Þjóðviljinn - 12.02.1987, Page 16

Þjóðviljinn - 12.02.1987, Page 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 Hrossahvarfið Björgunar- sveitir kailaðar til Leitin að hrossunum sjö, sem hurfu með dularfullum hætti, frá Þverá í Öxarfirði fyrir rúmum mánuði, hefur enn engan árangur borið, þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar draumamanna. Nú mun næst fyrir að björgun- arsveitirnar í Öxarfirði og Keldu- hverfi geri úr vélsleðaleiðangur og leiti með skipulegum hætti há- lendið inn af Öxarfirði og austan hans, en þar er nú snjór yfir öllu. Farið verður í þann leiðangur strax og skyggni leyfir. - mhg. Skólamálaráð Davíð snupraður Félagsmálaráðherra bregst hart við bréfi borgarstjóra vegna skólamálaráðs. ítrekar tilmœli um að farið verði að lögum. Samkomulag Davíðs við Sverri breytir engu Alexander Stefánsson félags- málaráðherra brást í gær harka- lega við bréfi Davíðs Oddssonar vegna skólamálaráðs, þar sem Davíð segist telja áminningu ráð- herra um að borgin fari að lögum óþarfa. Alexander ítrekaði í bréfi til borgarstjórnar í gær tilmæli um að borgin söðli um og segir málið þar með útrætt. f bréfi sínu ítrekar ráðherrann að borginni var fullkomlega óheimilt samkvæmt lögum að sölsa verkefni fræðsluráðs undir skólamálaráð, eins og margoft hefur gerst á síðustu mánuðum. „Borgarstjórn brestur vald til þess að lögum að færa lögbundin verkefni fræðsluráðs til hins nýja ráðs. Samkomulag Reykjavíkur- borgar við menntamálaráðuneyt- ið breytir engu í því efni enda verða framkvæmdarvaldshafar, hvort sem um er að ræða ráðu- neyti eða sveitarstjórnir, að hlíta fortakslausum ákvæðum í settum lögum,“ segir Alexander. Þarna vísar Alexander til samkomulags sem flokksbræð- urnir Davíð Oddsson og Sverrir Hermannsson gerðu með sér um að Sverrir léti stofnun skólamála- ráðs og framkvæmd skólamála í borginni afskiptalausa. Hann segir einnig að verulegur misbrestur hafi verið á því að ákvæðum grunnskólalaga hafi verið framfylgt og ábending ráðuneytisins um að borgarstjórn fari að lögum hafi því hvorki ver- ið „óþörf“ né „án tilefnis". Að endingu segir félags- málaráðherra að ekki ætti að þurfa að deila um þetta efni frek- ar og að ráðuneytið vænti þess „að borgarstjórn hlíti þessari niðurstöðu og sjái svo um að framvegis verði farið að lögum í þessu efni.“ -gg BJ-sjóðurinn Fömm í borgardóm Á myndinni sóst Aggi (Þórarinn Óskar Þórarinsson) annar aðalleikarinn í Skyttunum. Skytturnar Að klippa er eins og að kála Skytturnarfrumsýndarálaugardag. FriðrikÞórFriðrikssonhlýturþrautseigjuverðlaun kvikmyndagerðarmanna. Þrautseigjuverðlaun Félag ís- lenskra kvikmyndagerðar- manna voru veitt í fyrsta skipti á síðasta aðalfundi félagsins nýver- ið og féllu verðlaunin í hendur Friðríks Þórs Friðrikssonar kvik- myndagerðarmanns. Friðrik Þór er nú staddur í Kaupmannahöfn, en Þjóðviljinn hafði sambandi við hann þangað og spurðist fyrir um verðiaunin og kvikmynd hans Skytturnar sem verður frumsýnd á laugardaginn nk. Friðrik Þór var fyrst spurður að því hvort hann teldi að hann ætti