Þjóðviljinn - 12.02.1987, Page 15
ÍÞRÓTTIR
Kvennahandbolti
Enn Víkingssigur!
Vann FH í þriðja skipti ígærkvöldi
Einar Ólafsson keppir í þremur
greinum í Oberstdorf.
Víkingsstúlkurnar gerðu sér lítið
fyrir og sigruðu FH í þriðja skipti í
jafnmörgum leikjum í 1. deild í vetur,
17-15 í Hafnarfirði í gærkvöldi. Þar
með eru meistaravonir FH nánast úr
sögunni - Víkingur hefur séð til þess.
Víkingur fór á kostum í fyrri hálf-
leik og þá sér í lagi vinstrihandar-
skyttan Eiríka Ásgrímsdóttir. Vörn
liðsins var mjög þétt fyrir og staðan
var 10-3 í hálfleik, Víkingi í hag!.
í síðari hálfleik voru Eiríka og Inga
Lára teknar úr umferð, FH saxaði á
forskotið en kom því aðeins niður í
tvö mörk í leikslok.
Auk Eiríku stóð markvörður Vík-
ings, Sigrún Ólafsdóttir, vel fyrir
sínu. FH var langt frá sínu besta,
María Sigurðardóttir og Halla Geirs-
dóttir voru bestar í annars jöfnu liði.
Mörk FH: Rut Baldursdóttir 5(2v), María
Sigurðardóttir 3, Berglind Hreinsdóttir 3,
Sigurborg Eyjólfsdóttir 2, Kristín Péturs-
dóttir 1, Helga Sigurðardóttir 1.
Mörk Vfkings: Eiríka Ásgrímsdóttir
6(1 v), Valdís Birgisdóttir 3, Svava Bald-
Knattspyrna
Erla með
Stjörnuna
Erla Rafnsdóttir hefur verið
ráðin þjáifari nýliða Stjörnunnar
í 1. deild og tnun jafnframt leika
með liðinu næsta sumar. Eigin-
maður hennar, Magnús Teitsson,
verður liðsstjóri. Þetta er mikið
áfall fyrir Breiðablik sem áður
hefur misst Magneu Magnúsdótt-
ur og Margréti Sigurðardóttur
yfir til Stjörnunnar.
-VS
vinsdóttir 3, Inga Lára Þórisdóttir 3(2v),
Hrund Rúdólfsdóttir 1, Jóna Bjarnadóttir 1.
-MHM
England
Jafntefli
Southampton og Liverpool
skildu jöfn, 0-0, í fyrri leik und-
anúrslita enska deildabikarsins í
knattspyrnu í gærkvöldi. Seinni
leikur liðanna fer fram á Anfield í
Liverpool eftir hálfan mánuð.
-VS/Reuter
Malasía
lnzem vann
Luzern, lið Sigurðar Grétars-
sonar og Ómars Torfasonar,
vann í fyrrakvöld Groningen frá
Hollandi, 2-1, á alþjóðlega mót-
inu sem nú stendur yfir í Malasíu.
Muller og Mohr skoruðu mörkin í
fyrri hálfleik. -VS/Reuter
Frjálsar
HM/Norrœnar
i
Einar keppir
fýrstu grein
Þrjátíu km gangan í dag
Heimsmeistaramótið í norræn-
um greinum skíðaíþrótta var for-
mlega sett síðdegis í gær i Oberst-
dorf í Vestur-Þýskalandi. Það
stendur yfir í 10 daga og lýkur
laugardaginn 21. febrúar.
Einar Ólafsson frá ísafirði er
fulltrúi Islands á mótinu og hann
keppir í fyrstu grein þess í dag, 30
km göngu karla. Hún hefst kl. 10
að íslenskum tíma.
Einar hefur búið sig undir
þetta mót af kostgæfni og hefur
aðallega æft og keppt í Svíþjóð
undanfarin misseri. Þar hefur
hann náð góðum árangri í keppni
við bestu skíðagöngumenn Svía
en veikindi hafa raskað nokkuð
undirbúningi hans fyrir
heimsmeistaramótið.
Einar mun einnig keppa í 15
km göngu á sunnudaginn, 15. fe-
brúar, og loks í 50 km göngu á
lokadegi mótsins, laugardaginn
21. febrúar.
-VS
Handboltabikar
Öruggir
sigrar
KR og Breiðablik unnu örugga
sigra í bikarkeppni karla í gær-
kvöldi. KR sótti ÍBK heim til
Keflavíkur og vann 31-23 og
Breiðablik sigraði 3. deildarlið ÍS
27-19 í Digranesi.
KR-ingar leiddu 17-6 í hálfleik í
Keflavík og lítil mótspyrna
heimamanna kom á óvart. Sverr-
ir Sverrisson og Konráð Olavsson
gerðu 8 mörk hvor fyrir KR en
Björgvin Björgvinsson 10 og Ar-
inbjörn Þórhallsson 5 fyrir IBK.
-VS
Knattspyrna
Jóhannes
í Leikni
Jóhannes Bárðarson, gamli
baráttujaxlinn úr Víkingi, er
genginn til liðs við Breiðholtsliðið
Leikni. Hann ætti að styrkja
Leiknisliðið sem mætir Ármanni í
úrslitaleik um laust sæti í 3. deild
eftir mánuð. -VS
Sex fara
til Osló
Sex íslendingar verða á meðal
keppenda á meistaramóti Norð-
urlanda í frjálsum íþróttum
innanhúss sem fram fer í Osló um
næstu helgi.
