kunna vel að meta hnyttin
tilsvör hans og einlæga fram-
komu á yfirborðinu. Hann er af-
sprengi hins sjónræna fjölmiðla-
heims og kann vel að notfæra sér
miðlana. Það kann almenningur
að meta enda á hann núorðið oft
erfitt með að skilja á milli veru-
leika og skáldskapar. Raunveru-
leiki sjónvarpsins hefur leyst af
veruleikann á götum úti, atvinnu-
leysið, erlendu skuldimar,
vígbúnaðarkapphlaupið og staðr-
eyndir lífsins sem gætu truflað
svefnfriðinn.
-Sáf
Sunnudagur 12. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19