Þjóðviljinn - 24.03.1987, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 24.03.1987, Qupperneq 8
Alberts Sérframboo eina leið Forsœtisráðherra Ber fulla ábyrgð á Albert Steingrímur Hermannsson segir Albertsmálið innan- hússmál Sjálfstæðisflokksins. Bersjálfurfulla ábyrgð á öllum ráðherrum ríkisstjórnarinnar samkvæmt stjórnarskrá „Ég hef sagt það áður að sem forsætisráðherra myndi ég ekki biðjast lausnar fyrir Al- bert Guðmundsson nema um ákæru væri að ræða, og það er rétt að ég hef einnig lýst því áður yfir að ég hefði kosið að hann segði af sér ef hann væri ráðherra Framsóknarflokks- lns,“ sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra í samtali við Þjóðviljann. Það hefur óneitanlega vakið mikla athygli síðustu daga að for- sætisráðherra hefur neitað allri ábyrgð á stöðu Alberts Guð- mundssonar í ríkisstjóminni og sagt skattsvikamál hans vera al- farið mál Sjálfstæðisflokksins. Lögfróðir menn og sérfræðing- ar í stjómarfarsrétti, sem Þjóð- viljinn ræddi við í gær, sögðu hins vegar að ábyrgð forsætisráðherra á samráðherrum sínum væri söm og jöfn sama í hvaða flokki þeir væm. Við stjórnarmyndun er lagður fram einn ráðherralisti, og sú ríkisstjóm er nú situr er ríkis- stjóm Steingríms Hermanns- sonar þar sem Albert Guð- mundssonar er einn ráðherra. Eini maðurinn sem getur form- lega vikið Albert úr ríkisstjóm- inni er Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra. „Það er ekkert nýtt í þessu máli gagnvart mér, en ef um ákæm væri að ræða þá teldi ég það al- varlegt gagnvart ríkisstjóminni og ég yrði að biðja slíkan mann að víkja úr stjóminni,“ segir Steingrímur. _jg. Stuðnlngsmenn Alberts Guðmundssonar eru flestir sammála um að rimma hans við Þorsteln Pálsson hafi tekið mjög á hann og ættingja hans. Hinum gamla stríðshesti sé nú svo brugðið éftir misseris- langt þref við fiokkseigendafé- lagið í Valhöll, að við atlöguna í síðustu viku hafi honum þorrið allur kraftur. Af þeim sökum sé hann nú reiðubúinn að fallast á „sættir“ í svokölluðum Ai- bertsmálum með því að ganga án skilyrða að „hugmynd" Þor- steins frá því árla á sunnu- dagsmorgun. Meðal stuðningsmanna Al- berts ríkja mikil vonbrigði með sinnaskipti Alberts og ýmsum þykir hann skorta kjark til að tak- ast á við flokkseigendafélagið í Valhöll. Þetta fólk telur að það sé ekki samboðið manni með feril Alberts að baki sér að leggja nú niður rófuna fyrir hvolpi á borð við Þorstein Pálsson og hverfa úr ríkisstjóm. „Hann er að viðurkenna sekt með því, sem við viðurkennum ekki,“ sagði Suðurnesjamaður úr stuðningsmannahópnum, sem hefur síðustu dægur komið á fót vinnuhópi til að undirbúa fram- boð í Reykjaneskjördæmi, komi framboðskallið á síðustu stundu. Annar stuðningsmaður Alberts sagði í viðtali við Þjóðviljann að það ríktu mikil vonbrigði „með þrekleysi gamla mannsins“. Maður, sem átti þátt í undirbún- ingi stórfundarins í Þórskaffi, sagði sömuleiðis: „Hann tapar allri vigt ef hann skríður upp í til þeirra aftur“. í þessa veru vom ummæli Albertsmanna, allt frá Grindavík til Húsavíkur, sem Þjóðviljinn talaði við í gær. Félagsmálapakki Albert sat sjálfur og snæddi í hádeginu í gær á óformlegum fundi með nokkmm helstu stuðn- ingsmönnum sínum. Á þeim fundi lét hann ekki uppskátt um „hugmynd" flokksformannsins en var, að sögn, óvanalega daufur og nokkur uppgjafarbrag- ur yfir miðframherjanum