Þjóðviljinn - 29.01.1987, Side 13

Þjóðviljinn - 29.01.1987, Side 13
HEIMURINN Bandaríkin Reagan harmar mistök Bandaríkjaforsetifámáll um vopnasölu ístefnurœðu sinni og virðist ekki hafa tekist að beita uppí vindinn. Demókratarspyrja um traustog hœfni sem fengu féð frá íran, en sagði að sínir menn kæmust til botns í Washington - Fyrstu viðbrögð við stefnuræðu Reagans Bandaríkjaforseta í samein- uðu Bandaríkjaþingi í fyrra- kvöld eru heldur neikvæð, og virðist forsetanum ekki hafa tekist með ræðunni að vinna sig í álit eftir hneykslið kring- um vopnasöluna til íran og fjárstreymið þaðan til kontra- liða. Reagan varði aðeins fáeinum mínútum til að ræða þau mál, sem einkum var beðið eftir að hann fjallaði um. Hann sagði að margt hefði hann gert vel, en að einu væri honum þó harmur, eða eftirsjá „(regret“), sumsé ír- ansmálinu, þar sem gerð hefðu verið mistök, sem ekki voru nán- ar skilgreind. Forsetinn varði þó markmiðin með vopnasölunni, það væri rétt að koma á sam- skiptum við svo mikilvægt ríki sem íran, og það væri rétt að reyna að bjarga mannslífum, nefnilegagíslannaíBeirút. Reag- an minntist ekkert á kontraliða Filippseyjar Hermennirnir þrauka enn Manila - Á annað hundrað upp- reisnarhermanna héldu enn til í sjónvarpsstöðinni „rás sjö“ í Manila í gærkvöldi og höfðu tíl- raunir til að knýja fram uppgjöf mistekist. Fidel Ramos yfirmaður Fil- ippseyjahers ræddi í gær við Osc- ar Canlas ofursta sem stjórnar herliðinu, en árangur varð ekki af þeim viðræðum þótt Canlas léti að því liggja við fréttamenn að hann væri fús til að leggja niður vopn ef ákveðnum skilyrðum yrði uppfyllt. í gærkvöld og snemma í morg- un að staðartíma gerði um þús- und manna sveit úr stjórnarhern- um táragasárás á stöðvarhúsið til að leggja áherslu á uppgjafar- kröfu, en þeim árásum var hvorki svarað með orðum né skotum. Eftir fyrri árásina mótmæltu um hundrað yfirmenn í hernum við Ramos, og virðast Canlas og menn hans njóta mikillar samúð- ar í stjórnarhernum. Kæmi til blóðbaðs í sjónvarpsstöðinni kynni að draga til verulegra tíð- inda og reynir stjórnarher- sveitirnar því að fara sér eins hægt og mögulegt er. Kreml Kúnajef farinn Kosningatillögurnar samþykktar Moskvu - Kúnajef fyrrum flokksleiðtogi í Kasakstan var ekki endurkjörinn í fram- kvæmdanefnd („politburo") sovéska kommúnstaflokksins á miðstjórnarfundi sem lauk í gær, og kemur enginn í hans stað en náinn aðstoðarmaður Gorbatsjofs, Alexander Jak- ovljef, gerður að aukafulltrúa án atkvæðisréttar. í framkvæmdanefndinni eru nú 11 með atkvæðisrétti, 8 án. Að auki voru kjörnir tveir nýir ritar- ar miðstjórnar. Miðstjórnarfundurinn sam- þykkti þær breytingartillögur um kosningarétt í flokki og ráðum sem Gorbatsjof setti fram t ræðu í fyrradag. málinu og hann mundi þá gera það sem gera þyrfti. í rúmlega hálftíma ræðu sinni kom Reagan víða við, lofaði fé- lagslegum umbótum í Bandaríkj- unum, boðaði aðgerðir í verslun- ardeilunni við Evrópumenn og Japana án þess þó að fallast á verndarstefnu, og ítrekaði stjörnustríðsáform sín og stuðn- ing við Nicaragua. Vegna tímamunarins kann Þjóðviljinn fátt að segja af við- brögðum í Bandaríkjunum við ræðunni. Larry Speakes talsmað- ur forsetans sagði í morgun að fjöldi manns hefði hringt í Hvíta húsið og hælt Reagan, og var Larry hinn hressasti, en dagblað- ið Washington Times, sem hefur verið hliðhollt Reagan- stjórninni, sagði að Reagan hefði mistekist að varpa skugga ír- ansmálsins af Hvíta húsinu. Blað- ið sagði að Reagan hefði greini- lega ekki talið sig þurfa að sinna þeim viðburðum sem nú settu í hættu alla hans