Þjóðviljinn - 16.04.1987, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 16.04.1987, Blaðsíða 4
LEIÐARI Mannlegleikans kraftur Erfitt mundi þaö reynast að komast aö því með nokkurri vissu, hvernig landsmenn skilja og skynja hátíð eins og páska. Hvern sess hún á í vitund þeirra þessi margítrekaða píslarsaga á tím- um þegar vitundin er undir stöðugri skothríð upp- lýsinga, flestra lítilvægra, sem fyrst og síðast skilja eftir sig sljóleika, draga úr hæfileika manna til að bregðast við miklum tíðindum, hvað þá þeim tíð- indum sem hafa á sér eilífðarsvip. Allt um það - hvort heldur við erum trúmenn, hálfvolgir eða heiðnir, þá erum við aldir upp í landi þar sem kristnar hátíðir eiga sér langa og sterka hefð. Og þótt jólin séu sú hátíð sem fyrirferðar- mest verður í þjóðlífinu, þá eru það páskar sem komast næst því kristinna hátíða að verða áleitnarj við einstaklinginn, tengja hann við hinar miklu og erfiðu spurningar um hlutskipti mannsins á jörð- unni. Páskar minna á sig með mörgum hætti. Ekki bara vegna þeirrar uppfræðslu sem við flest höf- um hlotið eða vegna áhrifa mikillar listar- Passíu- sálma Hallgríms, Mattheusarpassíu Bachs eða altaristaflna eftir stærri og smærri meistara. Held- ur blátt áfram vegna þess hve jarðneskur, skiljan- legur og mikilvægur sá harmleikur er sem píslar- sagan af Jesú frá Nasaret greinir frá. Við vitum að í þessari sögu, sem Nýja testa- mentið fer með fjórum sinnum, má finna ýmsar þverstæður, með lærdómi má greina sundur í þeim frásögnum ýmis „lög“ og opna með því leiðir til mismunandi túlkunar á þeim atburðum sem lýst er. Fyrir nú utan þann trúarlega skilning á atburð- um sem lengst af hefur ráðið í okkar menningar- heimi og ýmisleg blæbrigði hans. En samt eigum við í píslarsögunni mikinn samnefnara í því sem höfðað getur til hvers og eins sem hefur ekki vísað frá sér spurningum um vonir manna um betra líf, um mannlega reisn í ósigri og þjáningu, um vænt- ingar og vonbrigði þeirra manna sem hrífast af stórfenglegri hugsjón. Allt er fjarlægt og allt er nálægt. Við lesum í þessari sögu um bjartsýna en ístöðulitla læri- sveina sem ekki geta haldið vöku sinni þegar mest liggur við. Við finnum þar Júdas sem svíkur sinn meistara fyrir stundarhag. Við skoðum flókið valdatafl höfðingja Gyðinga við handlangara heimsveldisins, risaveldis fornaldar, valdatafl sem um stund er truflað af óvelkominni og lítt stofuhæfri hreyfingu farandprédíkarans frá Nas- aret. Við sjáum og heyrum ráðvilltan lýð, sem kallar eitt í dag og annað á morgun. Við vitum þó fyrst og fremst af reisn þess manns, sem hefur fundið sannleika sem mikils er um vert og bliknar ekki frammi fyrir hásæti hins grimma valds. Eins þótt við vitum líka af angist hans og einsemd, óumflýjanlegum, mennskum ótta þess sem veit að hann mun verða að þola kvalafullan dauðdaga. Og hvort sem menn trúa eða ekki á framhald píslarsögunnar, upprisuna, þá vita menn með sjálfum sér, að sú frásögn táknar aldrei minna en von um réttlæti í sögunni, það réttlæti að ágætur málstaður lifi þótt boðberi hans verði að láta líf sitt. Þessi saga er of mikil, mennsk og markverð til að hún geti orðið sjálfsagður hlutur, hvort sem kirkjurnar sjálfar upplifa hana sterkt eða leggja yfir hana vélrænt