Þjóðviljinn - 12.10.1986, Síða 16

Þjóðviljinn - 12.10.1986, Síða 16
Gangan langa verður að byrja á nokkrum skrefum Rœtt við Ólaf Ragnar Grímss^n um ástandið í alþjóðamálum, mikilvœgi leiðtogafundarins á íslandi, möguleika smáþjóða til að hafa áhrif og ýmislegt fleira sem tengist leiðtogafundinum í Reykjavík „Leiðtogafundurinn í Reykja- vík er staðfesting á því að al- menningsálitið í heiminum virkar. Þaðeralmenningur sem hefur þrýst þeim Reagan og Gorbatsjof saman.“ Við erum stödd á skrifstofu Ólafs Ragnars Grímssonar á ann- arri hæð í Odda. Ólafur er manna kunnastur hræringum í heimspól- itíkinni um þessar mundir og þakka margir samtökunum PGA, en Ólafur er formaður framkvæmdanefndar þeirra sam- taka, það að vilji virðist nú vera að fæðast hjá risaveldunum að ganga til raunhæfra samninga um fækkun meðaldrægra eldflauga í Evrópu og frestun á stjörnu- stríðsáformunum. Nýlega flutti Ólafur Ragnar er- indi á ráðstefnu hjá Pugwash- samtökunum, en það eru samtök vísindamanna í raunvísindum og alþjóðamálum bæði frá Banda- ríkjunum, V-Evrópu og Austan- tjaldslöndunum sem hafa starfað í 30 ár. Samtök þessi halda árlega vísindaráðstefnu og að sögn Ólafs Ragnars eru þar kynntar helstu athuganir á ýmsum nýj- ungum í þróun kjarnorkuvígbún- aðar og afvopnunarmálum. Á þessum ráðstefnum hafa verið kynntar ýmsar hugmyndir, sem síðar hafa orðið fyrirmynd að samningum í alþjóðamálum og leitt til verulegra áfanga á þeirri braut. Nýjar aðferðir í alþjóðamálum Ólafur Ragnar var spurður að því hvað erindi hans hefði fjallað um. „Mér var boðið að flytja þarna erindi um nýjar aðferðir í alþjóð- amálum. Það fjallaði fyrst og fremst um það hvernig hægt væri að ná árangri án þess að beita gömlu hefðbundnu leiðunum, sem miðuðust fyrst og fremst við formlegar alþjóðastofnanir og ríkisstjórnavettvang. Mín kenn- ing sem ég kynnti þarna, er að nota eigi aðrar aðferðir en stofn- anaaðferðina, sem felst í því að ríki leggja fram tillögur á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna, og þær eru kannski samþykktar þar með miklum meirihluta atkvæða, en samt gerist ekkert. Þær eru þá fluttar aftur og aftur án nokkurs árangurs. Stofnanaaðferðin felst líka í því að að notast er við dipl- ómatískar leiðir sem eru bundnar við sendiherra og aðra formlega aðila. í stað þessarar stofnanaað- ferðar tel ég að það eigi að leita eftir samvinnu við margvísleg samtök og einstaklinga sem standa formlega utan við ríkis- stjórnakerfið. Þá aðferð má kalla samskiptaaðferðina í stað stofn- anaaðferðarinnar. Samkvæmt þessu getur frum- kvæði að aðgerðum komið frá samtökum, áhugamannahópum, sérfræðingum og einstaklingum. Þeir geta beitt áhrifum sínum bæði gagnvart ríkisstjórnum, fjölmiðlum og öðrum fjölda- hreyfingum. Þeir geta því farið fjölþættari leiðir en hinar gömlu diplómatísku aðferðir bjóða upp á. Samskiptaleiðin Ég tók sem dæmi hvernig okk- ar samtök Parliamentarian Glo- bal Action hefðu myndað hóp sex þjóðarleiðtoga, ekki sem form- lega ríkisstjórnasamvinnu heldur sem pólitíska samvinnu þessara leiðtoga, hvernig það hefði svo verið tengt við þingmenn í mörg- um öðrum ríkjum, friðarhrey- fingar, sérfræðinga, vísindamenn o.s.frv. Annað dæmi eru samningarnir í Moskvu, þar sem óháð samtök bandarískra vísindamanna, sem ekki voru formlegir fulltrúar ríkisstjórnarinnar, gerðu samn- inga við vísindaakademíuna í So- vétríkjunum um eftirlit með til- raunabanninu. Fleiri dæmi má nefna, t.d. hvernig tónlistarmenn sköpuðu meiri vakningu gagnvart hjálp fyrir nauðstadda í Afríku. Það frumkvæði er stundum kennt við Bob Geldoff. Tónlistarmenn í Bandaríkjunum og Bretlandi tóku sig saman og bjuggu til Live Aid. Þar var sjónvarpsmiðlum beitt og meiri athygli almennings skapaðist á þessu vandamáli en Sameinuðu þjóðunum hafði tek- ist á árunum á undan. Þá nefndi ég sem dæmi Lækn- asamtökin gegn kjarnorkuvá en þau fengu Nobelsverðlaun í fyrra. Með starfi sínu hafa þau gjörbreytt skilningi manna á af- leiðingum kjarnorkuvígbúnaðar, en það hefði verið óhugsandi fyrir formlega fulltrúa ríkis- stjórna. Þar sem læknar starfa í nánum persónulegum tengslum við fólk og njóta ákveðins trausts þá var þetta hægt. Fleiri dæmi mætti tína til. Það má kannski segja á léttúðugan hátt að spurningin væri um það hvort menn beittu sömu aðferð- um í alþjóðastjórnmálum og stóru fjölþjóðafyrirtækin og risa fjölmiðlunarfyrirtæki beita á sín- um vettvangi, að tengja saman ólíka heimshluta, ólík stjórn- málakerfi og skoða heiminn allan sem eðlilegan starfsvettvang og ekki einangra sig við þröngar stofnanir.