Þjóðviljinn - 27.03.1987, Side 6

Þjóðviljinn - 27.03.1987, Side 6
HEIMUR Atvinnuleysi er gríðarlegt vanda- mál víða í Evrópu og er plága fyrir ungt fólk. Hér að ofan getur að líta kröfugöngur gegn þessum ófögnuði í ýmsum löndum. Myndin efst til hægri er tekin á ít- alíu, sú við hliðina í Vestur-Þýska- landi. Neðar til hægri mótmæla franskir atvinnu- leysingjar og við hlið þeirra eru Portúgalir. Evrópa Atvinnuleysisplágan herjar á ungmenni ímörgum ríkja Vestur-Evrópu er atvinnuleysi landlœgt með- alyngrafólks. Stjórnvöld reyna meðýmsum ráðum að leysa vandann Rikisstjórnír helstu iðnríkja Vestur-Evrópu hafa miklar áhyggjur af geigvænlegu atvinnuleysl meðal yngra fólks og reyna að leggja til atlögu vlð vandamálið á ýmsa vegu, til að mynda með því að skapa ný störf hjá hlnu opinbera og efla verkmenntun og starfs- þjálfun. En margir hagfræðingar eru þeirrar skoðunar að efnahagsbati í ýmsum Evrópuríkjum um þess- ar mundir verði skammgóður vermir og því verði atvinnuleysi ungmenna enn um hríð vanda- mál, klípa sem þjóðimar losni ekki úr fyrr en með tíð og tíma. Næsta kynslóð verði til muna mannfærri, börn sem getin voru eftir að jóðflóði uppgangsáranna linnti. „Vandamálið er tröllvaxið“, segir Alex Bunz, formaður þeirrar nefndar Efnahagsbanda- lags Evrópu sem hefur þessi mál á sinni könnu. „Það hefur dregið úr atvinnuleysi ungmenna undan- farið vegna hagvaxtar, hagræð- ingar og allskyns ráðstafana ein- stakra stjórna en engu að síður eru um þrjátíu og sjö prósent allra atvinnuleysingja fólk á aldr- inum fimmtán til tuttugu og fjög- urra ára.“ í nýútkominni skýrslu Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu er það staðfest að atvinnuleysi ungs fólks hefur minnkað í sumum iðnríkja Vest- urlanda. í þeirri skýrslu gefur að líta eftirfarandi töflu með upplýs- ingum um hlutfall atvinnuiausra úr röðum vinnufærra ungmenna í fyrra og spá fyrir árið í ár sem byggð er á horfum í efna- hagsmálum og niðurstöðum fýrstu tveggja mánaða: 1986: 1987: Bandaríkin 12.5% 12% Japan 5.5% 6% V.-Þýskaland 8.25% 7% Frakkland 25.75% 26.50% Bretland 21.75% 20.75% ftalía 35.50% 37% Vandinn er sýnu meiri í iðn- ríkjum Vestur-Evrópu en í Bandaríkjunum og Japan. í síðamefnda landinu kynni hins- vegar að draga til tíðinda því þar var uppgangs- og bjartsýnisskeiðið síðar á ferðinni og þar af leiðandi einnig fylgifisk- urinn, jóðflóð tímgunargleðinn- ar. Margir félagsfræðingar hafa bent á uggvænlegar afleiðingar atvinnuleysisins. Vonleysi grípi ungmenni sem ekki sjá fram á að fá handtak að vinna í framtíðinni, það segi sig úr lögum við samfé- lag er hafni því og afleiðingin sé vaxandi eiturlyfjaneysla, fjölgun allskyns afbrota og ofbeldis- verka. Máli sínu til stuðnings nefna þeir blóðferilinn sem ensk- ir knattspymuáhangendur skilja víða eftir sig. En hvers vegna er jafn hátt hlutfall atvinnulausra ungt fólk? Hagfræðingar em ekki einhuga um hvernig beri að svara þeirri spumingu. Sumir skella skuld- inni á menntunarskort á tímum þegar æ meiri sérhæfingar og tækniþekkingar sé krafist á öllum mögulegum og ómögulegum sviðum, aðrir nefna verkalýðs- hreyfinguna til blóra og segja byrjunarlaun unglinga alltof há. Atvinnumálaráðherra Thatc- herstjómarinnar, Young lávarð- ur, er bersýnilega í hópi þeirra sem samúð hafa með síðari skýr- ingartilgátunni. Hann kvartar undan því að víðsvegar um Evr- ópu leggi verkalýðshreyfingin áherslu á há byrjunarlaun ung- menna við samningsgerð, sem síðan séu höfð til hliðsjónar við ákvörðun launa fullorðinna. Sér finnist afleitt að breskir vinnuveitendur þurfi að greiða ungmennum sextíu og fimm pró- sent af grunnlaunum ftillorðinna. Slík tilhögun