Þjóðviljinn - 16.04.1987, Blaðsíða 9
Hvíta húsið
Heldur Hart
framhjá?
Forsetaframbjóðandinn Gary
Hart á í vök að verjast fyrir sögu-
sögnum um óamerískt einkalíf og
er getum að því leitt að keppi-
nautar hans hafi magnað gegn
honum þá Leitis-Gróu sem nú
breiðir út framhj áhaldsorðróm
um fylgismesta demókratann.
Hart lýsti yfir framboði sínu í
vikunni og segir orðróminn nú
sýna að andstæðingamir vilji ekki
mæta honum á vígvelli málefn-
anna.
Hart hefur verið kvæntur í 29
ár, skilið tvisvar við konu sína og
kvænst henni aftur í bæði skiptin.
ERLENDAR FRETTIR
Moskvufundirnir
Aðaritarinn trompar út
Kremlverjar reiðubúnir aðflytja skammdrægarflaugarfrá Evrópu á
einu ári og binda þetta samkomulagi um meðaldrœgarflaugar.
Bandaríska sendinefndin hissa. Shultz til Briissel í dag að hitta Natóráðherra
B
andaríski utanríkisráðher-
rann George Shultz flaug í
gær frá Moskvu eftir þriggja daga
heimsókn og heldur í dag fund
með utanríkisráðherrum og
sendiherrum Nató-ríkja í Bríiss-
el. Aðalumræðuefnið verður nýtt
afvopnunartilboð Kremlarbónd-
ans, sem í gær spilaði út nýju
trompi í langvinnri afvopnunar-
vist risaveldanna.
Gorbatsjof sagði Shultz að So-
vétmenn væru reiðubúnir til að
tengja saman samninga um með-
aldrægar flaugar og skammdræg-
ar með þeim hætti að skuldbinda
sig til að fjarlægja frá Evrópu all-
ar skammdrægar flaugar á einu
Ítalía
Kreppan í kjörkassana
Forseti öldungadeildarinnar myndar minnihlutastjórn. Scalfaro gafst upp á sam-
steypumunstri, Natta fékk ekki stuðning við tímamótastjórn. Kosið í júní
Amintore Fanfani hefur fengið
umboð til að mynda minni-
hlutastjórn i Róm og er gert ráð
fyrir að hún falli í þinginu og ítal-
ir síðan kallaðir að kjörborðinu í
júni. Lyki þarmeð, að minnsta
kosti í bili, einni skæðustu stjórn-
arkreppu í fjögurra áratuga sögu
ítalska lýðveldisins, en væntanleg
stjórn Fanfanis er hin 48. í Róma-
borg eftir stríð.
Fanfani sagðist í gær ætla að
sleppa öllum hefðbundnum við-
ræðum við flokksleiðtoga og vera
fljótur að koma saman stjórn-
inni, og er gert ráð fyrir að hann
kynni ráðherralistann fýrir
páska.
Innanríkisráðherrann Oscar
Scalfaro úr flokki kristilegra
demókrata skilaði Cossiga for-
seta stjómarmyndunarumboði
sínu í fyrrakvöld og sagði þá
fullreynt að ekki yrði komið sam-
an nýrri stjórn þeirra fimm flokka
sem starfað hafa saman síðustu
árin. Scaifaro var annar maður-
inn til að reyna þann möguleika
eftir að stjórnarkreppan hófst í
marsbyrjun, hinn fyrri, Giulio
Andreotti gafst upp eftir tæpan
mánuð.
Tilraunir Scalfaro til að mynda
minnihlutastjóm kristilegra dem-
ókrata með einhverjum fyrri
samstarfsflokka án sósíalista mis-
tókust einnig, og formaður
Kommúnistaflokksins tilkynnti
forsetanum í fyrradag að tilraunir
hans til að mynda stjórn án kristi-
legra demókrata hefðu einnig
siglt í strand.
í gærmorgun kallaði Cossiga
Ítalíuforseti því á Amintore Fan-
fani forseta öldungadeildar þing-
sins og bað hann mynda stjórn,
sem gert er ráð fyrir að sitji fram-
að kosningum í júní. Fanfani er
kristilegur demókrati rétt innan-
við áttrætt, hefur verið forsætis-
ráðherra fimm sinnum áður og
flokkast með helstu landsfeðr-
um. Búist er við að stjórn hans
verði hrein minnihlutastjóm
kristilegra demókrata að viðbætt-
um nokkrum embættismönnum
og athafnamönnum utanþings,
en verið gæti að Fanfani tækist að
lokka með sér einhvern smá-
flokkanna þriggja úr núverandi
stjórn.