“ 16 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 12. október 1986 Viðurkenning á áhrifum almenningsálitsins Ef við snúum okkur að leiðtog- afundinum í Reykjavík. Hversu mikilvœgir eru svona fundir? Leiðtogarnir kalla þetta vinnu- fund, en er ekki búið að gangafrá öllum helstu þáttum áður en þeir hittast og því sjálfur fundurinn meiri sýning en alvarlegur samn- ingafundur? „Það er ómögulegt að vita í þessu tilviki frá hversu miklu hef- ur þegar verið gengið. Þessi fund- ur er staðfesting á því að almenn- ingsálitið í heiminum virkar vegna þess að almenningsálitið hefur verið að þrýsta þeim til að ná árangri. Vígbúnaðarkapp- hlaupinu hefur verið mótmælt um allan heim og það hefur gerst ekki síður innan bandaríska stjórnkerfisins en annarsstaðar. Vegna þess að báðir eru þeir stjórnmálamenn að þá finna þeir þennan þrýstingfrá almenningsá- litinu. Fundurinn er því mjög mikilvæg viðurkenning á því. Þeir verða að sýna heiminum að þeir hafa vilja til að reyna að ná samkomulagi. Það er ekki lengur talin góð og gild vara að setjast ekki að viðræðuborði til að reyna að ná árangri, einsog var t.d. á fyrstu árum Reagan-stjórnarinn- ar. Mér finnst margt benda til þess, í aðdraganda þessa fundar og í ummælum um hann, að á undanförnum vikum hafi náðst áfangi í átt að veigamiklu samkomulagi. Flvað þeir eru langt komnir á þeirri braut er ómögulegt að gera sér nákvæm- lega grein fyrir.“ Gagnrýni á stjörnustríðs- áœtlunina Ber ekki í raun og veru mjög lítið á milli? Bandaríkjamenn hafa hingað til borið fyrir sig þau rök, að ekki vœri hægt að hafa eftirlit með Sovétmönnum en nú hafa vísindamennirnir komist að samkomulagi um það. Þá virðist stjörnustríðsáœtlun Reagan- stjórnarinnar að miklu leyti fallin um sjálfa sig. „Stjörnustríðsáætlunin hefur mætt miklu meiri mótspyrnu innan þingsins í Bandaríkjunum en þeir gerðu ráð fyrir. Þá hefur hún mætt mótspyrnu vísinda- manna í Bandaríkjunum, bæði þeirra sem starfa í háskólunum og líka sætt gagnrýni ýmissa vís- indamanna sem hafa starfað við hana. Sumir þeirra sem hafa ver- ið þar framarlega í sveit hafa sagt af sér vegna þess að þeir vilj a ekki; lengur taka þátt í þessum rann- sóknum á þeim forsendum að það sé verið að gefa falskar vonir og villa um fyrir almenningi um vísindalegt eðli rannsóknanna. Þar að auki hefur þingið mótmælt þessum gífurlegu efnahagslegu byrðum sem stjörnustríðsáætlun- in hefur í för með sér. Reagan stendur núna í hörðum deilum við þingið þar sem það er um 100% munur á því sem hann vill fá á fjárlögum til stjörnustríðsá- ætlunarinnar og því sem fulltrúa- deildin er reiðubúin að láta hon- um í té. Það hefur því reynst þyngri róður fyrir stjórnina en búist var við að hrinda stjörnustríðsáætl- uninni í framkvæmd. Þessvegna er Bandaríkjaforseti kannski til- búinn að gera nýtt samkomulag um skilning á ABM-samningn- um. Ef sá samningur er skilinn þeim skilningi sem ríkt hefur þá er hann sjálfvirk hindrun á að stjörnustríðsáætlunin geti náð fram að ganga. Þessvegna reyndu Weinberger varnamálaráðherra og aðrir vígbúnaðarsinnar innan Reagan-stjórnarinnar, að koma á flot fyrir rúmu ári nýjum skilningi á ABM-samningnum og kölluðu það hinn rúma skilning. Hann leyfði tilraunirnar með stjörnust- ríðsvopnin. Stjörnustríðs- áœtlunin verður kannski úrelt Nú hefur Reagan lýst því yfir að hann sé hugsanlega reiðubú- inn að gera samkomulag um það að samningurinn í hinum þrönga skilningi gildi að minnsta kosti í sjö ár. Gorbatsjof hefur nýlega sett fram það viðhorf að það þyrfti að tryggja að hann gilti í minnsta kosti í fimmtán ár. Þarna á milli er hugsanlegt að þeir nái samkomulagi um 10-13 ár. Þó það sé ekki langur tími, segjum 11 ár, þá eru engu að síður aðeins tvö ár eftir af valda- tíma Reagans. Síðan getur næsti forseti aðeins setið í 8 ár. Þannig að það væri komið inn á kjörtfm- abil þar næsta forseta þegar þyrfti að ákveða hvort ætti að fram- lengja ABM-samninginn enn frekar. Þá gæti verið að sá pólit- íski þrýstingur um stjörnustríðsá- ætlunina, sem hefur mikið verið í nafni Reagans sjálfs, verði horf- inn og að menn horfi þá á málin af meiri efnislegri skynsemi.“ Pólitískur tilgangur vopnanna Willy Brandt hefur gagnrýnt það að fulltrúar risaveldanna skuli að vera að semja umfœkkun meðaldrœgra eldflauga í Evrópu, án þess að fulltrúar þeirra ríkja, sem þar eiga hlut að máli fái að koma nokkuð nálœgt. Er þetta réttmæt gagnrýni?

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.