gamla. Á meðal sumra stuðnings- manna Alberts er „hugmynd“ Þorsteins Pálssonar kölluð fé- lagsmálapakkinn. Menn gera að því skóna að hún , sé blanda af tveimur þáttum: annars vegar tilboði um eins virðulegt brotthvarf úr íslenskum stjórnmálum og kostur er; hins . vegar hótunum. Meginkjarni í máli Þorsteins á sunnudag mun hafa verið skilyrð- islaus krafa um að Albert segði sjálfur af sér ráðherradómi með þeim rökstuðningi, að áfram- haldandi vera hans í ríkisstjóm myndi skaða kosningalíkur flokksins. Því myndi hann af sjálfsdáðum hverfa úr stjórninni „til að vemda flokkinn". Loforðin Þorsteinn mun sömuleiðis hafa ýjað að því, að í yfirlýsingu sem Álbert gæfi um málið mætti hann meðal annars segja, að brott- hvarf hans væri einungis tíma- bundið og hann kynni að sækjast eftir ráðherradómi í næstu stjóm. í samtali þeirra tveggja á sunnudaginn gaf Þorsteinn hins vegar engar yfirlýsingar fyrir hönd flokksforystunnar um efsta sætið á listanum í Reykjavík. Hann mun hafa gert Albert það alveg ljóst, að það mál væri ekki í höndum neins annars en fulltrú- aráðsins í Reykjavík. Þannig hef- ur Þjóðviljinn fullar heimildir fyrir því, að ekki var boðið upp á samning í þá vem sem D V skrifar um í gær, þ.e.a.s. að Albert fari úr stjóminni en haldi efsta sætinu á listanum, þar sem Þorsteinn hefur enga heimild til að ráðstafa sætum á listanum í Reykjavík. Stuðningsmenn Alberts láta hins vegar í veðri vaka að Þor- steinn hafi á hinn bóginn látið þá skoðun uppi að hann teldi ólík- legt, miðað við stöðuna, að full- trúaráðið freistaði breytinga á skipan listans. Sögusagnir um að formaður Sjálfstæðisflokksins hafi tjáð Al- bert að hann væri fyrir sitt leyti reiðubúinn að tryggja honum sendiherratign í Frakklandi þeg- ar eitt ár eða tvö væm liðin af næsta kjörtímabili, og búa þar með til einkar virðulega leið fyrir Albert til að hætta þátttöku í ís- lenskum stjómmálum, eiga ekki við rök að styðjast samkvæmt upplýsingum eins af þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins. En samkvæmt sömu heimild var hins vegar viðrað óformlega við Albert um síðustu áramót að hann tæki við slíkri stöðu gegn því að hann afsalaði sér þá þegar efsta sætinu á listanum. Þetta staðfesti einn af stuðnings- mönnum Alberts og bætti því við, að gamla knattspymuhetjan frá Nice hefði tekið því víðs fjarri. Hótanirnar Á meðal þingmanna Sjálfstæð- isflokksins er gengið út frá því sem vísu, að Þorsteinn hafi tryggt sér fyrir fundinn með Albert á sunnudag að Steingrímur Her- mannsson biðjist lausnar fyrir Al- bert um leið og Þorsteinn æski þess. Eftir mjög óvarlegt hátterni sitt á fréttamannafundinum á fimmtudag er nú talið að hann eigi einskis annars úrkosta en koma Albert með einhverjum ráðum úr ríkisstjóminni. Leiðtogatign hans til frambúðar sé ella í hættu. Þessvegna hafi Þorsteinn gert Albert það fylli- lega ljóst á morgunfundinum á sunnudag, að hann myndi ekki hika við að fara þess á leit við Steingrím að leggja fram lausnar- beiðni fyrir Albert, bæðist hann ekki sjálfur lausnar. Gildra egnd? Stuðningsmenn Alberts segja sem svo: „Ef hann er ekki nógu heiðarlegur til að vera ráðherra, þá er hann ekki heldur nógu heiðarlegur til að vera í efsta sæti listans“. Þannig telja þeir að flok- kseigendafélaginu yrði ekki stætt á öðru en láta hann líka fara af listanum, verði hann knúinn út úr ríkisstjóminni. Þeir