Svanhildur Kristjónsdóttir
keppir í 60 og 200 metra
hlaupum, Þórdís Gísladóttir í
hástökki, Oddný Árnadóttir í 400
m hlaupi, SigurðurT. Sigurðsson
og Kristjáns Gissurarson í stang-
arstökki og Hjörtur Gíslason í 60
m grindahlaupi.
-VS
Handbolti
Stórleikur
íkvöld
Valur og Víkingur mætast í
fyrsta 1. deildarleik í 4 vikur
Svanhfldur Kristjónsdóttir
keppir í tveimur greinum í Osló.
Knattspyrna
Everton vann
í Bordeaux
Fyrstir til Frakklands eftir Heysel
Everton varð í fyrrakvöld
fyrsta enska knattspyrnuliðið til
að leika í Frakklandi í tvö ár, eða
síðan harmleikurinn á Heysel-
leikvanginum f Brussel átti sér
stað í maí 1985.
Everton lagði toppliðið Borde-
aux að velli, 2-1. Jean-Marc Ferr-
eri kom Bordeaux yfir en Adrian
Heath og Ian Snodin svöruðu í
seinni hálfleik fyrir enska topp-
liðið.
„Það má ekki endalaust úti-
loka ensku liðin og við tökum á
móti þeim með opnum örmum
um leið og þau hafa sigrast á
skrflslátum áhorfenda," sagði
Jacques Georges, hinn franski
formaður UEFA, Knattspyrnu-
sambands Evrópu, eftir leikinn.
Hann lýsti yfir ánægju með ör-
yggisráðstafanir á leiknum og að
engin ólæti hefðu átt sér stað.
Everton hljóp í skarðið fyrir
granna sína Liverpool sem áttu
að leika þennan leik en urðu að
hætta við vegna þátttöku sinnar í
deildabikarnum í vikunni.
-VS/Reuter
í kvöld hefst á ný keppni í 1.
deild karla á íslandsmótinu í
handknattleik eftir fjögurra
vikna hlé. Valur og Víkingur
eigast við í mjög þýðingarmiklum
leik í Laugardalshöllinni og hefst
hann kl. 20.
Þessum leik var frestað í janúar
vegna þátttöku Víkinga í
Evrópukeppni meistaraliða og að
honum loknum hafa öll lið
deildarinnar leikið 12 leiki af 18.
Leikurinn hefur mikið að segja
um framhaldið í deildinni, með
sigri ná Víkingar þriggja stiga for-
ystu sem erfitt gæti reynst fyrir
önnur lið að vinna upp - en ef
Valsmenn sigra eru þeir komnir í
baráttuna um meistaratitilinn
ásamt Víkingi, Breiðabliki og
FH.
Til upprifjunar er síðan hérna
staðan í 1. deild fyrir leikinn í
kvöld:
Stjarnan 12 5 2 5 306-285 12
KA 12 5 2 5 273-277 12
Fram 12 5 0 7 283-279 10
KR 12 4 1 7 237-263 9
Haukar 12 2 2 8 252-292 6
Ármann 12 0 1 11 235-304 1
Næstu leikir eru svo ekki fyrr
en 19.-21. febrúar en þá mætast í
13. umferð Víkingur-Breiðablik,
Valur-KA, Haukar-Stjarnan,
KR-FH og Fram-Ármann.
-VS
Víkingur.......11 9 1
Breiðablik.....12 8 2
FH.............12 8 1
Valur..........11 6 2
1 263-230 19
2 279-263 18
3 300-269 17
3 278-244 14
Liverpool
Dorigo eða McCall?
Liverpool, ensku meistararnir
og bikarmeistararnir fráfarandi,
eru hættir við að kaupa bakvörð-
inn Derek Statham frá WBA.
Hann stóðst ekki meiðslapróf, Li-
verpool íhugaði samt að kaupa
hann á lægra verði en hefur nú
gefið það frá sér.
Meistararnir eru að leita að
vinstri bakverði í staðinn fyrir
Jim Beglin sem fótbrotnaði í síð-
asta mánuði. Tveir þykja nú helst
koma til greina, Tony Dorigo frá
Aston Villa og Steve McCall frá
Ipswich.
-VS/Reuter
Fimmtudagur 12. februar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Skotland
Souness einbeitir
sérað Rangers
Verður ekki með í landsleikjum
Graeme Souness, fram-
kvæmdastjóri Rangers og fyrir-
liði skoska landsliðsins í knatt-
spyrnu undanfarin ár, hefur iýst
því yflr að hann leiki ekki með
Skotum gegn Irum í Evrópu-
keppni landsliða í næstu viku.
Hann ætlar líka að sleppa
leiknum þýðingarmikla við Belga
í aprfl.
Souness segir að hann þurfi
fyrst og fremst að sinna skyldum
sínum sem leikmaður og stjóri
Rangers. Lið hans eigi nú mögu-
leika á að vinna skoska meistarat-
itilinn í fyrsta skipti í níu ár og það
sé verkefni númer eitt hjá sér á
þessu keppnistímabili.
-VS/Reuter