Þjóðviljinn - 12.02.1987, Page 6

Þjóðviljinn - 12.02.1987, Page 6
FLÓAMARKAÐURINN LANDSBYGGDIN Fríar auglýsingar fyrir áskrifendur Þjóðviljans á þriðjudögum og fimmtudögum í viku hverri. GERIST ASKRIFENDUR - ÞAÐ BORGAR SIG. Skrúfa og öxull á 5-10 hestafla vél til sölu. Upplýs- ingar í síma 10983 e.kl. 19. Ný sumardekk 14”x150 til sölu. Upplýsingar í síma 71022 e.kl. 18. Samvlskusöm og barngóð stúlka óskast frá kl. 4.30-8 síðdegis 4 daga í viku. Upp- lýsingar í síma 671732. íbúð óskast Ung hjón með 3 mánaða barn vant- ar litla íbúð strax. Vinsamlegast hringið í síma 10582 eða 613907. Hjálp! Herbergi strax! islensk-, sænsk- og finnsktalandi skólanemi óskar strax eftir ódýru herbergi með eldunar- og snyrtiað- stöðu. Helst með þvottaaðstöðu og síma en ekki nauðsynlegt. Ódýr einstaklingsíbúð eða tveggja her- bergja íbúð koma líka til greina. Engin fyrirframgreiðsla möguleg. Vinsamlegast hringið skilaboð í síma 622428 eftir kl. 19 og allan daginn um helgar. Reglusemi heitið. Vinna strax! Sjúkraliðanemi óskar eftir vinnu. Hefur unnið við ýmislegt, t.d. á spít- ala, i verslun, á hóteli, í banka og á pósti. Kann mörg tungumál. Óska fyrst og fremst eftir næturvinnu, helgar- og/eða kvöldvinnu. Gæti hugsað mér að vinna við gistihei- mili, á hóteli, í kvikmyndahúsi eða á vídeóleigu. Helst ekki verksmiðju- vinnu, ræstingar eða eldhúsvinnu. Vinsamlegast hringið inn skilaboð í síma 622428 eftir kl. 18 og 19 og allan daginn um helgar. Frystikista Til sölu er frystikista. Upplýsingar í síma 681967. íbúð óskast Ung hjón með 2 börn óska eftir 3-4 herb. íbúð frá 1. mars. Erum algjör- lega reglusöm. Vinsamlegast hringið í síma 18795. Svart/hvítt sjónvarp óska eftir að fá sv./hv. sjónvarp gef- ins. Á sama stað fæst gefins eins manns svefnbekkur. Upplýs. í síma 16502. Tll sölu Vantar þig ekki nýjan ísskáp eða nýja frystikistu? Einnig til sölu ný- legt sófasett, sem selst mjög ódýrt. Upplýs. í síma 688456. Til sölu ódýrt Pressubekkur (Weider) á 2000 kr. Nýir gönguskór nr. 42, stífir (svartir og gráir) á 2000 kr. og smábarna- göngugrind á kr. 1500. Upplýs. í síma 671064. Eldhúsinnrétting Notuð, en falleg eldhúsinnrétting með stálvaski, helluborði og baka- rofni til sölu. Tilboð óskast. Upplýs. í síma 42100. Par I námi óskar eftir lítilli íbúð Upplýs. í síma 74507 á kvöldin. fbúð óskast Tvær vinnandi konur - mæðgur, óska eftir 3-4 herb. íbúð á góðum stað. Ábyrgjumst frábæra um- gengni. Nánari upplýs. í síma 15128 á kvöldin. fbúð óskast, Hafnarfjörður Óska eftir að taka á leigu 2-3 herb. íbúð í Hafnarfirði í 6-8 mánuði. Vins- amlegast hringið í síma 52624 eða 50087, Hilmar. Playmobil- leikföng óskast keypt. Sími 35716 eða 19239. Til sölu 2 barnarúm í góðu ásigkomulagi. Seljast ódýrt. Upplýs. í síma 24767 á kvöldin. Reglusöm, ung kona óskar eftir góðri íbúð. Góð um- gengni. Upplýs. í síma 13276. Vefnaðarfrí á Spáni I hæðum Katalóníu, nálægt sjó og Girónaborg, hafa Rodolfo g Katar- inu gert upp gamlan búgarð og innréttað vefnaðarvinnustofu. Dvöl í viku ásamt fæði og afnotum af vefstól kostar ca. 28.000 peseta. Þeir sem hafa áhuga, hafið sam- band við Guðrúnu í síma 91 -14888. Rulla í góðu ástandi óskast Sími 15045. Helgarvinna 22 ára dönsk stúlka sem talar ís- lensku og ensku, vantar helgar- vinnu I afgreiðslu, en allt kemur til greina. Vinsamlegast hafið sam- band við Píu í síma 681693. Á sama stað vantar 2ja-3ja herb. íbúð. Til sölu hefilbekkur, lengri gerð og „Rockwell/Delta” hjólsög í borði með 4" afréttara. Selst saman. Verð: 42 þús. kr. Sími 74420. Óska eftir að kaupa ódýrt eða fá eftirtalið gefins: Má vera gamalt en í góðu lagi: Þvottavél, hillusamstæðu, sófasett, eldhúsborð, sjónvarp, ísskáp og hilluinnréttingu I barnaherbergi, helst Ijósa. Upplýs. gefnar í síma 75745 