Þjóðviljinn - 16.04.1987, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 16. aprfl 1987 89. töiublað 52. árgangur
Verðbólgan
Skriðan farín af stað
Verðbólgumarkmið ríkistjórnarinnarfallið um sjálftsig. BirgirÁrnason, hagfrœðingur: Fyrirséð með að verðbólga á
árinufari nokkuð yfir20%. Gífurlegurfjárlagahalli ríkissjóðs helsta orsökin.
Hallinn gœti hœglega orðið 4-5 miljarðar á árinu
Boltinn er þegar farinn að rúlla
og hann vindur hratt uppá
sig. Það virðist ijóst að verðbólga
á árinu fer nokkuð yfir 20% og
þar af leiðandi iangt umfram þær
spár sem gerðar hafa verið, að
ekki sé talað um verðbólgumar-
kmið ríkisstjórnarinnar. Þar er
fjárlagahaili ríkissjóðs helsta ors-
ðkin. Sá mikli halli sem þegar er á
fjárlögum, gerir vonir manna við
þetta 10-15% verðbólgu á árinu
að engu, sagði Birgir Árnason,
hagfræðingur á Þjóðhagsstofn-
un.
„Fjárlög voru samþykkt með 3
miljarða halla og síðan hafa ýms-
ar útgjaldaákvarðanir verið tekn-
ar sem auka þennan halla veru-
Akranes
Kosid
um Höföa
Þegar Akurnesingar ganga til
alþingiskosninga 25. aprfl munu
þeir einnig taka afstöðu til þess
hvort þeir eru reiðubúnir að taka
á sig 5% álag á útsvar á aðstöðu-
gjöld til næstu fimm ára til fjár-
öflunar fyrir 2. áfanga Dvalar-
heimilisins Höfða.
Gunnlaugur Haraldsson, for-
maður fjáröflunarnefndar dval-
arheimilisins, sagði í gær að þetta
væri geysilega mikilvægur liður í
fjáröflun framkvæmda við Dval-
arheimilið.
„Það hefur lengi verið áhug-
amál okkar að koma 2. áfanga
heimilisins í gagnið, en það hefur
alltaf strandað á fjárskorti. Nú er
von til þess að dæmið gangi upp
og við getum hafið framkvæmd-
ir,“ sagði Gunnlaugur.
-gg
lega. Þar á meðal má nefna niður-
greiðslu á landbúnaðarvörum,
greiða verður stórar fjárhæðir
vegna taps Útvegsbankans og
það þarf að borga úr ríkissjóði
nýsamþykktar launahækkanim-
ar. Þegar upp verður staðið má
alveg eins gera ráð fyrir að hall-
inn nemi 4-5 miljörðum, sagði
Birgir.
Hann benti á að vitanlega
skipti máli hvaða peningastefnu
stjórnvöld framfylgdu tii að mæta
ríkishallanum. En það væri ekki
um marga kosti að velja.
„Það er fyrir hendi að auka
álögur á fólk, eða að prenta seðla
og/eða taka erlend lán til að vega
upp á móti hallanum. Hvorugur
kosturinn er fýsilegur. Ef á að
taka eitthvað eitt út úr, sem leiðir
til aukinnar verðbólgu, þá er það
hallinn á ríkissjóði. Þenslan í
samfélaginu er nógu mikil fyrir
vegna góðærisins, að það er ekki
á bætandi að reka ríkissjóð með
halla,“ sagði Birgir Ámason.
-RK
Ungir stuðningsmenn G-listans í Reykjaneskjördæmi fóru i fríðum hóp á
stærsta langferðabíl landsins um kjördæmið í gær og heilsuðu upp á nemendur
í framhaldsskólum á Reykjanesi og buðu upp á kappræður við unga íhalds-
menn og krata. Fyrir skömmu skomðu stuðningsmenn Alþýðubandalagsins á
ungliða fhalds og krata f Reykjanesi f kappræður en báðir flokkamir guggnuðu
og því var tekið það ráð að sækja menn heim f skólana, en þessa mynd tók E.ÓI
í gær þegar G-listahópurinn leit við í Flensborgarskóla f Hafnarfirði.
Vérkamannabústaðir
Stórsvik hjá ríkisstjóminni
Vantar250 miljónir í Byggingasjóð verkamanna til uppfylla loforðin
fráþvííjólaföstusamningunum. Sigurður T. Sigurðsson varaformað-
urfulltrúaráðs verkalýðsfélaganna íHafnarfirði: Bærinn lagðisitt
fram til að byggja 70 íbúðir, ríkið skar þœr niður í 30
að var hluti desembersam-
komulagsins að 200 miljóna
aukning yrði á höfuðstóli Bygg-
ingasjóðs verkamanna. Við hér í
Hafnarfirði vitum ekki til að
þetta hafi verið borgað. Lífeyris-
sjóðirnir hafa fyllilega staðið við
sinn hluta samkomulagsins um að
kaupa skuldabréf fyrir 55% ráð-
stöfunarfjár síns. Rflrisvaldið hef-
ur að því að mér skilst, greitt um-
saminn hluta sinn fyrir árið 1987,
en það sem það lofaði að greiða í
sjóðinn fyrir 1986 vantar hins
vegar alveg og vegna þessara
svika vantar nú með vöxtum og
verðbótum a.m.k. 250 mfljónir
króna, sagði Sigurður T. Sig-
urðsson varaformaður fulltrúa-
ráðs verkalýðsfélaganna ■ Hafn-
arfirði við Þjóðvfljann.
„Ég get ekki betur séð en þetta
fé hafi horfið inn í ríkissjóð aftur.
Fulltrúaráðið samþykkti ályktun
um þessar vanefndir ríkisvaldsins
vegna þess ástands sem ríkir í
húsnæðismálum í Hafnarfirði, en
þar vantar um 150 íbúðir og er
þetta bein afleiðing stjórnar
bæjarstjórnaríhaldsins sem hér
réði ríkjum áður.“
Meirihluti Alþýðubandalags
og Alþýðuflokks í Hafnarfirði
hefur veitt framlög til byggingar
70 íbúða í verkamannabústaða-
kerfinu þar í bæ í ár en vegna
stórskerts framlags ríkissjóðs í
byggingasjóð verkamanna er að-
eins hægt að reisa 30 íbúðir í ár.
Sigurður sagði mikla reiði vera í
Hafnarfirði vegna þessara svika
enda væru mörg dæmi þess að
fjölskyldur væru tvístraðar vegna
húsnæðiseklu í bænum og byggju
í sitthverju bæjarfélaginu.
-sá.
ísland
Heimsmet
Engin þjóð f heiminum vinnur
jafnlangan vinnudag og íslend-
ingar, samkvæmt nýrrí athugun
sem Alþjóða vinnumálasamband-
ið kunngjörði í gær.
íslendingar vinna að meðaltali
48.6 stundir í hverri viku en það
jafngildir rúmlega 6 daga dag-
vinnu f hverri viku. Þetta er 10-20
klukkustunda lengri vinnuvika
en þekkist á meginlandinu.
Þær þjóðir sem komast næst ís-
lendingum í vinnuþrældómi eru
Asíulönd eins og Japan, Kórea
og Singapore en ekkert þessara
landa kemst þó nálægt íslandi
hvað meðal vinnutíma snertir.
íslenskir karlmenn vinna tölu-
vert meira utan heimilis en konur
eða tæpar 50 klstm en konumar
vinna að jafnaði um 45.5 tíma í
hverri viku utan heimilis.