sigurvinninga, - hér hefði gefist tækifæri til að gera útum málið, forsetinn hefði ekki nýtt það. Leiðari blaðsins þykir óvenju harðorður í garð stjórnarinnar. í þinginu skiptust viðbrögð í tvö horn eftir flokkum. Repú- blikanar klöppuðu og fögnuðu, en demókratar sem nú hafa meirihluta í báðum deildum, voru öllu hófstilltari. Leiðtogi þeirra í öldungadeildinni, Robert Byrd, var ekkert hrifinn í útvarpi eftir ræðuna, og sagði að Reagan hefði ekki tekist að svara sífellt áleitnari spurningum um traust og um hæfni. Petta spáir varla góðu fyrir samskipti forsetans við þingið, en þessar valdastofnanir þurfa að koma sér saman um fjármál, fjárveitingar til hersins, stuðning við kontraliða og af- vopnunarmál, svo fátt eitt sé nefnt af ágreiningsmálum Reag- ans og demókrata. Tass-fréttastofan sovéska minntist ekkert á íransmálið í fréttum sínum, en sagði ræðuna hafa einkennst af árásum á So- vétríkin og hamraði á andstöðu Reagans við ýmsa þá afvopnun- aráfanga sem Kremlverjar telja brýnasta. RR; vel og fagmannlega flutt ræða hans virðist ekki hafa tilætl- uð veðraskiptaáhrif. 1 Grœnland Danir heimta ratsjárskýrslu Sovétmennsegja nýju Thule-ratsjána brot á ABM-samkomulaginu Öll vötn falla að því að ný ratsjárstöð í bandarísku her- stöðinni í Thule nyrst í Græn- landi sé brot á ABM-samningi Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna frá 1972 um takmarkanir á eldflaugavörnum. Talsmenn Bandaríkjastjórnar hafa fullyrt að nýja ratsjárkerfið í Thule sé ekki brot á samningnum, og í sama streng hefur danski varnarmálaráðherrann tekið, en skýrslur sem dagblaðið In- formation hefur komist yfir benda til hins gagnstæða. Nýja ratsjáin í Thule hefur lengi verið umdeild í Grænlandi og Danmörku, sem fer með utan- ríkismálefni Grænlendinga, en málið virðist nú vera að taka nýja stefnu. Talsmaður þingflokks Radikale Venstre í öryggismál- um hefur krafist þess að danska utanríkisráðuneytið biðji Banda- ríkjastjórn um eina af þeim skýrslum sem Information hefur fjallað um, og þrýstingur á dönsku stjórnina hefur aukist við upplýsingar óháðra bandarískra hernaðarsérfræðinga sem segja ratsjána brjóta í bága við ABM- samninginn, - og það með að hún yrði eitt fyrsta skotmark Sovét- manna í kjarnorkustríði. Sovéski sendiherrann í Dan- mörku sagði í danska sjónvarp- inu á sunnudag að ratsjáin væri samningsbrot. Áður hafði Gor- batsjof boðist til að leggja niður umdeilda sovéska ratsjárstöð í Sí- beríu gegn því að Bandaríkja- menn legðu af nýju ratsjána í Thule og hættu við að setja upp svipað apparat í Fylingsdale í Englandi. Radikale Venstre er stuðnings- flokkur minnihlutastjómar hæg- riflokkanna í danska þinginu, en hefur með vinstriflokkunum myndað þingmeirihluta gegn stjórninni um mörg utanríkismál. Danmörk Ovissa meo samningana Margir óttast að launahœkkanir opinberra starfsmanna verði teknar aftur haldi stjórnin velli Frá Gesti Guðmundssyni fréttaritara Þjóð- viljans í Kaupmannahöfn: Þeir samningar sem opin- berir starfsmenn í Danmörku gerðu fyrr í vikunni eru nokkuð betri en þeir samningar sem Alþýðusambandið gerði fyrir stuttu, en þó óttast margir að launahækkanir opinberra starfsmanna verði skammgóður vermir. Samið var um 7% launahækk- un strax en að ári liðnu fá starfs- menn 5-8% launahækkun, allt eftir því hvað launaskriðið verður mikið á almennum vinnumark- aði. Þá var samið um að vinnu- tíminn yrði styttur úr 39 stundum í 37 stundir í tveimur áföngum næstu fjögur árin. Þótt margir séu sáttir við þessa samninga þá benda aðrir á að það sé óvíst hver þróunin verður á raunverulegum kaupmætti, því annars vegar