Þjóðviljinn - 16.04.1987, Síða 5
Kvöldstund með Hauki
Morthens á Vin og Ölgod
í Kaupmannahöfn
w«u«o
Den kendte
islandske entortakter
og
jazmngar
Uv
HntkaB
fortsætter i hele
jmú&mit&íL
Skindersnde 45 • Tlf. Ql 13 Z6 Z5
Tungumálaerfiðleikar há ekki Hauki Morthens þegar hann sveiflar sér I Lóu litlu á Brú. Mynd K.ÓI.
Alltaf gaman að mula fýrir fólk
Þegar maður gengur niður
tröppurnar á Vin og Ölgod er
eins og maður sé staddur í bæ-
verskum bjórkjallara. Fánaborg-
ir sem slúta fram í víðan salinn og
bústnar þjónustustúlkumar em
ekki bara eins klæddar og bæ-
verskar stöllur þeirra, heldur
standa þeim fyllilega á sporði í
þeirri list að bera fram tíu bjórk-
ollur í hvorri hendi. Maður á
helst von á því að sjálfur Franz
Josef Strauss sitji við eitt lang-
borðið með stóra bjórkollu en þá
mætir okkur annað kunnuglegt
andlit og kunnugleg rödd: Sjálfur
Haukur Morthens lyftir okkur úr
hinu bæverska umhverfi og
„suður um höfin - að sólgylltri
strönd”.
Á hverju kvöldi í febrúar og
mars hefur Haukur Morthens
sungið á hinum vinsæla stað Vin
og Olgod sem margir íslendingar
þekkja. Þegar við litum þar inn
eitt fimmtudagskvöldið var salur-
inn að mestu fullur og bar þar
mest á hópi hermanna í orlofi og
nýbökuðum bakarasveinum.
„Stemmningin er venjulega ekki
svona villt,” sagði Haukur og
horfði með umburðarlyndum
svip yfir glaðværan hópinn.
Dreymdi aldrei um
heimsfrægð
„Mér finnst alltaf gaman að fá
tækifæri til að raula í Kaupmann-
ahöfn. Hér á Vin og Ölgod er
eilíft stuð, en ég verð þó að segja
að ég kann betur við dans-
stemmninguna sem maður upp-
lifir frekar heima á íslandi. Á
þessum stað söng ég fyrst 1983 og
aftur 1986 og í sumar stendur til
að ég spili með íslenskum strák-
um sem ég hef oft raulað með
áður. Ég kynntist eigendunum
fyrir tíu árum, yndisleg hjón.
Hann er mikill íslandsvinur og
þegar hann heyrði mig syngja
vildi hann strax ráða þennan
glæsilega söngvara,” sagði
Haukur og hló léttum prakkara-
hlátri.
„Ég söng fyrst í Kaupmanna-
höfn árið 1954, á stað þar sem nú
er Copenhagen Comer. Þar
kynntist ég m.a. Jörgen
Graungaard, þekktum gítar-
leikara og hljómsveitarstjóra og
þeir strákamir spiluðu á annað
hundrað laga með mér inn á
plötur. Ég söng í útvarpið sem
þótti merkilegt á þeim tíma og ég
fór í hljómleikaferðalög um
Norðurlönd, til Moskvu og
víðar.”
Stóð ekki til að gera áfram út á
alþjóðamarkað? Dreymdi þig
ekki um heimsfrægð, Haukur?
„Nei. Reyndar bauðst mér
samningur við RCA um alþjóð-
lega plötuútgáfu og hljómleika-
ferðir víða um lönd, en þá var ég
nýbúinn að stofna fjölskyldu og
okkur hjónunum fannst að þetta
tvennt gæti ekki samræmst. Ég er
fyrst og fremst ánægður með að
fá að raula og að fólk kemur að
hlusta á mig. Ég hef aldrei skipu-
lagt starf mitt lengra en eitt ár
fram í tímann. Þegar ég lít yfir
feril minn hefur hann skipst í
tímabil þar sem ég hef stundum
verið mikið í sviðsljósinu og á
öðrum tímabilum hefur borið
minna á mér og ég hef einkum
sungið í einkasamkvæmum og á
minni stöðum.”
Vinsældir þínar virðast ekki
bundnar við eina kynslóð. Þú átt
alltaf þín comeback.
„Ja... það kom mér til dæmis á
óvart þegar ég var beðinn um að
spila á balli í Hamrahlíðarskólan-
um fyrir um áratug. Mér fannst
þetta hljóta að vera alger tíma-
skekkja, en við vorum ekki fyrr
famir að spila en dansgólfið
fylltist og þannig var það það sem
eftir var kvöldsins. Svo upplifði
ég það um daginn að hingað
komu tveir feðgar sem þökkuðu
mér fyrir í pásunni. Ég hefði get-
að verið pabbi þeirra beggja.”
Til eru fræ...
Finnst þér stemmningin vera
öðra vísi nú en þegar þú söngst
hér fyrst fyrir röskum þrjátíu
árum?
„Þótt ég sé að miklu leyti að
syngja sömu lög og þá, þá er
stemmningin öðru vísi. Fólk
dansaði meira og hlustaði meira
eftir því sem var að gerast.”
„Annars held ég að staður eins
og Vin og ölgod mundi eiga upp
á pallborðið heima. Fólk mundi
aldeilis ffla svona stemmningu,
en staðurinn þyrfti ekki að vera
svona þýskur. En... það vantar
bara þetta,” sagði Haukur og
benti á nálægar bjórkollur.
Þetta spjall okkar fór fram í
einni fjörutíu mínútna pásu
Hauks, en á hverjum klukkutíma
syngur hann í tuttugu mínútur.
Þótt Haukur hafi gaman af að
raula, lítur hann á raulið sem
vinnu. Hann er í stéttarfélagi tón-
listarmanna og vinnur samkvæmt
reglum þess. „Við verðum að
fara í pásu. Við erum í verka-
lýðsfélagi.” Enda hefur Haukur
varðveitt röddina betur á næstum
fimmtíu ára söngferli en margir
yngri kollegar hans á fáum árum.
Fimmtudagur 16. aprfl 1987 ÞJÓDVIUINN - SÍÐA 5
Nú er pásan búin og Haukur
kveður okkur jafnljúfmannlega
og hann tók okkur eins og hann
tekur öllum íslendingum sem
heilsa upp á hann á Vin og Ölgod.
Við spyrjum hann hvort það
verði íslenskt lag í næstu lotu og
Haukur tekur því ekki ólíklega.
Það brjótast út fagnaðarlæti þeg-
ar Haukur stígur á sviðið og
innan skamms standa allir upp á
bekkjum og vagga arm í arm um
leið og þeir taka hástöfum undir f
dönskum slögurum. Við erum að
tygja okkur til brottferðar þegar
við heyrum mildari tóna frá svið-
inu. Með allri þeirri tilfinningu
sem Hauki einum er lagið að
gæða þetta lag, syngur hann „Til
eru fræ” og seiðir ástfangin pör á
öllum aldri út á gólfið í svífandi
dans.
Kaupmannahöfn
-K.Ól./GG