Þjóðviljinn - 27.03.1987, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 27.03.1987, Blaðsíða 17
UM HELGINA MYNDLISTIN Sjálfsmyndir 22 sænskra Ijósmyndara nefnist sýning sem sett hefur verið upp í anddyri Nor- ræna hússins. Sýningin var upp- haflega gerð að frumkvæði fyrir- tækisins DOG í Stokkhólmi, en fyr- irtækið hefur það að markmiði að dreifa Ijósmyndalist í háum gæða- flokki. Sýningin stendurtil 21. apríl ogeropin9-19virkadagaog 12-19 ásunnudögum. Halldór Björn Runólfsson opnar sýningu á teikningum, vatns- litamyndum oa akrílmálverki í Slunkaríki á fsafirði á laugardag kl 15. Á sunnudag kl. 15 mun Halldór halda fyrirlestur um myndlist í bóka- safni Menntaskólans á ísafirði. Haraldur Ingi Haraldsson opnar sýningu á olíu- og akrílmynd- um, teikningum og pastelverkum í Nýllstasafninu, Vatnsstíg 3b á laugardagkl. 14. Haraldurlngi stundaði nám í MHÍ1978-81 og framhaldsnám í Hollandi í 2 ár eftir það. Opið 16-20 virka daga en 14- 20 um helgar. Kristján Guðmundsson sýnir skúlptúra og blýantsteikning- ar í Ásmundarsal við Freyjugötu. Sýningin er opin daglega 14-18.30, síðasta sýningarhelgi. Listasafn l'slands helduryfir- litssýningu á verkum Sigurðar Sig- urðssonar listmálara. Sýningin spannarallan feril Sigurðarfrá skólaárunum til dagsins í dag. Opið virka daga 13.30-16 en 13.30-19 um helgar. Daði Guðbjörnsson sýnir olíumálverk í Gallerí Borg við Austurvöll. Opið 12-18 og 14-18 um helgar. Síðastasýningarhelgi. Grétar Reynisson sýnirolí- umálverk í Gallerí Svart á hvitu við Óðinstorg. Opið 14-18 alladaga nema mánudaga til 5. apríl. Kristjana Samper sýnir skúlptura og teikningar í Gallerí Gangskör við Amtmannsstíg (T or- funni). Á sýningunni eru 19 verk, sem flest eru unnin á þessu ári. Opið 12-18 og 14-18 um helgar til 3. apríl. Sigrún Steinþórsdóttir Eggen og Steinþór Marinó Gunn- arsson sýna myndvefnað, vatns- litamyndir, einþrykk og pastel- myndir í Listasafni ASl við Grens- ásveg. Opið 16-20 en 14-22 um helgartii 5. apríl. Tvíæringur FÍM 87 nefnist samsýning Félags íslenskra mynd- listarmanna sem nú stendur yfir í austursal Kjarvalsstaða. Á sýning- unnieruum 100verkeftir28félags- menn. Opið 14-22, síðasta sýning- arhelgi. Guðrún T ryggvadóttir sýnir málverk í vestursal Kjarvals- staða. Opið 14-22, síðasta sýning- arhelgi. Aðgangurókeypis. Hansína Jensdóttir sýnir skúlptúra í anddyrl Kjarvalsstaða. Opið 14-22, síöasta sýningarhelgi. Sigurrós Baldvindsdóttir sýnir 38 olíumálverk í Gallerí Skip, Skipholti 50c. Opið 13-17 virka daga, 15-18 um helgar. Síðasta sýningarhelgi. Sjávarlandslag nefnist sýning Norræna hússins á málverkum eftir norsku málarana Björn Tufta og Olav Strömme og skúlptúrum eftir Slgurð Guðmundsson. Opið 9- 19,12-19 á sunnudögum. Síðasta sýningarhelgi. Sverrir Ólafsson sýnirskúip- túra úr málmi í Gallerí Grjót við Skólavörðustíg, opið 12-18 en 14- 18um helgar. Nikulás Sigfússon sýnir vatnslitamyndir i Ingólfsbrunnl, Aðalstræti 9. Opið 8-18 virka daga til mánaðamóta. