Þjóðviljinn - 16.04.1987, Qupperneq 2
P—SPURNINGIN-
Hvað hyggst þú fyrir um
páskana?
Svavar Guðmundsson,
leigubifreiðastjóri:
tg ætla að vinna og reyna að
slappa af eftirföngum. Ég skrepp
jafnvel á skírdag upp í sumar-
bústað.
Gerður Gestsdóttlr,
kosningasmali:
Ég verð á fullu yfir alla páska-
hátíðina í kosningabaráttunni. Á
skírdagskvöld stend ég ásamt fé-
lögum mínum fyrir kosningahátíð
ungs fólks í Alþýðubandalaginu.
Síðan er ætlunin að skreppa í
nokkrar heimsóknir og láta sér
líða vel.
Davíð Guðmundsson,
verslunarmaður:
Vinna og borða páskaegg. Ég
fer ekki neitt út úr bænum. Það
vinnst því miður ekki neinn tími
fyrir slíkt flandur.
íris Ingvarsdóttir,
starfsmaður á Grensásdeild:
Ég verð bara heima og reyni að
slappa af. Að venju verður
eitthvað um að maður fari í heim-
sóknir til vina og ættingja.
Katrín Stefánsdóttir, nemi:
Ríða út til Hveragerðis og aftur
heim. Vissulega verð ég ekki yfir
alla hátíðina í því. Ég hef hugsað
mór að vera einnig heima og hafa
það notalegt.
FRETTIR
Kosningabaráttan
Góðærið til fólksins
Fjörugurkosningafundur íHáskólabíói ávegum DV. ÁlfheiðurInga-
dóttir Abl.: Leggjum áherslu á að skila góðœrinu til fólksins
Kosningafundur DV í gær var
fjölsóttur og fjörugur. Fram-
bjóðendur allra flokka sem bjóða
fram í Reykjavík héldu framsögu-
ræður og svöruðu síðan fyrir-
spurnum frá áheyrendum, sem
Magnús Bjarnfreðsson fundar-
stjóri las upp.
Álfheiður Ingadóttir, sem
skipar 4. sæti G-listans í Reykja-
vík, gerði óspart grín að klofn-
ingnum í Sjálfstæðisflokknum,
og viðbrögðum krata og Fram-
sóknarmanna við því að „móður-
skipið væri með klofið stefni“
einsog hún orðaði það.
Hún sagði þessar hræringar
ekki skipta Alþýðubandalagsfólk
nokkru máli, enda legði það
áherslu á málefni en ekki menn.
Alþýðubandalagið vildi að góð-
ærinu væri skilað aftur til fólks-
ins, en því hefði verið stolið og
veitt til verslunar, banka og
hermangara.
Fyrirspurnir voru hvassar og
greinilegt að fólk hafði ýmislegt
að athuga við stefnu stjórnar-
flokkanna. Að loknum fyrir-
spumum héldu ræðumenn síðan
stutt lokaávörp.
-vd.
Skömmu eftir hádegi í gær kom upp eldur í íbúðarhúsi við Austurgötu 36 í Hafnarfirði. Enginn íbúa var heima þegar
eldurinn kom upp í stofu á efri hæð. Slökkvistarf gekk mjög greiðlega. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði Hafnar-
fjarðar er húsið þó mjög skemmt og allt innbú á neðri hæð þess gjörónýtt. Eldsupptök eru ókunn. Mynd E.ÓI.
Hafnarfjörður
Grunnskóla-
frumvarpinu
mótmælt
Völd skólastjóra
aukin á kostnað
kennararáða.
Ákvœði um
minnkandi kennslu-
skyldu eftir aldrifelld
niður
Á aðalfundi Kennarafélags
Revkjavíkur á dögunum var sam-
þykkt ályktun þar harðlega er
mótmælt ýmsum ákvæðum í nýju
frumvarpi fyrir grunnskólana
sem Sverrir Hermannsson hefur
látið vinna að.
