Þjóðviljinn - 29.01.1987, Page 1
Fátœkt
Missi sennilega
aleiguna
Edda Scheving: Enginn lifir af sjúkradagpeningum einumsaman.
Kerfið hafnar manni eins og hverjum öðrum ónýtum hlut
að getur enginn lifað af
sjúkradagpeningum einum
saman. Kerfið hafnar manni eins
og hverjum öðrum ónýtum hlut,
segir Edda V. Scheving fyrrum
starfsmaður Kvennaathvarfsins í
samtali við Þjóðviljann.
Edda missti heilsuna sl. haust
og hefur síðan verið óvinnufær.
Hún hefur síðan í lok september
þurft að lifa af sjúkradagpening-
um og sér ekki fram á annað en að
missa allt sitt.
Eftir að Edda missti heilsuna
hafa tekjur hennar dregist saman
og sjúkradagpeningarnir duga
hvergi nærri fyrir daglegu heimil-
ishaldi, varla fyrir mat, hvað þá
meiru og sér hún fram á að geta
ekki staðið í skilum með afborg-
anir af lítilli fbúð í verkamanna-
bústað, né heldur öðru er við-
kemur heimilinu, svo sem fast-
eignaskatti, orku eða öðru.
„Þetta er sálarniðurdrepandi.
Kerfið afneitar fólki eins og mér
sem hefur alltaf reynt að -spjara
sig, komið börnum sínum til
manns og borgað skattana á
gjalddaga. Núna rukkar Gjaid-
heimtan mig um talsvert hærri
upphæð í fyrirframgreiðslu skatta
en ég fæ í dagpeninga.
Edda Scheving: Enginn lifir af sjúkradagpeningum einum saman. Mynd: E.ÓI.
Ég sé ekki fram á annað en ég
missi íbúðina mína, segir Edda.
Nú liggur fyrir alþingi frum-
varp Guðrúnar Helgadóttur og
fleiri þingmanna stjórnarand-
stöðunnar um að sjúkradagpen-
ingar verði jafnháir lágmarks-
launum og hækki úr 9.252 krón-
um eins og nú er í 26.500 krónur.
““Sfl
Sjá bls. 8-9
Akranes
Prestmum dæmdar skaðabætur
Bœjarþing Reykjavíkur dæmdi Akraneskaupstað til að greiða séra Birni Jónssyni bœtur
vegna ólöglegrar uppsagnar. Bœjarráð áfrýjar til hœstaréttar. Gísli Gíslason:
Stundakennarar ekki bœjarstarfsmenn. Málið okkur óviðkomandi
Við lítum þannig á að málið sé
Akraneskaupstað óviðkom-
andi þar sem stundakennarar eru
alls ekki bæjarstarfsmenn. Við
mótmælum því hins vegar ekki að
ólöglega hafi verið staðið að þess-
ari uppsögn. Þetta snýst aðeins
um hver á að borga, sagði Gísli
Gíslason bæjarritari á Akranesi í
samtali við Þjóðviljann í gær, en
bæjarráð hefur ókveðið að áfrýja
til hæstaréttar dómi Bæjarþings
Reykjavíkur frá í desember s.l.
þess efnis að Akraneskaupstaður
sé bótaskyldur gagnvart séra
Birni Jónssyni, sem sagt var upp
störfum við Brekkubæjarskóia
haustið 1983.
Séra Björn stundaði kristin-
fræðikennslu við Brekkubæjar-
skóia þar til haustið 1983, en þá
var ákveðið að fastráðnir
kennnarar skyldu taka þá
kennslu að sér. Björn taldi upps-
ögnina ólögmæta og höfðaði í
fyrra mál gegn fjármálaráðherra
fh. ríkissjóðs, menntamálaráðu-
neytinu og bæjarstjóranum á
Akranesi fyrir hönd bæjarsjóðs.
Dómur Bæjarþings felur í sér
að bæjarsjóður skuli greiða séra
Birni laun í níu mánuði. Gísli
sagði í gær að ákveðið hefði verið
að áfrýja málinu til hæstaréttar
þar sem það væri stefnumarkandi
hvað varðar ábyrgð sveitarfélags
á ráðningu stundakennara.
„Ríkið greiðir kennurum laun
og það eru embættismenn ríkisins
sem sjá um ráðningar slíkra
starfsmanna. Þess vegna lítum
við þannig á að málið sé okkur í
raun og veru óviðkomandi. Falli
hæstaréttardómur hins vegar á
þann veg að okkar sé ábyrgðin,
verða menn að endurskoða þessi
mál,“ sagði Gísli í gær.
