Þjóðviljinn - 03.12.1986, Blaðsíða 13
„Læknir fólksins"
myrtur
Jóhannesarborg - Fabian Ribi-
ero, svartur læknir sem barist
hefur gegn kynþáttaaðskiln-
aðarstefnunni í S-Afríku, var í
fyrrakvöld skotinn til bana
ásamt eiginkonu sinni. Ribiero
var þekktur meðal fátækra S-
Afríkubúa sem „læknir fólks-
ins“.
Hjónin voru skotin til bana
utan við heimili sitt í hverfi svart-
ra, Mamelodi, í Pretoríu. Upp-
lýsingaþjónusta yfirvalda til-
kynnti í gær að tveir svartir óþek-
ktir menn hefðu skotið sjö
skotum að hjónunum, þau hefðu
síðan látist á leið til sjúkrahúss.
Ribeiro starfrækti litia skurð-
stofu inni á heimili sínu og vann
að sárum fólks sem hafði særst í
átökum. Vinur Ribeiro hjónanna
sagði réttamanni Reuters að
hjónin sem voru rúmlega
fimmtug, hefðu lifað í stöðugum
ótta við árás. Tvisvar hafði verið
kastað bensínsprengju að húsi
þeirra og það brunnið til kaldra
kola. Síðari árásin var í mars á
þessu ári.
I
Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti til-
kynnti í dag að hann hefði farið
fram á að sjálfstæð rannsóknar-
nefnd yrði sett í að rannsaka íran-
málið svonefnda sem nú hristir
undirstöður forsetaembættisins.
Þar með er komin af stað nefnd
sama eðlis og varð til þess að
Richard Nixon, fyrrum Bandaríkj-
aforsetim varð að segja af sér.
Reagan tilkynnti þetta í sjón-
varpsræðu í gærdag. Hann sagði
einnig að hann hefði fengið
Frank Carlucci, stjórnarerind-
reka fyrir Bandaríkin sem nú hef-
ur látið af störfum, til að veröa
næsti Þjóðaröryggisráðgjafi.
Carlucci kemur í stað Johns Po-
intdexters sem sagði af sér í síð-
ustu viku eftir að upp komst að
hagnaður af vopnasölu til Irans
fór til Contra hermdarverka-
manna í Nicaragua í gegnum
svissneska bankareikninga.
Carlucci hefur áður verið aðstoð-
armaður varnamálaráðherra og
aðstoðarmaður yfirmanns CIA,
bandarísku leyniþjónustunnar.
Enn af
Reagan. Háttsettur bandarískur
embættismaður sem óskaði eftir
að gæta nafnleyndar, sagði í gær
að Reagan Bandaríkjaforseti
hefði orðið að rjúfa Salt-2
samkomulagið um takmörkun
kjarnorkuvopna þar sem annars
hefðu menn misst alla trú á stað-
festu forsetans í Ijósi íranmáls-
ins. Meirihluti Bandaríkjaþings
hafði hvatt forsetann til að rjúfa
ekki þetta samkomulag og
Bandalagsþjóðir Bandaríkjanna
innan Nato eru mjög óánægðar
með þessa ákvörðun forsetans
frá því í síðustu viku.
Óveður
mikið geisaði í Skandinavíu í fyrri-
nótt með þeim afleiðingum m.a.
að tré rifnuðu upp með rótum, tvö
skip við landfestar rak á haf út og
svanir þeyttust til jarðar. Skipin
voru í Kaupmannahafnarhöfn.
Annað þeirra var farþegaferja
með hundruð flóttamanna um
borð sem bíða þess að fá aðsetur
í Danmörku. Svanirnir þeyttust til
jarðar í Álaborg. í vesturhluta Sví-
þjóðar rifnuðu tré upp með rótum
og þeyttust á rafmagnslínur með
þeim afleiðingum að línurnar
slitnuðu, einnig fuku þök af hús-
um.
