Þjóðviljinn - 24.03.1987, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 24. mars 1987 69. tölublað 52. órgangur
Albertsmálið
Sérframboð í undirbúningi
Albertsettir afarkostir: Segðu sjálfur afþér eða við spörkumþér! Frambjóðendur íReykjavík vilja Albert aflistanum.
Þingflokksfundur ídag. Allirþingmennirnir munu styðja ákvörðun Þorsteins. Fulltrúaráðsfundur í bígerð
Stuðningsmenn Alberts Guð-
mundssonar í Reykjanesi og
Reykjavík búa sig nú undir sér-
framboð á vegum Albertsmanna
í þessum kjördæmum. Ekkert
skipulagt starf er þó hafið, ein-
ungis verið að raða saman
nöfnum sem gætu myndað fram-
boðslista í skyndingu. í Reykjan-
esi er nafn Hreggviðs Jónssonar
orðað við efsta sætið. Ljóst þykir
að Þorsteinn Pálsson og hans
menn hafa ákveðið að láta til
skarar skríða í dag eða á morgun
gegn Albert. Líkur eru á því að
hann tapi bæði af ráðherradómi
og efsta sæti listans í Reykjavík.
Þorsteinn Pálsson hefur tryggt
að Steingrímur Hermannsson
mun biðjast lausnar fyrir Albert
Guðmundsson úr ráðuneyti sínu
jafnskjótt og Þorseinn æskir þess.
Þjóðviljinn hefur jafnframt
traustar heimildir fyrir því að
þingmenn Sjálfstæðisflokksins,
hver og einn einasti, muni styðja
ákvörðun Þorsteins.
Þingflokkur sjálfstæðismanna
kemur saman í dag eftir að Albert
Guðmundsson hefur gefið Þor-
steini Pálssyni lokasvar sitt varð-
andi „hugmynd“ formannsins frá
því á sunnudag. En samkvæmt
heimildum, bæði úr röðum fylgis-
manna Þorsteins og eins röðum
Alberts, virðist tilboð Þorsteins
ekki hafa verið um neitt annað en
afsögn úr ríkisstjóm. Albert
munu hafa verið settir tveir kost-
ir: að segja af sér sjálfur eða vera
sparkað.
Albert var þeirrar trúar að
loknum fundinum með Þorsteini
á sunnudaginn, að hann gæti
horfið með virðingu úr ríkis-
stjórninni með því að lýsa yfir að
brottför hans væri tímabundin,
meðan rannsókn á máli hans
stæði yfir, og til að forða flokkn-
um frá árásum hans vegna. Hann
myndi hins vegar halda efsta sæt-
inu.
Að loknum öðrum óform-
legum fundi samframbjóðeþda
Alberts kom hins vegar í ljós að
meðal þeirra er yfirgnæfandi
meirihluti fyrir því að losa sig við
Albert. Því er mjög líklegt að á
fundi stjómar fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík í
kvöld muni samþykkt að boða til
fundar með fulltrúaráðinu. Þar
mun koma fram tillaga um að Al-
bert verði fjarlægður úr efsta sæt-
inu.
Tímans vegna geta Alberts-
menn ekki beðið þessara úrslita,
ætli þeir að eiga von um sérfram-
boð. Þessvegna er nú undirbún-
ingur að sérframboðum hafinn af
krafti og megináherslan verður
lögð á Reykjavík og Reykjanes,
en reynt að bjóða fram víðar.
í Norðurlandskjördæmi eystra
hafa Albertsmenn viðrað þá hug-
mynd, að þeir styðji lista Stefáns
Valgeirssonar. Seint í gærkveldi
var hópur liðsforingja hulduhers-
ins að setja í gang hið gamla kosn-
ingakerfi Alberts úr forsetakosn-
ingunum.
Sækja um
listabókstaf í dag
Síðdegis í gær munu Alberts-
menn í Reykjavíkur- og Reykja-
neskjördæmum hafa afráðið að
sækja um sérstakan listabókstaf í
dag. Ekki var ákveðið hvaða
bókstafur yrði fyrir valinu, en þó
voru menn á eitt sáttir að sækja
ekki um DD lista. ÖS/lg
Sjá bls. 8 og 13
Kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd
Matthías
að lýjast
Embœttismannanefndin
sennilega skipuð,
hægrimenn reyna að
þœfa málin innan
hennar. Moggi:
,jkjalasafn“
Matthías Á. Mathiesen mun
samkvæmt hcimildum Þjóðvilj-
ans ætla að láta undan þrýstingi
innanlands og.frá starfsbræðrum
sínum á Norðurlöndum, og eru
góðar líkur á að á fundi norrænu
utanríkisráðherranna í Reykja-
vík á morgun og hinn verði
skipuð embættismannanefnd um
kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum.
Utanríkisráðherra leggur af-
stöðu sína fyrir ríkisstjómarfund
fyrir hádegi í dag, og kynnir hana
síðan á fundi utanríkismálanefn-
dar þingsins sem hefst um eitt-
leytið.