KÍ-félagar telja mjög óeðlilegt
að í frumvarpinu skuli Reykjavík
hafa þá sérstöðu að vera ekki tal-
in fræðsluumdæmi og njóta þar
með ekki þjónustu fræðsluskrif-
stofu og fræðslustjóra.
Mótmælt er breyttum
ákvæðum um kennararáð og
auknum völdum skólastjóra á
kostnað kennararáða eins og
frumvarpið geri ráð fyrir. Einnig
mótmælir fundurinn að ákvæði
um minnkaða kennsluskyldu við
55 og 60 ára aldur verði felld nið-
ur svo og undanþáguákvæði í
frumvarpinu sem gerir ráð fyrir
allt að 34 nemendum í bekk.
Loks fagnar fundurinn því að í
frumvarpinu er gert ráð fyrir ein-
setningu í skóla við hönnun
skólahúsnæðis og segir í ályktun-
inni að það sé spor í rétta átt.
í hinni ályktuninni er því mót-
mælt harðlega að borgarstjóm
Reykjavíkur hefur neitað að fara
að tilmælum félagsmálaráðherra
um að endurskoða samþykkt
fyrir skólamálaráð Reykjavíkur.
Krefst fundurinn þess að
menntamálaráðherra og fél-
agsmálaráðherra sjái til þess að
borgarstjórn Reykjavíkur fari að
lögum um yfirstjórn skólamála í
borginni. nuig.
Samið við bæjarstarfsmenn
15%-16% meðaltalshækkun á launum bœjarstarfsmanna íHafnar-
firði. Nýtt starfsmat haft til hliðsjónar við röðun í launaflokka
Við þessa samninga var nýgert
starfsmat haft til hliðsjónar
að kröfu félagsins og með nýrri
röðun í launaflokka þýða þessir
samningar um 16% meðaltals-
hækkun til Starfsmannafélags
Hafnaríjarðar. l»eir gilda frá 1.
janúar 1987 og eru til þriggja ára,
sagði Guömundur Ámi Stefánss-
son bæjarstjóri í Hafnarfirði í
samtali við Þjóðviljann, en um
helgina var samið við bæjar-
starfsmenn í Hafnarfirði.
Þá vom einnig samþykktir
samningar við fjögur félög verka-
fólks sem starfa hjá bænum og
var samið við þau í einu lagi. Að
sögn Guðmundar er ætlunin að
hafa þann hátt á framvegis. Þessi
félög em Verkamannafélagið
Hlíf, Verkakvennafélagið Fram-
tíðin, Félag byggingarmanna og
Félag málmiðnaðarmanna. Sá
samningur gildir í hálft annað ár
frá 1. janúar að telja.
Meðaltalshækkun launa sam-
kvæmt samningnum er 15%.
„Þetta er byggt á þeim grunni
sem lagður var í heildarsamning-
unum í desember, lægstu laun
hækkuðu allverulega og bætt er
við álögum eftir ákveðinn ára-
fjölda í starfi,“ sagði Guðmund-
ur. „Strax í upphafi em þrjú þrep
og síðar á samningstímabilinu
fjölgar þeim upp í sex í áföngum.
Lægstu byrjunarlaun em núna
27.295 hjá verkakonum og í al-
mennum verkamannastörfum
28.249 en allur þorri okkar starfs-
fólks fer í um 29.000 krónur
minnst við þessa samninga.
Auk beinna launahækkana
vom gerðar breytingar á fæðisp-
eningum, fatapeningum og bætt
inn desemberuppbót.“
Samningarnir voru samþykktir
af meirihluta Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags í bæjarstjóm
en Sjálfstæðismenn sátu hjá á
þeirri forsendu að samningarnir
sprendu efnahagsramma ríkis-
stjórnarinnar.
-vd.
Kannski maður ætti að drífa sig
eitthvað í fríinu í staðinn fyrir að
hanga inni og horfa á imbann
garð
Til
dæmis
horfa
þar
°g
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 16. apríl 1987