Þjóðviljinn - 31.01.1987, Page 6
ÍÞRÓTTIR
E&varð Þór E&var&sson, sundkappinn úr Njarðvík sem var kjörinn
Iþróttamaður ársins 1986, hlaut 50 þúsund krónur að gjöf frá Víkurfrétt-
um og prentsmiðjunni Grágás í Keflavík. Kolbrún Gunnarsdóttir, ungfrú
Suðurnes 1986, afhenti Eðvarði ávísun með þessari upphæð í hófi sem
honum var haldið um síðustu helgi.
Úrvalsdeildin
Tíundi sigur
UMFN í röð
Valur og Teitur skoruðu 74 gegn ÍBK
Munurinn 26 stig ífyrri hálfleik
Njarðvíkingar eru komnir með
góða stöðu á toppi úrvalsdeildar-
innar eftir all öruggan sigur á
grönnum sínum, IBK, í gær-
kvöldi. Lokatölur urðu 95-84
eftir að UMFN hafði náð 26 stiga
forystu í fyrri hálfleiknum. Tí-
undi sigur íslandsmeistaranna í
röð i deildinni og þeir eru með
fjögurra stiga forystu.
Iþróttahúsið í Njarðvík var
troðfullt og stemmningin gífurleg
allan tímann. UMFN náði fljót-
Njarövík 30. janúar
UMFN-ÍBK 95-84 (54-35)
14-9, 22-11, 34-16, 44-18, 50-28,
54-35 - 61-47, 69-57, 77-68, 79-72,
90-72, 92-84, 95-84.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson
44, Teitur Örlygsson 30, Kristinn Ein-
arsson 10, Hreiðar Hreiðarsson 4,
Helgi Rafnsson 4, Árni Lárusson 2,
Isak Tómasson 1.
Stig ÍBK: Jón Kr. Gíslason 22,
Guðjón Skúlason 20, Hreinn Þorkels-
son 13, Gylfi Þorkelsson 10, Sigurður
Ingimundarson 9, Ingólfur Haraldsson
6, Falur Harðarson 2, Matti Ó. Stef-
ánsson 2, Ólafur Gottskálksson 1.
Dómarar: Jón OttiÓlafsson og Sig-
urður Valur Halldórsson - ágætir.
Maður leiksins: Valur Ingimundar-
son, UMFN.
lega góðri forystu sem jókst
stanslaust - allt gekk upp hjá lið-
inu og Teitur Örlygsson og Valur
Ingimundarson fóru á kostum og
skoruðu úr öllum færum. Á með-
an var eins og Keflvíkingar færu á
taugum og mótlætið fór í skapið á
þeim.
Þeir náðu sér á strik í seinni
hálfleiknum en þá var líka eins og
kæruleysi væri komið í leik
Njarðvíkinga og þeir orðnir held-
ur öruggir með sig. ÍBK
minnkaði muninn niður í 7 stig
þegar langt var liðið á leikinn en
þá tóku Njarðvíkingar kipp og
komust 18 stigum yfir. Sigur
þeirra var ekki í hættu eftir það.
Valur og Teitur voru yfir-
burðamenn hjá UMFN og
skoruðu 74 af 95 stigum liðsins.
Aðrir voru lítið áberandi, helst
að Helgi Rafnsson tæki mikið af
fráköstum að vanda.
Keflvíkinga virtist vanta kraft í
byrjun en það lagaðist þegar á
leið. Þeirra bestu menn voru Jón
Kr. Gíslason, Guðjón Skúlason
og Hreinn Þorkelsson.
-SÓM/Suðurnesjum
Ísland-Sviss
Leikreynt íslenskt lið
Sjö leikmanna með yfir 100 landsleiki Líflegir Alsírbúar mœta 21 -árs liði íslands
Það verða fjórir „útlendingar“
í íslenska landsliðinu í handknatt-
leik þegar það mætir Svisslend-
Alfreft Gfslason verður með gegn
Sviss á morgun en hann hefur lítið
leikið hér heima síðustu árin. Hann
lék sinn 100. leik í Eystrasaltskeppn-
inni á dögunum, gegn Sovót-
mönnum.
ingum í Laugardalshöllinni á
morgun, sunnudag. Það eru Sig-
urður Sveinsson, Kristján Ara-
son, Alfreð Gíslason og Páll Ól-
afsson.
