Þjóðviljinn - 24.03.1987, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 24.03.1987, Qupperneq 3
FRETTIR Sjúkraliðar Félag ísl. fræða Samþykkti samninginn „Ég er ekki ánægður með þennan samning en við ákváðum að leggja þetta fyrir félagið og það kom í lj ós að fólk gat sætt sig við þetta,“ sagði Gísli Ragnars- son, formaður samninganefndar Félags íslenskra fræða, eftir at- kvæðagreiðslu í gær um nýjan kjarasamning, sem var sam- þykktur með 16 atkvæðum gegn 9. Samningurinn er óuppsegjan- Iegur í tvö ár og felur í sér upp- stokkun á starfsheitum og röðun í flokka sem þýðir um 17-18% hækkun. -vd. Hafnarfjörður Hús brann Slökkvilið Hafnarfjarðar var kvatt út síðdegis á sunnudag að Sævangi 35, sem er bárujárns- klætt timburhús en þar var eldur laus. Reykkafarar könnuðu strax hvort einhver væri í húsinu en það reyndist vera mannlaust. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og notaði slökkviliðið til þess þrjá bfla. grh. Verkfall náttúrufrœðinga Hættuástand yfirvofandi Starfsemi Blóðbankans lamast ef til verkfalls kemur. Upp- sagnir á ríkisspítölunum taka gildi l.apríl. Ólafur Jensson yfirlœknir: Erum mjög kvíðin Ef til verkfalls kemur og upp- sagna í framhaldi af því skapast hættuástand hér, þrátt fyrir neyðarvaktir, sagði Ólafur Jensson, yfirlæknir Blóðbank- ans, I samtali við Þjóðviljann um yfirvofandi verkfall náttúrufræð- inga 31. mars næstkomandi. Verkfali mun aðeins standa í einn dag því að 1. aprfl koma fjöl- dauppsagnir til framkvæmda, ef ekki semst. „Hér eru 16 náttúrufræðingar og þeir eru burðarásinn í öllu starfí á rannsóknarsviðinu,“ sagði Ólafur. „Það verður ef til vill hægt að halda uppi helgar- þjónustu hér og neyðarvöktum með undanþágum en það er alls ekki nægilegt ef eitthvað óvænt kemur upp á. Það verður að fresta öllum skurðaðgerðum sem hafa verið fyrirhugaðar og aðeins hægt að framkvæma neyðaraðgerðir sem þola enga bið vegna slysa, ó- væntra innri blæðinga og svo framvegis. Neyðarvaktir verða þó öldung- is ófullnægjandi til að sinna allri þeirri þjónustu sem við starfrækj- um við landsbyggðina en blóð- söfnun heldur áfram að einhverju leyti, þannig að við eigum ein- hverjar birgðir. Við sjáum einnig um rhesus-vamir fyrir allt landið, sem er hluti af mæðraverndinni, og það verður erfíðleikum bund- ið að sinna því vegna vinnuálags á meinafræðinga. Við erum þess vegna mjög kvíðin vegna þess ástands sem getur skapast verði ekki samið,“ sagði Ólafur. -vd. Yfir 500 ganga ut Efekki semstfyrir 31. mars munuyfir500 sjúkraliðar hjá ríki og borg ganga út. Vilja 35.000 krónur í lágmarkslaun. Neyðarástand á sjúkrahúsum ef uppsagnir Ef ekki nást samningar við sjúkraliða í Starfsmannafé- Iagi Reykjavtkurborgar og Starfsmannafélagi ríkisins fyrir 31.mars mun starfsemi ailra sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæð- inu því sem næst lamast, þegar 537 sjúkraliðar ganga út til að leggja áherslu á kröfur sínar. Sjúkraiiðar sögðu upp störfum sínum fyrir hálfu ári en upp- sagnarfrestur þeirra var fra- mlengdur um áramót til l.aprfl. „Við gemm kröfu um 35.000 króna lágmarkslaun en þau em koma tilframkvœmda núna 27.000,“ sagði Hulda Ólafs- dóttir formaður Sjúkraliðafélags íslands í samtali við Þjóðviljann. „Við höfum fært þau rök fyrir þessarri kröfu að við höfum að baki þriggja ára sérnám einsog fjöldi iðnaðarmanna. Auk þess höfum við farið fram á starfsmat og hækkað vaktaálag. Það var vissulega komið til móts við okkur í samningi þeim sem Reykjavíkurborg bauð fé- lagsmönnum í Starfsmannafélagi borgarinnar, en ekki nóg. Það munu skapast mjög mikil vand- ræði ef uppsagnirnar koma til fra- mkvæmda, sem við viljum heils hugar koma í veg fyrir en við leg- gjum áherslu á að það er ekki lengur á okkar valdi. Boltinn er núna hjá viðsemjendum okkar.