milli kl. 1 og 4 og 5 og 8. Óska eftir barnatágakörfu með dýnu og barnaskiptiborði. Sími 41639 eftir kl. 12.30. Fyrrum frár á velli Saab 95 árg. '75 óskar eftir nýjum eiganda. Þarfnast endurbóta eða* niðurrifs. Upplýs. í síma 51921 eftir kl. 17. Óska eftir húsnæði á leigu 1 herb. og eldhús eða 2ja herb. íbúð. Upplýs. í síma 26272 eftir kl. 4. Nemendur athugið Tek að mér kennslu í ensku fyrir nemendur á gagnfræða- og menntaskólastigi. Tek einnig að mér danskar þýðingar. Vinsam- legast hringið í síma 40789 á kvöld- in. Geymið auglýsinguna. Til sölu dökkbrúnn Silver Cross barna- vagn, vel með farinn. Verð 5 þús. kr. Sími 30627. Til sölu Commodore 64 og diskettudrif, fyllt af forritum, aðallega leikjum. (Stýr- ipinnar fylgja ekki með). Verð kr. 12 þús. Vinnusími 611880, Stefán og heimasími 33191 eftir kl. 18. íbúaskrár óskast, úr Reykjavík og frá öðrum stöðum. Einnig bæjarskrá Reykja- víkur og útsvarsskrár. Sími 27101, Jón. Svart/hvítt sjónvarp óskastkeypt. Upplýs. í síma 23567. |§) Dagvist barna óskar aö ráða fóstrur og starfsfólk til starfa nú þegar við: ★ Leikskólann Staðarborg við Háagerði. ★ Leikskólann Brákarborg við Brákarsund. Upplýsingar gefur Fanney Jónsdóttir umsjón- arfóstra í síma 27277. Ökum jafnan á hægri rein á akreinaskiptum vegum. yUMFERDAR RÁÐ Skyldi þessi japanska fjölskylda hafa íslenskt hrossaket á borðum? Markaðsmál Japanir fúlsa ekki við fitunni Útflutningur á hrossaketi . Fyrir allnokkru var aðalfund- ur Félags hrossabænda haldinn í Bændahöllinni í Reykjavík. Um- sjónarmaður Landsbyggðarinn- ar rak þar inn nefið og fannst honum ýmislegt frásagnarvert bera á góma. Aðstaða hefur þó ekki gefist til að geta neins af því fyrr en nú. Á fundinum var m.a. skýrt frá útflutningi á hrossaketi. Hefur hann ýmist farið fram með þeim hætti að hrossunum hefur verið slátrað hér heima eða flutt lifandi úr landi. Gerðar hafa verið tilraunir með útflutning á hrossaketi til Japan. Of dýrt reyndist að úr- beina ketið og því var hafinn út- flutningur á afturpörtum nýslátr- aðra hrossa. Frá 2. nóvember 1985 til 28. jan. 1986 var vikulega sent út kælt ket á gámum, af 25 hrossum í hvert sinn. Japanir voru hvergi smeykir við fituna. Greiddu vel fyrir ketið af stærstu og feitustu hrossunum og skilaði það 70% af grundvallarverði til bænda. Er á leið og hrossin urðu rýrari lækkaði verðið og fór þá niður í 50% grundvallarverðs. Mikii vinna var lögð í þennan til- raunaútflutning og m.a. gerður sérstakur samningur við Sláturfé- lag Suðurlands um þátttöku. Á þessu tímabili voru flutt út 23.553 kg af keti af 278 hrossum og er þá úrbeinaða ketið meðtalið. Seinnipart s.l. sumars hófust viðræður við japanska innflutn- ingsfyrirtækið „Tri Ocean“ um áframhaldandi verslun, fyrir milligöngu Jónasar Hallgríms- sonar. En flutningskostnaðurinn reyndist of hár og varð því ekki af viðskiptum. Næsta haust verður á ný hafin tilraun með þennan út- flutning og þá leitast við að lækka flutningskostnaðinn. Hafa kaup- endur fallist á að reyna að taka við ketinu úrbeinuðu, pökkuðu á sérstakan hátt og síðan frystu. Við það veitast möguleikar á ódýrari og hægari vinnslu og stór- um minni flutningskostnaði. Þessi útflutningur verður á hinn bóginn að skila fram- leiðendum a.m.k. 50% grund- vallarverðs eigi hann að geta keppt við útflutning sláturhrossa. Hann hefur aftur á móti ekki skilað nema 35% grundvallar- verðs en studdi hinsvegar að út- flutningi á reiðhrossum. Þann 15. apríl sl. voru flutt út 52 sláturhross með M/S Alca. Meðalvigtin var aðeins 325 kg pr. hross. Til þess að ná lágmarki út- flutningsverðs - 35% skilaverðs til framleiðenda - var flutnings- gjaldið aðeins reiknað kr. 4.500 á hross, sem er langt undir kostn- aðarverði. En með þessari ferð fóru 216 reiðhross og báru