Þjóðviljinn - 24.03.1987, Síða 13

Þjóðviljinn - 24.03.1987, Síða 13
HEIMURINN Anatólí Karpof hefur ástæðu til að brosa breitt um þessar mundir. Skák Enn sigrar Karpof Anatólí Karpof vann i gær sinn þriðja sigur á andstæð- ingi sínum, Andrei Sókólof, í einvígi þeirra félaga um réttinn til að skora Kasparof heimsmeistara á hólm. Karpof stýrði hvítu mönnun- um og knúði fram sigur eftir sex- tíu og þrjá leiki. Nú þarf heimsmeistarinn fyrrverandi að- eins einn vinning úr næstu fjórum skákum til að standa uppi sem sigurvegari, staðan er sex og hálf- ur gegn þremur og hálfum honum í vil. -ks. Chad Líbýumenn fara halloka Stjórnarherinn nœr mikilvœgum herflugvelli á sitt vald. Verða Líbýumenn brátt hraktir úr landinu? Stjórnarhernum í Chad virð- ist vera að vaxa ásmegin í styrjöldinni við Líbýumenn sem um langt árabil hafa hafst við í norðurhluta landsins. Að sögn stjómvalda í höfuð- borg landsins, N‘Djameina, hef- ur her hliðhollur Hissene Habre forseta nú unnið mjög mikilvæg- an sigur á líbýskum sveitum sem gættu flugvallarins í Ouadi Doum og náð honum á sitt vald. Fyrir vikið eiga Líbýumenn verra með að hagnýta sér yfirburði sína í lofti því nú verða flugvélar þeirra að leggja upp frá flugvöllum í heimalandi sínu. Bardaginn mun hafa verið mjög harður því fimmþúsund hermenn vel vopnum búnir vörðu flugvöllinn. Ekki fengust nákvæmar tölur um hve margir létu lffíð en að sögn talsmanna Her Gaddafys ofursta, til vinstri, á undir högg að sækja í styrjöldinni við stjómarherinn í Chad sem lýtur stjórn Hissene Habre forseta, til hægri. Kína/Portúgal Macao verður kínversk I gær komust portúgölsk og kínversk stjórnvöld að samkomulagi um framtíðar- skipan mála i portúgölsku ný- lenduborginni Macao á suður- strönd Kína. Að sögn heimilda í Lissabon mun borgin verða kínversk rétt fyrir aldamótin eða nánar tiltekið þann tuttugasta desember árið 1999. Þar með verður orðið við þeirri kröfu Kínverja að öll land- Kamerúnráðstefnan Engin niðurstaða Vísindamennirnir komust ekki að einróma niður- stöðu um orsakir hamfaranna. Hvetja stjórnvöld til að koma í vegfyrir aðflóttamenn snúi til Nyosvatns á ný Vísindamenn úr öllum heimshornum sögðu um helg- ina fundi sínum slitið um or- sakir náttúruhamfaranna við Nyosvatn í fyrra án þess að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Sem kunnugt er stendur annar hópurinn á því fastar en fótunum að blöndun botnvatns og yfir- borðsvatns hafí leyst úr læðingi banvænt gasið. Fyrir þeim söfn- uði fara vatnalíffræðingar en einnig aðhyllast þá tilgátu fjöl- margir jarðfræðingar, til að mynda íslensku sérfræðingarnir. Á öndverðum meiði eru franskir og ítalskir eldfjallafræð- ingar undir forystu Harouns nokkurs Tazieffs sem telja bers- erksgang höfuðskepnanna orsak- ast af eldsumbrotum í iðrum jarð- ar. Þó voru þeir á einu máli um að það væri glapræði af hálfu yfir- valda í Kamerún að heimila flóttamönnum frá svæðum um- hverfis stöðuvatnið að snúa á ný til síns heima. Áður en það yrði kleift þyrftu mun ítarlegri rann- sóknir að fara fram í því augna- miði að komast að niðurstöðu um hvað olli útstreymi eiturgassins sem varð sautjánhundruð fjöru- tíu og sex einstaklingum að fjör- tjóni. -ks. svæði í suðurhluta Kína lúti Pek- ingstjórninni þegar ný öld gengur í garð. Þótt Macao sé ekki jafn mikil- væg efnahagslega og Hong Kong, sem einnig verður afhent kínver- sku stjóminni rétt fyrir lok aldar- innar, þá hafa Kínverjar lagt jafnmikla áherslu á að fá yfirráð yfir henni af þjóðemisástæðum. Þeir vom skiljanlega orðnir hundleiðir