Þjóðviljinn - 31.01.1987, Page 3

Þjóðviljinn - 31.01.1987, Page 3
Samgönguráðherra Viljum gefa þeim tíma Matthías Bjarnason: Lagasetning hefur ekki verið rœdd. Komandi kosningar skipta þar engu máli „Nei það hefur ekki verið rætt um það að setja Iög á farmenn,“ sagði Matthías Bjarnason sam- gönguráðherra aðspurður um hvort lagasetning stæði til vegna farmannaverkfallsins, en það hefur vakið athygli að fyrir tæp- lega ári höfðu farmenn ekki verið nema 4 daga í verkfalli þegar ríkisstjórnin setti lög á farmenn. „Viö viljum gefa farmönnum tíma til þess að semja og hafa langan tíma til þess, en á milli farmanna og útgerðarmanna hafa varla nokkrir samningar ver- ið gerðir í nokkur ár. Þeir hafa núna haft hálft síðastliðið ár og allan janúarmánuð og ég get ekki séð að þeir hafi notað tímann vel. Aðspurður hvort komandi kosningar hefðu áhrif á það að lagasetning hafi ekki verið rædd sagði Matthías svo ekki vera. „Nei, nei. Skip þurfa að koma og fara þótt kosningar séu framund- an,“ sagði Matthías. -K.ÓI. Kennaraháskólinn Jónas endurkjörinn Jónas Pálsson hefur verið endurkjörinn rektor Kennarahá- skóla Islands til næstu fjögurra ára. Rektorskjör fór fram á fimmtudag og höfðu kosningarétt 37 fastir kennarar við skólann og 10 kjörmenn nemenda. AIIs greiddu 42 atkvæði og hlaut Jón- as 32 atkvæði. Aðrir sem hlutu atkvæði í kjör- inu voru: Ólafur Proppé 5 at- kvæði, Stefán Bergmann 2 at- kvæði og Þórir Ólafsson 1 at- kvæði. 2 seðlar voru auðir. -lg- Garðabær Óánægja meö „skrta- skattinn“ Sjálfstœðismenn í Garðabæ leggja sérstakt holrœsagjald á bœjarbúa íár Megn óánægja er meðal íbúa Garðabæjar vegna þeirrar á- kvörðunar bæjaryfírvalda að leggja sérstakt holræsagjald á bæjarbúa á þessu ári. Holræsagj- aldið eða „skítaskatturinn“ eins og Garðbæingar nefna gjaldtök- una, er 0.15% af fasteignamati íbúðahúss og nemur allt að 10 þúsund krónum á meðalíbúð í bænum. Hilmar Ingólfsson bæjarfull- trúi Alþýðubandalagsins í Garð- abæ lagðist einn bæjarfulltrúa gegn þessari skattheimtu, og sagði að meirihluti sjálfstæðis- manna væri eingöngu að reyna að blekkja bæjarbúa þegar hann auglýsti að hámarksafsláttur væri gefinn á fasteignaskatti en bætti síðan ofan á holræsagjaldi og stórhækkaði einnig vatnsskatt á bæjarbúa þannig að fasteignagj- öldin væru nú orðin um 40 þús. krónur á meðalíbúð í bænum. -*g- FRÉTHR Kröfuganga Óttayfirlýsing foreldra Foreldrasamtök barna á dagvistarheimilum skipuleggja göngu. Markmiðið að vekja athygli á ófremdarástandi í dagvistarmálum Foreldrasamtök barna á dag- vistarheimilum eru hags- munasamtök og fjöldkyldu- gangan er óttayfírlýsing foreldra, sagði Sigríður Pétursdóttir frá samtökunum um göngu sem for- eldrar hafa efnt til á mánudaginn 2. febrúar, en með göngunni vilja foreldrar vekja athygli borgaryf- irvalda á því ófremdarástandi sem ríkir í dagvistarmálum. Sigríður sagði að 2. febrúar hefði verið valinn til göngunnar vegna þess að þá er fyrsti nauðungarvinnudagur fóstra, en uppsagnir um 80% fóstra