Ríkið hefur tekið þá afstöðu í
fyrsta lagi að í alla staði hafi rétt
verið að uppsögninni staðið, en
falli dómur á annan veg, sé það
Akranesbær sem skuli borga
brúsann.
-gg
Vestfirðir
Samningar
í sjónmáli
Um miðnætti í gær höfðu
samningar á milli Alþýðusam-
bands Vestfjarða og vinnu-
veitenda enn ekki tekist, en o-
formiegt samkomulag lá þó fyrir
um flest þau atriði sem stefnt var
að, að ná samkomulagi um.
Að sögn Péturs Sigurðsson for-
manns ASV munu samningarnir
verða svipaðir og nýgerðir samn-
ingar Verkakvennafélagsins
Snótar, en samkomulag hefur
m.a. náðst um starfsaldurshækk-
anir og álag vegna sérþjálfunar
fiskvinnslufólks. Samningavið-
ræðurnar strönduðu hins vegar í
gærkvöldi vegna ágreinings um
akkorðsgreiðslur í rækjuvinnslu.
Veðurblíðan
Framkvæmdir
í góðviðrinu
Ýmsarframkvœmdir
sem bíða áttu vors í
fullum gangi nú í
janúar
Veðurblíðan espar upp í
mönnum framkvæmdagleð-
ina, þvi er ekki að neita. Mönnum
flnnst þetta alveg með ólíkindum,
það má heita að frost sé farið úr
jörðu, sagði Kristján Örn Jóns-
son verkstjóri þjá Hitaveitu
Reykjavíkur í samtaii við Þjóð-
viljann í gær.
Ýmsar framkvæmdir, sem að
öllu jöfnu verða að bíða vors eða
sumars, eru farnar af stað nú í
janúar, enda hefur veður verið
með ólíkindum milt. Einkum er
þar um að ræða jarðvinnufram-
kvæmdir og byggingarfram-
kvæmdir.
Menn kunna sér ekki læti í
sumarblíðunni, grafa skurði,
steypa hús og gera hvaðeina sem
þeir eru vanir að gera að sumar-
lagi. Framkvæmdir eru því víða
komnar fram úr gerðum áætlun-
um, sem miðuðust við venjuleg
vetrarveður. -gg
Menn kunna sér ekki læti í þessari einmunaííð. Þessir tveir kepptust við að
endurnýja lagnir fyrir Hitaveitu Reykjavíkur niðri í Bergstaðastræti í gær. Mynd
E.ÓI.
Stjórnmálamenn
Upplýsingamiðlun
bæld niður
Stjórnmálamenn komu í vegfyrir
upplýsingamiðlunFasteignamatsins
eir stjórnmálamenn sem eru
vanir að taka þátt í
stjórnmálaumræðu með úreltum
siagorðum og virðingarleysi fyrir
raunveruleikanum fara í dag hal-
loka í deilum við andstæðinga
sem notfæra sér þær upplýsingar
sem liggja fyrir, segir Stefán Ing-
ólfsson fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Fasteignastofnun-
ar ríkisins m.a. í grein um upplýs-
ingamál í Tölvumáfum, frétta-
bréfl Skýrslutæknifélags íslands.
Stefán fjallar í grein sinni um
upplýsingasöfnun Fasteigna-
matsins um húsnæðismál og segir
að auk þess sem opin miðlun upp-
lýsinga til ýmissa aðila í þjóðfé-
laginu hafi komið stofnuninni til
góða, hafi þeir starfshættir einnig
haft í för með sér ákveðna hættu.
„Á þeim árum þegar mest
reyndi á þekkingu stofnunarinn-
ar í harðri opinberri umræðu um
húsnæðismál kom í ljós vanmátt-
ur hinna ráðandi stjórnmálaafla
til að fást við faglega opna um-
ræðu. Þegar einkaréttur þeirra á
vitneskju stofnunarinnar var af-
numinn kom í ljós að hinir ráð-
andi stjórnmálamenn fóru hal-
loka í opinberri umræðu.“
Stefán segir ennfremur að
þessi staða ráðandi stjórnmála-
manna, sem vafalaust heitir Al-
exander Stefánsson í þessu til-
viki, hafi orðið til þess að þeir
stöðvuðu tilraun Fasteignamats-
ins til opinnar upplýsingamiðlun-
ar um húsnæðismál.
Stefán heldur á félagsfundi
Skýrslutæknifélagsins í Norræna
húsinu kl. 14.30 í dag fyrirlestur
sem hann nefnir Upplýsinga-
þjóðfélagið - Fyrir „stóra
bróður" eða „litla manninn“.-gg