skilið að fá þrautseigjuverð- launin. „Ja..jú..., kannski. Ann- ars, þegar ég heyrði að félagið væri farið af stað með verðlauna- afhendingar þá spurði ég sjálfan mig hvenær kæmi að því að silfur- skeiðin yrði afhent". Friðrik sagði að hugmyndin að Skyttun- um væri búin að blunda í hugar- skotum sínum frá unglingsárun- um og þá strax hefði hann verið búinn að fá augastað á Eggerti öðrum aðalleikara mynflarinnar. Klippingunni lauk rétt fyrir helgi. Aðspurður um hvernig til- finning það væri að búta sköpu- narverkið niður sagði Friðrik: „Tilfinningin einkennist af söknuði. Maður er alltaf að drepa. Sífellt að taka ákvarðanir um bút og bút og þessar ákvarð- anir snerta mann mjög tilfinn- ingalega“. Hvort kvíði vegna frumsýning- arinnar væri farinn að gera vart miljónir við sig í tilfinningalífinu sagði o.s.frv.“. Friðrik svo vera. „Það eru jú í húfi, veðsett hús -K.Ól. Úrskurður fógeta í BJ-málinu segir ekki til um hverskal halda peningunum. Þorsteinn Hákonarson: Málinu ekki lokið Þessu máli lýkur ekki með þessu. Það eru allar líkur á að við förum með málið fyrir borgar- dóm, sagði Þorsteimi Hákonar- son formaður ^mndsnefndar Bandalags jafnaðarmanna í sam- tali við Þjóðviljann í gær, eftir að hafa fengið í hendur úrskurð borgarfógeta í innsetningarmáli BJ gegn Guðmundi Einarssyni og Stefáni Benediktssyni. Fógeti hafnaði kröfu BJ um afhendingu fjár og bókhalds BJ. Úrskurður fógeta var á þá leið að krafa BJ nái ekki fram að ganga og málskostnaður falli nið- ur. Hann úrskurðaði hins vegar ekki um hvort BJ ætti rétt á að fá þessi gögn eða hvort Guðmundur og Stefán ættu að halda þeim. í greinargerð kemur fram að þarna sé hugsanlega um skuldaskil að ræða og því getur fógeti ekki úr- skurðað í málinu. Guðmundur Einarsson og Stefán Benediktsson munu því enn um sinn hafa yfirráð yfir pen- ingum sem eru á tékkareikningi í Iðnaðarbankanum á nafni BJ, en að öllum líkindum fer málið fyrir borgardóm innan skamms. -gg VR lágmaikslaunin em þurftarlaun Magnús L. Sveinssonformaður VR telur lágmarkslauninþurftarlaun. Það að hækka lágmarkslaunin uppí 26.500 krónur á að leiða til þess, og við væntum þess, að þeir sem eru með starfsreynslu muni fá hækkun út úr lágmarkshækk- uninni, sagði Magnús L. Sveins- son formaður Verslunar- mannafélags Reykjavíkur í sam- tali við Þjóðviljann í gær, en i leiðara nýjasta VR blaðsins for- dæmir hann harðlega að kona mcð 30 ára starfslaun skuli vera með 26.500 í mánaðarlaun og kallar hann þá upphæð þurftar- laun. Magnús, sem var einn þeirra sem skrifuðu undir samninga sem hljóðuðu upp á þessi „þurftar- laun“ sagði að þótt samið hefði verið um lágmarkslaun þá hefði mátt vænta þess að atvinnurek- endur hækkuðu samtímis launin hjá þeim sem hefðu starfs- reynslu. „Það kemur verulega á óvart að svo er ekki, en ég hygg að það sé nú ekki mikið um þetta,“ sagði Magnús. Þá sagði Magnús að nú væri verið að vinna að sérkjarasamningum fyrir verslunarfólk en með þeim verði vonandi hægt að leiðrétta laun sem flestra. -K.Ól.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.