Þjóðviljinn - 16.04.1987, Blaðsíða 6
Samnefnari allr
Það er hálfgerður rigningar-
suddi, en samt brosir sólin út í
annaðámilliskýja, líktog
kominn sé kosningagalsi í
vorið. Á kosningaskrifstofu Al-
þýðubandalagsins er allt á
hreyfingu, og þegar ég rek inn
nefið og segist ætla að ræna
formanninum í páskaviðtal
kemur strangur svipur á Þór-
unni kosningastjóra. „Það
verður að vera stutt“, segir
hún. „Hanneraðfaraávinnu-,
staðafund."
Formaðurinn lætur sér hins
vegar ekki bregða, situr afslapp-
aður með fætuma upp á borði og
er að tala í símann. Hann hlær
bara þegar ég spyr hvort ekki sé h
ægt að fá hann afsíðis til að ræða
málin. „Þetta eru bara Svíar,“
segir hann þegar símtaiinu er lok-
ið og bendir hendinni til manna
sem tala annarlegar tungur og eru
á þönum um skrifstofuna með
sterk ljós og kvikmyndatól um
öxl. „Góðir kratar sem dytti
aldrei í hug að kjósa Jón Baldvin
eftir að heyra hvaða afstöðu hann
hefur til kjarnorkuvopnalausra
Norðurlanda.“
Við drögum okkur afsíðis og
Svavar býður upp á firnasterkt
kaffi. „Við þurfum að vera raun-
sæ“, segir hann alvarlegur í
bragði. „ Staða Alþýðubanda-
lagsins hefur að mörgu leyti verið
þung. En mér hefur þótt vænt um
hvernig menn hafa síðustu vik-
urnar lagt sig fram um allt land í
vinnu fyrir flokkinn. Og það segir
raunar meira en flest annað um
hvers konar fólk er í Alþýðu-
bandalaginu, að þrátt fyrir vissan
málefnaágreining sem hefur ver-
ið uppi þá hafa menn lagt hann til
hliðar og beitt sér saman fyrir
gengi þeirra hugsjóna sem gera
það að verkum, að þeir eru þó
þrátt fyrir allt samherjar í sama
flokki.“
Landið að rísa
Og Svavar minnir á, hvernig
ástandið er í stjórnarflokkunum,
sem hæst hafa galað um ósam-
lyndið í Alþýðubandalaginu.
„Báðir klofnir - íhaldið bókstaf-
lega ofan í rót og Framsókn með
Stefán Valgeirsson útbyrðis, auk
þess sem efstu menn listans í
Reykjavík eru ekki beinlínis nán-
ir. Þeir sjást að minnsta kosti ekki
saman á vinnustöðunum.
Svavar kveðst hins vegar von-
góður um niðurstöðu kosning-
anna. „Ég get auðvitað ekki sagt
annað en ég er ekki ánægður með
niðurstöðu skoðanakannana.
Þær hafa verið að gefa okkur
þetta 10 - 15 prósent síðustu
daga. Mér finnst það algerlega úr
takti við þær móttökur sem við
höfum fengið í kosningabarátt-
unni til þessa.“ Og Svavar rifjar
upp kosningabaráttuna 1983,
þegar Alþýðubandalaginu var
spáð 10 prósentum viku fyrir
kjördag. „Prósentin urðu nú
næstum því 18 þegar talið var upp
úr kjörkössunum. Það er nefni-
lega ekki alltaf að marka skoð-
anakannanir. Og það er bláköld
staðreynd, að Alþýðubandalagið
kemur alltaf mun betur út úr
kosningum en kannanir hafa gef-
ið til kynna.“
Hann telur líka að landið sé að
rísa fyrir flokkinn. „Það er ekki
nokkur vafi á því“, segir hann
einbeittur. „Móttökurnar á
vinnustöðum hér í Reykjavík
eru, í einu orði sagt, frábærar.
Við erum búin að fara á hátt í 150
vinnustaði, og frá byrjun verið
mjög vel tekið. Mótttökurnar
hafa meira að segja batnað enn
meir síðustu daga, og mér finnast
þær miklu betri en til að mynda
fyrir kosningarnar 1979 og 1983.
Þessvegna held ég að við höfum
nú möguleika til að koma mun
betur út úr þessum kosningum en
við höfum talið um langt skeið.“
Góð kosningavinna
- Skoðanakannanir staðfesta
þó ekki beinlínis þessa skoðun
þína, Svavar. Á hverju byggirðu
þetta?
