Þjóðviljinn - 12.10.1986, Page 23
Túlkur sóttur
í skólastofuna
Það var víða handagangur í
öskjunni í gær þegar Gorbat-
sjoff kom til landsins. Túlkur
ABC sjónvarpsstöðvarinnar
bandarísku fannst ekki þegar
til átti að taka og allt var komið
í fullan gang við að undirbúa
ústendingu frá komu sovéska
þjóðarleiðtogans til landsins.
Eftir miklar hringingar út um
allan bæ fréttist af ungri stúlku
við nám í Menntaskólanum í
Hamrahlíð sem væri vel að
sér í rússnesku og öðrum
heimstungum.
Brunað var upp í skólann
og sjónvarpsmönnum til mikil-
lar ánægju tók stúlkan erind-
inu vel. Innan tíðar sat Olga
Bergmann í útsendingarklefa
ABC stöðvarinnar á Austur-
velli við hlið Peter Jennings
aðalfréttamanns stöðvarinn-
arog þýddi ávarp Gorbatsjoffs
á flugvellinum úr rússnesku
yfir á ensku fyrir miljónir sjón-
varpsáhorfenda í Bandaríkj-
unum. Það er ekki hægt að
segja annað en íslendingar
leiki víða stórt hlutverk þessa
dagana í stórveldaleiksýning-
unni.
Enginn
forseti
Vegna deilna í millum forseta
alþingis var frestað kjöri fors-
eta sameinaðs þings og þing-
deilda frestað við setningu Al-
þingis.
Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson lagði til að einungis
yrði kjörinn forseti sameinaðs
þings á þingsetningarfundin-
um. Þetta gátu forsetar
deildanna þau Ingvar Gísla-
son og Salome Þorkelsdótt-
ir ekki sætt sig við og var þá
fallið frá öllu forsetakjöri.
Þetta varð til þess að það
var hvorki Þorvaldur einn né
ásamt Ingvari og Salóme sen:
tók á Raisu Gorbatsjoffu
þegar hún heimsótti Alþingi í
gær heldur aldursforseti al-
þingis Stefán Valgeirsson.a
Stutt
til sátta
Vanir samningamenn segja
að það sé engin tilviljun hvers
vegna Höfði en ekki Hótel
Saga var valinn sem vett-
vangur samningafunda þeirra
Reagans og Gorbatsjoffs
um heimsfrið og afvopnun.
Gangi illa í viðræðunum má
alltaf færa sig yfir í næsta hús
á móti þar sem Guðlaugur
Þorvaldsson ríkissáttasemj-
ari er til húsa.e
Hvíta húsið
eftirsótt
Mikil eftirspurn hefur verið
eftir nægilega virðulegu og
rismiklu húsi til að hýsa stór-
menni í tengslum við leiðtog-
afundinn. Eittþeirrahúsasem
sótt hefur verið í er „Hvíta hús-
ið“ við Sóleyjargötu 1, þar
sem áður bjó Kristján heitinn
Eldjárn forseti. Húsið er firna
virðulegt, flóðlýst að nætur-
lagi, og er nu í eigu Reyk-
vískrar endurtryggingar.