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR
HJÖRLEIFSSON
7R E U1E R
HEIMURINN
Indland/Nýja Delhí
Herinn í viðbragðsstöðu
Stjórnvöld íNýju Delhískipuðu ígœr hernum í viðbragðsstöðu vegna mikillar
ólgu í kjölfarfjöldamorða öfgasinnaðra Síkha á Hindúum á sunnudaginn
Nýju Delhí - Yfirvöld á Indlandi
skipuðu í gær hernum í við-
braðgsstöðu í höfuðborg
landsins, Nýju Delhí, eftir að
æstir Hindúar réðust að
heimilum og verslunum Síkha
í borginni. Viðbrögð Hindú-
anna voru til komin vegna
einna mestu fjöldamorða sem
öfgasinnaðir Síkhar hafa fram-
ið. Þau urðu í Púnjab fylki á
sunnudaginn þegar 24 Hindú-
ar voru myrtir í langferðabif-
reið.
Indverskar fréttastofur
sögðu frá því í gær að herdeildir
væru nú tilbúnar að aðstoða lög-
reglu í fjölmörgum hverfum
höfuðborgarinnar en þar ríkir nú
mikil spenna. Allsherjarverkfall
var í Nýju Delhí í gær og sagt var
að 2000 manns hefðu gengið um
götur tveggja úthverfa þar sem
verkamenn búa og hefðu fjöl-
margir veifað vopnum um leið og
verslanir og heimili Síkha voru
eyðilögð.
Annars staðar í borginni skaut
lögregla táragassprengjum að
fjölda Hindúa til að dreifa fólki
sem var að reyna að kveikja í bíl-
um. Um það bil 1500 manns voru
handteknir og fjölmargir særðust
í óeirðunum í gær.
Síkhar héldu sig inni við í gær
til að forðast ofbeldi. Strætis-
vagnaferðir voru stöðvaðar í höf-
uðborginni og umferð minnkaði
að mun. Víðar um Indland voru
mótmæli gegn ofbeldisverkum
öfgasinnaðra Síkha um síðustu
helgi. Síkhum og Hindúum lenti
saman í Púnjab og skarst lögregl-
an í leikinn. í fyrradag létust 10
manns í Púnjab fyrir hendi öfgas-
inna og hafa þá 34 látist í síðustu
viku á Indlandi.
Afvopnunarviðrœður
Fréttabann í Genf
Bandaríkin hafa sett bann áflutningfrétta af samningafundi
fulltrúa sinna um afvopnunarmál þar til fundarhöldum lýkur
áföstudag
Genf - Bandaríkin og Sovétrík-
in settu fréttabann á afvopnun-
arviðræður fulltrúa sinna sem
hófust í gær í Genf.
„Við höfum samþykkt algjört
fréttabann þar til fundi okkar lýk-
ur á föstudaginn", sagði talsmað-
ur bandarísku sendinefndarinn-
ar, Terry Shroeder, við upphaf
viðræðna í gærmorgun. Fundinn
sitja aðeins þrír æðstu samninga-
menn risaveldanna og aðstoðar-
menn þeirra. Þeir munu ræðast
við í litlum aðskildum hópum um
mál eins og meðaldrægar og
langdrægar kjarnorkuflaugar á-
samt geimvopnum. Þessar við-
ræður hófust í mars á síðasta ári.
Venjulega eru 8 til 12 sérfræðing-
ar í þessum viðræðum.
Aðalsamningamaður Banda-
ríkjanna, Max Kampelmann,
sagði í fyrradag að mikill árangur
hefði náðst í viðræðum um
kjarnorkufiauga- og geimvopn-
asamninga og hann myndi reyna
að draga úr ágreiningi um aðra
hluti. Helsti samningamaður So-
vétmanna, Viktor Karpof, hefur
lýst því yfir að helsta deilumálið
nú sé geimvopnaáætlun Banda-
ríkjamanna, „Stjörnustríðið“
svonefnda.
Spánn
Fraga segir
af sér
Madrid - Manuel Fraga Iri-
barne, einn helsti leiðtogi
hægri manna á Spáni undan-
farnaáratugi,sagði ígærafsér
sem formaður „Samtaka Al-
þýðunnar" (AP), eins stærsta
hægri flokksins á Spáni.
