Þjóðviljinn - 16.04.1987, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 16.04.1987, Blaðsíða 16
Borgarstarfsmenn Alveg æflrút í Davíð Mikil reiði og gremja er meðal borgarstarfsmanna út í vinnubrögð borgarstjóra. Samþykkt að ógilda atkvœðagreiðsluna. „Óskaplegt klúður hjá meirihlutanum og sýnir vel vinnubrögð hans, “ segir Sigur- ján Pétursson borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins BSRB Vinnuhrögð fordæmd Stjórn B.S.R.B. lýsti í gær yfir fuUum stuðningi við Starfs- mannafélag Reykjavíkurborgar í deUu þess við borgaryfirvöld. Bandalagsstjórnin fordæmir þau vinnubrögð borgarráðs Reykjavíkur að breyta einhliða undirrituðum kjarasamningi sem félagsmenn í Starfsmannafélagi Reykjavíkur voru að greiða at- kvæði um á þeim degi sem borg- arráð breytti honum einhliða. Framkoma borgarráðs er alvar- legt brot á þeim grundvallarregl- um, sem samtök launafólks gera kröfu til að atvinnurekendur fari eftir í samskiptum við stéttarfé- lög launamanna. Stjóm B.R.S.B. lýsir fullum stuðningi við aðgerðir Starfs- mannafélagsins og einstaka starfshópa innan þess til að mót- mæla shícum vinnubrögðum. grh. Mikil reiði og gremja ríkir í garð borgarráðs hjá félögum í Starfsmannafélagi Reykjavíkur vegna einhliða breytinga ráðsins í fyrradag á kjarasamningi borg- arinnar við félagið. Allur akstur strætisvagna lagðist niður í borg- inni í gær og ýmsar borgarstofn- anir voru hálflamaðar. Mikil ólga var víða og ma. var brunavörðum meinað að sækja fund starfs- mannafélags borgarinnar í gær. Á fundinum í gær var sam- þykkt áð ógilda atkvæðagreiðsl- ima um nýgerða samninga sem fram fór fyrr í vikunni og fara fram á nýja atkvæðagreiðsluna. Einnig var samþykkt að fara fram á nýjar viðræður við borgaryfir- völd yrði samningurinn felldur í nýrri atkvæðagreiðslu, svo fljótt sem auðið yrði. Ef það gengi ekki að mati stjórnarinnar þá yrði boðað til atkvæðageriðslu innan félagsins um boðun vinnustöðv- unar hjá borginni. Báðar þessar tillögur voru samþykktar af þorra fundarmanna, án 'mótat- kvæða. Mikil gremja var hjá fundar- mönnum í garð Davíðs Odds- sonar borgarstjóra yfir þeirri yfir- lýsingu hans sem birtist í frétta- tíma ríkisútvarpsins í gær í hádeg- inu að reynd hefði verið til þrautar að ná samningi við Starfs- mannafélagið um að bæta kjör kvenna hjá borginni en það hefði ekki tekist. Lýstu fundarmenn yfir furðu sinni á þessum ummæl- um. Að sögn Sigurjóns Péturssonar borgarráðsfulltrúa Alþýðu- bandalagsins kom aldrei annað til greina en að samþykkja þessar hækkanir og ekki til álita að sitja hjá. „En við hjá minnihlutanum höfum aldrei verið hafðir með í ráðum um samninga borgarinnar við Starfsmannafélagið. Launamálanefnd borgarinnar tók ekki þátt í samningsgerðinni nú og þeirri sem gerð var á undan. Öll þessi framkvæmd kemur að ofan, eins og allt annað sem þessi borgarstjórnarmeiri- hluti hefur tekið sér fyrir hendur. Við höfum aðeins tekið við gerð- um hlut. En eins og á þessum málum hefur verið haldið er þetta óskaplegt klúður og kemur mér ekki á óvart að þeir séu heitir í Starfsmannafélaginu,“ sagði Sig- urjón Pétursson. grh. Starfsstúlkurnar í mötuneyti Pósts og síma eru mjög óánægðar með