vísa einnig til opinberra staðfestinga Alberts sjálfs á því, að á fundi þeirra Þorsteins hafi ekki verið gefið loforð um efsta sætið, enda lítt til umræðu. Enn- fremur benda þeir á, að eftir allt það sem Þorsteinn sagði á hinum örlagarfka fréttamannafundi á fimmtudag, þá geti hann ekki komið út úr deilunni með hnar- reist höfuð og óskerta ímynd flokksleiðtogans nema því aðeins að Albert fari bæði úr ríkisstjóm og af íistanum. Allt annað geti ekki annað en veikt hann sterk- lega. „Ber er hver að baki, nema sér bróður eigi“. Albert tekur í útrétta hönd Ásgeirs pylsusala og „huldumanns" Eiríkssonar sem „brennur eldur í æðum." „Það er því verið að egna gildru fyrir Albert,“ segja stuðnings- menn iðnaðarráðherra. „Það á að fá hann til að fallast á að fara út úr ríkisstjóminni. Síðan ætlar flokkseigendafélagið að boða til fulltrúaráðsfundar með skömm- um fyrirvara þar sem á að sparka honum af listanum." Siðferðiskvarðinn í sjálfu sér er ýmislegt sem styður þetta. Þorsteinn getur engu lofað um sætaskipan listans, og bryti því engin loforð þó full- trúaráðið samþykkti brottvísun Alberts eftir að hann yrði sjálf- viljuglega við kröfu Þorsteins og segði af sér „að eigin frum- kvæði“. Albert hefur því enga tryggingu fyrir því að hann fengi efsta sætið, þó hann féllist á að hverfa úr ríkisstjóminni. Ennfremur er vert að ítreka, að Þorsteinn kvað sjálfur málið snúast um siðferðilegan mæli- kvarða Sjálfstæðisflokksins. Ef sá mælikvarði segir að Albert Guðmundsson geti ekki verið í ríkisstjóm, hvemig getur hann þá með sama kvarða mælst hæfur til að leiða lista flokksins í stærsta kjördæmi landsins? í Guðmunds- A refilstigum Dómsmálaráðheirann í tukthúsið Magnús Guðmundsson ráðherra dæmdur upp á brauð Sýknaður í hœstarétti. Beiddist lausnar frá embœtti. Söguleg og vatn til 15 daga. hliðstœða „Albertsmálsins“? í Ijósi þess að þingflokkur Sjálfstæðlsflokksins hefur gert Albert Guðmundssyni að segja af sér ráðherraembætti vegna „siðferðilegra“ afglapa, eftir að uppvíst varð að fyrir- tæki hans hafði heykst á að telja rétt fram til skatts, er ekki úr vegi að líta á sögulega hlið- stæðu þessa máls. Einasta einu sinni áður hefur íslenskur ráðherra beðist lausnar frá embætti, sökum þess að hafa orðið hált á refilstigum réttví- sinnar. Þetta var Magnús Guð- mundsson, er beiddist lausnar frá embætti 1932, eftir að undirréttur hafði dæmt hann upp á brauð og vatn til 15 daga. En Magnús var þá dómsmálaráðherra í sam- steypustjóm Framsókanarflokks og Sjálfstæðisflokks, undir for- sæti Ásgeirs Ásgeirssonar. Tildrög þessa máls vom þau að áður en Magnús varð ráðherra hafði Jónas frá Hriflu Jónsson, þáverandi dómsmálaráðherra, höfðað mál gegn Magnúsi fyrir hönd ríkissjóðs, vegna meintra brota hans vegna lögfræðiaðstoð- ar við meðferð á uppgjöri þrota- bú's. Magnúsi var gert að sök að hafa ráðlagt og aðstoðað skjól- stæðing sinn, heildsalann C. Be- hrens, við að greiða skuld hans við einn lánardrottinn sinn, eftir að ljóst var að sá síðamefndi var kominn í greiðsluþrot og hefði því með réttu átt að taka bú hans til gjaldþrotaskipta. fnóvember 1932 féll dómur í undirrétti í máli Magnúsar. Her- mann Jónasson, lögreglustjóri í Reykjavík, kvað upp dóminn og var hinn ákærði fundinn sekur um að hafa brotið gegn ákvæðum 263. gr. sbr. 48. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur upp á brauð og vatn til 15 daga. Þá þegar dómsniðurstaðan var fengin beiddist Magnús Guð- mundsson lausnar frá embætti. í yfirlýsingu Magnúsar, sem birtist í Morgunblaðinu, segir m.a.: „Þó að ég telji dóm þann rangan, sem lögreglustjórinn í Reykjavík hef- ur kveðið upp yfir mér, þá hef ég þó tekið þá ákvörðun að beiðast lausnar, því ég lít svo á, að í ráð- herrasæti eigi enginn að sitja, sem hefur hlotið áfellisdóm hjá löglegum dómstóli, meðan dóm- inum er ekki hrundið með æðri dómi. Ég nota þetta tækifæri til þess að lýsa því yfir, að ég mundi alls ekki á síðastliðnu vori hafa tekið sæti í landsstjórninni, hefði ég verið mér þess meðvitandi, að ég væri sekur um það sem ég er nú dæmdur fyrir...“ Magnús skaut máli sínu til Hæstaréttar og var þar sýknaður af öllum ákæruatriðum. Um leið og Magnús hafði fengið uppreisn æru, tók hann aftur við ráðherra- embættinu, sem Ólafur Thors hafði skipað eftir að Magnús baðst launsar. Ekki voru allir þó á eitt sáttir um þessi málalok. Sést það berlega á umsögnum blaða um dómsniðurstöðu Hæstaréttar. Meðan Morgun- * blaðið fagnaði málalokunum og taldi dóm Hæstaréttar sigur yfir Hriflu- „réttvísinni“ mátti lesa í Tímanum: „Stórkostlegt réttar- hneyksli. Stjómarskráin og hæst- aréttarlögin þverbrotin af dóm-' endunum sjálfum. Pöntunin af- greidd í hæstarétti í gær.“ -RK Ýmsir úr hópi þingmanna utan Reykjavíkur töldu einnig að það yrði bókstaflega ómögulegt fyrir flokkinn að fara í kosningar með mann í efsta sæti listans í Reykja- vík, sem ekki væri treyst til að vera ráðherra. Utan ríkisstjórn- ar, að loknum kosningum, yrði Albert jafnframt gersamlega ómögulegur fyrir ríkisstjóm með Sjálfstæðisflokkinn innanborðs. „Hann yrði með sérálit í öllum málum, nöldur út af öllu, sífellt að leggja til í vopnasmiðjur and- stæðinganna. Heldurðu að það yrði ekki veisla fyrir ykkur á Þjóðviljanum að geta ævinlega fengið eitthvert hörkukomment- ið gegn ríkisstjóm Sjálfstæðis- flokksins frá efsta manninum í Reykjavík? Það yrði bara ekki hægt og má ekki gerast!“ Sérframboð Stuðningsmenn Alberts benda líka á að fari hann úr stjóminni sé hann í raun að fallast á að binda ótilhlýðilegan enda á feril sinn. „Þá fer hann einfaldlega inn í sög- una sem brottrækur ráðherra, skattsvikari sem brást fólkinu." Þessvegna telja þeir engan kost fyrir Albert nema fara í sérfram- boð verði honum vikið úr ríkis- stjóm. Uppstokkun til hægri Margir af hörðustu Alberts- mönnunum em þeirrar skoðun- ar, að fyrir löngu sé kominn tími til að stokka upp í flokkakerfinu á íslandi. Þeir telja, að hreinan hægri flokk vanti hérlendis. Með því að fara í sérframboð nú væri því Albert að skrifa sig inn í ís- landssöguna sem frumkvöðull nauðsynlegrar uppstokkunar. Þeir benda á að gífurlegur fjöl- di fólks hvaðanæva af landinu hafi hringt til stuðningshópsins í Reykjavík og til Alberts sjálfs. Þeir benda líka á ótrúlega fjöl- mennan stórfund Albertssinna í Þórskaffi, og síðast en ekki síst vísa þeir til þess, að Albert á í rauninni heilt kosningakerfi „á ís“, síðan í forsetakosningunum. Éftir að ljóst varð að Þorsteinn setti Albert afarkosti, þá hefur stuðningsmönnum hans hlaupið enn meira kapp í kinn og þeir munu telja það hreint kjarkleysi af Alberts hálfu og svik við stuðn- ingsmenn hans út um allt land, fari hann ekki í sérframboð eins- og málum er komið. Samsæri Flest bendir