Þjóðviljinn - 27.03.1987, Síða 22

Þjóðviljinn - 27.03.1987, Síða 22
ORD I EYRA 7 Axlabönd handa Ola og gamlar verjur Til er skemmtileg saga af Sig- urði heitnum Guðmundssyni skólameistara á Akureyri. Sig- urður átti vanda til að vera ákaf- lega viðutan þegar hversdagslífið og skyldur þess voru annars veg- ar. Sagan segir frá því að kona Sig- urðar bæði hann einhverju sinni að fara í bæinn og kaupa í leiðinni ný axlabönd handa Ólafi syni þeirra. Skólameistari arkaði af stað og var alráðinn í því að gleyma ekki erindinu. Til að festa það sér í minni tautaði hann sífellt fyrir munni sér: - Axlabönd handa Óla. Axlabönd handa Óla. Axla- bönd handa Óla. Og þannig hélt skólameistari áfram á leið í bæinn. En sá var siður Sigurðar skólameistara að leita sér til skemmtunar að rím- orðum, svo að hann tók að tauta setninguna og bæta við rímorði: - Axlabönd handa Óla - stóla. Axlabönd handa Óla - stóla. Þegar í bæinn kom vatt skóla- meistari sér kampakátur inn í fyrstu verslun sem á leið hans varð og sagði glaður í bragði: - Ég ætla að fá fjóra stóla. Eitthvað svipað þessu telja menn að hafi komið fyrir Þor- stein Pálsson um daginn þegar hann tók af skarið í Albertsmál- inu. Álitið er að eftir fundahöld í fílabeinstumum frjálshyggjunnar hafi menn komist að þeirri niður- stöðu að Þorsteini bæri að bjóða Albert að sitja áfram í náðum þessar fimm vikur eða svo sem eftir em af ráðherradómi hans gegn því að hann viki af fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins. Þorsteinn fór svo af stað til að koma þessum skilaboðum á framfæri við þingflokkinn, fjöl- miðla og Albert sjálfan tautandi fyrir munni sér: Albert í ráðherr- astól - Albert af lista. Albert í ráðherrastól - Albert af lista. En síðan telja menn að á leiðinni hafi komið slinkur á jeppa fjármálaráðherrans og við það hafi hann farið að tauta: Al- Ingvi Hrafn: (einlægni, Þorsteinn, eru þetta ekki bara gamlar verjur? bert úr ráðherrastól - Albert á lista. Að vísu skal það viðurkennt að til em menn sem ekki telja þessa skýringu á því tiltæki Sjálfstæðis- flokksins að reka Albert í fjörtíu daga en ráða hann til fjögurra ára nógu skynsamlega - en þeir hinir sömu menn hljóta þó að viður- kenna að aðrar skynsamlegri skýringar á uppátækinu fyrirfinn- ast ekki. Enda virðist skynsemin ekki svífa yfir vötnunum um þessar mundir. Á seinni sáttafundinum sem Albert: f fjömtíu daga útlegð til að byggja upp siðferðisþrek fyrir fjögurra ára þingmennsku. Yngvi Hrafn fréttastjóri Sjón- varpsins hélt í deilu þeirra Þor- steins og Alberts í sjónvarpssal reyndi Helgi E. Helgason að spyrja Þorstein Pálsson að því, hvort ekki væri hægt að rekja upphaf þessa ósamkomulags til þess er Albert studdi Gunnar heitinn Thoroddsen til að mynda ríkisstjóm í blóra við flokkseig- endafélagið í Sjálfstæðisflokkn- um. Nú er Helgi af kratakyni og hættir til að stuða stórhöfðingja úr Sjálfstæðisflokknum með takt- lausum spurningum, svo að Þorsteinn: Alls ekki gamlar væringjar! fréttastjórinn tók sjálfur að sér að þýða spurninguna á kurteist mál fyrir formann sinn Þorstein Páls- son. í þýðingu Yngva Hrafns sátta- semjara hljóðaði spumingin svo: - Þorsteinn, í einlægni sagt, em þetta ekki bara gamlar verjur? Svar formannsins var ekki síður skynsamlegt en spurningin: - Nei, ég get fullvissað ykkur um að þetta eru ekki gainlar vær- ingjar. Ér ekki kominn tími til að skólar landsins verði opnaðir á nýjan leik? 'ALÞÝÐUBANDALAGHD* Hafnarfjörður Bæjarmálaráðsfundur Fundur verður í bæjarmálaráði laugardaginn 28. mars kl. 10.00 í Skálanum, Strandgötu 41. Fundarefni: 1) Staðan í umhverfis- og náttúruverndarmálum, Jóhann Guðjónsson formaður gróðurverndarnefndar og Erling Ólafsson fulltrúi í náttúruverndarnefnd reifa málin. 2) Staðan í bæjarmálunum: Magnús Jón Árnason. 3) Vegamót: Lúðvík t Geirsson. 