Þjóðviljinn - 19.02.1987, Page 17
„Vinnuþrældómurinn
eraðalmeinsemd
samfélagsins," segir
Guðrún Helgadóttir.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
manna að stofnun í andstöðu við
verkafólk því LÍN er undirstaða
þess að ungt fólk geti menntað
sig. Fyrir nú utan það að lána-
sjóðurinn er einhver besta kjara-
bót sem alþýðan hefur fengið."
RÍKISSTJÓRNIN
Hvernig metur þú störf og ár-
angur ríkisstjórnarinnar?
„Ég met árangur ríkisstjórnar-
innar afar lítils. Pessi ríkisstjórn
státar af því að hafa lækkað verð-
bólguna sem í sjálfu sér er ágætt
en þetta hefur verið gert á ger-
samlega hugmyndasnauðan hátt
enda afleiðingarnar eftir því.
Þessi ríkisstjórn hefur enga hug-
mynd um það hvernig þjóðfélagi
hún er að stjórna. Þetta kemur
berlega í ljós í okurmálinu þar
sem Hæstiréttur er í raun að
dæma ríkisstjórnina fyrir asna-
skap.
Ég bar fram fyrirspurn í fyrra,
til bankamálaráðherra, um hvort
til væru hæstu lögleyfðu vextir í
landinu. Ráðherra svaraði mér
og veifaði bréfi frá Seðlabankan-
um þar sem bankinn segir að víst
séu til „hæstu lögleyfðu vextir“.
Viðskiptabankarnir mótmæltu
þessu strax og sögðu Seðlabank-
ann alls ekki hafa auglýst vexti
svo skýrt að ekki orkaði tvímælis.
Nú er komið í ljós að Seðla-
bankinn hafði ekki sinnt þessari
skyldu sinni og jafnframt að ríkis-
stjórnin hafði hreinlega ekki vit á
því sem hún var að gera.
Og það er auðvitað dæmigert
fyrir þessa ríkisstjórn að keyra
niður laun og ná þannig niður
verðbólgu án tillits til tekjuskipt-
ingar og réttlætis í þjóðfélaginu -
þegar kjör fólks hafa hrað-
versnað, hvers hagur er það þá að
ná niður verðbólgunni? Samt
aflast sem aldrei.
Skólamál eru í ólestri, dagvist-
un er í molum, það er undantekn-
ing ef fyrirtæki standa undir sér,
innflutningur er glórulaus. Hver
er þá ávinningurinn af minnkandi
verðbólgu?
STEFNA OKKAR
Við viljum stefna að þjóðfélagi
þar sem fólk þrífst. Þar sem
sjálfstæð þjóð með sjálfstæða
menningu þrífst og við getum
komið þokkalega fram í sambúð
þjóðanna. Við vinnum gegn
eyðingu mannslífa og umhverfis.
- Og það þarf varla að taka fram
að stefna okkar er að fólk upp-
skeri þannig fyrir vinnu sína að
það geti lifað mannsæmandi lífi.
Við erum á móti arðráni og
okri. íslendingar eru forrík þjóð
og það er ekki víst að allir geri sér
grein fyrir því en fjármagnið fer
einhverjar krókaleiðir í þjóðfé-
laginu, ekki til fólksins.
Við verðum líka að gera okkur
grein fyrir því að það er mjög
hættulegt ef fólk ekki vinnur fyrir
sér af dagvinnunni. Þá fær það á
tilfinninguna að störf þess séu
ekki metin og fólk missir sjálfs-
virðingu sína og siðferðisvitundin
slævist.
Fólk verður að kjósa um hvers
konar líf það vill lifa, valdið er á
ábyrgð þess sjálfs.
LIKAMSRÆKTARSTOÐIN H/F
Borgartúni 29, Reykjavík. S: 28449
Einstakt
tækifæri
Hin heimsþekkta líkamsrœktarkona LisserFrost-Larzen verður
gestaleiðbeinandi hjá Líkamsrœktarstöðinni hlfnœstu vikurnar,
þ.e.a.s. dagana 14.febrúarnk. till. mars. Lisserþykirsérlega
hœfur leiðbeinandi þegar um erað rœða megrun, styrkingu og
vöðvaformun með tœkjum ítœkjasál. Einnig veitirhún upplýs-
ingar um rétt matarœði og notkun nœringarefna, ásamt að út-
búa prógrömmfyrir þá er þess óska. Konur og karlar, grípið
tœkifœrið og hugið að vaxtarlagi og útliti í tœka tíðfyrir sumar-
leyfin. Lisser verðurhjá okkuríBorgartúni29 daglegafrá kl. 13
til20.
Líkamsrœktarstöðin
Borgartúni 29 sími: 28449
ATH: Munið svœðameðferðina
og Bippalsenuddtœkið.