Þjóðviljinn - 30.12.1986, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 30.12.1986, Blaðsíða 9
Nýársyfirlýsing þjóðarleiðtoganna sex Árangur næst með vilja og Þjóðarleiðtogarnir sex sem tekið hafa saman höndum um nýtt frumkvæði til friðar, meðal annars á fundi sínum í Mexíkó í ágúst, telja í nýársyfirlýsingu að þrátt fyrir að samningar tækjust ekki hafi leiðtogafundurinn í Reykjavík sýnt að hægt er að ná umtalsverðum árangri í afvopn- unarmálum, og hvetja forystu- menn stórveldanna til að hefja nýjar viðræður sem fyrst. Leiðtogarnir sex sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í gær, og var henni dreift í Nýju-Delí, Stokkhólmi, Aþenu, Mexíkó, Buenos Aires og Dar es Salaam, og hljóðar svo: Þegar nýtt ár gengur í garð vilj- um við enn á ný vekja athygli á hættunni á kjarnorkustríði sem ógnar lífi allra jarðarbúa. Við viljum einnig árétta að á árinu 1987 gefast ný tækifæri til að gera samninga sem eflt geta sameigin- legt öryggi okkar allra. í Reykjavík munaði litlu að Reagan og Gorbachov aðalritara tækist að ná samkomulagi sem hefði markáð afdrifarík söguleg þáttaskil og vísað veginn í átt að algerri útrýmingu kjarnorku- vopna. Það voru mikil vonbrigði að þrátf^ fyrir að leiðtogar Banda- ríkjanná og Sovétríkjanna legðu fram djarfar og víðtækar hug- myndir skyldi samkomulag standa á ágreiningi um geimvopn. Leiðtogafundurinn í Reykja- vík sýndi að hægt er að ná árangri ef stjórnmálalegur vilji og víðsýni eru fyrir hendi. f Reykjavík var sannað að gamlar kenningar þurfa ekki að binda hendur manna og ferskar hugmyndir um stjórnun vígbúnaðar og afvopnun geta opnað nýjar leiðir. Það er (BÚMM...) Verðlækkun á flestum áramótavörum okkar er sprengja ársins! í ár verða flugeldar okkar ódýrari en nokkru sinni fyrr. Jákvæð gengisþróun og hagstæð innkaup gera okkur kleift að lækka verðið á flestum áramótavörum svo um munar. Nú geta allir kvatt árið á glæsilegan hátt, með flugeldum frá okkur. LANDSSAMBAND HJÁLPARSVEITA SKÁTA víðsýni fagnaðarefni að tillögurnar frá Reykjavík eru enn á viðræðu- borðinu og hafa ekki verið dregn- ar til baka. Á árinu 1987 gætu leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétrfkjanna nýtt tækifærin sem sköpuð voru í Reykjavík til að gera samninga um verulega fækkun kjarnorku- vopna. Við hvetjum því leiðtoga Bandaríkjanna og Sovétríkjanna til að byggja á þeim grunni sem lagður var í Reykjavík. Á meðan samkomulag tekst ekki þá heldur vígbúnaðarkapphlaupið áfram og örlögum okkar allra verður sífellt meiri hætta búin. Á undanförnum tveimur Frá fundi leiðtoganna sex f Mexíkó í sumar. I ræðustól er Julius Nyerere, og sitjandi frá vinstri Rajiv Gandhi, Roul Alfonsin, Miguel de la Madrid, Andreas Papandreou og Ingvar Carlsson. árum, síðast á fundi okkar í Mex- íkó í ágúst, höfum við hvatt til þess að allar tilraunir með kjarn- orkuvopn yrðu stöðvaðar, hætta yrði framleiðslu á slíkum vopnum og komið í veg fyrir vígbúnaðark- apphlaup í geimnum. Þessi stefn- uatriði eru enn í fullu gildi og eru reyndar brýnni nú en áður vegna atburða á síðustu mánuðum. í þessu sambandi vekjum við einn- ig athygli á nauðsyn þess að ræða gagnkvæma fækkun hefðbundins herafla í Evrópu. Á fundi okkar í Mexíkó bent- um við á þær hættur sem eru sam- fara því að samningar milli þjóða séu ekki virtir og hvöttum sér- staklega til þess að afvopnunar- samningar séu haldnir í hvívetna. Við beinum því þeim tilmælum til ríkisstjórnar Bandaríkjanna að hún endurskoði þá ákvörðun sína að virða ekki þær takmarkanir sem ákveðnar voru í SALT II samningnum. Við hörmum að ríkisstjórn Sov- étríkjanna hefur nú ákveðið að hefja á ný tilraunir með kjarnorkuvopn um leið og Bandaríkin sprengja sína fyrstu kjarnorkusprengju á árinu 1987. Við vonum að þessi ákvörðun sé ekki óumbreytanleg og bendum á að enn gætu stórveldin komið á gagnkvæmu hléi á tilraunasprengingum. Það getur ekkert land fært sannfærandi rök fyrir því að halda áfram tilraun- um með kjarnorkuvopn. Við beinum þeim tilmælum til Banda- ríkjanna að þau endurskoði áætl- anir sínar um tilraunasprengingar svo að möguleikar skapist á gagnkvæmu hléi. Við ítrekum til- lögur okkar frá fundinum í Mex- íkó um að annast eftirlit með því að slík gagnkvæm stöðvun á kjar- norkusprengingum sé virt í reynd og erum reiðubúnir til að koma því eftirlitskerfi upp þegar í stað. Við höfum lagt ríka áherslu á að þróun geimvopna gæti haft í för með sér nýtt vígbúnaðar- kapphlaup sem yrði ógnvænlegra en nokkru sinni fyrr. Það er nauðsynlegt að samningaviðræð- ur séu frekar miðaðar við að út- rýma kjarnorkuvopnum heldur en forsendur sem fela í sér að kjarnorkuvopn eigi um alla fram- tíð að ógna tilveru mannkyns. Þegar árið 1986 er að renna sitt skeið á enda viljum við hvetja leiðtoga Bandaríkjanna og So- vétríkjanna til að hefja sem fyrst á nýju ári víðtækar viðræður. Þær viðræður ættu að taka mið af sameiginlegum yfirlýsingum þeirra um að koma í veg fyrir víg- búnaðarkapphlaup í geimnum, stuðla að endalokum vígbúnað- arkapphlaupsins á jörðinni og út- rýma að lokum öllum kjarnorku- vopnum sem til eru. Gjörvöll heimsbyggðin væntir þess að þessum stefnumiðum verði kom- ið í framkvæmd. Rajiv Gandhi forsætisráðherra Indlands Ingvar Carisson forsætisráðherra Svíþjóðar Andreas Papandreou forsætisráðherra Grikkiands Miguei de la Madrid forseti Mexíkó Raui Alfonsín forseti Argentínu Júiíus Nyerere fyrsti forseti Tansaníu. Vinningar í H.H.Í. 1987: 9 á kr. 2.000.000; 108 á kr. 1.000.000; 216 á kr. 100.000; 2.160 á kr. 20.000; 10.071 á kr. 10.000; 122.202 á kr. 5.000; 234 aukauinningar á kr. 20.000. Samtals 135.000 vinningar á kr. 907.200.000. HAPPDRÆTTI HASKÓLA ÍSLANDS Vænlegast til uirtnirtgs ARGUS/SÍA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.