Það er jafnframt þannig stað-
sett að auðvelt er að verja það
árásum óaldarmanna, sem er
víst einkar þýðingarmikið atr-
iði fyrir stórmennin. Eftir téðu
húsi var falast af hálfu banda-
ríska sendiráðsins, til að hýsa
þar virðingarmann úr föru-
neyti Ronalds Reagan
, Bandaríkjaforseta. Gísli Orn
Lárusson forstjóri RE mun
þó ekki hafa látið til leiðast,
þrátt fyrir góðan pening sem
var í boði. En nú munu sjón-
varpsmenn á vegum NBC
stöðvarinnar frá Bandaríkj-
unum hafa fengið húsið til af-
nota í dag, sunnudag. Þar á
að halda fréttamannafund um
gervihnött. Spyrlarverðafjórir
fræknir fréttahaukar víðs veg-
ar í Bandaríkjunum sem munu
spyrja um gervihnöttin starfs-
mannastjóra Hvíta hússins,
sjálfan Donald Regan. En
sá öðlaðist meðal annars
frægð af endemum á dögun-
um þegar Reagan forseti var
lagðu r á spítala. Þá fór Donald
kallinn að haga sér einsog
hann væri sjálfur orðinn fors-
eti... Það mun vera Ólafur
Hauksson frá SAM-
útgáfunni, sem hafði milli-
göngu um að fá Hvita húsið í
Sóleyjargötu undir fundinn
með starfsmannastjora Hvíta
hússins í Washington.a
Flaggað
í Garðabæ
Það vakti athygli Garðbæinga
í fyrradag hve mikið var flagg-
að í bænum. Þar fór fremstur í
flokki bæjarstjórinn sjálfur,
Jón Gauti Jónsson sem
valdi komudag Gorbatsjoffs til
landsins til að halda reisugilli
á nýja húsinu sínu. Ná-
kvæmur maður Jón Gauti.«
i,.
>.S0. H.
"o'* lu l
| MADUR-MANNS-MANNI-MANN MADUR-MANNS-MANNI-MANN
0NSKIS LEIÐ i
Politimenni onskis leid. j
Má vera stora ok kraftigur
ok hava eiginn pistol (laus i sliri). :
Kennileik til russmannsk
og vinlendsk.
Rópa 095-354-1-7913
ok spýr eftir Vígdis.
I MADUR-MANNS-MANNI-MANN MADUR-MANNS-MANNI-MANN I
Nojarar spœldir
Norðmenn hafa sem kunnugt
er þá áráttu að líta á íslendinga
sem einskonar ófullveðja litlu-
bræður, - og þola sýnilega ekkert
verr en að mörlandinn skyggi á
hina stórnorsku glæsiþjóð í
heimsljósinu. Ef dæma má af
brandaranum úr „Aftenposten“
fer leiðtogafundurinii í Reykja-
vík verulega í skapið' á þeim, -
hér er á einhverskonar norskri ís-
lensku verið að grínast með
mannfæð í löggunni okkar. Norð-
menn eiga eftir að sjá að þeir
Böddi Braga, Bjarki El og Sæmi
rokk standa fyllilega fyrir sínu, og
við gætum meiraðsegja lánað no-
jurum þessa heiðursmenn ef ein-
hverjum skyldi einhverntímann
detta í hug að hittast í Osló.
b'aö er svo sannarlega gaman að vera í London.
Úrval gefur þér nú kost á að njóta lífsins í hinni sígildu
menningar- og skemmtanaborg London. Úrval sér til þess að
þú lifir í lystisemdum í þrjá, fimm eða sjö daga, allt eftir þínum
óskum.
Hótelin sem Úrvai býöur í London eru fyrsta flokks og búin
öllum hugsanlegum þægindum, baði, útvarpi, sjónvarpi og
síma og eru öll staösett í hjarta borgarinnar.
Skemmtihelgi í London
frá aðeins kr. 12.570.-
innifalið í verðinu er flugið til og frá London, gisting
í tvær nætur og morgunverður. Og viljirðu taka börnin
með færðu ríflegan afslátt fyrir þau.
London er yfirfull af freistingum til að falla fyrir.
Leikhús- og tónlistarlíf er hvergi blómlegra, fótboltinn
hvergi skemmtilegri og nú þegar pundið hefur lækkað er
mjög hagstætt að versla í London og gaman að borða
og fara í bíó, svo nokkuð sé nefnt.
u*
/rval býður viðskiptavinum sínum einnig ferðir til New
York frá kr. 20.399.-, Amsterdam frá kr. 14.540 - og
Glasgow frá kr. 12.440 - og alls staðar er gist á mjög góðum
hótelum
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og umboðsmenn
Úrvals um land allt.
f
FERÐASKRIFSTQFAN ÚRVAL
Ferðaskrifstotan Urval v/Austurvöll. Simi (91) 26900.
FLUGLEIDIR.