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, hefur opnað skólasýningu á verkum Ásgrlms Jónssonar. Leiðsögn fyrir skólanema fáanleg. Opið fyrir almenning sunnudaga, þriðjud. og fimmtud. kl. 13.30-16. Gallerí Langbrók við Bók- hlöðustíg sýnirtextíl, tauþrykk, fatn- að og listmuni á virkum dögum 12- 18og 11-14álaugard. Gallerí íslensk list, Vestur- götu 17, sýnir verk eftir Braga Ás- geirsson, Einar Þorláksson, Haf- stein Austmann, Jóhannes Jó- hannesson, Kristján Davíðsson, Kjartan Guðjónsson, Valtý Péturs- son, Vilhjálm Bergsson og Guð- mund Benediktsson. Opið 9-17 virkadaga. LEIKLIST ísienska óperan sýnir Aidu eftir Giuseppe Verdi í kvöld og á sunnudag kl 20.1 aðalhlutverkum eru Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Anna JúlíanaSveinsdóttir, Garðar Cortes, Kristinn Sigmundsson, ViðarGunnarsson, EiðurÁ. Gunn- arsson, Katrín Sigurðardóttirog Hákon Oddgeirsson. Sýnt er með íslenskum texta. Þjóðleikhúsið sýnirgaman- leikinn Hallæristenór eftir Ken Ludwig í kvöld kl. 20. Aurasálin eftir Moliére verður sýnd á laugar- dag kl. 20. Fáar sýningar eftir. Fjölskylduleikurinn Rympa á rusl- ahaugnum eftir Herdísi Egilsdóttur verður sýndur á laugardag og sunnudag kl. 15. íslenski dansf- lokkurinn ásamt gestadönsurum sýnir Ég dansa við þig eftir Jochen Ulrich við tónlist eftir Samuelina T a- hija. Æfingastjóri er Sveinbjörg Al- exanders, en hún og Ulrich unnu saman að danssýningunni Blindingsleik, sem Þjóðleikhúsið sýndi í desember 1980 og mörgum er í fersku minni. Gestadansarar eru 2 aðalkarldansarar Kölnaróper- unnar, Athol Farmerog PhilipTal- ard. Tónlistarflutningur er í höndum Egils Ólafssonarog Jóhönnu Lin- net, auk þess sem tónlist er flutt af segulbandi frá upphaflegri upp- færslu verksins í Þýskalandi. Önnur sýning verður á sunnudagskvöldið en 3. og 4. sýning á þriðjudag og miðvikudag kl 20.30. Næsta sýning á Upprelsn á íoa- firði eftir Ragnar Arnalds veröur á fimmtudag kl. 20. Litla sviðið, Lindargötu 7, sýnir f smásjá eftir Þórunni Sigurðardótt- ur í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar í 27. sinn á laugardag kl. 20.30. Gestum Þjóðleikhússins gefst kost- ur á að kaupa leikhúsveislu, en þá er innifalin þríréttuð máltíð í Leikhúskjallaranum, leikhúsmiði og aðgangurað Leikhúskjallaran- um eftir sýningu, og kostar veislan 1300krónur. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Dag vonar eftir Birgi Sigurðsson í kvöld og á sunnudag kl. 20. Land míns föður eftir Kjartan Ragnars- son verður sýnt á laugardag kl. 20.30 í 198. sinn. Nú eru fáar sýn- ingar eftir á þessu vinsæla leikriti, en sýningunni hefur verið boðið á leiklistarhátíð í Svíþjóð ívor. Leikskemma L.R við Meistaravelli sýnir Djöf laeyjuna, leikgerð Kjartans Ragnarssonará skáldsögum Einars Kárasonar í kvöld, sunnudag og þriðjudag kl. 20. Uppselt er á svo til allar sýning- artil páska. Leikhúsíð í kirkjunni sýnir Lelkritið um Kaj Munk eftir Guð- rúnu Ásmundsdóttur í Hallgríms- kirkju í kvöld kl 20.30, á sunnudag kl. 16 og á mánudag kl. 20.30. AlþýðuleikhúsiðsýnirEru tigrisdýr (Kongó? eftir Finnana Johan Bergum og Bengt Ahlfors í veitingahúsinu I Kvosinni á sunnu- dag kl. 13, næstu sýningar á