Tveir til viðbótar koma til
landsins á morgun og verða með
á Flugleiðamótinu sem hefst í
Laugardalshöllinni á mánu-
dagskvöldið. Það eru þeir Bjarni
Guðmundsson og Atli Hilmars-
son en sá síðarnefndi hefur ekki
leikið með landsliðinu síðan í
heimsmeistarakeppninni í Sviss
fyrir tæpu ári.
ísland teflir fram mjög
Ieikreyndu liði í dag því sjö leik-
manna hafa leikið yfir 100 lands-
leiki. Það eru fjórmenningarnir
áðurnefndu og auk þeirra Þorgils
Óttar Mathiesen, Guðmundur
Guðmundsson og Kristján Sig-
mundsson. ísland á nú eitt
leikreyndasta landslið heims og
til samanburðar má nefna að í liði
Sviss er aðeins einn leikmaður
með meira en 100 landsleiki,
vinstrihandarskyttan snjalla Pet-
er Weber sem hefur leikið 106 og
var með bestu leikmönnum í síð-
ustu heimsmeistarakeppni.
„Það er alltaf erfitt að eiga við
Svisslendinga. Þeir leika rólegar
og langar sóknir og tekst oft
þannig að ná góðum úrslitum
gegn bestu þjóðum heims. Ég
veit ekki í hvaða formi þeir eru
núna því þeir eru að fara í B-
keppnina á Ítalíu sem hefst eftir
þrjár vikur,“ sagði Bogdan Kow-
alczyck, landsliðsþjálfari íslands.
ísland og Sviss hafa leikið 10
landsleiki og auk þess hefur einu
sinni verið leikið við b-lið Sviss.
Af þessum 10 leikjum hefur ís-
land unnið 6, tvisvar hefur orðið
jafntefli og Sviss hefur sigrað
tvisvar. Síðast vann ísland 26-17
á móti í Luzern í Sviss í október
1985. Sviss varð í 11. sæti í síðustu
heimsmeistarakeppni.
Leikurinn á morgun er liður í
hátíðahöldum ÍSÍ vegna 75 ára
afmælis sambandsins og hefst kl.
14.30. Klukkan 16.30 verður síð-
an annar leikur í Laugardalshöll-
inni, 21-árs landslið íslands mætir
landsliði Alsírbúa sem koma eins
og Svisslendingar til landsins í
dag til þátttöku í Flugleiðamót-
inu. Það verður forvitnilegt að sjá
til Alsírbúanna því þeir leika
mjög óvenjulegan handknattleik
- nánast maður á mann útum all-
an völl allan leikinn. íslendingar
hafa tvisvar mætt þeim og átt í
erfiðleikum í bæði skiptin en þó
sigrað, 29-22 á alþjóðlegu móti í
Rostock 1983 og 19-15 á Ól-
ympíuleikunum 1984 eftir að Als-
ír hafði þá haft forystu mest allan
leikinn. Leikir Alsírbúa eru jafn-
an mjög fjörugir - og tilþrif
þjálfarans vekja jafnan athygli en
hann er harður við sína menn og
lætur j afnvel hendur skipta við þá
ef þeir standa sig ekki nógu vel!
-VS
England
Fjórða umferð í dag
Frestaðir leikirsetja strik í reikninginn
Knattspyrna
Helgi með
Leikni
Helgi Ingason hefur verið ráð-
inn þjálfari Leiknis á Fáskrúðs-
firði, sem féll í 4. deild sl. sumar.
Helgi er frá Fáskrúðsfirði en hef-
ur leikið með Breiðabliki og Vík-
ingi í 1. deild síðustu tvö árin.
-VS
í dag verður leikin 4. umferð
ensku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu, eða næstum því. Enn er
ekki öllum leikjum í 3. umferð
lokið vegna þrálátra frestana síð-
ustu vikur og tveir þeirra fara ein-
mitt fram í dag. Það eru:
Shrewsbury-Hull
West Ham-Orient
Leikir 4. umferðar i dag eru
síðan sem hér segir:
Aldershot-Barnsley
Arsenal-Plymouth
Bradford City-Everton
Chester-Sheffield Wed.
Luton-Q.P.R.