4) önnnur mál. Félagar fjölmennið og mætið stundvíslega. - Stjórnin. Alþýðubandalagið Reykjavík Morgunkaffi hjá 2. deild 2. deild ABR heldur félagsfund að Hverfisgötu 105, laugardaginn 28. mars kl. 11.00. Álfheiður Ingadóttir mætir á fundinn. Fjölmennum. - Stjórnln. Jóhanna Guðrún Alþýðubandalagið Reykjavík Opið hús á sunnudaginn Opið hús verður í Kosningamiðstöðinni á Hverfisgötu 105 frá kl. I4 á sunnudaginn og næstu sunnudaga. Frambjóðendur G-listans i Reykjavík sitja fyrir svörum og boðið verður uppá ýmsa skemmtan. Á sunnudaginn situr Guðrún Helgadóttir alþm. fyrir svörum og kl. I6.00 mun Jóhanna Linnet söngkona syngja nokkur lög við undirleik Arnar Magnússonar. Allir velkomnir. ABR. Alþýðubandalagið Hafnarfirði Hafnfirðingar! Opið hús og kosningavinna í Skálanum, Strandgötu 41, á laug- ardag frá kl. I4.00. Mætum öll og skoðum í kjörskrár - spjall - kaffi - meðlæti og skemmtun. Fjölmennum. Síminn á skrifstof- unni er 54171. Stjórnin. Vestfirðir Kosningaskrifstofan í Hæstakaupstað, Aðalstræti 42, ísafirði, er opin allan daginn. Sími: 94-4242 og -4298. Kosningastjóri er Gísli Þór Guðmundsson. Alltaf heitt á könnunni. Kosningamiðstöðin Reykjavík Kosningamiðstöðin er að Hverfisgötu 105. Þar er opið alla virka daga til kl. 22.00 á kvöldin. Á laugardögum kl. 10- 18ogásunnudögum kl. 14-18. Síminn er 17500. Kíkið inn og fáið ykkur kaffi og styrkið kosningastarfið með kaupum á happdrættismiðum. KOSNINGASKRIFSTOFUR Vesturland Alþýðubandalagið Utankjörfundarkosning Utankjörfundarskrifstofa Alþýðubandalagsins er að Hverfisgötu 105. Ópið frá kl 9 á morgnana og fram eftir á kvöldin. Síminn er 91-22335 og 91-22361. Símsvari 91-623484. Norðurlandskjördæmi vestra Hvammstangi: Kosningaskrifstofan er að Spítalastíg 16. Opið virka daga frá kl. 20.30 - 21.30 og um helgar frá kl. I5 -18. Síminn er 95-1460. Lítið inn eða hafið samband. Blönduós: Kosningaskrifstofan erá Aðalgötu 1 sími 95-4561. Opin frá kl. 15 -18 alla daga nema laugardaga. Starfsmaður er Þorleifur Ingvarsson. Norðurlandskjördæmi eystra Aðalkosningaskrifstofan er á Akureyri í Lárusarhúsi, Eiðsvalla- götu 18. Opið alla virka daga frá kl. 9-12 og 13-18. Síminn er 96-25875 og -27413. Kosningastjóri er Gunnar Helgason. Fra- mlögum veitt móttaka á skrifstofunni og á tékkareikning nr. 8790 í Alþýðubankanum Akureyri. Suðurland Aðalkosningaskrifstofan er að Sigtúni 1 Selfossi (gamla Iðn- skólanum). Opnunartími er alla virka daga kl. 14 -19. Síminn er 99-1006. Kosningastjóri er Guðvarður Kjartansson. Alla laugar- daga fram að kosningum er opið hús í kosningamiðstöðinni kl. I4 - 17. Frambjóðendur verða á staðnum. VESTMANNAEYJAR: Kosningaskrifstofan er á Bárugötu 9 (Kreml). Fyrst um sinn verður skrifstofan opin sunnudaga- mánudaga og föstudaga frá kl. 16-18. Síminn er 98-1570. Aðalkosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins á Vesturlandi er í Rein á Akranesi. Skrifstofan verður opin fyrst um sinn mánu- daga kl. I5 -19, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 16-19, föstudaga frá kl. 15 -19 og laugardaga frá kl. 13 - 17. Síminn er 93-3174 og -3175. Austfirðir Aðalskrifstofa Alþýðubandalagsins í Austurlandskjördæmi er á Reyðarfirði, Heiðarvegi 22, neðri hæð. Opið alla virka daga frá kl. 10-18 og á kvöldin frá kl. 20-22. Um helgar fyrst um sinn frá kl. 14-17. Síminn er 97-4361. Kosningastjóri er Jóhanna III- ugadóttir, heimasími: 97-4377. Alltaf heitt á könnunni. FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Kosningaskrifstofan er á Búðavegi 6. Sími 97-5444. Opið á fimmtudagskvöldum frá kl. 20.00 fyrst um sinn. Neskaupstaður: Kosningaskrifstofan er að Egilsbraut 11. Sími: 97-7571 og -7804. Öpið milli 15-17 fyrst um sinn. Kosningastjóri er Lilja Huld Auðunsdóttir. Egilsstaðlr: Kosningaskrifstofan er að Selási 9. Sími 97- 1425. Skrifstofan er opin milli kl. 20 - 22 um helgar. HÖFN í HORNAFIRÐI: Kosningaskrifstofan er á Hafnarbraut 26 (neðri hæð). Opið frá kl. 17-19.30 og 20-22 virka daga og 13-19 um helgar. Síminn er 97-81426. G-listinn Reykjanesi Aðalkosningaskrifstofa G-listans í Reykjaneskjördæmi er í Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi. Þar er opið alla virka daga frá kl. 10.00-19.00. Alltaf heitt á könnunni og starfsmennirnir Valþór, Asdís, Helgi og Unnur til þjónustu reiðubúin. Símarnir eru 41746 og 46275. Þá hefur einnig verið opnuð kosningaskrifstofa í Keflavík, að Hafnargötu 34. Síminn þar er 92-4286. - G-listinn Reykjanesi. Hafnarfjörður: Kosningaskrifstofan er í Skálanum, Strand- götu 41. Opið alla virka daga frá kl. 17.00 og um helgar frá kl. I4.00. Síminn er 54171. Keflavík- Suðurnes: Kosningaskrifstofan erað Hafnargötu 34 í Keflavík. Síminn er 92 -4286. ‘22 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 27. mars 1987 Ji

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.