Þjóðviljinn - 12.10.1986, Side 22
Nr. 538
KROSSGÁTA
1 3 T— 6“ 52 (s> 7 8 3 )Ö u 52 TT~
TT~ /Ý T $2 )T Uo 3 )S )? 52 18 T7 20 2i 17
Zl) 5? )S 5" b 2Y S" 20 T? r— T~
V °1 /V 2/ u Jö~ 5" T~ 52 (p 20 52
28 7 52 L l&' s1 V ST /V ? 20 /7- )é>~
7 /Y /7 T~ 9 )*>' 17 7Z /7 )¥ T~ 27
s y- ? H- 52 $ JiT /? ¥ S 52 28 8
1T 5? T~ 20 )¥■ 8 28 Ý 52
20 & 52 20 29 22 Sr 2/ é> 52 7 5' 3
52 8 3 o 52 7 T~ )? 2! T ? 6> T~ 52
'CT ^ >7- 7 $ T~ y 3/ i? 2+ 2o i> 2o
fs V T~ T~ 5? )T n 5/ ) 7 52 /7 T 22 od V
eT 29 )8 )? Y 52 )U 23 2 ! $ 09 ?r 8 7
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda
þá karlmannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á
krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík,
merkt: „Krossgáta nr. 538“. Skilafrestur er þrjár vik-
ur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
)2 5 n 1 30 23 22 J 2o
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Stafirnir mynda íslenskt orð eða miög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp þvi að með því eru
gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru þess vegna eðlilegustu vinnubrögðin
að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er
rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á
grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Elín Þorsteinsdóttir,
Vesturgötu 57 A í
Reykjavík, hlaut verð-
laun fyrir krossgátu nr.
535. Lykilorðið var Þing-
múli. Hún fær senda
bókina Höggormur í par-
adís eftir Róbert Maits-
land.
Verðlaunin fyrir
krossgátuna þessa vik-
una er bókin Flökkulíf,
fyrri hluti æskusögu
Hannesar Sigfússonar
skálds. Útgefandi er Ið-
unn.
SKÁK
BRIDGE
Mót í Reykjavík
Þessa dagana gengur flest úr
skorðum meðan landsmenn snúast
kringum leiðtoga risaveldanna og
fylgifíska þeirra og því ekki óeðli-
legt að einn iítill skákþáttur riðlist
nokkuð í slíku uppnámi. Það er þó
að vísu hætt við að afkomendum
Egils á Borg verði meiri munar vant
en Skalla-Grími að veita þeim þá
þjónustu sem vert væri.
Fundur þessi leiðir hugann að
viðureign tveggja manna sem fram
fór í Reykjavík fyrir 14 árum en þá
gistu ísland um skeið ólíkt geðs-
legri fulltrúar þjóða sinna en nú, og
er þá átt við Fischer og Spassky.
Þeir áttu það sammerkt að leika tafl
sitt á reitunum sextíu og fjórum
með trérönnum meðan þeir Reag-
an og Gorbatsjoff hafa jörðina alla
að leikvelli og líf og heilbrigði jarð-
arbúa í hættu. Skákkapparnir voru
heldur ekki markaðir af óþverra-
verkum í Afganistan, Grenada og
Nicaragua svo fátt eitt sé tínt til.
Þessir ágætu skákmenn komu hing-
að til að keppa í drengilegum leik
um heimsmeistarakrúnuna í skák
og urðu bæði sjálfum sér íþrótt
sinni og íslandi til sóma. Á hinn
bóginn er hæpið að nokkuð gott
stafi af loddaraleiknum sem nú er
leikinn hér enda mun af litium hei-
lindum tii hans gengið.
Spassky komá allan hátt vel fram
og ávann sér hylli landans þótt
hann tapaði einvíginu og reyndist
einn hinn besti sendiherra lands
síns sem hingað hefur komið. Hon-
um hefur heldur hrakað við skák-
borðið síðustu ár en hann er þó enn
í röð bestu skákmanna í heimi.
Bobby Fischer telst hiklaust með
ailra mestu skákmeisturum sög-
unnar. Það má með nokkrum rétti
segja að hann hafi hafíst af sjálfum
sér og ef til vill er hann lýsandi
dæmi um „ameríska drauminn" á
sínu sviði. Hann ólst upp við lítil
efni en fann hæfileikum sínum
þroskavöll við taflborðið. Þar ruddi
hann hverri hindruninni af annarri
úr vegi með viljaþreki og dæma-
lausri staðfestu. Hann stóð oftast
nær einn, studdur fáum vinum ólíkt
því fjölmiðlaframleidda fyrirbrigði
sem nú fetar slóð hans að vestan.
Það má með ýmsu móti finna
hliðstæður með atvikum úr um-
hverfínu á skákborðinu. f lítilli
þraut frá síðustu öld má ímynda sér
að Reagan og Gorbatsjoff loki að
sér í Höfða á flótta undan gráðug-
um fréttamönnum, hefndarverka-
mönnum og drukknum íslending-
um.
Hvítur á að halda jöfnu en hann
sýnist vamarlaus gegn framrás
svörtu peðanna. Hann teflir upp á
patt.
1. Bd2-g2
2. BaS-glD
3. b4
Og nú er sama hvað svartur gerir.
Hvítur er patt þannig að svarta
drottningin nær engu viðtali við
hvíta kónginn.
Næsta dæmi á hliðstæðu í óvissu
jafnvægi kjamorkuveldanna.
1. Bxd7-Kf8
2. Rd4-alD
3. Re6+-Kg8
4. Be8-Kh8
Riddar hvíts er óbeint valdaður.