mið- vikudag, fimmtudag og föstudag kl. 12 og á laugardag 4. apríl kl. 13. Miðaverð er 750 kr. léttur hádegi- sverður og kaffi innifalið. Leikfélag Akureyrar sýnir söngleikinn Kabaretteftir Joe Masteroff, Fred Ebb og John Cand- er á föstudag og laugardag kl. 20.30. Næstu sýningar verða föstu- dag, laugardag og sunnudag um næstu helgi. Nemendaleikhúsið er nú að æfa finnska leikritið „Rúnar og Kylllkiu eftir leikritaskáldið Jussi Kylatasku. Leikritið var frumsýnt í byrjun síðasta áratugar, og fjallar það um árekstra tveggja ung- menna við heim hinna fullorðnu. Leikritið gerist í litlu finnsku þorpi á árunum 1955-60. Ráðgert er að frumsýning verði 22. apríl nk. Leik- stjóri er Stefán Baldursson en þýð- andi Þórarinn Eldjárn. Ég dansa við þig“ heitir sýning (slenska dansflokksins sem verður í Þjóðleik- ííúsinu á sunnudag. Myndin sýnir Ingibjörgu Pálsdóttur og Athol Farmer á sýningunni. TÓNLIST Joachim Quartett, semtalinn er vera einn besti strengjakvartett yngri kynslóðarinnar í Vestur- Þýskalandi, lýkur hljómleikaferð sinni um Norðurlönd á vegum Goethe-stofnunarinnar með hljóm- leikum í Austurbæjarbíói á sunnu- dagkl. 14.30ávegumTónlistarfé- lagsins. Kvartettinn, sem kenndur er við þýska fiðlusnillinginn Joseph Joachim, hlaut nýverið „Deutsche Musik Wettbewerb 1978“-viður- kenninguna í Bonn og hefur haldið tónleika víða um heim. Sjötta landsmóti íslenskra barnakóra lýkur með tónleikum að Helmalandi í Rangárvallasýslu á sunnudag kl. 15, þar sem um 800 börn munu stilla saman raddir sínar, og er ólíklegt að kostur gefist á að hlýða á fjölmennari kór hér á landi. Tónmenntakennarafélag ís- lands stendur að tónleikunum, að- gangurerókeypis. John Speight barítónsöngvari og Sveinbjörg Vilhjálmsdóttirpí- anóleikari halda Ijóðatónlelka í Njarðvíkurkirkju á laugardag kl. 15. Fluttir verða söngvar eftir Beet- hoven og Vaughan Williams. Ljóðatónleikamirverða síðan endurteknir í Bústaðakirkju í Reykjavíkfimmtudaginn 2. apríl. Kristskirkja. ÞrösturEiríks- son orgelleikari og Gunnar Eyjólfsson leikari munu flytja tón- verkið Job eftir norska tónskáldið Egil Hovland í Kristskirkju á sunnu- dag kl. 17. Verkið er samið 1970 og er fyrir orgel og upplestur úr Jobs- bók. Selma Guðmundsdóttir pí- anóleikari heldur tónleika á vegum Tónlistarskóla Akraness í Vlna- minni á Akranesl á laugardag kl. 15. Á efnisskrá eru verk eftir Jón Leifs, Pál isólfsson, Franz Liszt, Fredric Chopin og Leos Janacek. Mánudaginn 30. mars mun Selma flytja sömu efnisskrá ÍTónllstar- skólanum í Keflavík. Heiti Potturinn nefnistný- stofnaður jassklúbbur, sem opinn er í Duus-húsi við Fischersund á hverju sunnudagskvöldi, þar sem leikin verður lifandi jass-tónlist. Dansk-íslenskur jass. Danski trompetleikarinn Jens Wlnther, sem er sólóisti í þekktustu stórsveit Evrópu, Radioens Big Band, mun ásamt þeim Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara, Tóm- asl R. Einarssyni kontrabassa- leikara og Gunnlaugi Briem trommuleikara halda tónleika í Heita pottinum í Duus-húsi við Fisc- hersund á mánudag kl. 21.30. Jens Winther hefur leikið með fjölmörg- um