„Til dæmis á því að staðan í
hinum ýmsu kjördæmum hefur
óvéfengjanlega verið að batna
upp á síðkastið. Ég nefni þar til
dæmis sérstaklega Suðurland,
þar sem Margrét Frímannsdóttir
hefur verið í verulegri sókn og
styrkt sig mjög á framboðsfund-
um í kjördæminu. Ég nefni líka
Norðurland eystra og Austurland
en á þessum tveimur stöðum eru
verulega góð sóknarfæri. Ég veit
að það er vel unnið á Norðurlandi
vestra, og á Vestfjörðum gera fé-
lagarnir allt sem þeir geta við til-
tölulega erfiðar aðstæður. Á
Reykjanesi getum við líka gert
okkur vonir um góða útkomu í
þessum kosningum og á Vestur-
landi er mjög vel unnið líka.“
- Hvað með Reykjavík?
„Þar er erfiðara að sjá í gegn-
um þessa hluti. En hitt erljóst, að
móttökurnar sem málflutningur
Alþýðubandalagsins fær á vinnu-.
staðafundum er þess eðlis, að það
er full ástæða til bjartsýni. Og ég
minni á, að miðað við útkomuna í
borgarstj órnarkosningunum
1983 þurfum við ekki að bæta við
okkur nema einu prósenti. - bara
einu prósenti - til að fá Alfheiði
Ingadóttur kjörna á þing. Og það
er svo sannarlega hægt svo fremi
allir fylgismenn flokksins í
Reykjavík vinni sem einn maður
fyrir flokkinn fram á síðustu
stund.“
Tengslin við
verkalýðs-
hreyfinguna
Hvernig hefur þá staðið á því að
Alþýðubandalagið hefur ekki
verið í sókn á kjörtímabilinu,
þrátt fyrir óvinsœlar stjórnarað-
gerðir gagnvart launafólki? Ég
spyr Svavar að þessu og hann
hleypir í brýrnar.
„Eg tel að helsta ástæða þess sé
sú, að okkur tókst ekki í upphafi
kjörtímabilsins að koma í veg
fyrir að kjör launafólks voru bók-
staflega tætt niður með lagasetn-
ingu afturhaldsins. Baráttuþrek
verkalýðshreyfingarinnar var í
upphafi brotið niður, - öðru vísi
er ekki hægt að orða það.“
Við ræðum þetta fram og aftur
nokkra stund. Svavar segir, að
árásin á verkalýðshreyfinguna á
kjörtímabilinu, og hversu van-
megnug vinstri hreyfingin í
landinu var að hrinda henni, hafi
orðið flokknum dýrkeypt.
„Þarna er í rauninni megin-
ástæðan fyrir því hversu erfiðlega
okkur hefur gengið að ná upp al-
mennilegum dampi í baráttunni á
þessu kjörtímabili. Og það er
auðvitað þessvegna sem ég lagði
á það ofurkapp á landsfundinum
1985 að haga málum þannig, að
Alþýðubandalagið og verkalýðs-
hreyfingin næðu betur saman en
verið hafði um langt skeið.
Vegna þess að til þess að byggja
upp sterkt afl vinstri manna í
þessu landi, þá verður að standa
hlið við hlið öflugur og baráttu-
glaður flokkur og lifandi verka-
lýðshreyfing og hér er ég ekki að
tala aðeins um ASÍ. Félög opin-
berra starfsmanna og kennara
hafa staðið sig frábærlega í bar-
áttunni oft á tíðum, og frammi-
staða sjúkraliðanna var blátt
áfram glæsileg."
Vörn gegn
verðbólgu
- Nú er ekki ólíklegt að Alþýðu-
bandalagið kunni að taka þátt í
myndun ríkisstjórnar að kosning-
um loknum, Svavar. Hefur flokk-
urinn mótaðar hugmyndir um
hvaða mál verða sett á oddinn cetli
aðstœður flokknum hlut að ríkis-
stjórn?
„Vitaskuld", segir formaður
Alþýðubandalagsins. „Ég hef
lagt áherslu á eftirtalda megin-
þætti sem grundvöll að stjórnar-
þátttöku flokksins.“
„í fyrsta lagi að launafólk og
hin félagslega þjónusta verði var-
in fyrir verðbólguvandanum. Það
vil ég gera með því að afla tekna í
ríkissjóð af fyrirtækjum, stór-
eignaaðilum og fjármagnseig-
endum í þjóðfélaginu, með því að
efla verðlagseftirlit, lækka vexti
og minnka erlendar lántökur.“
„Flokkur á borð við Alþýðu-
bandalagið hlýtur í öðru lagi að
gera tafarlausa kröfu um félags-
legar aðgerðir á mörgum sviðum,
sem þola enga bið. Ég nefni til
dæmis húsnæðiskerfið. Þangað
verða að fara peningar strax. Og
hvað með elli- og örorkulífeyri,
sem er núna heilum 4 þúsund
krónum lægri en lágmarkslaun?
Er hægt að réttlæta það með ein-
hverjum rökum? - Auðvitað
ekki! Alþýðubandalagið færi
aldrei í stjórn nema tekið væri á
þessu óréttlæti. Því get ég lofað.
