Þjóðviljinn - 03.12.1986, Qupperneq 1
Miðvikudagur 3. desember 1986 276. tölublað 51. árgangur
Varaflugvöllurinn
Herstöð í neytendaumbúðum
Viðrœður um varaflugvöll fyrir Nató hefjast í nœstu viku. Framsóknarmenn samþykktu
viðrœðurnar í ríkisstjórn. Svavar Gestsson: Þriðja herstöðin á kjörtímabilinu
ROtisstjórnin hefur ákveðið að
hefja viðræður við flotastjórn
NATÓ um byggingu varaflugvall-
ar fyrir herstöðina í Keflavlk hér
á landi. Hefjast viðræðurnar í
næstu viku og taka þátt í þeim 2
fulltrúar frá utanríkisráðuneyti
og 2 frá samgönguráðuneyti. I er-
indisbréfi fjórmenninganna kem-
ur fram að Sauðárkrókur og Eg-
iisstaðir komi til greina sem að-
setur fyrír þetta nýja hernaðar-
mannvirki, sem Nató óskaði eftir
sl. vor.
Petta kom fram hjá Matthíasi
Á. Mathiesen utanríkisráðherra í
fyrirspurnartíma á alþingi í gær.
Þingmönnum Framsóknar-
flokksins þótti þetta greinilega
hið sjálfsagðasta mál þrátt fyrir
fyrri yfirlýsingar m.a. miðstjórn-
ar flokksins um að ekki megi
blanda saman hernaðarfram-
kvæmdum og öryggissjónarmið-
um almenna flugsins varðandi
byggingu varaflugvallar. Stein-
grímur J. Sigfússon, sem spurði
um stöðu þessara mála í gær,
sagði þetta framsóknarlegustu
yfirlýsingu allra tíma í ljósi síð-
ustu atburða. Ljóst væri að ríkis-
stjórnin væri ákveðin í því að
selja þjóðinni herflugvöll í
skrautlegum neytendaumbúðum
- sem almennan varaflugvöll. Þar
með væri búið að kistuleggja
endanlega þá yfirlýstu stefnu
Framsóknar að auka ekki hern-
aðarumsvifin hér á landi.
Steingrímur benti á að í starfs-
reglum mannvirkjasjóðs Nató
eru skýrar kröfur um að
mannvirki, sem sjóðurínn styrk-
ir, séu í eðli sínu eða stjórnunar-
lega séð hernaðarmannvirki.
Líftœkni
Hormónaiðjan
heppnast vel
Fimmtíu miljónir
fjárfestar íframleiðslu
frjósemislyfs úr
hryssublóði
Líftæknitilraun lyfjafyrirtæk-
isins G.ÓIafsson hefur gengið vel.
í júní var fluttur út til Hollands
fyrsti skammturinn af frjósemis-
lyfi sem unninn er úr blóði teknu
úr fylfullum hryssum, og næsti
skammtur var fluttur út fyrir
skömmu.
Þessi framleiðsla G.Ólafssonar
í samvinnu við Félag hrossa-
bænda og ýmsar rannsóknarstof-
ur er „dæmi um verkefni á sviði
lífefnaiðnaðar sem hefur þróast á
ákaflega farsælan hátt“, segir
Bergþóra Jónsdóttir í grein í
Þjóðviljanum í dag.
Bergþóra telur að þessi tilraun
opni leið til frekari vinnslu af
svipuðum toga, og er þegar á döf-
inni að framleiða hérlendis annað
hormón - úr þvagi barnshafandi
kvenna.
f erindinu kemur meðal annars
fram að í þessu verkefni hafa ver-
ið fjárfestar 50 miljónir.
Sjá SÍÖU 12 _m
Lágmarkskrafan sem sjóður-
inn setti væri ákvæði um að Nató
geti yfirtekið alla stjóm
mannvirkisins á hættu- eða
spennutímum, eins og nú gildir
um nýju flugstöðina í Keflavík.
Þetta virtist koma Steingrími
Hermannssyni forsætisráðherra á
óvart og sagði hann að kanna
þyrfti þessar reglur betur, þó
hann hafi án þess samþykkt að
hefja þessar viðræður! Ekki
kæmi til greina að þiggja fé úr
sjóðnum ef flugvöllurinn yrði þar
með hernaðarmannvirki en ef
engin skilyrði fylgdu önnur en
þau að herflugvélar gætu lent þar
þegar Keflavíkurvöllur væri lok-
aður, gegndi öðm máli.