Talsmaður AP sagði að Fraga
hefði lagt fram afsögn sína og hún
yrði ekki dregin til baka. Afsögn-
in kemur í kjölfar kosningasigurs
sósíalista í Baskalandi um síðustu
helgi og í sumar þegar ríkisstjórn
sósíalista hélt völdum í kjölfar
þingkosninga. Miklar deilur hafa
verið innan AP síðustu sex mán-
uði, frá því flokknum mistókst að
vinna sigur á sósíalistum í júní
síðastliðnum. Þegar bandalag
hægri flokkanna tapaði síðan
helmingi atkvæða sinna í Baska-
landi um helgina, var því lýst yfir í
fjölmiðlum að Fraga hefði þar
með verið „krossfestur".
Stjórnmálaskýrendur á Spáni
orða brottför Fraga úr spænskum
stjórnmálum á þann veg að nú
séu lok tímabils. Fraga var
upplýsinga- og ferðamálaráð-
herra í stjórnartíð Frankós ein-
ræðisherra og er síðan sagður
hafa verið leiðandi afl í að fá
hægrisinna inn á braut lýðræðis
eftir lát Frankós. „Þetta er það
sem lýðræðið á honum að þakka“
segir í ritstjórnargrein spænska
stórblaðsins E1 País í gær. Margir
telja nú að AP sé að falla saman í
kjölfar afsagnar Fraga.
Manuel Fraga þótti kröftugur stjórnmálamaður. Margir töldu hann hins vegar of
gamlan og vilja ungan leiotoga til að vinna gegn Gonzales, forsætisráðherra.
Rínarmengun
Enn eitft eiturefnaslysið
Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að svissnesk yfirvöld höfðu tilkynnt ígœr
að þau hygðust efna til mikils átaks til að koma í vegfyrir verksmiðjuslys í Sviss
rann mikið magn plastefnis í Rín úr svissneskri verksmiðju í V-Þýskalandi
Bern - Enn eitt mengunarslys-
ið átti sér stað í í gær, nú í V-
Þýskalandi, hjá efnafyrirtæki í
eigu svissneskra aðila, stutt
frá svissnesku landamærun-
um. Klóríð eitur rann þá út í
Rín, talsmaður fyrirtækisins
sagði að heilbrigði manna
stafaði ekki hætta af slysinu.
Tilkynningin um slysið barst
aðeins klukkustund eftir að
svissnesk yfirvöld tilkynntu að
þau hygðust gera mikið átak til að
koma í veg fyrir að eiturslys, í
líkingu við þau sem hafa orðið
hvað eftir annað að undanförnu
við ána Rfn, endurtækju sig.
Lonza Werke fyrirtækið til-
kynnti í gær að fimm kúbik metr-
ar af plastefni (polyvinylklóríð,
m.a. notað í hljómplötur, gólf-
húðun og plastumbúðir) hefðu
runnið út í Rín í gærmorgun frá
verksmiðju fyrirtækisins í Walds-
hut í V-Þýskalandi, aðeins 45 km.
austan við Basel í Sviss.
Alphons Egli, forseti Sviss,
ávarpaði í gær sérstakan fund
sameinaðs þings í Sviss sem á sér
ekki hliðstæðu þar í landi. Egli
sagði m.a. að Svisslendingar
stæðu nú frammi fyrir því að
endurvekja álit umheimsins á
Sviss sem landi þar sem umhverf-
isvemd væri í heiðri höfð. „Þetta
álit varð að engu á einni nóttu“,
sagði hann. Egli átti þarna við
slysið sem varð í Basel fyrir ein-
um og hálfum mánuði þegar tugir
tonna af eiturefnum mnnu út í
Rín þegar slökkviliðsmenn börð-
ust við að ráða niðurlögum elds í
vömgeymslu Sandoz lyfjafyrir-
tækisins.
Neðri deild svissneska þingsins
áætlar að koma saman til sérstaks
fundar 15. desember til að ræða
umhverfisverndarmál landsins.
Fjómm dögum síðar koma um-
hverfismálaráðherrar Rínarríkja
og Evrópubandalagsríkja saman
í Rotterdam í annað skiptið á
skömmum tíma til að ræða af-
leiðingar Sandoz slyssins. Ráð-
herrar þessara landa hafa
gagnrýnt svissnesk yfirvöld mjög
harkalega fyrir slælegt eftirlit
með efnafyrirtækjum í landinu.
Miðvikudagur 3. desember 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13