þau uppi flutningskostnaðinn. Þann 11. okt. voru enn flutt út með M/S Irich 215 sláturhross. Meðalvigt á hross reiknað úr skipi var 363 kg en í útskipunar- höfn 378 kg. Þrátt fyrir hærri meðalvigt en á fyrri hópnum reyndist skilaverðið ekki ná nema 35% af grundvallarverði, enda voru reiðhrossin nú færri, eða 173. Því miður fengust ekki nögu mörg sláturhross í skipið, vantaði 150, og urðu það mark- aðsnefnd mikil vonbrigði. Ef þessi 150 hross hefðu fengist hefði skilaverðið orðið 5-10% hærra og birgðir auk þess minni hér innanlands. Félag hrossabænda getur auðvitað með engu móti tekið á sig fjárhagsáhættu upp á hundruð þúsunda króna vegna skuldbind- inga um lágmarskútvegun á slát- urhrossum og verða svo að grípa til örþrifaráða til að útvega þau hross, sem á vantar, þegar skipið er að koma hér til hafnar. Því er ákaflega brýnt að félagsmenn og aðrir standi saman um þær Ieiðir, sem bjóðast til afsetningar og unnið hefur verið að með góðum árangri undanfarin ár. Augljóst má vera að án þessa útflutnings á sláturhrossum er ekki unnt að bjóða niður flutningsgjald á reiðhrossum um meira en helm- ing og þar að auki þrjár útskipun- arhafnir í þremur löndum, þrátt fyrir þetta lækkaða verð. - mhg Tímarit Frelsið getur líka orðið ánauð „Ég er ekki í nokkrum vafa, eftir að hafa tiltölulega lítið skoðað þessa hluti, að smásölu- verslunin á vegum samvinnufé- laganna er of kostnaðarsöm og við þurfum að endurskipuleggja okkar verslun. Við crum alltof margar og smáar einingar“. ...Með bættum samgöngum „verður landið meira og minna eitt markaðssvæði og þegar sam- vinnufyrirtækin reka um 250 verslanir, sem um helmingur þjóðarinnar, eða segjum um 150 þús. manns verslar í, m.ö.o. um 600 manns á hverja verslun, þá fær það ekki staðist“. Svo mælir Guðjón B. Ólafs- son, forstjóri SÍS í löngu og ítar- legu viðtali í jólablaði Hlyns, við Guðmund R. Jóhannsson, rit- stjóra. Ber margt á góma í því spjalli og er viðtalið allt hið at- hyglisverðasta. Bergþóra Bergsdóttir, hús- móðir á Akureyri, varð fyrir því að fá krabbamein í brjóst. Segir hun frá þeirri reynslu sinni og gef- ur góð ráð í því sambandi: „Kon- ur, og þá sérstaklega ungu konur, þið, sem eigið lítil börn og langa framtíð, það er mín einlæg ósk að þið farið allar annað hvert ár á leitarstöðvar og látið fylgj ast með ykkur, því það er fyrir ykkur, sem heilbrigðiskerfið kemur þessum stöðvum upp,“ segir Bergþóra Bergsdóttir. í „Nöldri að norðan“ segir Arnheiður Eyþórsdóttir m.a., þar sem hún ræðir um fjölmiðla- fárið: „Fólk nennir ekki lengur að njóta samskipta við aðra, sækja leiksýningar, tónleika og annað slíkt. Allra síst fást menn nú til þess að taka þátt í slíku eða sinna öðru félagsstarfi. Eða hvað segja samvinnustarfsmenn um áhuga á félagsstarfinu? Eigum við nú ekki að vakna af þessum doða áður en við verðum öll að gangandi draugum? Frelsið getur nefnilega líka orðið ánauð.“ Já, það skyldi nú aldrei vera? Þetta jólablað Hlyns hefst ann- ars á jólahugleiðingu eftir sr. Agnesi M. Sigurðardóttur. Síðan er horfið að jólaborðinu með frá- sögn af sambandshangikjötinu, sem framleitt er á Akureyri, Húsavík og Reykjavík. Þá er far- ið út fyrir pollinn og greint frá kaupum samvinnufólks á þremur orlofshúsum, á Spáni. Sagt er frá fundi KPA á Álandseyjum f haust og útflutningi Búvöru- deildar á hrossum. Baldur Ág- ústsson ritar grein um þjófavarn- ir. Sólmundur Jónsson skrifar um upplýsingatækni og tölvuvæð- ingu og Eysteinn Sigurðsson þátt- inn „Orð um orð“. Sagt er frá 15 ára afmæli Hamragarða og þættir eru að venju um skák og bridds og svo vísnaþátturinn, auk ým- issa frétta úr samvinnuheimin- um. - mhg 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. febrúar 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.