viðhaldi atvinnu- leysi ungs fólks og hann bendir á „gullið fordæmi“ vestur-þýskra atvinnurekenda sem greiða þeim eingöngu tuttugu prósent af gmnntöxtum hinna eldri. Young segir stjóm sína ætla að ráðast að vandanum með styrkj- um til einkafyrirtækja sem taki ungt fólk hópum saman í starfs- þjálfun og vinnu og með þeim hætti verði atvinnuleysi unglinga, átján ára og yngri, úr sögunni strax í aprílmánuði nema þeirra sem sjálfir kjósi að hafna þessu tilboði. Andstæðingar stjómar íhalds- flokksins hafa kallað þessa áætl- un fúsk og fimbulfamb og segja stefnu Margrétar Thatchers í efnahagsmálum, einkum niður- skurð á opinbemm framkvæmd- um, eiga höfuðsök á því hve atvinnuleysið sé gífurlegt á Bret- landi. f Vestur-Þýskalandi má rekja lágt hlutfall atvinnulausra ung- menna til þess að þar er við lýði starfsþjálfunar-og verkmennta- kerfi á öllum mögulegum svið- um. Verkfræðineminn og hár- greiðsluneminn verða báðir að vinna drjúgan tíma hjá meistara uns þeir teljast fullnuma. Á því skeiði fá þeir mjög lág laun en verkalýðshreyfingin leggur bless- un síns yfir þetta fyrirkomulag. Allt að helmingur atvinnu- lausra ungmenna í Evrópu er á Ítalíu og Spáni. í skýrslu ítalskra ráðamanna kemur fram að af tæpum þremur milljónum manna sem árangurslaust sóttu um at- vinnu í októbermánuði á síðast- liðnu ári voru sjötíu og þrjú pró- sent fólk á aldrinum frá fjórtán til tuttugu og mu ára. Á Spáni er heildaratvinnuleysi um tuttugu og eitt prósent og mjög hátt hlutfall þeirra sem ekki fá vinnu er ungt fólk. í Hollandi voru tvöhundruð og fjörutíu þúsund og sjöhundruð einstaklingar tuttugu og fjögurra ára og yngri atvinnulausir í janú- armánuði þessa árs. Það mun láta nærri að séu um þrjátíu og fjögur prósent allra atvinnuleysingja í því landi. Hollenskir embættismenn full- yrða að heldur hafi dregið úr þessum vanda en barma sér undan ónógri verkmenntun unga fólksins sem geri það ófært um að gegna allskyns sérhæfðum störf- um. Stjómvöld í Hollandi em með áætlun á prjónunum um að á næsta ári ráði ríkið unglinga unnvörpum til ýmissa starfa og komi jafnframt á fót verkmennta- og starfsþjálfunar- skólum. Hafi unglingar gengt kalli og verið annað tveggja í vinnu eða á námskeiði sex mán- uði ársins þá muni hann eiga rétt á atvinnuleysisbótum þá sex sem eftir em. Hunsi hann afturámóti tilboð stjórnvalda fær hann ekki grænan eyri úr ríkiskassanum. -ks. Moskva Bandamem bakka Sowét upp Utanríkisráðherrar taka undirmeð Kremlverjum. Gorbatsjof-nýsköpun bœtir ímynd Austur-Evrópu Utanríkisráðherrar Varsjár- bandalagsríkjanna lýstu yfir stuðnlngi vlð stefnu Sovétríkj- anna í afvopnunarviðræðun- um í Genf á fundi sínum sem lauk í Moskvu í fyrradag. Ráðherramir hittust síðast í október eftir leiðtogafundinn í Reykjavík, og er litið á Moskvu- fund þeirra nú sem undirbúning fyrir Kremlarheimsókn banda- ríska utanríkisráðherrans um miðjan apríl. Ráðherramir lýstu yfir vilja sínum til samninga um bann við efnavopnum og um til- raunabann, og lögðust gegn „stj ömustríðs“-áætlun Banda- ríkjanna. I Tass-frétt í fyrradag sagði að ráðherramir væm sammála um að nýsköpunarstefna Gorbat- sjofs hefði bætt alþjóðlega ímynd V arsj árbandalagsrík j anna. Austur-Evrópuríkin hafa brugð- ist misjafnlega við nýjum vindum að austan, en þó öll fýlgt Moskvu eftir með einhverjum hætti. Vadim Loganof, einn af var- autanríkisráðhermm Sovétríkj- anna, var spurður eftir fundinn hvort meiningar hefðu verið deildar og svaraði að hvert ríki hefði sín sjónarmið, en um grundvallaratriði hefði ríkt sam- staða. -n1 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 27. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.