andleysi. Einhversstaðar er hún lífs með okkur sem hana höfum heyrt. Fáir hafa lýst þeirri vitneskju betur en Jóhannes úr Kötlum í kvæði sínu um Jesús Maríuson, sem hann kallar besta bróður sinn, eins þótt hann hafi margt mis- gjört við hinn krossfesta : En hvað svo sem ég geri er hann mín eina hlíf þá hrynur neðsta þrepið því hvað oft sem hann deyr þá er eftir eitthvert líf sem enginn getur drepið. Og Jesús sonur Maríu mætir oss eitt kvöid sem mannlegleikans kraftur: æ vertu ekki að grafa honum gröf mín biinda öld - hann gengur sífellt aftur. -áb KLIPPT OG SKORHD Þorsteinn Pálsson um bréf Jóns Magnússonar; Fjárhagsmál einstakl- inga eru friðhelg Nema þau bijóti I bága við lög og það er ekki fyrir hendi „ÞKTTA bréf breytir eingu, sagðí Þorstcinn PAIsson fjár- m&laráðherra, en honum hefur borbrt bróf frá Jóni Magnússj-ni hdl, þar wm óakað «r eftir «ipp- iýsínjfinn ttm lAnveítingar úr sjóðí sem fjármábtráðlieri a rteður yfir. til HoMvarðs Einvorðssomvr rfklsaaksóktiant. „Ég lýstí þeirri skoðun minní í g«>r að eldd vferi tíitrfni tii oð hirto neína nofna- lísta. FjárhogatnáJefni einstokl- inga eni friðhetg nema þou brjóti I bága við liig ogr það er ekki fyrir hendi. Þe»s vegno írtendiir þeasi ákvörðun mln ðhögguð,* „Ég Jwf verið í vfiikimiafríi þessa daganna og þekki þvj ekkí efní þesaa brðfs,*- sagðí HailvBrður Eínvarðs- son rlkísaaksðknan þegar bréf Jóns Magnússonur hdl til Qármáfaráð- herra var borið undir hann. „Þetto erihdi «• stflað til fjármálaráðherra og artli hann avari þvt ekkt. Ég get. ekki eéi hvemig þes«í mál trngjast nema verfð sð reyna að gcra störf mln tortryggileg í dnhveijum ðljós- um sambömium.“ Þorsteínn Ceiresor, ráðuneylifi- stjðri f dómsmálaráðurK-ytinu sttgð; að Haltvárftar Einvafbgeort 'héSH fengið iánfrá Afberti Guðmundssyni þáverandi fjármálaráðlterra löngu áður en Ha£tikif»milið kom upp. „Þ/vð er þvf úr lattsu foftí gripið að j.uið geti spiiað nofdtuð itw 6. hans hæfi eða vanhœft aem saksóknara í máiinu,” sagði Þorstemn. JmvIíí »já menn það þegar málið er htig- leitt að það er heift emhfetti aem . verður ttndan að iáth þvf Hahvorður er ekki einn að vinn uA Jh>«su ntáii : og alveg út {liött «ð hann eða oðr- ir fögfrseðingar tsem vír.na að því séu meðeinhverja greíðasem't, Þettá líggur alit á Uirðinu og fer fyrir dómstðla og már fmnat þvf litílsvert «ð tnenri aéu að velta fyrír sðr hvort Hailvarður cigi að vikja aæli cAa ekki. Það verftnr dómstólanna oð skera úr irni." f bréfi Jóns Magr.ússonar tJJ Þor- íteins PáJssonar fjármáJaráðfierro segin „Meðfyigjandi er bréf dags. 21. janúar 1987 sern »ent var rfltis- sakáóknara og dðmamálaráðherra, þar aem farið var fram A, að tíkis- aaksóknari viki s»ti i málu umbjóð- anda mlns, Ragnars Kjartanwtonar, sem lýtiir að meintit broti liana tcngt avoneffldu Hafskjpsmáli. K>irri krhftt var haínáð. Kú he.fur ríldssaksóknari gvfifl út ákæm á hendur umbj^ ;.