Þjóðviljinn - 03.12.1986, Qupperneq 2
Sigurður Þórðarson fyrrver-
andi útgerðarmaður:
Það var allt uppþotið hjá Fram-
sókn um helgina. Það lítur út fyrir
að það verði eitt ef ekki tvö sérf-
ramboð hjá þeim, bæði Stefán
Valgeirsson og Haraldur.
Karl Sigurjónsson sjómað-
ur:
Það var athyglisverðast að Fram-
sóknarflokkurinn skyldi missa
þingmanninn út, Harald Ólafs-
son.
-SPURNINGIN-
Hvað finnst þér athyglis-
verðast við úrslit úr próf-
kjörum flokkanna um
helgina?
Dagrún Jónsdóttir, starfar í
Hagkaupum:
Ég veit það ekki, ég fylgist ekki
með þessu.
Guðni Ágústsson mjólkur-
eftirlitsmaður:
Niðurstöðurnar hjá Framsókn í
Fteykjavík voru athyglisverðast-
ar, það að Haraldur skuli hafa
fallið niður í fimmta sæti. Listinn
hjá Alþýðubandalaginu kom ekki
á óvart, hann var svipaður því
sem mér datt í hug.
Eyrún Ingibjartsdóttir kenn-
ari:
Konur eru í meirihluta. Það er
mjög mikið atriði að konur séu á
þingi.
FRÉTTIR
Það er margt sem freistar í ferskum hillum bókaverslananna þessa dagana. Myndina tók Sig. í bókamarkaðnum í Miklagarði.
Bóksalan
300 titlar fyrir jólin
Bækur hafa hœkkað um allt að 30% fráþvíífyrra
Bókavertíðin fyrir jólin stendur
nú sem hæst. Reiknað er með
að hátt í 300 bækur komi út á
síðustu 2 mánuðum ársins, og tai-
ið er að verð á bókum hafl hækk-
að um 20-30% frá síðasta ári.
Hjá Félagi íslenskra bókútgef-
enda fréttum við að félagsbundn-
ir útgefendur væru með rúmlega
280 titla nú fyrir jólin, en auk þess
væri alltaf talsvert um útgáfu á
vegum ófélagsbundinna aðila.
Reiknað væri með því að útgefnir
Samkvæmt nýlegri könnun
Manneldisráðs á matarvenj-
um íslendinga, þurfa íslendingar
að skera fituneyslu sína niður um
helming og draga verulega úr syk-
urneyslu, en hún er tvöfalt meiri
en æskiiegt þykir.
Rannsókn Manneldisráðs er
hluti af því verkefni sem ríkis-
stjórnin hefur sett í gang með því
markmiði að fyrir næstu aldamót
Frumsýningu á leikriti Þórunn-
ar Sigurðardóttur, í smásjá, sem
átti að fara fram nú í mánuðinum
á hinu nýja leiksviði Þjóðleik-
hússins í Iþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar, hefur verið frestað til
30. desember vegna veikinda eins
leikarans.
Leikritið í smásjá er annað
leikverk Þórunnar Sigurðardótt-
bókatitlar yfir árið væru um 400,
en slíkt færi þó alltaf eftir skil-
greiningu á því hvað væri bók.
Þeir hjá Bóksalafélaginu héldu
að verð bóka hefði hækkað að
meðaltali um 20-30% frá því í
fyrra. Dæmi eru þó um meiri
hækkanir. Þannig kostar skáld-
saga eftir metsöluhöfundinn Al-
ister McLean 1188.- kr. í ár en
kostaði 888.- kr. í fyrra að sögn
Ólafs Þórðarsonar verslunar-
stjóra hjá Máli og menningu.
Þessi hækkun er um 33%. Ólafur
verði heilsa Islendinga að veru-
legu leyti betri en gerist í dag.
Mikilvægur þáttur í þessu verk-
efni eru betrumbætur á neyslu-
venjum íslendinga, en rangar
neysluvenjur eru ásamt tób-
aksreykingum, algengustu orsak-
ir fyrir langvinnum sjúkdómum
s.s. hjarta- og æðasjúkdómum og
krabbameini.