hefðu gengið í gildi 1. febrúar hefði uppsagnafresturinn ekki verið framlengdur til 1. maí nk. „Þess- ar aðgerðir fóstra skrifast á launastefnu ríkisstjórnarinnar og hana hljótum við að fordæma. Það eru jú okkar hagsmunir að búið sé vel að börnum okkar. Við viljum uppeldisstofnanir en ekki geymslustofnanir," sagði Sig- ríður. Þá sagði Sigríður að samtök foreldra væru búin að skipuleggja bréfakeðju til borgarfulltrúa, og Bæjarstjórn Hafnarfjarðar stóð fyrir fjölsóttum borgara- fundi í Bæjarbíói í fyrrakvöld þar þá einna helst til fulltrúa meiri- hlutans, þar sem foreidrar útlista ástandið á því dagvistarheimili sem barn þeirra dvelur. í mörg- um tilvikum er aðeins 1 fóstra starfandi á heimilinu og það er forstöðukonan. þjónustu og uppbyggingu sem kynntar voru tillögur meiri- hluta bæjarstjórnar að fjárhags- áætlun bæjarins fyrir þetta ár. Ganga Foreldrasamtakanna verður á mánudaginn eins og áður segir klukkan 16:30 og verð- ur gengið frá lögreglustöðinni við Hlemm að Höfða þar sem fulltrú- ar borgarstjórnar taka á móti göngufólki. —K.Ól. Síðari umræða og afgreiðsla fjár- hagsáætlunar fer fram á þriðju- daginn kemur. A borgarafundinum skýrðu fulltrúar meirihlutans, Alþýðu- bandalags og Alþýðuflokks helstu framkvæmdir á árinu og fulltrúar minnihlutans lýstu skoðun sinni á áæltuninni. Jafn- framt svöruðu bæjarfulltrúar fyrirspurnum bæjarbúa, en fund- urinn stóð framundir miðnætti. Samkvæmt tillögum meirihlut- ans er lögð rík áhersla á fram- kvæmdir í félagsmálum. Lokið verður við smíði dagvistarheimil- is á árinu sem verið er hefja fram- kvæmdir við og hafin undirbún- ingsvinna við byggingu annars. Starfsfólki fjölgað á Fél- agsmálastofnun, keypt húsnæði undir Æskulýðsmiðstöð, hafin undirbúningur að byggingu nýs íþróttahúss, lokið við smíði heilsugæslustöðvar og viðbygg- ingar við Sólvang, ný sund- laugabygging verði tekin í notkun á kjörtímabilinu og fleira mætti týna til. Þá hefur meirihluti bæjar- stjórnar ákveðið að láta loka öskuhaugum bæjarins og flytja sorp þess í stað í Gufunes. -*R. Nýtt og glæsilegt íþróttahús Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur var tekið í notkun i gær. Húsið sem er límtréshús hefur risið á skömmum tíma og hafa badmintonspilarar beðið þess með óþreyju enda félagið löngu búið að sprengja utan af sér eldra húsið sem stendur á sömu lóðinni og það nýja við Glæsibæ. Mynd: E.ÓI. Hafnarfjörður Aðaláhersla á félagsmál Fjölmennur borgarafundur umfjárhagsáœtlun A-flokkanna. Átak ífélagslegri Akureyri Svenir var rassskelltur Menntamálaráðherra borinn ofurliði á Sjallafundinum. Sverrir Hermannsson, mennta- málaráðherra átti sér fáa við- hlæjendur en marga andmælcnd- ur á opnum fundi sem hann hélt í Sjallanum á Akurcyri í fyrra- kvöld. Auk þeirra 600-800 sem á fundinum voru hlýddu fjölmargir útvarpshlustendur á Akureyri og í nágrenni á það hvernig ráðherr- ann var borinn ofurliði með snjöllum og hnitmiðuðum mál- flutningi skólamanna og er á eng- an hallað þótt sagt sé að