Þjóðviljinn - 24.03.1987, Blaðsíða 15
AFMÆU
85 ára
Guðmundur Bjömsson
Akranesi
i
Heiðursmaðurinn Guðmund-
ur Bjömsson er 85 ára í dag. Vin-
ir hans og félagar samfagna hon-
um á þessum degi. Þeim mun
ríkari ástæða er til þess, þar sem
hann hefur með óbilandi þreki,
atgervi og trú á gildi hins góða
mannlífs staðið af sér á síðustu
árum alvarleg áföll sem heilsa
hans hefur orðið fyrir. Og hann
situr nú keikur í öndvegi fjöl-
skyldu og frænda sem heilsa hon-
um í tilefni dagsins.
Ég veit ég mæli fyrir munn
flestra að það er bæði gaman og
gott að hafa átt Guðmund að
samferðamanni. Það er ekki
síður ánægjulegt fyrir okkur sem
Guðmundur telur eflaust í hópi
yngri manna. Hann er óvenju
glaðlyndur maður, sívinnandi og
vakinn yfir velferð lands og lýðs.
Guðmundur er mannvinur góð-
ur, félagslyndur með ágætum og
hrókur alls fagnaðar á mannfund-
um. Hann er líka einn þeirra ís-
lendinga sem vegna glæsileika og
höfðingslundar vekja aðdáun
hvar sem þá ber að garði.
II
Aldamótamennirnir létu ekki
að sér hæða. Bjartsýni, trú-
mennska, áræði, festa og fjör hef-
ur einkennt lífsstarf þessa fólks.
Guðmundur var strax frá upp-
vaxtarárum í liðsveit og síðar í
fylkingarbrjósti þessara baráttu-
manna sem helguðu krafta sína
og líf þeirri hugsjón að bæta lífs-
kjör fólksins í landinu og fegra
þjóðlífíð. Að fylgja samvinnu-
stefnunni var því sjálfsagður
hlutur og hann skipaði sér í raðir
framsóknarmanna sem völdu
hann til mikilvægra trúnaðar-
starfa. Og enn stendur hann
dyggan vörð um flokkinn og Tí-
mann.
En Guðmundur er líka einn
þeirra vökulu manna sem hugsa
um velferð og örlög fólks um víða
veröld. Ógnir tveggja heimsstyrj-
alda fengu mikið á hann og við
höfum oft rætt um vá hins vit-
firrta vígbúnaðarkapphlaups nú-
tímans. Það er heldur ekki í anda
hans að horfa upp á erlent heims-
veldi hreiðra æ betur um sig hér á
landi og sjá menn gera hermang
að hugsjón.
Þótt við Guðmundur stöndum
nú í sinn hvorum stjórnmála-
flokki fara pólitísk viðhorf okkar
saman að flestu leyti og okkur
rennur til rifja sú ógæfa félags-
hyggjufólksins að geta ekki stað-
ið þétt saman í fylking gegn
íhaldsöflunum.
III
Guðmundur Bjömsson er
Húnvetningur, fæddur í Núps-
dalstungu í Miðfirði þann 24.
mars 1902. Foreldrar hans voru
Björn Jónsson bóndi þar og Ás-
gerður Bjarnadóttir. Guðmund-
ur ólst upp í Núpsdalstungu í stór-
um systkinahópi. Þar var mikið
menningarheimili og búið
rausnarbúi á þeirra tíma mæli-
kvarða.
Guðmundi er heimabyggðin
ákaflega hugstæð. Honum var
það til að mynda mikið kappsmál
að Núpsdalstungan héldist í
byggð þegar ljóst var að ætt-
mennin myndu ekki lengur hafa
þar búfestu. Það lætur áreiðan-
lega engan ósnortinn að koma
þangað heim eða ganga upp öll
Austurárgljúfrin inn að Kamps-
fossi eins og ég gerði eitt sinn í
fylgd með syni Guðmundar.
Guðmundur var þá að heilsa upp
á kunningja og vini vítt og breitt
um Miðfjörðinn, þar sem hann er
aufúsugestur á hverjum bæ.
Hugur Guðmundar hneigðist
fljótt til mennta. Hann stundaði
nám í alþýðuskólanum á
Hvammstanga 1918-1919 og
gagnfræðapróf tók hann frá
Flensborgarskóla árið 1921. Að
því búnu varð hann um skeið
farkennari í heimabyggð sinni,
sinnti um leið búinu að hluta og
varð frumkvöðull að menningar-
og framfaramálum sveitarinnar.
En þótt Guðmundur væri elskur
að átthögunum hvarf hann á
braut til frekara náms og nú í
Kennaraskólann og lauk kenn-
araprófi árið 1934. Úr því lá leið
hans á nýjar slóðir.