ða mlmmt og fleirum vegna máifcú^:. Vtð meðferð málsins fyrir dómi Reykjavíkur mun ég krefyut frávfaunar málsina Vogua þeirrai frávísunarkTiifu er nauðaj'nlegt. u6 fá scm iWístor uppiýaingar fyrirfram um tongsl rikissakaðkriora við alia aðfla setn máJinu tengjast Þetta er nauðsynlegt vegna kröfu um ppírt- iwra í Vorhreingerning Pað er vorhreingerning í fjár- málaráðuneytinu. Nýr vöndur kom þar inn fyrir dyr á miðju kjörtímabilinu. Og núna loksins er hann farinn að sópa. Sagt er að nýir vendir sópi best. En hreingemingunni er ekki lok- ið, svo að ennþá er ekki tímabært að gefa nýja vendinum einkunn fyrir ræstinguna. í augnablikinu sér ekki handa- skil fyrir ryki, sem nýi vöndurinn hefur þyrlað upp. Hamagangurinn er svo mikill að það er meira að segja ógerlegt að sjá hvort þama er raunveru- lega verið að gera hreint, eða hvort nýi vöndurinn er að skemmta sér við að þyrla upp ryki, svo að allir haldi að hann sé að keppast við að koma öllu í röð og reglu. Þorsteinn Pálsson fjármálaráð- herra og iðnaðarráðherra og for- maður Sjálfstæðisflokksins hefur dregið að sér meiri athygli fólks og fjölmiðla á undanförnum vik- um heldur en á samanlögðum ráðherraferli sínum áður en vor- hreingerningin hófst. Siðferðilegur ræstitæknir Vorhreingerningin hefur vakið gífurlega athygli. Kannski hefur hún vakið svo mikla athygli að fjárlagagatið hafi horfíð í ryk- mökkinn. Kannski er það þjóð- inni fyrir bestu að vera ekki að hafa áhyggjur af litlum 3000 milljóna fjárlagahalla á þessum björtu vordögum. Kannski er það best að þjóðin sé ekki að velta fyrir sér frammistöðu Þor- steins Pálssonar fjármálaráð- herra þessa stundina. Það em ekki afreksverk Þor- steins Pálssonar fjármálaráð- herra sem em mest til umræðu þessa dagana. Nú snýst umræðan um frammistöðu hins pólitíska og siðferðilega ræstitæknis Þorsteins Pálssonar formanns Sjálfstæðis- flokksins. Það er Þorsteinn Pálsson sjálf- ur sem hefur stýrt umræðunni á þessa braut. Viljandi eða óvilj- andi. Umræðan snýst ekki um 3000 milljón króna fjárlagahalla í blómstrandi góðæri; hún snýst ekki heldur um 1000 milljónir í Hafskipssukkið og fjörbrot Út- vegsbankans; hún snýst ekki um ógnvænlegar verðbólgu- og vaxtahækkanaspár; hún snýst ekki um ráðagerðir Sjálfstæðis- manna um hinn nýja virðis- aukaskatt að afstöðnum kosningum - hún snýst um allt aðra hluti. Viljandi eða óviljandi? Umræðan snýst um skatta- framtal Alberts Guðmunds- sonar; hún snýst um innanflokks- átök og klofning í Sjálfstæðis- flokknum; hún snýst um pólitíska framtíð Þorsteins Pálssonar. Hún snýst ekki um þjóðarhag, hún snýst ekki um ábyrga meðferð á fjármunum almennings. Hún snýst um valdatafl í Valhöll. Merkileg at- burðarás Merkileg atburðarás hefur nú orðið í vorhreingemingunni. Ræstitæknirinn Þorsteinn Páls- son hefur fundið lista á skrifborði Þorsteins Pálssonar fjármálaráð- herra. Sá listi er yfir ýmsa nauðþurftarmenn sem Þorsteinn Pálsson fj ármálaráðherra hefur hjálpað um lán úr lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna, en fyrir nokkr- um áratugum tóku fjármálaráð- herrar að sér að létta störf sjóð- stjórnarinnar og hjálpa henni við úthlutunarstörfin. Á þessum lista er líka að finna nöfn ýmissa val- inkunnra sæmdarmanna sem Al- bert Guðmundsson fyrrverandi fjármálaráðherra veitti sams konar fyrirgreiðslu og Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra hefur verið að veita. Á þessum lista er að finna hr. X innan um þá A,B,C,D og fleiri. Hr. X hefur tvisvar sinnum fengið 300 þúsund króna lán fyrir atbeina Alberts. Listinn yfir nauðþurftarmenn- ina er leynilegt plagg. Samt ekki leynilegra en svo