hljómsveitum, og síðustu árin hefur hann verið með eigin kvintett, sem hlaut 2. verðlaun í keppni al- þjóöajass-sambandsins. Menningarmiðstöðin í Gerðubergi heldurtónleikaá sunnudag kl. 15. Sr. Gunnar Björnsson mun þá flytja svítu fyrir einleiksselló eftir J. S.Bach. Ág- ústa Ágústsdóttlr sópransöng- kona syngur Fimm söngva eftir Ric- hard Wagner við Ijóð eftir Mathilde Wesendonk og undirleik Vllhelm- fnu Ólafsdóttur píanóleikara. Þá flytja þau einnig Tvo söngva fyrir altrödd og lágfiðlu eftir Jóhannes Brahms. Guðni Franzson klarínettu- leikari og Þorstelnn Gauti Slg- urðsson píanóleikari haldatón- leika í Norræna húslnu á þriðjudag kl. 20.30. Fluttverðaeinleiksverek fyrir klarinettu eftir ítalska tón- skáldið Luciano Berio, Ingvar Lid- holm frá Svíþjóð og Hollendinginn Rudolf Escher, en þeir eru allir meðal virtustu tónskálda samtím- ans. Þá verðurflutt verkið Premiére Rhapsodie eftir Debussy og Són- ataop. 120nr. 1 fyrirklarinettuog píanó eftir Jóhannes Brahms. HITT OG ÞETTA Átthagasamtök Héraðs- manna halda kaffiboðfyriraldr- aða Héraðsmenn í Furugerði 1 kl. 14 á laugardag. Félagsvist. Ná- grannatríóið syngur með gítarundir- leik. Hana nú. Vikuleg laugar- dagsganga frá Digranesvegi 12 kl. 10. Samvera, súrefni, hreyfing, vor- ið nálgast óðum. Allir velkomnir. Styrktarfélag vangefinnaheld- ur aðalf und sinn 7Bjarkarási á laug- ardag kl 14. Venjuleg aðalfundar- störf. Kvikmyndasýningar MÍR. Á sunnudag verður sovéska kvik- myndin „Mimino“ sýnd í bíósaln- um að Vatnsstíg 10. Myndin er frá 1977, leikstjóri Georgí Danelía, einn kunnasti leikstjóri Sovétríkj- anna. „Hvernig skilgreina norrænir karlmenn sjálfa sig?“ Ingibjörg Hafstað mun svara þessari áleitnu og spennandi spurningu í laugar- dagskaffi Kvennalistans á hótel Vík á laugardag kl. 14. Allir velkomnir. Námsstefna um sifjaspell verður haldin á Árnagarði, stofu 301 á laugardag kl. 14 á vegum nema í félagsráðgjöf við Háskóla íslands. Frummælendur verða Inga Huld Hákonardóttir, séra Ólaf Odd Jónsson, Högni Óskarsson geðl- æknir og Guðrún Jónsdóttir fél- agsráðgjafi. Flugfélagið ERNIR ÍSAFIRÐI Áætlun frá ísafirði til: Suðureyrar Flateyrar Ingjaldssands Þingeyrar Bíldudals Patreksfjarðar. Til Reykjanes og annarra staða í Isafjarðardjúpi eftir þörfum. Bílaleiga í Reykjavík og á (safirði Útvegum einnig bíla á alla staði sem flugfélagið hefur flugáætlun til, með dags fyrirvara. Leigu-, fragt og sjúkraflug. Sími 94-4200 Tónlistarhátíð ungra einleikara á Norðurlöndum verður haldin í Reykjavík 23.-30. okt. 1988. Há- tíðin er haldin á vegum Tónlistarháskólaráðs Norðurlanda. íslenskum einleikurum, einsöngvurum og sam- leiksflokkum gefst kostur á að taka þátt í hátíð- inni. Samnorræn nefnd velur endanlega úr umsókn- um, en forval fer áður fram í hverju landi fyrir sig. Þátttakendur mega ekki vera yfir þrítugt (söngv- arar 35 ára). Umsóknarfrestur er til 1. júní 1987. Umsóknareyðublöð verða afhent og allar nánari upplýsingar gefnar í Tónlistarskólanum í Reykja- vík. Auglýsið í Þjóðviljanum Föstudagur 27. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.