Þjóðviljinn - 31.01.1987, Page 13
HEIMURINN
Suður-Afríka
Hvítir kjósa í maí
Botha undir gagnrýnifyrrverandi stuðningsmanna. Spáð hörku í kosninga.
baráttunniþráttfyrir neyðarlög og ritskoðun. Kosningarnar varpa kastljósi á
réttleysi 24 milljóna svertingja
Höfðaborg - Pieter W. Botha
forseti ríkisstjórnar hvítra í
Suður-Afríku tiltók í gær 6. maí
sem kjördag í kosningum sem
áður höfðu verið boðaðar
meðal hvítra íbúa landsins. Til
eru þingdeildir kynblendinga
og indverja og verður ekki kos-
ið til þeirra. Svertingjar í
landinu, tveir þriðju hlutar
íbúa, hafa engan kosningarétt.
Kosningar hvítra í maí fara
fram í skugga neyðarlaga og rit-
skoðunar, og hafa þingmenn í
stjórnarandstöðu sumir hverjir
möglað og sagt múl bundinn á
sig. Samkvæmt ritskoðunarregl-
um má ekki utanþings gefa án
leyfis yfirlýsingar um framferði
lögreglu, um tilvist eða að búnað
25 þúsund fanga sem teknar voru
samkvæmt neyðarlögunum, og
ekki má geta um aðgerðir svartra
gegn lögunum.
Botha tilkynnti um kjördaginn
við þingsetningu í Pretoríu. í
ræðu hans komu ekki fram neinar
nýjar tillögur um breytingar á
kynþáttaaðskilnaðarstefnunni,
en Botha hefur að undanförnu
orðið fyrir því að fyrri stuðnings-
menn hans í Þjóðarflokknum
hafa risið gegn honum, annars-
vegar ákafir stuðningsmenn
„apartheid“-stefnunnar sem eru
óánægðir með hinar takmörkuðu
umbætur Botha, hinsvegar ögn
frjálslyndari flokksmenn sem
telja að umbótastarfið gangi
alltof hægt. Síðastur þeirra til að
lýsa andstöðu við Botha er Denn-
is Worrall, sem hefur sagt af sér
sendiherraastöðu í Lundúnum og
ætlar í framboð gegn einhverjum
ráðherranna. Worral var þing-
maður fyrir Þjóðarflokkinn áður
en hann fór til London.
Vegna þessara umhleypinga í
stjórnarflokknum er því spáð að
kosningarnar verði hinar hörð-
ustu frá ’48 þegar flokkurinn
komst til valda.
Þjóðarflokkur Botha er þó í lít-
illi hættu. Hann hefur nú 127
þingmenn af 178 og hlýtur að
halda meirihluta sínum. Flokkur-
inn nýtur einkum stuðnings Búa,
afkomenda Hollendinga og kom
eftir stríð á því „apartheid“-kerfi
sem hann reynir nú að gera á of-
urlitlar breytingar til að lægja
uppreisnaröldurnar og tryggja
áframhaldandi stuðning vest-
rænna stórvelda og stórfyrir-
tækja. Botha hefur einkum reynt
að ná stuðningi annarra kynþátta
í landinu en svertingja með því að
bæta kjör og rétt indverja og kyn-
blendinga.
Fjórir aðrir flokar eiga fulltrúa
á hvíta þinginu. Tveir flokkar til
hægri við Þjóðarflokkinn berjast
gegn öllu minnsta fráhvarfi frá
strangri „apartheid“-stefnu, hafa
nú 19 þingmenn, og er spáð
auknu fylgi.
Á vinstri hlið Botha eru tveir
flokkar, sem reuter-fréttastofan
kallar annan íhaldssaman og hinn
miðjuflokk, og vilja báðir ein-
hverskonar sambandsríki kyn-
þáttanna í landinu. Þeir hafa með
sér kosningabandalag og bjóða
ekki fram hvor gegn öðrum.
Þessir flokkar hafa nú samtals 32
þingmenn. Þessir flokkar eru allir
sammála um eitt, - að jafn kosn-
ingaréttur þarsem hver maður
hefði eitt atkvæði komi ekki til
greina.
Botha þarf ekki að óttast ósigur í
kosningunum, en þær gætu þó orðið
honum skeinuhættar.