á að hafa erlendar ný- lenduborgir inni á stofugólfinu hjá sér. Erlendir sendiráðunautar kváðust þess fullvissir að samn- ingurinn um Macao væri með svipuðu sniði og samkomulag bresku og kínversku stjórnanna um Hong Kong. Þá myndi borgin halda sjálfstjórn að vissu marki og ennfremur yrði kapítalískt hagkerfí áfram við lýði eftir af- hendingu. Megin ásteytingarsteininn teija menn hafa verið ríkisfang fjörutíu þúsund borgarbúa sem hafa portúgalskt nkisfang og vilja ófúsir láta það af hendi. Kínver- skir ráðamenn hafa aldrei fallist á að þegnar þeirra séu jafnframt erlendir nkisborgarar. En lyktir þessa deilumáls, sem og annarra, verða heyrinkunnar á föstudag þegar ríkisstjómir landanna tveggja munu gefa út sameiginlega yfírlýsingu. -ks. sendiráðs Chad í París var mann- fall mikið. Herfræðingar segja sigur þenn- an þann mikilvægasta fyrir stjórnarherinn til þessa frá því hann lét til skarar skríða gegn lí- býska hernum. Til átaka kom hvað eftir annað í síðustu viku í námunda við flug- völlinn. í fyrradag kvaðst stjóm- arherinn hafa vegið sjöhundruð áttatíu og sex líbýska dáta í orr- ustu við Bir-Koura sem er fjöm- tíu og fimm kílómetra fyrir sunn- an Ouadi Doum. Hersveitir ráðamanna í N‘Djameina hófu sókn á hendur Líbýumönnum þegar þorri upp- reisnarmanna úr herbúðum Go- ukouni Ouedbei, fyrrverandi forseta, sagði skilið við hann og gekk til liðs við höfuðfjanda hans, Habre, núverandi forseta. Síðan hefur Gaddafy Líbýufor- seti ekki getað teflt fram inn- lendum herstyrk gegn stjórnar- hernum og hefur vopnaskakið því svo að segja breyst úr borg- arastyrjöld í milliríkjastríð. Og í því stríði stendur stjórnar- her Chad til vinnings, nái hann að halda flugvellinum í Ouadi Doum og fleiri hernaðarlega mikilvægum stöðum sem hann hefur nýlega rifið úr höndum Lí- býuhers. Síðasta vígi dáta Gadd- afys er eyðimerkurvinin Faya- Largeau, stærsta borgin í norður- hluta landsins og jafnframt fæð- ingarborg Habres forseta. Hún er nú umsetin hersveitum forsetans sem kunna þá og þegar að láta skríða til skarar. Falli hún í hend- ur þeim kann fátt að verða lí- býska hemum til bjargar annað en flótti heim. -ks. Júgóslavía Hervaldi hótað Forsœtisráðherra Júgóslavíu hótar að siga hernum á verkfalls- og andófsmenn I gær birtu helstu dagblöð í Júgóslavíu glefsur úr samtali Branko Mikulic forsætisráð- herra við vestur-þýska frétta- menn þar sem hann lét skína í tennurnar og staðhæfði að færu verkföll og mótmælaað- gerðir úr böndunum þannig að stjórnkerfi landsins yrði í hættu þá væri ekki um annað að ræða en að beita hervaldi gegn andófsmönnum. Isamastreng tók Milan Delja- vic varnarmálaráðherra og blandast engum hugur um að um- mæli þeirra séu fremur ætluð eigin þegnum en erlendum sjón- varpsneytendum. Einsog fram hefur komið í fréttum logar allt í vinnudeilum og verkföllum í Júgóslavíu um þessar mundir vegna setningar laga úm launafrystingu sem stjórnvöld segja nauðsynlega til að ráða niðurlögum óðaverð- bólgu. Hafa þau lýst því yfir að ekki komi til greina að hækka laun nema framleiðni verði aukin í helstu atvinnugreinum lands- manna. -ks. PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða fólk til bréfberastarfa hálfan daginn í Reykjavík. Upplýsingar hjá póstmeistara og hjá útibús- stjórum pósthúsanna. ÞJÓÐVIUINN ■ hl'LL'KM Tímirm Blaðburður er BESTA TRIMMIÐ og borgar sig Blaðbera vantar víðsvegar um borgina F: I I ll •}:! iT> mUOW*] .1 .i ÞJÓÐVIIJINN Síðumúla 6 0 68 13 33 Þriðjudagur 24. mars 1987, ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.