Á grundvelli niðurstaðna
ur sem sett er á svið, en leikstjóri
verksins er Þórhallur Sigurðsson.
Leikendur í verkinu verða þau
Anna Kristín Arngrímsdóttir,
Amar Jónsson, Ragnheiður
Steindórsdóttir og Sigurður
Skúlason. Gerla gerir leikmynd
og búninga en ljósin eru í hönd-
um Bjöms Bergsteins Guð-
mundssonar.
sagðist bjartsýnn fyrir hönd bók-
sala í ár, bækur væru þegar farnar
að hreyfast, þótt enn væri of
snemmt að spá í metsölubækur.
Þorgeir Baldursson prentsmiðju-
stjóri í Odda sagði aðspurður að
stærsti hluti bókaflóðsins væri
þegar kominn á markaðinn. Þó
væru alltaf nokkrar bækur með
seinni skipunum, en hjá Odda
vinna nú 180 manns á þrískiptum
vöktum allan sólarhringinn, enda
sagði hann að Oddi sendi frá sér
um 120-130 titla nú fyrir jólin.
könnunarinnar hyggst Manneld-
isráð kynna ráðleggingar um
mataræði fyrir almenning. I þeim
er lögð megináhersla á fjöl-
breytta fæðu úr nokkmm fæðu-
flokkum sem em kornmatur,
mjólkurmatur, grænmeti og
ávextir, kjöt, fiski og eggjum.
Samkvæmt ráðleggingunum ber
að halda fituneyslu í skefjum, og
leggja áherslu á neyslu mjúkrar
fitu frekar en harðar þar eð hún
eykur hættu á æðakölkun. Mælt
er hins vegar með fitu úr sjávar-
dýmm, en hún er talin hafa
verndandi áhrif gegn æðastíflun.
Allir þekkja afleiðingar sykuráts,
en tannskemmdir á íslandi em
með því mesta sem gerist í
heiminum, enda stöndum við
næst Kúbu hvað neysluna snertir.
Þá þykir saltneysla landsmanna
fullmikil og er fólki ráðlagt að
halda henni í skefjum, en hún
veldur auknum blóðþrýstingi.
Loks eru fólk hvatt til að auka
við sig D-vítamíni, en samkvæmt
könnuninni er of lítið af því í dag-
legri fæðu landsmanna.
-K.ÓI. í
Almennt var gott hljóð í þeim
bóksölum sem Þjóðviljinn hafði
samband við í gær. ólg.
Bœkur
Rautt og blátt
Árni og Lena Bergmann
sendafrásérbók
Út er komin hjá Máli og menn-
ingu bókin Blátt og rautt -
bernska og unglingsár í tveim
heimum, eftir Arna og Lenu
Bergmann. Arni og Lena voru
námsmenn í Moskvu á sjötta ára-
tugnum þegar þau kynntust.
Hann hafði alist upp í íslensku
sjávarplássi, hún óx upp í Sovétr-
íkjunum á tímum heimsstyrjald-
ar og stalínisma. í bókinni lýsa
þau hvort um sig bernsku sinni og
unglingsárum í tveim heimum.
Arni segir frá uppvexti í Kefla-
vík, skólavist í Reykholti og í
Menntaskólanum að Laugar-
vatni, um leið og hann bregður
upp myndum af óvenjulegum
mönnum sem hann kynntist á
mótunarárum sínum. Lena, gyð-
ingur í báðar ættir, segir frá allt
annars konar uppvexti og skóla-
vist í borginni Rjazan skammt frá
Moskvu. Líf hennar gerbreytist
við innrás Þjóðverja, þegar kon-
ur og börn eru flutt til Mið-Asíu.
Neysluvenjur
Fjölbreytt fæða fækkar kvillum
Rangar neysluvenjur auka líkurnar á langvinnum sjúkdómum.
Manneldisráð hveturfólk til að draga verulega úrfitu-, sykur- og
saltneyslu
Leiklist
í smásjá
Frumsýningu frestað til áramóta
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 3. desember 1986