Sennilegt er að Matthías reyni
á ráðherrafundinum að hafa
erindisbréf embættismannanna
sem allra víðast, til að rúma þar
þá túlkun sína á vilja Alþingis að
hugsanlegt svæði eigi að ná frá
Grænlandi til Úralfjalla.
Ennfremur má vænta þess að
íslenski fulltrúinn í nefndinni
reyni að þæfa málin sem hann má
í samræmi við þá stefnu í Morg-
unblaðsleiðara á sunnudag að
nefndin eigi að vera „einskonar
skjalasafn“.
Á Norðurlöndum hafa ráða-
menn og almenningur fyllst æ
meiri óþreyju vegna tregðu ís-
lensku stjómarinnar í þessu máli,
og gefa ráðherrar og aðrir áhrifa-
menn í skyn að ef Matthías og
félagar láta sér ekki segjast á
fundinum í vikunni verði haldið
áfram án þess að skeyta um ís-
lenska aðild. -m
Sjá síðu 2, 16
og leiðara
Hópurinn „Við krefjumst framtíðar" sem sprottið hefur upp vegna ráðherraf-
undarins, sem hefst á morgun, heldur stórtónleika á Lækjartorgi á morgun.
Hluti þeirra sem að tónleikunum standa, frá vinstri: Bjarni Tryggvason, Tolli,
Margrót S. Björnsdóttir, Thor Vilhjálmsson, Ragnhildur Gísladóttir, Bubbi Mort-
hens, Guðbjörg Halldórsdóttir, Viðar Eggertsson, Anna Hildur Hildibrandsdótt-
ir og Halldór Þorgeirsson. Tónelikarnir eru aðeins einn liður í baráttu hópsins,
sem heldur hér á loft kröfunni: „Aldrei kjarnorkuvopn á Islandi".
Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd:
Stórfundur og tónleikar á Lækjartorgi
Fundur utanríkisráðherra Norðurlandanna hefst á morgun. Síðasta tœkifœri íslendinga
Samtök friðarhreyfinga hafa
boðið til útifundar á Lækjart-
orgi á morgun þar sem þess verð-
ur krafist að íslenska ríkisstjórn-
in láti af andstöðu sinni við hug-
myndina um kjarnorkuvopna-
laus Norðurlönd, en á morgun
hefst í Reykjavík fundur utan-
ríkisráðherra Norðurlandanna
þar sem úrslit ráðast um hvort
Island skerst úr leik eitt landa.
Hópur listamanna sem sprottið
hefur upp vegna fundarins og
kallar sig „Við krefjumst framtíð-
ar“ stendur fyrir tónleikum á
Lækartorgi kl. 16.30, þar sem
Bubbi Morthens og Ragnhildur
Gísladóttir verða í fararbroddi
fjölmargra landskunnra tón-
listarmanna. Um klukkan 17.00
verður gengið frá Lækjartorgi að
Borgartúni 6, þar sem fundur
utanríkisráðherranna fer fram og
afhent ályktun þar sem þess er
krafist að ísland taki þátt í skipan
embættismannanefndar, sem
frestað hefur verið hvað eftir
annað, þar sem íslensk stjórnvöld
hafa ekki viljað kveða upp úr um
þátttöku.
Þeir sem sækja ráðherrafund-
inn fyrir hönd Norðurlandanna
eru: Paavo Váyrynen, Finnlandi,
Sten Andersson, Svíþjóð, Uffe
Elleman-Jensen, Danmörku og
Thorvald Stoltenberg, Noregi,
og er það fyrsta opinbera heim-
. sókn hans síðan hann tók við
embætti við fráfall Knud Fryden-
lunds. -hj.
Kennarar
Sama ólystuga naglasúpan
Slitnaði upp úr viðrœðum við kennara í gœr
Tilboðin frá samninganefnd
ríkisins hafa verið sama ólyst-
uga naglasúpan frá upphafí og við
gerðum okkur ljóst að það var
tUgangslaust að ræða frekar sam-
an á meðan tilboðin eru alltaf
mismunandi tUbrigði við sama
stefið,“ sagði Sigurður Svavars-
son hjá HÍK, eftir að slitnaði upp
úr samningaviðræðum mUli
ríkisvaldsins og kennara í HIK.
„Þetta hefur verið sama tilboð-
ið, aftur og aftur, það eina sem
breytist eru dagsetningarnar,"
sagði Kristján Thorlacius, for-
maður HÍK. „Þeir bjóðast til að
hækka byrjunarlaun upp í 38.835
kr. en vilja láta kennara með
hærri starfsaldur borga brúsann
og skera niður aðra launaliði
þannig að síðasta útgáfan af til-
boðinu þýddi allt frá 1.83% lækk-
un upp í 18-20% eftir því hvar
menn eru í stiganum.“
Nemendur í framhaldsskólum
hyggjast leggja áherslu á stuðn-
ing sinn við kennara með því að
leggjast á bflflautur í tvær mínút-
ur samfleytt kl. 13.00 í dag.
-vd.