að eitt nafn af listanum lekur út til fjölmiðla. Nafn hr. X. Það var enginn vegur að fyrir- byggja leka. Meira að segja lak það út hérna á dögunum í Helgar- póstinn að Albert Guðmundsson væri í vondum málum. Hr. X lét hafa það eftir sér í fjölmiðlum fyrir nokkru að Al- bert Guðmundsson væri „valin- kunnur sæmdarmaður”. Nú hefur það lekið út að hr. X standi í þakkarskuld við Albert Guðmundsson fyrir að hafa út- vegað lífeyrissjóðslán. Hvaðan kemur þessi leki? örugglega ekki frá Þorsteini Pálssyni fjármálaráðherra, því hann verst allra frétta, meira að segja þótt virtur lögfræðingur, flokksbróðir hans og svili, krefji hann sagna. Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra er þögull sem gröfin. Nema hvað hann kveðst vera hættur að úthluta lífeyris- sjóðslánum. Ábyrgur maður Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra. En hreingerningamaðurinn Þorsteinn Pálsson heldur áfram að sveifla kústinum í vor- hreingerningunni og rykmökkur- inn umlykur fjármálaráðuneytið. ■ Man nokkur maður lengur eftir fjárlagahallanum? Man nokkur lengur eftir Haf- skipssukkinu, sem valdið hefur valinkunnum sæmdarmönnum ómældu ónæði og leiðindum? Man nokkur eftir virðisauka- skattinum sem Þorsteinn Pálsson ætlar að sleppa lausum á þjóð- ina? Skilur nokkur maður upp né niður lengur í þessum djöflagangi sem er eins og strigapoki fullur af köttum sem eru að fljúgast á? Var það kannski meiningin? Er tilganginum náð? -Þráinn þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar útaefandl: Útgáfufélag Þjóðviljans. Rltstjórar: Ami Bergmann, Þrélnn Bertelsson, Össur Skarphéðinsson. Fréttaatjórl: Lúðvfk Geirsson. Blaðamann: Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, HrafnJðkulsson, HjðrleifurSvoinbjömsson, IngunnAsdisardóttir, Kristln Ólafsdóttir, Kristóter Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson (Iþróttir), Magnús H. Gíslason, Mðrður Amason, OlafurGlslason, Ragnar Karisson, SiguröurÁ. Friðþjófsson, StefónÁsgrfmsson, VII- borg Davlðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri). Handrlta- og prófarkalastur: Ellas Mar, Hildur Finnsdóttir. Ljósmyndarar: Einar Ólason. Sigurður Mar Halldórsson. Útlttatalknarar: Sœvar Guöbjömsson, Garðar Sigvaldason. Framkvesmdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir. Skritstofustjórl: Jóhannes Harðarson. Skrifatofa: Guörún Guövarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson. Auglýslngastjórl: Sigriöur Hanna Sigurbjömsdóttir. Auglýslngar: Baldur Jónasson.OlgaClausen, GuðmundaKristins- dóttir. Sfmvarsla: Katrin Anna Lund, Sigrfður Kristjánsdóttir. Húamóðir: Soffla Björgúlfsdóttir. Bflstjórl: Jóna Slgurdórsdóttir. Útbrelöslu- og afgrelðslustjóri: Hörður Oddfriðarson. Afgrelðsla: Bára Slgurðardóttir, Kristln Pétursdóttir. Innhelmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlaturBjömsson. Útkeyrsla, atgrelðola, rltstjóm: Sfðumúla 6, Reykjavfk, sfmi 681333. Auglýalngar: Sfðumúla 6, sfmar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmlðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Vorð f lausasðlu: 55 kr. Helgarblöð:60kr. Aakrlftarverð á mánuðl: 550 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 16. apríl 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.