IV
Strax sama ár og Guðmundur
lauk kennaraprófi fluttist hann til
Akraness og gerðist þar kennari.
Akranes varð heimili hans og
starfsvettvangur æ síðan. En ein-
mitt umþettaleyti, eðaárið 1934,
varð Guðmundur þeirrar gæfu
aðnjótandi að ganga að eiga
óvenjulega mannkostakonu, Pá-
línu Þorsteinsdóttur frá Stöðvar-
firði. Hefur sambúð þeirra fært
þeim báðum mikla hamingju,
enda átt því láni að fagna að
eignast fimm óvenjulega vel gerð
börn: Gerði Bimu, Ormar Þór,
Björn Þorstein, Ásgeir og Atla
Frey. Þau hjónin bjuggu sér fag-
urt heimili, þótt efnin væm ekki
mikil í fyrstu og reistu að ég hygg
á ámnum í kringum 1950 af mikl-
um myndarskap húsið að Jað-
arsbraut 9. Það hygg ég hafa ver-
ið fyrir daga sementsverksmiðj-
unnar eitt fegursta byggingar-
svæði í bæ á íslandi. Ber húsið að
Jaðarsbraut vott um mikla snyrti-
mennsku og smekkvísi.
Guðmundi þótti án efa mjög
vænt um kennslustarfið og stund-
aði það af kostgæfni allt til ársins
1972. Hann lét ekki við það sitja
að sinna fullri kennslu í barna-
skólanum, heldur sá hann um
árabil um íslenskukennslu í Iðns-
kólanum sem fram fór á kvöldin.
Ómældar frístundir sínar helgaði
hann svo félagsmálastarfi, bæði
virkri þátttöku í bæjarmálastarfi
og málefnum kaupfélagsins.
Hann var um árabil umboðsmað-
ur Tímans og um langt skeið um-
boðsmaður Almennra trygginga
á Akranesi sem var annasamt
starf.
V
Það eru ófáir æskumenn sem
hafa fengið að njóta hinna miklu
kennsluhæfileika Guðmundar.
Fjölmargir nemendur hans hafa
lýst gildi og gagnsemi þeirrar
uppfræðslu er þeir nutu hjá
Guðmundi. Þeir báru mikla virð-
ingu fyrir honum og tóku hann
sér til fyrirmyndar. Mættu menn
gjarnan gefa því meiri gaum nú á
síðustu tímum hvers virði mikil-
hæf kennarastétt er fyrir framtíð
þessarar þjóðar og meta stéttina
að verðleikum.
Til vitnis um þá virðingu sem
Guðmundur naut meðal starfs-
bræðra sinna er að hann var ko-
sinn heiðursfélagi Kennarafélags
Vesturlands þegar hann lét af
störfum. Guðmundi hefur hlotn-
ast margvíslegur annar heiður og
ber þar hæst að forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, sæmdi
Guðmund riddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu fyrir störf að
fræðslu- og félagsmálum.
VI
Við Hrafnhildur færum Guð-
mundi sérstakar hamingjuóskir á
afmælisdaginn. Um leið flytjum
við honum, frú Pálínu og fjöl-
skyldunni allri bestu þakkir fyrir
tryggð og vináttu í tvo áratugi.
Við höfum verið hálfgerðir
heimagangar á Jaðarsbrautinni
þennan tíma og ætíð verið tekið
af sömu rausn og hlýju, nú síðast í
vetur þegar við áttum þess kost
að vera ásamt fjölskyldunni við-
stödd þegar afhjúpuð voru lista-
verk af þeim hjónum, máluð af
Benedikt Gunnarssyni. Það sem
ég tók sérstaklega eftir þá sem
endranær var hve barngóður
Guðmundur er. Blíða hans og
umhyggja fyrir bamabörnum og
bamabarnabörnum er einstök og
til eftirbreytni eins og svo margt
annað í fari Guðmundar. Mín
börn hafa notið þess engu síður
en ef um afkomendur hans væri
að ræða. Það sýnir betur en flest
annað mannkosti þess öðlings og
stórhuga sem við hyllum í dag.
Baldur Óskarsson
GETUR DUANHENNAR
Hún er alltaf laus
og býðurþér
★ Háa vexti frá fyrsta innborgunardegi
★ Vexti sem færöir eru á höfuöstól
tvisvar á ári
* Hávaxtaauka reynist verðtryggð
kjör betri
• s
■
SHi
HAVAXTA
BÓK
f
11111
MVINNUBANKI
, ’ ' * 4 - * ' , } *
.