Þjóðviljinn - 11.02.1987, Side 2
—SPURNINGIN—
Hvernig kunnirðu við kvikmynd-
ina „Böðulinn og skækjuna"?
Melkorka Ólafsdóttir:
Vel, en hún var ívið langdregin á
köflum. Ekkert tiltakanlega dóna-
leg.
Karítas Jensdóttir:
Mér fannst hún ágæt - reyndar
mögnuð. Hún er vel gerð og
leikin.
Jón Matthíasson:
Mér fannst hún hálf skítug, blaut
og subbuleg.
Gunnlaugur Jónsson:
í einu orði sagt, góð.
Jón Pálsson:
Ég byrjaði að horfa og fannst hún
ógeðfelld. Hætti að horfa þegar
það var búið að höggva tvo. Mér
leist satt að segja ekkert á mynd-
ina.
FRETTIR
Ríkisstjórnin
Okrið lögleitt
Nýtt stjórnarfrumvarp um vaxtamál heimilar okurþegar þröngt er á almennum
lánamarkaði. Svavar Gestsson:Frumvarpinu ekki œtla að loka okurleiðunum,
heldur lögleiða þœr
Frumvarp um okurlög sætti
harðri gagnrýni á aiþingi í fyrra-
dag og sagði Svavar Gestsson
greinilegt að ríkisstjórnin ætiaði
sér ekki að loka leiðum til okur-
lánastarfsemi, heldur þvert á
móti opna fyrir að hún geti þrifíst
áfram þegar þröngt er á al-
mennum lánamarkaði.
Ný ákvæði um okur er að finna
í vaxtafrumvarpi sem viðskipta-
ráðherra mælti fyrir á alþingi í,
fyrradag. Ef frumvarpið verður
samþykkt falla úr gildi gömlu ok-
urlögin frá 1960, sem reyndust
eins og kunnugt er haldlaus að
mati Hæstaréttar þar sem Seðla-
bankinn hafði ekki uppfyllt
ákvæði þeirra um auglýsingu
hámarksvaxta.
Matthías Bjarnason viðskipta-
ráðherra sagði hin nýju ákvæði
koma algerlega í stað laganna frá
1960 og tækju auk þess til þriðja
aðila eða „skuggamannanna"
sem lána fé í gegnum okrara. Þá
gerir bráðabirgðaákvæði ráð fyrir
að refsiákvæði gömlu laganna
standi óhögguð gagnvart þeim
málum sem nú bíða í dómskerf-
inu.
Svavar Gestsson benti á að
samkvæmt frumvarpinu væri
leyfilegt að semja um hvaða vexti
sem er og það teljist því aðeins
okur samkvæmt frumvarpinu ef
um grófa misnotkun aðstöðu er
að ræða eða ef lánarinn hagnýtir
sér á óréttmætan hátt fjárþröng
lántakanda af ásetningi eða stór-
felldu gáleysi. Orðalag okur-
greinarinnar sjálfrar væri alltof
þröngt og í greinargerð segði að
brotið þurfi að vera „gróft“ til að
það teljist refsivert. Þetta sagði
Svavar í samræmi við okurstefn-
una sem ríkisstjórnin hefði rekið
frá 1984 og menn þekktu afleið-
ingar hennar ekki aðeins af ok-
urmálunum, sem hefðu strandað
í Hæstarétti, heldur einnig af
nauðungaruppboðunum, gjald-
þrotunum og erfiðleikum fyrir-
tækjanna úti á landsbyggðinni.
Kjartan Jóhannsson tók undir
þessa gagnrýni Svavars og sagði
ákvæðin allt of þröng. Nauðsyn-
legt væri að veita neytendum,
þ.e. lántakendum meiri vernd
gegn okri en frumvarpið gerir ráð
fyrir. Umræðunni varð ekki lok-
ið.
-ÁI
Höfrungur AK landaði fullfermi af loðnu á Akranesi síðdegis á laugardaginn, 920 tonnum. Mynd gg.
Loðnuveiðarnar
270 þúsund eftir af kvótanum
745 þúsund tonn afloðnu komin á land. Brœla á miðunum síðan á mánudaginn
Nú eru samkvæmt upplýsing-
um loðnunefndar komin 745 þús-
und tonn af loðnu á land og eru
því 270 þúsund tonn eftir af kvót-
anum. Bræla hefur verið á mið-
unum síðan á mánudagsmorgun-
inn.
Þegar Þjóðviljinn ræddi við
Ástráð Ingvarsson hjá loðnu-
nefnd í gær höfðu þrettán skip
tilkynnt um afla síðan á sunnu-
daginn. Víkingur AK landaði
1100 tonnum í gær, Hrafn GK
landaði 620 tonnum á Þórshöfn
og Húnaröst ÁR landaði sama
magni á Hornafirði. Aðrir voru
með minna. Skipin hafa verið að
veiðum við suðausturland.
Höfrungur AK landaði full-
fermi á Akranesi á laugardaginn,
920 tonnum. Þá landaði Hilmir II
1200 tonnum í Vestmannaeyjum
á sunnudaginn.
-gg
Arnarflug
Aætla 10 miljónir í hagnað
Öll áhersla á áœtlunarflug. Erlendu leiguflugi hœtt
Rekstraráætlun Arnarflugs
fyrir þetta ár sem samþykkt var á
hiutahafafundi félagsins í fyrra-
kvöld gerir ráð fyrir 10 miljón
króna hagnaði af rekstri félagsins
á þessu ári og 35 miljón króna
hagnaði á árinu 1988. Taprekstur
félagsins á liðnu ári nam um 125
miljónum króna.
Hlutahafafundurinn sam-
þykkti að auka hlutafé félagsins
um 130 miljónir í tveimur áföng-
um, 105 miljónir á þessu ári og 25
miljónir á næsta ári. Þegar er
búið að fá loforð fyrir um 60-70
miljónum.
Nýstofnað dótturfyrirtæki
Arnarflugs mun taka yfir innan-
landsflug félagsins í næsta mán-
uði en Arnarflug mun nú leggja
alla áherslu á áætunarflug til Evr-
ópu en önnur hefðbundin starf-
semi s.s. leiguflug á erlendum
mörkuðum verður lögð niður um
óákveðinn tíma.
-Ig
Gautur GK
Gengið frá
kaupunum
Hraðfrystihús Grundarfjarðar
gekk á föstudaginn frá kaupum á
togaranum Gauti GK frá Garði
fyrir 165 miHjónir króna. Skipið
verður þó ekki afhent fyrr en í
maí byrjun.
Matsverð Gauts er aðeins um
86 milljónir króna þannig að
kaupverðið er nær 100% yfir
matsverði. Algengt er að skip
með kvóta seljist á 30-50% yfir
matsverði.
Útgarður í Garði, sem átti
skipið, sá ekki fram á að geta
haldið því. Sótt var um lán til
Byggðasjóðs, en beiðninni var
hafnað, þannig að forráðamenn
fyrirtækisins sáu ekki annað fært
en að selja skipið. -gg
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 11. febrúar 1987