“ Engar viðræður hafa verið boðaðar af sáttasemjara við sjúkraliða í SFR og viðræður við borgarstarfsmenn eru ekki hafn- ar eftir að þeir felldu samninginn um helgina. Davíð Oddsson borgarstjóri hefur sagt að engar viðræður verði við þá fyrr en sam- ið hefur verið við ríkisstarfs- menn. -vd. Starfsemi Blóðbankans lamast þegar náttúrufræðingar fara í verkfall 31. mars vegna deilna við stjórn ríkisspítalanna og ganga síðan út 1. apríl til að leggja áherslu á kröfur sínar í samningum við ríkið. Mynd Sig. List og menning Gagnleg skilaboð Guðrún Helgadóttir: Fjölsótt málþing Alþýðubandalagsins flutti gagnleg skilaboð tilþeirra semfara meðforsjá menningarmála listir og menningu, sem haldið var á Hótel Sögu á sunnudag. Um 200 manns sóttu málþingið og um 15 stutt framsöguerindi voru flutt, þar sem fulltrúar flestra greina lista og menningar viðruðu skoðanir sínar á því, hvemig búa skyldi að list og menningu í okkar þjóðfélagi. - „Það kom mjög skýrt fram þama, að menn kæra sig ekki um að stjómvöld stýri lista- og menn- ingarlífi í landinu, heldur eigi þau að gera listamönnum kleift að stunda sína vinnu,“ sagði Guðrún Helgadóttir. „Þannig komu fram hugmyndir um stofnun sjóða og starfslauna fyrir listamenn, og að ríkið geri sérstakt átak til kynn- ingar og útbreiðslu myndlistar, i bókmennta, tónlistar og kvik- mynda, bæði á innlendum og er- lendum vettvangi. Þá var einnig athyglisvert hversu margir frum- mælenda töldu menntun í list- greinum vera ábótavant hér á Þetta málþing var fjölsótt og er- indin sem flutt voru hvert öðru betra, og umræðurnar á eftir afar frófllegar, sagði Guflr- ún Helgadóttir alþingismaður, þegar við inntum hana eftir því hvernig henni þótti til takast mefl málþing Alþýðubandalagsins um Olga Guðrún Ámadóttir, Guðrún Helgadóttir, Mörður Ámason, Védís Gríms- dóttir og Þorsteinn Gylfason við setningu málþingsins. landi, og að átak í þeim efnum væri frumskilyrði árangurs á flestum sviðum lista. Þá voru fjöl- miðlamir einnig til umræðu, og þá sérstaklega vandi Ríkisút- varpsins í ljósi breyttra aðstæðna. í heild má segja að á ráðstefnunni hafi komið fram fjölmörg skila- boð til stjómvalda og þeirra sem fara með forsjá menningarmála í landinu. Þetta var því hin þarf- asta umræða, og ekki séð fyrir endann á henni, ekki síst í ljósi þeirrar stefnumörkunar Alþýðu- bandalagsins, að tvöfalda beri framlög ríkisins til lista og menn- ingarmála“, sagði Guðrún Helgadóttir. Þess er að vænta að skilaboð ráðstefnunnar rati rétta boðleið til stjórnvalda, því meðal fundar- manna var Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra. Umræður á málþinginu verða nánar raktar í menningarkálfi Þjóðviljans á morgun, miðvikudag. ólg El Salvador-nefndin Breytt í Mið- Ameríkunefnd Á félagsfundi í EI Salvador- nefndinni í kvöld verður m.a. tekin ókvörðun um hvort breyta eigi nafni nefndarínnar í Mið- Amerfkunefnd. Ragnar Stefánsson sagði í sam- tali við Þjóðviljann í gær að starf nefndarinnar væri mun víðtækara en bara það sem sneiti E1 Salva- dor og því þætti mönnum rétt að breyta um nafn á félagsskapnum. Afmœlisgrein Rangfeðruð limra í afmælisgrein um Valgeir Sig- urðsson í helgarblaði Þjóðviljans varð mér á að segja limru, sem þar var birt, eftir afmælisbarnið. Limran er eftir Hermann Jó- hannesson frá Kleifum, þingf- réttaritara útvarpsins, en ruglin- gurinn stafar af því að báðir voru þeir vinir að yrkja um sama efnið í þingveislunni. Ég bið báða afsökunar á fram- ferðinu, Hermann og Valgeir, en veit að báðir fyrirgefa mér. Helgi Seljan. Þrlðjudagur 24. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.