Tutu erkibiskup, einn helsti
leiðtogi svartra, hefur skorað á
andstæðinga aðskilnaðarstefn-
unnar að taka ekki þátt í kosning-
unum sem hann kallar skrípaleik,
og búast má við að Afríska þjóð-
arráðið og önnur samtök svartra
láti sitt ekki eftir liggja til að
trufla þær.
Persaflóastyrjöldin
Bandaríkjamenn varaöir við
ERLENDAR
FRÉTTIR
MÖRÐUR
ÁRNASON
,/REUlER
New York - Sendiherra Irans
hjá Sameinuðu þjóðunum
sagði í bandarísku sjónvarpi í
fyrrakvöld að íranar mundu
svara með áhrifaríkum hætti ef
Bandaríkjaher blandaði sér í
styrjöldina við Persaflóa.
Fimm bandarísk herskip eru
nú í norðurhluta flóans, en
fréttaskýrendur eiga ekki von
á að þau séu til annars en sýn-
is um bandarískan styrk.
Tilkynnt var í gær um miklar
loftárásir írakskra flugvéla á
borgir og bæi í íran, og er í Teher-
an sagt að um tvö þúsund al-
mennir borgarar hafi fallið í loft-
árásum í janúar og um sjö þúsund
særst. Forseti íransþings, Raf-
íranstjórn segist munu svara bandarískri íhlutun óvægilega. Tíðinda
laust á suðurvígstöðvunum
mannfórnir séu gríðarlegar. Frá
upphafi átakanna á suðurvíg-
sjanani, segir „borgarasríðið“
kosta meiri fórnir íraksmegin,um
25 bæir og borgir í írak séu innan
skotfæris íranska stórskotaliðsins
og verði illa út í skothríðinni.
Hann sagði einnig að íranir væru
ánægðir með gang sóknarinnar á
suðurvígstöðvunum við Basra.
íransher héldi þar um 50 ferkíló-
metra svæði, og væri næst Basra-
borg í um þriggja kílómetra fjar-
lægð. Rafsjanani sagði að um 120
af 192 herdeildum í her íraka
væru borginni til varnar, sem
væru um 360 þúsund manns.
Talsmenn bandaríska varnar-
málaráðuneytisins segja hinsveg-
ar þá sögu að tíðindalaust sé á
þessum vígstöðvum, hvorugur
aðilinn komist áfram en
stöðvunum um jólin hafi um 49
þúsund íranar orðið óvígir, þar af
helmingur fallið, og um 20 þús-
und írakar. Talsmenn varnar-
málaráðuneytisins telja að Basra-
borg sé ekki í bráðri hættu frá
hersveitum írana, og hafi gagn-
sóknir íraka í vikunni gert að
engu fyrri landvinninga írana.
Þeir haldi um átta ferkílómetrum
íraks lands og sé vígstaðan mjög
svipuð og fyrir viku.
,íranagua‘
Hvatning frá Israel
Skýrsla öldungadeildarinnar birt. Óvíst um þátt Reagans
Washington - Sú nefnd öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings
sem rannsakað hefur íransh-
neykslið hefur sent frá sér
skýrslu um rannsóknina þar-
sem hlutur ísraelsmanna er
gerður meiri en hingaðtil hefur
verið talið. Þetta er fyrsta opin-
bera skýrslan um máiið í
Bandaríkjunum.
Jafn óvíst er um þátt Reagans
forseta í málinu eftir skýrslubirt-
Kjarasamningar
Verðstöðvun
í Svíþjóð
Stokkhólmi - Sænska ríkis-
stjórnin fyrirskipaði í gær
verðstöðvun í landinu á allri
vöru og þjónustu nema tóbaki,
nokkrum grænmetistegund-
um og húsaleigu.
Kjell-Olof Feldt fjármálaráð-
herra stjórnar sósíaldemókrata
sagði í gær að ákvörðunin hefði
verið tekin tii að koma í veg fyrir
að fyrirtækin veltu nýsömdum
kauphækkunum útí verðlagið, og
að auki væri verðstöðvunin liður í
að hamla gegn verðbólgu. Hann
sagði að verðstöðvunin mundi
ekki standa lengi yfir en tiltók
engar dagsetningar.