Ragnar Arnalds sagði sam-
stöðu um það á Sauðárkróki að ef
flugvöllurinn ætti að vera hernað-
armannvirki, mannaður eða
undir stjóm Nató, vildu menn
heldur vera án hans.
Svavar Gestsson benti á að ef
þessi áform Nató um varaflugvöll
hér á landi næðu fram að ganga,
yrði það þriðja herstöðin sem rík-
isstjórn Steingríms Hermanns-
sonar hefði leyft á valdatíma sín-
um. Hinar tvær em radarstöðv-
arnar fyrir austan og vestan.
Stefán Guðmundsson sagði
nauðsynlegt að menn hættu að
tala um herstöð og færa að koma
sér niður á jörðina í þessum efn-
um en Páll Pétursson gagnrýndi
orðalag erindisbréfins og ítrekaði
að hugmyndir um að sækja fé í
mannvirkjasjóð Nató væm ekki
frá heimamönnum komnar.
Sjálfur væri hann andvígur vara-
flugvellinum, ef hann ætti að vera
herstöð.
-ÁI
Um miðnætti: Lagt (eina lotunaenn. Þórir Daníelsson, Karl Steinar Guðnason, Ásmundur Stefánsson og árvökui augu fylgjast með hverri hreyfingu. Mynd:
ASÍ/VSÍ/VMS EÓL
Vökunótt hjá samningsaðilum
Allt var enn óljóst um niðurstöður um miðnœtti í nótt. Karl Steinar: Erum með
þokuljós. Þórarinn V.: Það bermikið ímilli. Sigurður Óskarsson: Svartsýnn
Við göngum hér um með þoku-
Uós, sagði Karl Steinar
Guðnason varaformaður Verka-
mannasambandsins um útlit
samningaviðræðnanna um miðn-
ætti í gær en þá virtist allt vera
enn nyög óljóst um hvernig samn-
ingaviðræðum næturinnar
myndi lykta. Hvort viðræðum
verður haldið áfram eða hvort
uppúr slitnar fram til áramóta
ræðst af því hvort samningsaðilar
geti komið sér saman um lág-
markslaun, en samningsaðilar
voru ekki farnir að nefna neinar
tölur um miðnætti.
Þórarinn V. Þórarinsson for-
maður VSÍ sagði að þó væm
samningsaðilar farnir að skynja í
æ ríkari mæli hvaða lágmarkslaun og með 1. desember. Samnings- umframhækkun framfærsluvísi-
lægju í loftinu hjá hvorugum að- bundin launahækkun er 2.5% og tölu er 2.09%. —K.Ól.
ila fyrir sig, og sagði Þórarinn að
honum virtist bera mikið í milli.
„Ég er nú ekki tilbúinn til þess
að semja um einhverja mola sem
hrjóta af borði VSÍ. Það er afar
ólíklegt að okkur bjóðist annað
núna þegar samningstímabilinu
er ekki lokið og enginn þrýsting-
ur er á atvinnurekendur. Þess
vegna held ég að það sé afar ólík-
legt að við náum saman í nótt“
sagði Sigurður Óskarsson for-
maður Alþýðusambands Suður-
lands um stöðuna í nótt.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum lagði launanefnd fram
úrskurð sinni í fyrrinótt og hljóð-
aði hann upp á 4.59% hækkun frá
Laugardalur
Borgin hefji búskap
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Kvennalista lagði til á fundi borgarráðs í
gær að borgin hæfi búskap að Laugabóli í Laugardal, svo reykvísk-
um börnum gefist í framtíðinni kostur á að fylgjast með því sem fram
fer á sveitabæ.
Tillögu Ingibjargar var vísað til borgarstjórnar. Hún kom upp í
kjölfar umræðu um nýtt deiliskipulag að Laugardalnum, sem einnig
var vísað til borgarstjórnar, en verður afgreitt á borgarstjórnarfundi í
vikunni.
Hugmyndin um að borgin hefji búskap í Laugardalnum hefur áður
komið upp og verið rædd, en í tillöguflutningi þess efnis hafa menn
ekki áður nefnt hvar þeir vilja koma slíku býli á fót. Hugmyndin er sú
að þama verði búið með sauðfé, kýr og kannski sitthvað fleira. -gg