ræða Sverris Pálssonar hafí staðið þar upp úr. Með rökfími og festu hýddi hann ráðherra eftirminni- lega. Sverrir hóf fundinn með ríflega klukkutíma langri tölu þar sem hann kom víða við. Eftir að fram- söguræðu hans lauk var ekki rætt um annað en brottrekstur hans á Sturlu Kristjánssyni úr starfi fræðslustjóra og baráttu skóla- manna nyrðra fyrir jöfnum rétti barna með sérþarfir til sér- kennslu, hvar sem þau búa á Sverrir Pálsson landinu. Sverrir Pálsson, skólastjóri Gangfræðaskóla Akureyrar, steig fyrstur í pontu á eftir ráð- herra og í snjallri ræðu rakti hann lið fyrir lið hvernig allar þær ástæður sem ráðherra hefur til þessa gefið fyrir brottrekstri Sturlu væru ýmist á einhvern hátt ýmist upplognar, á röngum for- sendum byggðar eða á ábyrgð annarra en Sturlu, s.s. fræðslu- ráðs og skólastjórnenda í um- dæminu. Einnig vék Sverrir Páls- son að svívirðingum þeim sem menntamálaráðherra hefur látið út úr sér um þá sem gagnrýnt hafa vinnubrögð hans og mótmælt brottrekstri fræðslustjóra og er vitnað í orð skólastjórans þar um í frétt í blaðinu í gær. Trausti Þorsteinsson, skóla- stjóri á Dalvík og fræðsluráðs- maður, tók næstur til máls og fjallaði hann aðallega um starfs- svið og skyldur fræðslustjóra og fræðsluskrifstofu og samskipti „hýddi“ nafna sinn við ráðuneyti. Hann sagði m.a.: „Ég hef kynnst því af eigin raun hvernig starfsmenn ráðuneytis hafa reynt að sniðganga augljós verkefni embættis fræðslustjóra og viljað nota fræðsluskrifstofu sem póststövðar ráðuneytis á landsbyggðinni." Benedikt Sigurðarson, skóla- stjóri Barnaskóla Akureyrar, fjallaði m.a. um rangfærslur ráð- herra og ráðuneytis varðandi tölulegar upplýsingar um dreif- ingu fjárveitinga til sérkennslu og það hvernig ráðuneytismenn hafa lagt í einelti og rifið niður áætlanir um fjárþörf þessa eina fræðsluumdæmis sem þó hefðu verið raunhæfari en annars staðar gerist. Kristín Sigfúsdóttir, stjórnar- formaður í foreldrafélagi Barna- skóla Akureyrar, túlkaði viðhorf foreldra skólabarna og vék þar m. a. að þeim ónefnum og fúkyrð- um sem ráðherra hefur sent skólamönnum með þessum orð- um: „Þungar ásakanir Sverris Hermannssonar í garð Benedikts Sigurðarsonar skólastjóra Barna- skóla Akureyrar eru í hæsta máta ósmekklegar. Er andstyggilegt fyrir nemendur Benedikts að sjá í dagblöðum hvernig ráðherra tal- ar um skólastjórann þeirra. Hver skóli mætti vera hreykinn af jafn áhugasömum og hæfum skóla- stjóra sem Benedikt er.“ Og síðar sagði Kristín: „Það hefur löngum þótt lítilmannlegt að upphefja sjálfan sig með því að lítillækka aðra.“ Einn maður, Bárður Halldórs- son menntaskólakennari, mælti aðgerðum ráðherra bót. Ræður allra annarra sem til máls tóku voru tilbrigði við sama stef og lýst hefur verið í tilvitnunum í ræður fólks hér að framan. Ráðherra hafði engu að bæta við það sem hann hefur áður sagt um málið og greinilegt var að málflutningur hans féll öllum þorra fundar- manna ekki í geð. -yk. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.