Þjóðviljinn - 16.04.1987, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 16.04.1987, Blaðsíða 14
Hverju skal klœðast Þótt Vatnajökull hafi verið minni á 16. öld er nú verður manni hugsað til ferðalanga og vermanna sem genggu yfir frer- ann á skinnskóm og í vaðmáli. Þótt ullin sé góð var skjólfatnað- ur í þá tíð illa vatnsheldur og óþjáll og skórnir glerhálir. Þegar leðuskór, stundum með gróf- negldum sóla, tjöld úr lérefti eða segldúk og tjörubornar skjólflík- ur komu til sögunnar rættist nokkuð úr. En misjafn ferðabún- aður hefur vafalítið valdið því að hálendi íslands og óbyggðir voru seint fullkannaðar. Fram til 1960 voru framfarir hægar í ferðabúnaði. Til dæmis voru bakpokar hálfgerð mannd- rápstæki undir þungar byrðar fram til þeirrar tíðar. Burðarpok- ar úr gerviefnum og áli, þaullag- aðir að hrygg berandans gera mönnum nú kleift að ganga góða dagleið með 15-25 kg á bakinu. Tvöfaldir plastskór og Goretex- skjólefni sem hleypir út uppguf- un en heldur frá vatnsdropum eru nánast nýjungar. Og til er Biosorbin-duft sem tryggir þrek- raunamanni næga næringu dag- langt ef hann neytir 300-400 gramma af því hrærðu út í 1-2 lítra af volgu vatni. Yfirleitt hafa ferðamenn eigin reynslu og oft sérvisku sína að miða við þegar þeir velja sér ferð- abúnað. Mínar ráðleggingar verða því bæði almennar leiðbeiningar og uppsöfnuð sér- viska. Best er líklega að prófa sig áfram sjálfur. Algengustu greinar útivistar á veturna, að svigskíðamennsku frátalinni, eru skíðagöngur, gönguferðir um óbyggðir, en þá á láglendum svæðum, og svo vetrarfjallgöngur. Færri þeysa um á vélsleðum eða torfærut- röllum eða klífa klakaða hamra. Orðin sem hér fara á eftir eiga fyrst og fremst að höfða til þeirra sem hyggja á hinar algengu ferðir til útiveru að vetri til. Með hækk- andi sól fara æ fleiri á kreik. Þótt sumt af útbúnaðinum sé sameiginlegur öllum ferðunum fjalla ég um útbúnaðinn í þremur afmörkuðum köflum. Skíðað um grundir og brekkur Skíðagöngumaðurinn ætti iflötur hans og þunn prjónahúfa eða lambhúshetta hefur þann kost að hana er hægt að taka ofan og setja upp eftir því sem menn Um páskana leggja margir land undir fót og margir leita út í óbyggðirnartil að upplifa náttúruna sem enn er í vetrarbúningi þó vorið sé skammtundan. Þóbjartséyfirtil byggöa og komið fram í miðjan apríl er samt aldrei of oft brýnt fyrir mönnum að útbúa sig vel til allra slíkra ferða því fljótt geta veðu r skipast í loftu m. Ari Trausti Guðmundsson tók saman þennan pistil um vetrarferðirog hvaða útbúnað nauðsynlegt er að hafa í slíkar ferðir. Þá hefur Landssamband hjálparsveita skáta sent frá sér pistil til ferðamanna. endilega að hyggja að því að vera ekki of mikið klæddur. Þess vegna ber hann lítinn bakpoka með aukafatnaðinum, nestinu og ýmsum aukahlutum (stormgler- augum, varasmyrsli, áttavita, korti, blístru og álpoka). Auðvit- að þarf ekki að taka sumt af þessu með ef gengið er á upplýstri braut eða á heimaslóðunum. Nesti er nauðsyn ef ferðin tekur meira en 2-3 stundir og menn eiga ekki innangengt í veitingasölu eða vilja ekki nýta sér slíkt. Myndar- leg samloka og heitur drykkur dugar til hálfs dags ferðar. Yfirleitt er óþarft að klæðast föðurlandi innst fata á skíðag- öngu. Mjög þunn ullarnærföt eða vindbuxur yfir skíða- eða hné- buxur duga lang oftast. Skíða- buxurnar umræddu eru t.d. síðar íþróttabuxur úr „stretch”-efni (teygjuefni) en margir vilja held- ur hnébuxur með tilheyrandi hás- okkum. Skíðagöngumaðurinn notar fremur tvær þunnar peysur en eina þykka og hann klæðist jafn- an vindþéttum jakka eða hettu- úlpu (anorak). Höfuðfater nauð- syn. Höfuð manns er virkasti kæl- roðna af áreynslunni. Á höndun- um er best að hafa þunna fingra- vettlinga úr ull og hlífðarvettlinga (t.d. úr næloni) yfir og áreiðan- lega eitt aukapar í bakpokanum. Til eru fjölmargar tegundir af gönguskíðaskóm, allt frá ofur- léttum og þunnum keppnisskóm til loðfóðraðra hnalla með mynstruðum sóla. í dagsferðir duga oftast einfaldir ófóðraðir skór. Þar sem brautir vantar koma litlar legghlífar sér vel til að halda snjó úr skónum. Vetur er góður til göngu Menn hafa fyrir löngu sannfærst um að engin ástæða er til að leggja gönguskóna á hilluna yfir vetrarmánuðina. Að vísu mega strigaskór, gúmmístígvél og sléttbotna götuskór verða eftir heima, alla jafna. Best er að nota þjála gönguskó með svokölluð- um