Ég nefni líka áætlun um fram-
kvæmdir í þágu aldraðra og sam-
svarandi áætlun um framkvæmd-
ir í þágu fatlaðra.“
„Jafnframt er svo alveg ljóst,
að Alþýðubandalagið myndi á
vettvangi ríkisstjórnar gera kröfu
um stórhækkuð framlög til menn-
ingarmála. í því sambandi er ekki
úr vegi að minna á, að Guðrún
Helgadóttir og aðrir félagar okk-
ar úr flokknum stóðu fyrir mjög
myndarlegri ráðstefnu einmitt
um þetta atriði, menningu og
stuðning hins opinbera við hana.
Þangað kom menntamálaráð-
herra meðal annars, enda vísast
ekki vanur því að slíkar stefnur
séu haldnar í hans eigin flokki.“
Nýtt skattakerfi
„í þriðja lagi myndum við gera
kröfu um nýtt skattakerfi, þar
sem fyrirtækin yrðu knúin til að
bera mun þyngri byrðar en þau
gera nú. Hugsaðu þér, fyrirtæki
hér á landi bera um 2 prósent af
kostnaði ríkissjóðs meðan
sambærileg tala í Bandaríkjun-
um, sem þó eru ekki beinlínis
þekkt fyrir að sækja hart að
einkaframtakinu, er 7 prósent.“
„Við hljótum líka að leggja
áherslu á breytingar á kerfi hina
svokölluðu óbeinu skatta. Þar
höfnum við alfarið hugmyndinni
um virðisaukaskattinn, en viljum
að tollakerfið sé allt endurskoðað
og sömuleiðis fyrirkomulag sölu-
skatts."
„Og gleymdu ekki byggðamál-
unum. Aldrei hefur verið sorfið
fastar að landsbyggðinni og í tíð
þessarar ríkisstjórnar, sem er þó
undir formlegri forystu Fram-
sóknarflokksins. í byggðamálum
og sjávarútvegsmálum er
h'fsnauðsynlegt að snúa vörn í
sókn.“
„í fjórða lagi verður ríkisstjórn
með aðild Alþýðubandalagsins
tafarlaust að hefja nýja sókn í at-
vinnulífinu. Ég tel mjög brýnt að
góðærinu sé meðal annars varið
til að búa í haginn fyrir framtíð-
ina, - til að byggja hér upp nýjan
hátækniiðnað. Tökum líftækni
sem dæmi. Hún er grein, sem
vissulega mun ekki skila miklum
arði strax. En hún er grein fram-
tíðarinnar, atvinnugrein næstu
aldar. Við verðum vitaskuld að
undirbyggja hana strax til að
næstu kynslóðir getið notið
ávaxtanna af þeim sérstöku og
sérstæðu möguleikum sem ein-
mitt fsland hefur upp á að
bjóða.“
„Ég vil verja verulegum fjár-
hæðum til að væða hefðbundnar
atvinnugreinar nýrri tækni og
lyfta þannig framleiðni á miklu
hærra stig. Jafnframt þarf svo að
leggja góðan grundvöll að nýjum
atvinnugreinum. Þess vegna hef
ég kynnt hugmynd að nýjum þró-
unarsjóði fyrir atvinnulífið, sem
ekki einasta á að stuðla að ný-
breytni í atvinnulífinu, heldur
ekki síður að markaðsvinnslu og
vöruþróun. Það er nefnilega svo,
að íslenskir kapítalistar virðast
oft eiga erfitt með að skilja, að
það er ekki bara nóg að framleiða
vöruna, - það þarf líka að selja
hana á góðu verði. “
Kjarnorkuvopna-
laus Norðurlönd
„í fimmta lagi mun Alþýðu-
bandalagið leggja höfuðáherslu á
utanríkismálin. Við leggjum
einsog jafnan áður mikla áherslu
á stefnubreytingu í utanríkismál-
um þjóðarinnar. Þannig viljum
við afdráttarlausa uppsögn og
endurskoðun á herstöðvasamn-
ingnum taki flokkurinn þátt í rík-
isstjórnarmyndun. Jafnframt er
auðvitað alveg ljóst, að einungis
þátttaka Alþýðubandalagsins í
ríkisstjórn getur tryggt að ísland
verði hluti af kjarnorkuvopna-
lausum Norðurlöndum. - Ertu
reiðubúinn til að leiða Alþýðu-
bandalagið til samstarfs við hvaða
flokk eða flokka sem er til að ná
þessum málum fram?
„Þátttaka Alþýðubandalagsins
í ríkisstjórn mun ráðast af mál-
efnum. Fari svo, að unnt verði að
ná samstöðu um málefnagrund-
völl ríkisstjórnar, sem er í viðun-
andi samræmi við okkar stefnu-
skrá, þá hljótum við auðvitað að
hugsa okkur um tvisvar áður en
þeim möguleika er varpað á glæ. “
Svavar Gestsson formaður
Alþýðubandalagsins í
viðtali við Þjóðviljann
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN PÁSKAR 1987