Undanfarið hafa staðið yfir
viðræður í verkalýðshreyfingunni
um það hvort nýta ætti rétt til að
hefja að nýju samningaviðræður
eftir að ljóst varð að verðbólga
árið 1986 var 3,3%, 0,1% meira
en stjórnin hafði lofað í samning
unum.
inguna og áður. Ekki er vitað
hvort Reagan vissi um að fé frá
íran fyrir vopnin rann til kontra-
liða, og ekki er heldur uppvíst
hvort Reagan heimilaði fyrstu
vopnasendinguna gegnum lsrael
til írans í ágúst 1985, nokkrum
mánuðum áður en hann gaf út
formlegt en leyfilegt leyfi til
vopnasölu beint frá Bandaríkjun-
um.
í skýrslunni segir að ísraels-
menn hafi byrjað að selja írönum
vopn þar á meðal bandarísk, árið
1982, og hafi ísraelsstjórn átt
upptökin að því að Bandaríkja-
stjórn hóf vopnasölu til íran
1985.
Talsmenn ísraelsstjórnar
neituðu í gær að fjalla um
staðhæfingar skýrslunnar og
sögðu ísraelsstjórn standa fast á
því að Bandaríkjastjórn hefði
beðið um hjálp við vopnasend-
ingarnar.
Einsog áður hafði komið fram í
fréttum leiðir skýrslan í ljós að
vopnasalan til íran var í beinu
samhengi við tilraunir til að fá
lausa bandaríska gísla í Beirút, en
því hafði Reagan áður neitað,
enda haldið mjög á lofti þeirri
stefnu að ekki bæri að semja við
hermdarverkamenn.
Trúarbrögð
Abraham
sáttasemjari
Reagan sendi
íransleiðtoga biblíu
Washington/Teheran - Þeir í
hvíta húsinu hafa viðurkennt
að Reagan Bandaríkjaforseti
sendi biblíu til Rafsanjani for-
seta íransþings og eins helsta
leiðtoga þar í landi. Rafsanjani
sagði frá þessu fyrir þremur
mánuðum og sýndi blaða-
mönnum biblíuna í fyrradag.
Larry Speakes talsmaður for-
setans sagði að biblían hefði verið
send með bandarískum erindrek-
um í október í fyrra til að sýna að
sendimennirnir væru Reagans-
menn og að forsetinn væri guðs-
maður.
Rafsanjani sagði í nóvember
að auk biblíunnar hefði hann
fengið frá Bandaríkjunum köku í
laginu einsog lykill í þann mund
að vopnasalan til fran komst upp
með fréttum í líbönsku blaði. Re-
agan forseti bað landa sína í sjón-
varpsávarpi í nóvember að leggja
engan trúnað á slúður af þessu
tagi.
Fremst í biblíunni sem send var
Abraham sagt að hætta við sonar-
fórnina. Sættir hann Reagan og Ir-
ansklerka?
til íran ritaði Ronald Reagan
nafn sitt eigin hendi undir tilvitn-
un í bréf Páls postula og Galata-
manna:
„En það er ritningin sá það
fyrir að Guð mundi rétlætta
heiðingjana fyrir trú boðaði hún
Abraham fyrirfram þann fagnað-
arboðskap: Af þér skulu allar
þjóðir blessun hljóta.“ (Gal.
3.8).
í bæði kristinni trú og íslamskri
njóta Abraham og aðrir forngyð-
ingar fyllsta trausts.
Bretland
Verkó jafnt íhaldi
London - í skoðanakönnun
sem dagblaðið Today birti í
dag eru Verkamannaflokkur-
inn og íhaldsflokkurinn með
jafnháa prósentu, 38,5% að-
spurðra. Bandalag frjálslyndra
og sósíaldemókrata hefur
rúmlega tuttugu prósent.
Skoðanakannanir um flokka-
fylgi hafa undanfarið verið mjög
ósamhljóða í Bretlandi, en þær
síðustu bentu til að íhaldsflokkur
Thatchers forsætisráðherra hefði
vænt forskot á Verkamannaflokk
Neil Kinnocks. Búist er við að
Thatcher efni til kosninga á þessu
ári, jafnvel í vor eða snemma
sumars. Hún getur setið framm
yfir áramót.
Breska pundið og ríkis-
skuldabréf féllu í kauphöllinni í
London við tíðindin úr skoðana-
könnuninni.
Laugardagur 31. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13