Kristilegir demókratar tóku
fyrir allnokkru stefnuna á kosn-
ingar útúr stjómarkreppunni, og
aðrir flokkar hafa smám saman
hætt að þæfast á móti, enda allar
stjórnarleiðir reynst ófærar. Með
kosningum í júní vinna kristilegir
það að fresta verður fyrirhugaðri
þjóðaratkvæðagreiðslu um rétt-
arbætur og orkustefnu, en sú at-
kvæðagreiðsla var ásamt deilum
um forsæti bein orsök stjórnar-
kreppunnar. Helstu skýringu
öngþveitisins í Róm undanfarnar
sex vikur er þó að finna í valda-
baráttu kristilegra demókrata og
sósíalista undir forystu Bettino
Craxi, þar sem hinir síðamefndu
hafa gert harða hríð að hefð-
bundnu forræði hinna fyrmefndu
í ítölskum stjómmálum.
Kristilegir demókratar litu á
þjóðaratkvæðagreiðsluna sem
lymskugildru sósíalista og stjóm-
arandstöðu til að vega að fylgi
kristilegra þarsem flokkurinn
ætti erfitt með að skapa sér trú-
verðuga eigin stefnu í atkvæða-
greiðslunum, og splundraðist
ríkisstjómin þegar saman fór að
samstarfsflokkar kristilegra
reyndust tregir í taumi til sam-
eiginlegrar stjórnarafstöðu og
Craxi forsætisráðherra sýndi eng-
in merki þess að ætla að virða
samkomulag um að víkja fyrir
kristilegum demókrata.
Deilur stjómarflokkanna hafa
þótt svo harðar að lítill möguleiki
sé á að þeir nái saman eftir kosn-
ingar, og kynni Sósíalistaflokkur-
inn nú að breyta hingaðtil nei-
kvæðri afstöðu sinni til samvinnu
við hinn öfluga Kommúnista-
flokk um landstjórnina. En úr
slíku fæst ekki skorið fyrren eftir
kosningar.
Hinn aldni íhaldsmaður Amintore
Fanfani forsætisráðherra í sjötta
sinn; kjósendur kallaðir til að skakka
stjórnarkreppuleikinn.
Nýja-Kaledónía
Olía á eldinn
Stjórnarflokkarnir vilja atkvœðagreiðslu um sjálfstæði. Sósíalistar og
kommúnistar vara við átökum
Franska þingið samþykkti í gær
að íbúar Nýju-Kaledóníu
skyldu sjálfir ákveða í þjóðarat-
kvæðagreiðslu hvort eyjan segði
sig úr lögum við Frakkland eður
ei.
í nýlendunni búa hundrað
fjömtíu og þrjú þúsund manns og
Skák
Larsen og Ljubojevic efstir í BKissel
Kasparov stendur þó best að vígi, hefur betri biðskák gegn Short
Gamli refurinn Bent Larsen er í sem sigraði á IBM skákmótinu
banastuði á stórmóti einsog menn muna, er algert.
amli refurinn Bent Larsen er í
banastuði á stórmóti
skáksnillinganna í Bruessel. í
fjórðu umferð lagði hann Tim-
man að velli og í gær rúllaði hann
Belganum Meulders upp.
Júgóslavinn Ljubojevic er
einnig í góðu formi. í gær hefndi
hann ófaranna gegn Short á IBM
skáknótinu hér heima og í fyrra-
dag sigraði hann Belgann Win-
ants.
Einsog sakir standa em þessir
tveir skákmenn jafnir í efsta sæti
á mótinu með fjóra vinninga hvor
en Kasparov heimsmeistari er
ekki langt undan, hefur þrjá og
hálfan vinning og unna biðskák
gegn Short. Gæfuleysi Shorts,
Eftir fimm umferðir hefur hann
aðeins hlotið hálfan vinning.
Úrslitin úr fjórðu umferð vom
þessi: Larsen-Timman 1:0.
Kortschnoi-Torre 0,5:0,5.
Kasparov-Short bið. Ljubojevic-
Winants 1-0. Karpov-van der
Wiel bið (Karpov er með tapað!)
Tal-Meulders 1-0.
í fimmtu umferð gerðist það
helst, utan sigra Larsens og Lju-
bojevic, að Karpov og Kasparov
sættust báðir á skiptan hlut í
viðureignum sínum og Timman
knésetti Kortschnoi sem virðist
farið að fatast flugið eftir góða
byrjun.
Úrslit úr fimmtu umferð:
Short-Ljubo 0-1. Torre-
Kasparov 0,5-0,5. Winants-
Karpov 0,5-0,5. Timman-
Kortschnoi 1-0. van der Wiel-Tal
0,5-0,5. Meulders-Larsen 0-1.
Staðan er nú þessi: 1-2. Larsen
og Ljubojevic: 4 vinningar. 3.
Kasparov 3,5 v. + betri biðskák.
4-5. Kortschnoi og Timman 3,5v.
6. Tal 2,5 og ein skák til góða.
7-8. Karpov og Torre 2v. (Karp-
ov á lakari biðskák og eina ó-
teflda) 9. van der Wiel lv. + betri
biðskák. 10-11. Short og Winants
0,5v. (sem fyrr segir á Short á
lakari biðskák gegn Kasparov)
12. Meulders Ov.
-ks.