Manch.United-Coventry
Newcastle-Preston
Stoke-Cardiff
Swindon-Leeds (sunn.)
Tottenham-Crystal Palace
Walsali-Birmingham
Watford-Chelsea (sunn.)
Wigan-Norwich
Wimbledon-Portsmouth
Þá verður eftir að leika tvo leiki
í 4. umferð og það eru:
West Ham eða Orient-Sheff.United
Swansea-Shrewsbury eða Hull
í dag verður einnig leikinn einn
leikur í 1. deild, Chariton gegn
Nottingham Forest, og í 2. deild
mætast Reading og Sunderland.
Þessi fjögur lið féllu útúr bikar-
keppninni í 3. umferð.
Vegna frestananna lentu ís-
lenskar Getraunir í miklum
vanda þegar leikjum á getrauna-
seðilinn fyrir daginn í dag var
raðað upp. Þá var aðeins ljóst um
hvaða lið myndu mætast í 7
leikjum úr 4. umferð og því þurfti
að bæta á seðilinn fimm leikjum
úr 3. deild.
-VS/Reuter
Körfubolti
Þórvann í
Kópavogi
Þór frá Akureyri sigraði
Breiðablik 68-55 þegar félögin
mættust í 1. deild karla í Digra-
nesi í gærkvöldi. Staðan í hléi var
38-23, norðanmönnum í hag, en
Blikar minnkuðu muninn í tvö
stig, 47-45. Þá tóku Þórsarar góð-
an kipp og gerðu útum leikinn.
Þeir leika annan leik í þessari
ferð, við ÍS í Hagaskólanum á
morgun, sunnudag, kl. 14.
-VS
Handbolti
Reynir
lagði Þór
Reynismenn drógu heldur úr
vonum Þórsara frá Akureyri um
að komast uppí 1. deild með því
að sigra þá 31-27 í Sandgerði í
gærkvöldi. Á Seltjarnarnesi vann
Grótta sigur á ÍBK, 25-22, og eru
það einnig heldur óvænt úrslit
miðað við gengi liðanna undan-
farið.
í dag mætast í 2. deild karla HK
og Þór í Digranesi kl. 14 en ÍBV
og HK mætast á miðvikudag.
Staðan í deildinni er þessi:
|R............. 11 9 2 0 274-204 20
Afturelding.... 11 7 2 2 269-222 16
Þór A...........10 5 2 3 215-214 12
IBV.............10 5 0 5 224-210 10
IBK............ 11 4 2 5 232-226 10
ReynirS........ 10 3 4 3 231-249 10
HK..............10 5 0 5 249-208 10
Grótta..........11 4 1 6 241-279 9
Fylkir......... 11 2 1 8 210-257 5
(A.............. 9 1 0 8 175-251 2
-VS
Skíði
Hess fékk
fyrsta gull
Erika Hess, skíðadrottningin
frá Sviss, hlaut í gær fyrstu
gullverðlaun heimsmcistaramóts-
ins sem hafið er í Crans-Montana
í Sviss. Hún sigraði í tvíkeppni,
samanlögðum árangri í svigi og
bruni, og voru þetta fímmtu
gullverðlaunin sem hún hlýtur á
heimsmeistaramóti frá upphafí.
Sylvia Eder frá Austurríki varð
önnur og Tamara McKinney frá
Bandaríkjunum þriðja.
-VS/Reuter
Júdó
Afmæli
Ármanns
Júdódeild Ármanns verður 30
ára á mánudaginn, 2. febrúar, og
heldur af því tilefni opið mót í
íþróttahúsi Kennaraháskólans í
dag, 31. janúar. Keppt verður í
þremur þyngdarflokkum karla,
undir 65 kg, 65-80 kg og yfir 80
kg. Þá fer einnig fram keppni
milli drengja úr Ármanni,
Grindavík og Keflavík. Júdósýn-
ingar fara fram og félagar úr fiml-
eikadeild Ármanns leika listir
sínar. Inná milli verður skotið
sýningaratriðum, þar á meðal
Nage-no-kate sem þeir Gísli I.
Þorsteinsson (4.dan) og Haukur
Ólafsson (l.dan) munu sýna.
Nage-no-kate hefur aðeins verið
sýnt einu sinni eða tvisvar opin-
berlega hér á landi.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. janúar 1987