er óvíst hversu mikil verðbólga verður og hins vegar spá margir nýjum ríkisálögum sem muni éta upp alla kaupmátt- araukningu. Kosningar verða háðar í Dan- mörku annað hvort í sumar eða í haust og margir fréttaskýrendur telja að ríkisstjórn hægri flokk- anna hafi verið að kaupa sér vin- sældir með þessum launahækk- unum. Haldi stjórnin velli í kosn- ingunum muni hún taka hækkun- ina aftur með sköttum og álögum með tilvísun í aukins halla á fjár- lögum og viðskiptajöfnuði. íslam-fundur Sendinefnd til Teheran? íslamskir leiðtogar brosa hverframaní annan en deilur eru samar. Mubarak vill griðasáttmála Kuwait - Fundir leiðtoga ísl- amskra ríkja lýkur í dag í Ku- wait og virðist ekki ætla að marka tímamót í neinum af þeim deilumálum sem eitra samskipti einstakra ríkja og ríkjablokka í heimi Múhameðs- trúarmanna þótt þeir leiðtogar sem komu til fundarins brosi vinsamlega hver við öðrum. Forseti Arabísku furstadæ- manna sagði í gærkvöldi að verið væri að bollaleggja um að senda sendinefnd frá fundinum til Te- heran til að reyna að miðla mál- um í Persaflóastríðinu. Tækist það ekki væri fundurinn engu betri en gagnslitlir fundir araba- leiðtoga að sögn sjeiksins. Mikla athygli vakti að þeir Mu- barak Egyptalandsforseti og Ass- ad Sýrlandsleiðtogi tókust í hend- ur og spjölluðu á fundinum í fyrradag. - Sýrlendingar og Eg- yptar eru á öndverðum meiði í nánast öllum þeim deilum sem uppi eru meðal arabaríkja. Tíð- indavonir urðu hinsvegar að engu þegar Assad gagnrýndi Egypta fyrir friðinn við ísrael og tók ekki ERLENDAR FRÉTTIR MÖRÐUR ÁRNASON ,/REUlER undir áskoranir Mubaraks og Husseins Jórdaníukóngs um vopnahlé í Persaflóastyrjöldinni. Egyptar styðja íraka í stríðinu, Sýrlendingar eru hins vegar einu þátttakendurnir á Kuwait- fundinum sem styðja írana, sem neituðu að koma til Kuwait vegna stuðnings þarlendra við írak. Búist er við að í ályktunum fundarins verði hvatt til friðar milli íraks og frans og skorað á Samband Afríkuríkja að reyna friðarumleitanir í Tsjad. Þá er vænst yfirlýsingar um Af- ganistan þar sem Sovétmönnum verði gefin varleg en jákvæð ein- kunn fyrir teikn um friðarvilja. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Tékkóslóvakía Forstjórar skammaðir Forsœtisráðherrann undir áhrifum að austan Prag - Lubomir Strougal for- sætisráðherra Tékkóslóvakíu ávítti í gær forstjóra fyrirtækja í landinu fyrir lélega stjórn og bætti því við að hnökrótt efna- hagsþróun ætti ýmsar rætur að rekja til skipulags efna- hagskerf isins. í Tékkóslóvakíu hefur verið fylgt miðstýrðri harðlínu í efnahagsmálum sem öðrum síðan 1968, en nú virðast vindar frá Gorbatsjof i Kremt vera að blása yfir landa- mærin. Strougal sagði að mikið skorti á aga á vinnustöðum og stjórn fyrirtækja væri víða í molum í ræðu sem hann flutti á fundi for- ystumanna í verkalýðshreyfingu og stjórnenda fyrirtækja. Þessir gallar endurspegluðu hinsvegar litla skilvirkni í núverandi efna- hagskerfi, og þyrfti að auka sjálf- stæði fyrirtækjanna til að velja sér framleiðsluform, hráefni, vöruflutningaleiðir og markaði. Strougal sagði einnig að stjórnir fyrirtækjanna yrðu að fá frelsi til beinnar samvinnu við viðskipta- menn sína í öðrum löndum, með- al annars um sameiginleg verk- efni. Talið er að nú standi yfir valda- barátta í flokknum um arftaka hins 74 ára Gustavs Husak sem settur var í leiðtogasæti af Sovét- mönnum eftir innrásina 1968 - og benda nýleg tíðindi frá Kreml til að möguleikar Strougals hafi aukist, þar sem hann hefur orð fyrir breytingavilja í efna- hagsmálum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.