ári eftir að samningur um með-
aldrægar flaugar gengi í gildi.
Genfarviðræðumar um með-
aldrægar flaugar hafa strandað á
deilum um hinar skammdrægu,
sem vesturveldin segja að Sovét-
menn eigi miklu fleiri. Hingaðtil
hafa Sovétmenn sagt að fyrst yrði
að semja um meðaldrægu
flaugamar, síðan hinar skamm-
drægu, en með tilboði sínu nú
breytast enn viðhorf í Genfar-
viðræðunum.
Hvorki Shultz né aðrir tals-
menn vesturveldanna hafa rætt
um tilboð Kremlverja öðmvísi en
að segja það athyglisvert, en
vænta má skýrari svara eftir
Brussel-fundinn í dag. Frá bresku
stjóminni lak þó til fréttamanna í
gær að hún væri andvíg því að
Evrópa yrði án kjamorkuvopna
þarsem Sovétmenn stæðu miklu
betur að vígi í hefðbundnum her-
afla.
Bæði Shultz og Shevardnadze
lýstu yfir við blaðamenn í gær að
eftir fundina horfði mun væn-
legar fyrir samningum um með-
aldrægar flaugar, og sagði so-
véski utanríkisráðherrann að
mögulegt væri að ná slíkum
samningi á árinu. Ráðherrarnir
sögðu hinsvegar að lítt hefði mið-
að í viðræðum þeirra um lang-
drægar flaugar og um geimvopn.
Gorbatsjof fékk á fundi sínum
með Shultz skriflegt boð frá
Bandaríkjaforseta um Wash-
ington-heimsókn, en sagði að slík
heuimsókn yrði að hafa einhvem
tilgang, til dæmis þann að stað-
festa samkomulag úr Genfarvið-
ræðunum.
Moskvuheimsókn Shultz lauk
með því að utanríkisráðherramir
undirrituðu samning ríkjanna um
samvinnu í geimferðum, en ekki
er enn ljóst hvað þarí felst. -m
eru frumbyggjarnir, Kanakar,
nokkuð færri en innflytjendur frá
Frakklandi. Hins vegar er örari
fólksfjölgun meðal fmmbyggj-
anna og sýnt að innan fárra ára
verði þeir orðnir til muna fleiri en
Frakkamir.
Á þessa staðreynd bentu þing-
menn Sósíalistaflokksins og
Kommúnistaflokksins hvað eftir
annað í umræðunum um fmm-
varpið og vömðu ítrekað við því
að þjóðaratkvæðagreiðsla um
sjálfstæði eyjunnar, sem ugglaust
fer á þann veg að sambandssinnar
bera sigur úr býtum, myndi hella
olíu á eld illdeilna og átaka í milli
frumbyggja og Frakka. Sambúð
þeirra heftir verið róstusöm á um-
liðnum ámm því Kanakar krefj-
ast algers sjálfstæðis en innflytj-
endur vilja ekki ljá máls á slíku.
Prátt fyrir þessi rök var frum-
varpið samþykkt, sem fyrr segir,
með þrjúhundmð tuttugu og
fimm atkvæðum stjómarflokk-
anna tveggja og hægri öfgamanna
Þjóðfylkingarinnar gegn tvö-
hundrað fjömtíu og níu at-
kvæðum sósíalista og kommún-
ista.
-ks.
Costa Rica
Contraforingi
hættir
Einn af foringjum Contraliða í
Costa Rica, Alfonso Robelo að
nafni, tilkynnti í gær að hann
segði sig úr framkvæmdanefnd
hryðjuverkasamtakanna.
Ekki er nema mánuður liðinn
frá því að annar foringja Contra-
liða snéri baki við þeim, Arturo
Cruz, en þessir tveir þóttu hafa
skást mannorð af foringjum sám-
takanna og benti Reagan óspart á
að þeir væm til mótvægis við
öfgamenn á borð við Adolfo Cal-
ero þegar hann var önnum kafinn
við að Jcría fé út úr bandaríska
þjnginu til handa þessum mála-
liðum sínum.
Nú er svo að sjá sem Calero
hafi frjálsar hendur við stjóm
Contraliðanna en hann er frægur
að endemum fyrir störf í þágu
Anastasios Somozas fyrmm ein-
ræðisherra í Nicaragua. Flestir
undirmanna hans vom áður dátar
í hinu illræmda þjóðvarðliði
harðstjórans sem hatað var af al-
hug af íbúum landsins.
Astæða brotthvarfs Robelo og
Cruz kvað vera eindregin and-
staða Caleros gegn allri viðleitni í
þá átt að mynda borgaralega út-
lagastjóm Contrafylkingarinnar
sem hefði æðsta vald í málum
hennar, jafnt pólitískum sem
hemaðarlegum.
-ks.
ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 9