launakjör sín, en þær tá nú 27.000 krónur í mánaðarlaun. Mynd Sig. Láglaunastefnan Kaupið er grátlega lágt Starfsstúlkur í mötuneytum Pósts og síma: Fáum 27.000 krónur í laun á mánuði, þráttfyrir háan starfsaldur og erfiða vinnu. Mikil óánægja með launakjörin. Viðrœður um fastlaunasamninga í gangi að rfldr mikil óánægja með launakjör hér, þessar konur hafa margar hverjar unnið hér í fjölda ára, og þar áður inni á heimilunum, en fá það ekkert metið og eru alltaf á lægstu launum, 27.000 krónum, sagði ein staifsstúlknanna í mötuncyti Pósts og síma í Ármúla í samtali við Þjóðviljann, í mötuneytinu starfa fimm starfsstúlkur, auk matreiðslu- manns, við matreiðslu fyrir 150 manns og sögðu þær vinnuna bæði erfiða og illa borgaða. „Það er hrein skömm að þessu,“ sagði ein þeirra. „Við fáum engar starfsaldurshækkanir, hér er mikil hætta á vinnuslysum, og kaupið er grátlega lágt. Svona er þetta í öllum mötuneytum Pósts og síma. Þegar ekkert er komið til móts við fólkið þá verður það eðlilega mjög hvekkt.“ Starfsfólk í þessum mötuneyt- um er í Verkakvennafélaginu Framsókn sem semur fyrir þeirra hönd við ríkisvaldið. Að sögn Stellu Guðnadóttur, starfsmanns Framsóknar, eru nú í gangi við- ræður við ríkið um fastlauna- samninga. Stefnt er að því að þeir verði á svipuðum nótum og þeir samn- ingar sem hafa verið gerðir við mötuneytisstarfsfólk sem starfar hjá Reykjavíkurborg, það er að segja, að komið verði á starfsald- ursþrepum og að yfirvinna verði 1% af dagvinnulaunum. -vd. Ólafsfjörður Slegist uin þorskinn Yfirborganir undir borðið í stórum stíl „Við erum tveir hér á Ólafs- firði sem buðum í hluta af afla sem Sólbergið ÓF 12 kom með hingað um dagiann. Tilboð okkar hfjóðaði upp á 20% hærra verð fyrir fyrsta flokks þorsk og 10% hærra verð fyrir þorsk í öðrum flokki og átti allt að koma til skipta fyrir sjómenn og útgerð en þeir höfnuðu þvi hjá útgerðinni,“ segir Björn Valur Gíslason á Ól- afsflrði. Skýringin á því afhverju út- gerðin hafnaði boðinu er sú að allt átti að koma til skipta. En að sögn Björns er ástandið á Ólafs- firði þannig að boðið er 20% meira í þorskinn en opinbert verð segir til um en það er allt gert undir borðið og hirðir útgerðin mismuninn í eigin vasa en sjó- menn fá einungis samningsbund- ið skiptaverð. Sagði Björn vera mikið um yfirborganir fiskkaupenda til fiskseljenda fyrir þorskinn. Mest af þessum yfirborgunum fer undir borðið og kemur ekki fram til sjómanna heldur hirðir útgerð- in allt. Kemurþetta meðal annars fram í því að fiskkaupendur greiða löndunarkostnað og ísinn sem skipin taka og fría þannig út- gerðina öllum kostnaði en fá í staðinn allan fiskinn. Það væri jafnvel inni í dæminu að skip fengju ný veiðarfæri í staðinn fyrir aflann. Nýverið gerðist það að fisk- kaupandi á Dalvík keypti upp all- an kvóta Ólafsfjarðarbátsins Byr ÓF 58. Að sögn Bjöms væri það umhugsunarefni fyrir heima- menn á Ólafsfirði að í ff amtíðinni gæti það gerst að fjársterkir aðil- ar keyptu upp fiskkvóta heima- skipa og fæm með hann út úr byggðarlaginu til síns heima. Væri slík þróun mjög hættuleg fyrir afkomu fiskvinnslufólksins á Olafsfirði. grh.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.