til að atlagan að Albert hafi verið tímasett mjög nákvæmlega. Vitað var með löngum fyrirvara, að iðnaðarráð- herra yrði fjarverandi á þessum tíma. Þegar svo frétt HP birtist, í engu frábrugðin fyrri frétt HP frá því fyrir áramótin, rauk Þor- steinn Pálsson hins vegar upp til handa og fóta og boðaði blaða- mannafund með örskömmum fyrirvara. A þeim fundi endurtók hann síðan aftur og aftur að hér væri um mjög „alvarlegt“ mál að ræða. í fyrsta lagi: Hann vissi um málið fyrir alllöngu og hefur sagt að það snúist ekki um Albert Guðmundsson heldur um sið- ferðilegan mælikvarða Sjálfstæð- isflokksins. Sé svo, hvemig stendur þá á því að hann beið. framyfir landsfund með að reifa það opinberlega? í öðru lagi: Hvers vegna finnst honum það nauðsynlegt ná- kvæmlega núna, rétt áður en framboðsfrestur rennur út, að koma Albert úr ríkisstjóm? Hversvegna ekki löngu fyrr, til dæmis þegar HP ljóstraði fýrst upp um meint skattsvik Alberts? I þriðja lagi: Hversvegna hélt hann fréttamannafund af svo mikilli skyndingu án þess að bíða eftir að Albert kæmi heim, eða einfaldlega nota símann og hringja til hans? í því sambandi má minna á að Þorsteinn hefur sjálfur bent sérstaklega á, að það er símasamband við útlönd, - einsog hann snöfurmannlega gerði í tengslum við hraðflug sitt heim úr frægri Parísardvöl. Er ef til vill verra símasamband við Kaupmannahöfn en París? Siðferði Sjálfstæðisfiokksins Staðreyndin er auðvitað sú, að þrátt fyrir allt tal Þorsteins um að mál Alberts snúist um siðferði í stjórnmálum, þá er hans eigin siðferðisstyrkur ekki meiri en svo, að hann faldi mál Alberts framyfir landsfund Sjálfstæðis- flokksins til að koma í veg fyrir deilur um sjálfan sig, til að tryggja sér rússneska kosningu. Auðvitað átti Albert fyrir löngu að vera kominn úr ríkis- stjórninni. Á það hefur Þjóðvilj- inn oft bent í löngu máli. En Sjálfstæðisflokkinn og forystu hans brast einfaldlega siðferðis- styrk til að hreinsa út. iii iiiiiBiimri ii»hi ii »ii 11 i i inmiii> m iim 11»n ,-jæJSKKS ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Þessvegna er það hálfnötur- legt, að þegar flokkurinn tekur loksins á sig rögg og varpar Al- bert á dyr, þá er það ekki til að efla siðferði í íslenskum stjórnmálum heldur liður í valda- baráttu innan flokksins. Flest bendir líka til að kjark- leysi forystu Sjálfstæðisflokksins muni nú verða til þess að Alberts- menn taki kost sérframboðs, sem vegna kringumstæðna kann að reynast Sjálfstæðisflokknum miklu skeinuhættara en hefði for- ysta hans bitið í sig þor til að hreinsa til fyrr. Vitaskuld er það pólitískur bamaskapur ef forysta Sjálfstæð- isflokksins hyggur í raun og veru að henni takist að þvæla Alberts- mál svo listilega að sérframboð af hans hálfu falli á tíma, eins og einn framámaður flokksins orð- aði það í gær. Menn losna ekki bæði við hinn meinta skattsvikara úr ríkisstjóm og af listanum. Áður mun alræmdur hulduher taka í taumana. Og krefjast sér- framboðs. Án þess er því Albert slyppur. Án hulduhers. Án flokks. Án nokkurs nema ferils sem endaði illa. Össur Skarphéðinsson. Þorsteinn vill Albertútán skil- yrða. Óvíst hvorthannfœr efsta sœtið. Al- bert orðinn þreyttur ogíhug- ar að draga sig í hlé. Stuðnings- menn Alberts: Heimtum sérf- ramboð-eina leiðin sem er fœr. Annað vœri svik við okkur

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.