Vibram-sóla til að fóta sig í snjó, hjarni og hálu grjóti, þótt hvergi sé sótt í fjöll. Undantekn- ingarlítið eiga legghlífar að vera með í bakpokanum ómissandi. Þar er einnig aukapeysa, vind- buxur ef vindhraði (heima fyrir) er umtalsverður og smádót eins og álpoki, gleraugu og vara- smyrsli auk korts/áttavita. Varð- andi áttavitann kemur tvennt til: Menn þurfa að kunna að nota tækið og stundum er engin ástæða til að hafa hann með: Á sólbjörtum degi í Heiðmörk eða Kjarnaskógi svo dæmi séu nefnd. Úrval bakpoka, 10-30 ltr. (mæli- kv. á rúmtakið) tryggir að allir finna skjatta við sitt hæfi. Göngumaður hreyfir sig minna en skíðamaður og þarf að klæðast hlýrri fötum en hann. Þetta á við um nærföt og hlífðarföt og ekki hvað síst um ómissandi höfuðfat. Hettur úr silki hafa t.d. reynst vel í bland við ullarfrollur sem alltaf má sækja í pokann ef kólnar mjög. Lopavettlingar eru góðir og verða enn betri ef menn fá sér hlífðarvettlinga til að skýla ull- inni. Gagn hennar felst nefnilega í rýminu milli þráðanna en þar geymist hlýtt loft ef ekki gustar þeim mun meira um gripinn. Bestar (og dýrastar) eru lúffur úr Goretex, þunnar og ófóðraðar til hlífðar. í gamla daga gengu menn með broddstaf að vetri. Nú er hann aflagður. Meðan ekki þarf að nota mannbrodda vegna bratta kemur einn skíðastafur (eða jafnvel tveir) sér ótrúlega vel á vetrargöngunni. Allar dúnúlpur af þykkari gerðinni eru of hlýjar til frísklegrar göngu enda gerðar til annars, t.d. háfjallaferða. Þunnar úlpur og ýmis konar stakkar reynast betur til brúks í láglendisgönguferðir. Norskir og sænskir léreftsstakkar eru tiltölu- lega ódýrir. Þeir eru þó hvorki jafn vel vind- og vatnsheldir og ýmsir gerviefnastakkar, einkum Goretex-flíkur. Tvöfaldir gervi- efnastakkar með örþunnu ein- angrunarefni á milli laga (t.d. Thinsulate) eru mjög hlýir, - en um leið harla dýrir. Fjöltin breyta um svip Fjallgöngur að vetri til eru skemmtileg dægradvöl og öllum færar. Þá á ég við göngur á fjöll auðveld viðureignar; fjöll sem Landið er ekki síður fagurt að vetri til og eðlilega leggja því margir í fjallaferðirnú um helgina. Mikilvægteraðallur ferðaútbúnaður sé í sem bestu lagi, slíkt getur bjargað mannslífi. PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN Nám fyrir afgreiðslumenn á fjarstkiptastöðvum stofnunarinnar Nemendur veröa teknir í nám í fjarskiptaaf- greiðslu og til framtíðarstarfa nú í vor. Umsækjendur skulu hafa lokið stúdentsprófi eða hafa sambærilega menntun og gangast undir inntökupróf í ensku, dönsku og íslensku. Almennrar heilbrigði er krafist, sérstaklega er varðar heyrn, sjón og handahreyfingar. Námið hefst með fjögurra vikna námskeiði í maí- júní nk. en eftir það verður starfsnám á vinnustað, loftskeyta- eða ritsímastöð í sumar. Áframhald verður á bóklegu námi í haust og eftir það starfsnám til námsloka. Umsóknir, ásamt prófskírteini eða staðfestu Ijós- riti af því, sakavottorði og heilbrigðisvottorði, ber- ist Póst- og símaskólanum fyrir 1. maí nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Póst- og símaskólanum, Sölvhólsgötu 11, Reykjavík, hjá dyravörðum Landsímahúss og Múlastöðvar og ennfremur á póst- og símstövum. Nánari upplýsingar eru veittar í Póst- og síma- skólanum í síma 91-26000. Farsœl Nokkuratriði til athugunar áður en þú leggur fann frá Landssambandi hjálparsveita skáta Lágmarksbúnaður fyrir ferðalanga: Hlý klæði, skjólfatnaður, áttaviti, landakort, flauta, álpoki og sólgleraugu til varnar snjóbirtu. 14 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN PÁSKAR 1987 Fyrirhyggja er besta tryggingin sem ferðalangar geta gefið sér fyrir farsælum ferðalokum. Þeir sem ætla í ferð - hvort heldur stutta eða langa- ættu að hyggja að nokkrum atriðum til að vera viðbúnir óvæntum skakkaföllum. Auk hlýrra klæða og litríks skjól- fatnaðar ættu allir ferðamenn að hafa í farteskinu landabréf, átta- vita, flautu og/eða pennaneyðar- byssu, sólgleraugu til að verjast snjóblindu, álteppi og orkuríkt neyðarsnarl s.s. súkkulaði, hnet- ur og rúsínur. Sólgleraugu eru einnig nauðsynleg til að verjast snjóblindu. Eins og sjá má er þetta hvorki þungt né fyrirferðar- mikið en getur skipt sköpum. Venjum okkur á góða siði á ferðalögum - verum viðbúin því óvænta. Áður en lagt er af stað ætti skil- yrðislaust að setja ferðaáætlun

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.