Eftir 4. ... Da2+ 5. Kg3 Dxe6 6.
Bf7+ Dxf7 7. gxf7+ Kxf7 8. Kf3
heldur hvítur jöfnu því hann hefur
andspænið. Svartur víkur því kóng-
inum undan.
5. Bf7
Nú er allt valdað og tryggt. Þótt
hvítur hafi minna lið getur svarti
kóngurinn ekki komist úr klemm-
unni og vegna hótunarinnar g6-
g7+ verður svartur að þráskáka.
Niðurstaðan er því spennt en ójöfn
staða sem þó helst í jafnvægi. En
eins og í heimsmálunum má lítið út
af bera og fjandskapur ólgar undir
niðri.
Af því það er viðurkennt að ann-
ar leiðtoginn sem sækir okkur heim
nú sér heiminn í svarthvítu ljósi
kúrekamyndanna er við hæfi að
hugleiða að lokum einfalda þraut
þar sem hvít tekst að halda aftur af
ofurveldi svartrar drottningar, sem
væntanlega er þá fulltrúi hins illa.
Menn verða svo sjálfir að ráða því
hvor er hver.
1. Rb-d7 a2
2. Rd-f6 alD+
3. K eitthvað
Þótt svartur hafi miklu meiri lið-
styrk en hvítur getur hann ekkert
gert því kóngurinn sleppur ekki út.
Úr ýmsum áttum
BeHadonna
til íslands?
Að sögn Helga Jóhannssonar hjá
Samvinnuferðum/Landsýn, em
góðar líkur á að Giorgio Bella-
donna, frægasti bridgespilari heims
(frá Ítalíu) komi til Islands helgina
22.-23. nóvember n.k., í tengslum
við Portorox áætlanir þeirra Sam-
vinnuferðamanna. Ef af verður,
má telja fullvíst að Bridgesamband
íslands efni til eins dags móts (Opið
mót) í samvinnu við Samvinnuferð-
ir/Landsýn. Gefst þar væntanlega
einstakt tækifæri til að sjá og kynn-
ast frægasta bridgespilara heims,
fyrr og síðar. Belladonna var í sam-
starfi sínu við Benito Garozzo, tal-
inn ósigrandi við græna borðið, á
meðan þeir félagar (bláa sveitin frá
Ítalíu) voru upp á sitt besta. Þeir
hafa til að mynda aldrei tapað tví-
menningskeppni saman. Nánar síð-
ar.
Landsbikar-
tvímenningurinn
Akureyri og Einar Svansson og
Skúli Jónsson frá Sauðárkróki í
þriðja.
38 pör spiluðu eftir Mitchell-
fyrirkomulagi, stjómandi var
Ólafur Lárusson en Margrét Þórð-
ardóttir annaðist tölvuvinnslu.
Minningarmótið
ó Selfossi
í dag verður Minningarmót um
Einar Þorfinnsson spilað á Hótel
Selfoss. 36 pör eru skráð til leiks,
en spilaður verður barometer. Um-
sión annast þeir Hermann og
Ólafur Lárussynir.
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Þátttaka virðist ætla að vera góð í
Landsbikartvímenningskeppninni,
sem spiluð verður í félögunum um
land allt í næstu viku. Heyrst hefur
frá Vopnafirði, af Héraðinu, Akur-
eyri, Tálknafirði, Akranesi, Hofs-
ós, Sauðárkróki, Sandgerði, Kefla-
vík, Hveragerði, Selfossi, Hafnar-
fírði, Kópavogi, Reykjavík, Siglu-
firði, Hvammstanga og víðar, af
þátttöku. Spilað verður um gullstig
í þessari keppni, þannig að ein-
hverjir slá sér vonandi vel upp.
íslandsmótin
í október
Skráning í íslandsmót kvenna og
yngri spilara í tvímenningskeppni,
sem spilað verður helgina 25.-26.
október n.k. hefur farið rólega af
stað. Minnt er á að skráningu lýkur
miðvikudaginn 22. október (til
Bridgesambandsins).
Valtýr og Jón
sigruðu
Valtýr Jónasson og Jón Sigur-
björnsson frá Siglufirði, urðu
Norðurlandsmeistarar í tvímenn-
ing, vestur- og austur-svæði.
I öðm sæti urðu svo Ólafur Ág-
ústsson og Sveinbjörn Jónsson frá
Fró Bridge-
deild Skagfirðinga
SI. þriðjudag hófst haustbaro-
meterkeppni félagsins. Mjög góð
þátttaka er í keppninni eða 34 pör.
Spiluð em 5 spil milli para, alls því
115 spil. Keppnisstjóri er Ólafur
Lámsson.
Eftir 5 umferðir (1. kvöldið) er
staða efstu para þessi:
1. Baldur Árnason
- Hannes R. Jónsson 77
2. Steingrímur Jónasson
- Þorfinnur Karlsson 64
3. Guðmundur Kr. Sigurðsson
- Erlendur Björgvinsson 63
4. Birgir Þorvaldsson
- Högni Torfason 63
5. Bragi Björnsson
- Þórður Sigfússon 54
6. Elísabet Jónsdóttir
- Leifur Jóhannesson 51
7. Karólína Sveinsdóttir
- Hildur Helgadóttir 37
8. Rósa Þorsteinsdóttir
- Véný Viðarsdóttir 30
9. Björn Hermannsson
- Lárus Hermannsson 28
10. Guðmundur Theodórsson
- Ólafur Óskarsson 28
Keppni verður fram haldið næsta
þriðjudag.
ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 22 Sunnudagur 12. október 1986